Morgunblaðið - 27.03.2001, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 27.03.2001, Blaðsíða 19
VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2001 19 Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri til Suður Afríku um páskana, vinsælasta ferðamannastaðar í Suður Afríku og einnar fegurstu borgar heimsins. Beint flug með Atlanta flugfélaginu til Cape Town, 8. apríl og 7 daga dvöl í borginni þar sem í boði eru spennandi kynnisferðir með íslenskum fararstjórum 14 Viðbótasæti Stökktu til Suður Afríku um páskana frá kr. 49.950 Verð kr. 49.950 Verð á flugsæti með sköttum. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is The RITZ HOTEL *** CAPE TOWN-DE WAAL - Holiday Inn **** Við bjóðum einnig gott úrval hótela í hjarta Cape Town. RÍKISSJÓÐUR gaf í gær út skuldabréf að fjárhæð 250 milljónir evra, sem jafngildir um 20 millj- örðum íslenskra króna. Lánstími er 5 ár og vextir 5 punktum undir euribor. Útgáfugengi bréfanna er 99,947 og þóknun banka af útgáfu- fjárhæð er 0,15%. Lántökukostn- aður liggur því undir euribor-vöxt- um, sem eru millibankavextir á evru-svæðinu. Ólafur Ísleifsson, framkvæmda- stjóri alþjóðasviðs Seðlabanka Ís- lands, segir að góð kjör lánsins séu til marks um traust markaðarins á útgefandanum og að andvirði þess renni að stærstum hluta til að end- urfjármagna skuldabréf frá 1996 að fjárhæð 350 milljónir þýskra marka. Aðalumsjón með útgáfunni hafði Dresdner Bank, en aðrir bankar sem komu að henni eru Salomon Brothers, Commerzbank, Nomura Bank og SE Banken. Skuldabréfin eru gefin út á grundvelli nýs MTN- útgáfusamnings ríkissjóðs (Medium Term Note programme), sem leyfir að útistandandi sé samtals einn milljarður bandaríkjadala. „Með nýjum útgáfusamningi er stigið stórt skref til að tryggja rík- issjóði samningsbundinn aðgang að helstu lánamörkuðum og breikka hóp fjárfesta í bréfum ríkissjóðs,“ segir Ólafur. „Umsýsla með er- lendu lánasafni ríkissjóðs verður einfaldari. Hámarksfjárhæðin í samningnum er ekki langt frá sam- anlögðum erlendum langtímalánum ríkissjóðs. Með tímanum má reikna með því að erlendar skuldir rík- issjóðs færist undir þennan samn- ing að svo miklu leyti sem þær eru ekki greiddar upp. Hinn nýi samn- ingur markar ánægjuleg tímamót fyrir ríkissjóð. MTN-samningur hefur áður komið til álita en við ríkjandi aðstæður var talið að rétti tíminn væri kominn til að ráðast í gerð slíks samnings. MTN-samn- ingur skapar aukinn sveigjanleika við lánsfjáröflun. Hægt er að gefa út á grundvelli hans á opinberum markaði eða á formi einkaútgáfu.“ Miðlarar í hinum nýja útgáfu- samningi eru Salomon Brothers, Dresdner Bank, UBS, Daiwa Sec- urities og SE Banken. Útgáfu rík- issjóðs var mjög vel tekið á markaði og eru öll bréfin seld. Mikillar eft- irspurnar gætti frá þýskum fjár- festum í Þýskalandi, Hollandi og á Bretlandi. Hinn nýi útgáfusamning- ur hefur farið vel af stað og má vænta þess að hann tryggi ríkis- sjóði greiðan aðgang að erlendu lánsfé á hagstæðum kjörum,“ segir Ólafur. Nýr alþjóðlegur lánasamningur ríkissjóðs Lántökukostnaður undir euribor-vöxtum SVANBJÖRN Thoroddsen, fram- kvæmdastjóri þróunarsviðs hjá Ís- landsbanka-FBA, segir að það sé ekki rétt sem kom fram í Jyllands- posten og Morgunblaðið skýrði frá að eigendur Basisbank hafi þurft að auka hlutafé í bankanum í þriðja skipti á þremur mánuðum. „Ákveð- ið var að auka hlutafé Basisbank í desember og það hlutafé er greitt inn í áföngum og blaðamaður Jyl- landsposten hefur eitthvað misskil- ið þetta.“ Svanbjörn segir að aðalfundur Basisbank verði haldinn á morgun og þá verði meðal annars tekin til umfjöllunar hlutafjáraukning. „Í löggjöf er gert ráð fyrir að eigið fé banka sé að lágmarki fimm millj- ónir evra eða um 395 milljónir ís- lenskra króna. Það er löggjöf sem nær til alls Evrópusambandssvæð- isins og raunar til Íslands líka. Basisbank þarf auðvitað eins og aðrir bankar að uppfylla þessi skil- yrði.“ Í ársskýrslu Íslandsbanka-FBA kemur fram að bókfærður eignar- hlutur í Basisbank var 272 milljónir íslenskra króna um síðustu áramót en því til viðbótar hafi bankinn af- skrifað 393 milljónir. Heildarfjár- festing Íslandsbanka-FBA í Basis- bank nemur samkvæmt því 665 milljónum króna. Í skýrslunni kem- ur fram að ákveðið hafi verið í var- úðarskyni að færa niður hlutabréf bankans í Basisbank enda hafi markaðsaðstæður breyst frá því að fjárfest var í bankanum og nokkur óvissa um verðmæti bréfanna. Eignarhluti Íslandsbanka-FBA í Basisbank nam 39,3% um síðustu áramót. Aðspurður segir Svan- björn að það liggi ekki fyrir áform af hálfu Íslandsbanka-FBA að leggja Basisbank til meira fé. Ekki áform um að ÍFBA leggi Basis- bank til meira fé ÞRÁTT fyrir pólitískar deilur umsölu á beinum eignarhlut norska ríkisins í olíu- og gaslindum í norskri lögsögu (SDØE) er forstjóri ríkisolíufélagsins Statoil bjartsýnn á að hlutabréf félagsins verði skráð á markað í sumarbyrjun. Olav Fjell, forstjóri Statoil, segir að ágreiningur meðal stjórn- málaflokkanna sé ekki mikill og lík- legt sé að þeir nái samkomulagi í næsta mánuði og skráning geti haf- ist í júní, að því er segir í Aften- posten og Financial Times. Verka- mannaflokkurinn hefur lagt til að selja 20% af SDØE og hefur stuðn- ing tveggja annarra flokka, en Hægriflokkurinn, Vinstri og Kristi- legi þjóðarflokkurinn vilja selja allt að 25%. Markmiðið er að skrá 10– 25% hlutabréfa Statoil í kauphöll- unum í Ósló og New York. Bjartsýnn á skráningu Ósló. Morgunblaðið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.