Morgunblaðið - 27.03.2001, Blaðsíða 31
FLUGSLYSIÐ Í SKERJAFIRÐI
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2001 31
er sjálfstæður, tveggja ára listaskóli, með möguleika á þriðja
framhaldsárinu. Skólinn leggur áherslu á samtímalist og
kennsla fer fram í myndbandalist, skúlptúr, grafík, innsetning-
um, margskonar hugmyndafræðilegum listverkefnum o.fl.
Skipulag kennslu við skólann er einstakt, en tveir fastráðnir
kennarar eru í hlutastarfi við skólann og síðan eru fengnir 30-
35 gestakennarar og fyrirlesarar á hverju ári frá öllum Norð-
urlöndunum og fleiri Evrópulöndum. Nemendurnir eru valdir
eftir mat á innsendum verkum og koma frá öllum Norðurlönd-
unum. Kennt er á sænsku, enska og í einstaka tilfellum á
finnsku. Árlega fá um 25 nemendur inngöngu og eftir námið í
Norræna listaskólanum hafa um 75% nemenda fengið inn-
göngu í listaháskóla.
Umsóknir, á sérstökum eyðublöðum, þurfa að berast okkur í
síðasta lagi 15. maí. Verk til mats verða að berast skólanum
fyrir 22. maí.
UNDIRBÚNINGSNÁMSKEIÐ er haldið í skólanum 14. maí
— 25. maí 2001. Hægt er að innrita sig á námskeiðið með því
að senda bréf, fax eða hringja fyrir 26. apríl. Námskeiðið er
ekki skylda, en er mjög gagnleg kynning fyrir þá, sem sækja
um skólavist.
Umsóknareyðublöð, kynningarbæklingar og upplýsingar fást hjá:
Nordiska Konstskolan,
Borgmästaregatan 32, FIN 67 100 Karleby, Finnlandi.
Sími 00 358 6 82 209 06, fax 00 358 6 83 174 21.
ÖRYGGISNEFND og Slysarann-
sóknarnefnd Félags íslenskra at-
vinnuflugmanna munu hittast í vik-
unni og fara yfir skýrslu
rannsóknarnefndar flugslysa vegna
flugslyssins í Skerjafirði og í kjölfar-
ið er að vænta umsagna þeirra um
þessi efni.
Franz Ploder, formaður Félags ís-
lenskra atvinnuflugmanna, sagði í
samtali við Morgunblaðið að örygg-
isnefnd og slysarannsóknarnefnd
sem störfuðu innan vébanda félags-
ins myndu yfirfara málið og skila
áliti sínu. Þær myndu funda nú í vik-
unni en ekki væri víst hvenær þær
yrðu tilbúnar með umsagnir sínar í
þessum efnum.
Franz sagði að flugmönnum fynd-
ist oft að reynt væri að gera flug-
menn tortryggilega í tilfellum sem
þessum þegar slys yrðu. Þeir lægju
oft best við höggi ef þeir gætu ekki
svarað fyrir sig.
Franz sagði að tilgátur um þátt
flugmannsins væru áberandi í niður-
stöðum skýrslunnar. „Það er ekkert
á hreinu varðandi hans þátt í þessu
sem verður hreint og beint sannað,
en það er aftur á móti hægt að sanna
ýmsa hluti varðandi flugrekstrarað-
ilann, þar sem er alveg hreinu hvern-
ig hann hefur staðið að málum varð-
andi flugreksturinn,“ sagði Franz.
Hann sagði aðspurður að sam-
kvæmt skýrslunni væri alveg ljóst að
það hefði verið pottur brotinn í þeim
efnum.
Franz benti jafnframt á að það
hefði lítið upp á sig að setja strangari
reglur í þessum efnum, eins og hvað
varðaði þær reglur sem frestað var
að setja fyrir tveimur árum síðan, ef
ekki væri fylgst með að farið væri
eftir þeim.
Hann sagði að FÍA hefði oft lýst
yfir áhyggjum sínum yfir rekstrar-
umhverfi minni flugfélaga. Starfs-
menn þar störfuðu ekki við sömu
skilyrði og starfsmenn stærri félaga
sem störfuðu samkvæmt ströngum
reglum.
