Morgunblaðið - 27.03.2001, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Til sölu Landrover Range
Rover 4.6 HSE bensín. Nýskráð-
ur 20.12.1996, leðurinnrétting,
topplúga, álfelgur, ekinn 76,000
km. Ásett verð 4.050.000.
Ath.: Skipti á ódýrari.
RANNSÓKN lögreglunnar í Kefla-
vík á tildrögum banaslyssins í sund-
lauginni í Grindavík á föstudag er
sex ára telpa lést stendur enn yfir.
Niðurstaða liggur ekki fyrir. Í kjöl-
far slyssins í sundlauginni mun fara
fram ítarleg skoðun á eftirlitskerfi
laugarinnar af hálfu starfsmanna
með aðstoð öryggisfulltrúa.
Að sögn Hermanns Guðmunds-
sonar forstöðumanns Íþróttamið-
stöðvar Grindavíkur hefur starfsfólk
laugarinnar velt fyrir sér hugsanleg-
um orsökum slyssins, án þess þó að
komist hafi verið að ákveðinni nið-
urstöðu. „Við munum að sjálfsögðu
reyna að finna út hvernig megi fyr-
irbyggja slys sem þetta, en við telj-
um laugina vera búna ágætu eftir-
litskerfi,“ sagði Hermann.
Tveir starfsmenn
annast gæslu
Eftirliti við laugina, sem er sex
ára gamalt íþróttamannvirki, er
þannig háttað að tveir starfsmenn
annast gæslu, en þegar sundkennsla
fer fram bætist íþróttakennari í
þann hóp sem þriðji aðili. Tvær eft-
irlitsmyndavélar neðan vatnsyfir-
borðs eru staðsettar við hvorn enda
laugarinnar, sem er 25 metra löng,
og þannig er unnt að fylgjast með
umferð í lauginni innan úr húsi. Að
auki eru tvær vélar ofan vatnsyfir-
borðs. Einn skjár er fyrir vélarnar
fjórar og er hægt að skipta á milli
vélanna bæði sjálfvirkt og hand-
virkt. Sjálfvirki búnaðurinn skiptir á
milli vélanna á tveggja til fimm sek-
úndna fresti. Stúlkan mun hafa
fundist í gegnum aðra vélina neðan
vatnsyfirborðs þar sem hún lá mið-
svæðis á botni laugarinnar á rúm-
lega eins metra dýpi. Aðspurður
sagðist Hermann ekki treysta sér til
að segja hvort þetta hafi verið allra
fyrsta vísbending um að ekki væri
allt með felldu í lauginni, en vísaði til
yfirstandandi lögreglurannsóknar.
Hann staðfesti að stöðug vakt hefði
verið við skjáinn innandyra þegar
slysið varð en ekki