Yfirfara
skýrslu
RNF í
vikunni
Öryggis- og slysa-
rannsóknarnefnd FÍA
FRIÐRIK Þór Guðmundsson, faðir
Sturlu Þórs, sem lést af völdum
áverka sem hann fékk í flugslysinu í
Skerjafirði 7. ágúst í fyrra, hefur
ítrekað kröfu í bréfi til samgöngu-
ráðherra um að fram fari rannsókn
vegna rannsóknar rannsóknarnefnd-
ar flugslysa á flugslysinu. Undir
kröfuna tekur Jón Ólafur Skarphéð-
insson, faðir piltsins sem lifði af brot-
lendingu vélarinnar, og fjölskylda
Mohammads Daglas, flugmanns
flugvélarinnar.
Friðrik Þór hefur einnig farið þess
á leit við lögreglustjórann í Reykja-
vík að fram fari sérstök rannsókn
vegna ætlaðra réttarspjalla rann-
sóknarnefndar flugslysa en nefndin
hafi lýst því yfir opinberlega að hún
hafi aðeins fjórum dögum eftir flug-
slysið látið frá sér hreyfil flugvélar-
innar, en hann sé nú í eigu Ísleifs
Ottesen sem keypt hafi hann af
tryggingafélagi flugvélarinnar og
muni hreyfillinn nú vera farinn úr
landi.
„Með vísan til umsóknargagna er
lágu til grundvallar útgáfu lofthæfi-
skírteinis flugvélarinnar, þar sem
fram kom að gangtími hreyfilsins
hafi verið 41 klst. frá smíð, þeirrar
staðreyndar að hreyfill með þessu
raðnúmeri var smíðaður af framleið-
anda árið 1968 sem hreyfill af gerð-
inni TSIO520E2, nýútkominnar
skýrslu rannsóknarnefndar flug-
slysa, þar sem m.a. kemur fram að
nánast ómögulegt sé að breyta
hreyfli af gerðinni „E“ í „H“, þess að
framleiðandi hreyfilsins hafi staðfest
að hann hafi í raun verið af H-gerð,
þeirrar staðreyndar að fortíð hreyf-
ilsins sé með öllu óviss þar sem engin
gögn hafi fylgt honum eða flugvélinni
TF-GTI (þá N-131DC) þegar Ísleif-
ur Ottesen keypti hana á uppboði í
Bandaríkjunum, má ljóst vera að
hreyfillinn og hlutar hans skiptu og
koma til með að skipta gríðarlega
miklu máli við rannsókn lögreglu á
ætluðum brotum og vegna síðari
bótamála og hafi því rannsóknar-
nefnd flugslysa með hátterni sínu
spillt mikilvægum gögnum,“ segir í
beiðninni um opinbera rannsókn til
lögreglustjóra.
Þá er þess einnig farið á leit að
rannsakað verði sérstaklega flug
LÍO að morgni mánudagsins 7. ágúst
síðasta árs með tveggja hreyfla flug-
vél en flogið hafi verið með tveimur
farþegum meira en sæti hafi verið
fyrir. Unnusti barnshafandi konu
hafi setið óspenntur á gólfi flugvél-
arinnar og dóttir flugstjórans setið
óspennt í fangi unnusta síns.
Í bréfinu til samgönguráðherra
segir að eftir að hafa farið ítarlega
yfir skýrslu RNF ásamt sérfræðing-
um verði alls ekki komist hjá því að
ítreka þá kröfu að óvilhallir aðilar, og
þá að hluta til eða að öllu leyti erlend-
ir sérfræðingar, verði fengnir til að
fara yfir vinnubrögð RNF og leggja
mat á áreiðanleika þeirrar skýrslu
sem nú hafi verið lögð fram. Vísar
Friðrik í þessu sambandi til ítrekaðs
vantrausts sem fram hafi komið í
garð RNF og vitneskju og nú stað-
festingu á ófagmannlegum vinnu-
brögðum, svo og mögulegum lög-
brotum, m.a. réttarspjöllum
nefndarinnar en þau hafi nú verið
kærð til lögreglu.
Gríðarlega veigamiklum
atriðum hreinlega sleppt
„Við ítarlega yfirferð og athugun á
skýrslunni má ljóst vera að gríðar-
lega veigamiklum atriðum hefur
hreinlega verið sleppt úr niðurstöð-
um hennar, svo sem rannsókn á flug-
umferðarstjórn við Reykjavíkurflug-
völl þegar flugvélin kom inn í
vallarsvið flugvallarins og þar til að
hún fórst í Skerjafirði með hörmu-
legum afleiðingum. Augljóst er við
lestur skýrslunnar að stjórnun flug-
umferðarinnar var óskipulögð og
fumkennd þar sem blandað var sam-
an með vítaverðum hætti blindflugs-
og sjónflugsumferð í döprum skil-
yrðum. Niðurstöður skýrslunnar
byggja í veigamiklum atriðum á get-
gátum, t.d. hvað varðar þátt flug-
mannsins. Skýrsluhöfundar geta sér
þess t.d. til að flugmaðurinn hafi ver-
ið orðinn meðvitaður um eldsneytis-
leysi og því tekið krappan hring . . .
þegar hann var í raun að fara eftir
fyrirmælum flugturns í lélegum veð-
urskilyrðum. Þá er flugvélin sögð
hafa verið í sjónflugi í sjónflugsskil-
yrðum þegar ljóst er að sjónflugs-
skilyrði voru ekki fyrir hendi með því
að Dornier-flugvél Íslandsflugs kom
úr skýjum í aðflugi að flugbraut 20 í
600 fetum skv. skýrslunni og þá nán-
ast á sama stað og á sama tíma og
TF-GTI. RNF lýsti því og yfir fljótt
eftir brotlendinguna 7. ágústsl. að
flugvélin hefði verið í sjónaðflugi
(sem er blindflug) og undir það tók
Þorgeir Pálsson í bréfi sem birt var í
Morgunblaðinu. Sú spurning vaknar
hvort aðrir hagsmunir hafi vegið
þyngra en hlutlaus rannsókn þegar
skýrslan var gerð.
Vinnubrögð sem þessi hæfa ekki
lýðveldi í hinum vestræna heimi.
Með vísan í framangreint óskar
undirritaður eftir skjótum viðbrögð-
um ráðherra,“ segir enn fremur í
kröfu Friðriks Þórs um rannsókn til
ráðherra samgöngumála.
FJÖLSKYLDA Mohammads Dagl-
as, flugmanns vélarinnar sem fórst í
Skerjafirði í fyrrasumar, hefur sent
frá sér yfirlýsingu, þar sem segir að
óréttlætanlegt sé að kenna honum
um þetta slys. Fjölmörgum mikil-
vægum spurningum sé ósvarað í
skýrslu Rannsóknanefndar flugslysa
og er krafist svara við þeim spurn-
ingum, jafnframt því sem fram kem-
ur að leitað verði lagalegra úrræða
gegn hverjum þeim sem reyni að
leyna sannleikanum.
„Við erum ekki rannsóknarmenn,
heldur menn með heilbrigða skyn-
semi. Þessi svokallaða skýrsla hefur
engan trúverðugleika og byggist á
auðveldustu leiðinni til að ljúka þess-
ari rannsókn og það er gert með því
að kenna flugmanninum um, manni
sem getur ekki lengur svarað fyrir
sig,“ segir meðal annars í yfirlýsing-
unni.
Yfirlýsing fjölskyldunnar
Yfirlýsing fjölskyldunnar fer hér á
eftir í heild:
„Mohammad Daglas var maður
sem tók Íslandi opnum örmum og
opnu hjarta. Hann elskaði þjóðina og
landið. Það er hneyksli að þið skyld-
uð flekka nafn hans með þessum
hætti.
Það að missa bróður í þessu
hörmulega slysi var eins sársauka-
fullt og hugsast getur. Núna stráið
þið salti í sárin.
Mohammad var dásamlegur og
umhyggjusamur maður sem snart líf
allra sem þekktu hann. Hann flutti
nauðsynjar til aldraðs fólks sem bjó
á afskekktum svæðum á Íslandi.
Hann var vinur jafnt ungra sem
aldinna.
Hann var mjög vandvirkur í öllu
sem varðaði flugvél sína og flug.
Hann var ekki kærulaus í starfi sínu.
Hann bar mikla umhyggju fyrir lífi
farþega sinna og hefði aldrei gert
neitt sem stofnaði lífi fólks í hættu.
Orðið skýrsla merkir niðurstaða
rannsóknar.
Hvers vegna kallið þið þetta
skýrslu án þess að svara svo mörg-
um mikilvægum spurningum, mikil-
vægum þáttum og mótsögnum?
Við bendum á nokkur dæmi.
Í fyrsta lagi eru tvær flugbrautir á
Reykjavíkurflugvelli. Aðeins önnur
var notuð þetta kvöld. Hvers vegna?
Á hverju ári eru svo mörg tilvik á Ís-
landi þar sem litlu munar að árekst-
ur verði í lofti. Hverjum er um að
kenna?
Í öðru lagi: Hvar er hreyfill flug-
vélarinnar núna? Okkur skilst að
hreyfillinn hafi verið fluttur úr landi
og ef við vildum láta reyndari rann-
sóknarmenn athuga hann væri það
ekki lengur mögulegt.
Í þriðja lagi: Hvers vegna var
hann nokkrum sinnum beðinn að
fljúga vélinni í hringi? Sinnti flug-
umferðarstjórinn þeirri skyldu sinni
að fylgjast með flugumferðinni?
Hvers vegna olli hann þessari um-
ferðarteppu í byrjun?
Starf hans felst í því að stýra og
stjórna umferðinni. Hann gerði það
með því að gera upp á milli lítillar og
stórrar flugvélar, leyfði stærri flug-
vélinni að lenda jafnvel þótt flugvél
Mohammads hefði fengið skipun um
að lenda og síðan verið sagt að hætta
við lendingu nokkrum mínútum síð-
ar.
Við erum ekki rannsóknarmenn,
heldur menn með heilbrigða skyn-
semi. Þessi svokallaða skýrsla hefur
engan trúverðugleika og byggist á
auðveldustu leiðinni til að ljúka þess-
ari rannsókn og það er gert með því
að kenna flugmanninum um, manni
sem getur ekki lengur svarað fyrir
sig.
Mohammad var arabi sem bjó í
nokkur ár á Íslandi og hafnaði
nokkrum tækifærum til að starfa í
Bandaríkjunum. Hann naut þess að
búa á Íslandi og var eins mikill Ís-
lendingur og þið.
Það að kenna Mohammad um
þetta hörmulega slys er óréttlætan-
legt og enginn í fjölskyldu hans eða
vinahópi, hvorki á Íslandi né erlend-
is, getur sætt sig við það.
Við krefjumst svara við öllum
þeim spurningum sem er ósvarað í
þessari skýrslu.
Við ætlum að leita lagalegra úr-
ræða gegn hverjum þeim sem reynir
að leyna sannleikanum!
Við krefjumst þess einnig að fá
eintak af þessari villandi skýrslu á
ensku sem allra fyrst.
Við biðjum alla þá sem þekktu Mo-
hammad og voru snortnir af hjarta-
hlýju hans að skrifa yfirvöldunum
bréf fyrir hans hönd.
Við viljum einnig votta fjölskyld-
um farþeganna samúð okkar og láta
þær vita að þær eru í bænum okkar.
Við samhryggjumst ykkur.
Við getum fullvissað ykkur um að
Mohammad bar ekki ábyrgð á þessu
hörmulega slysi.
Við ætlum að gera allt sem í valdi
okkar stendur til að komast að sann-
leikanum.“
Yfirlýsing fjölskyldu Mohammads Daglas, flugmanns vélarinnar
Óréttlætanlegt að kenna
flugmanninum um slysið
Morgunblaðið/Baldur Sveinsson
TF-GTI yfir Reykjavík. Vélin var af Cessna-gerð, 210 Centurion II.
Tveggja rannsókna krafist á vinnubrögðum RNF
Óvilhallir aðilar yfir-
fari vinnubrögð RNF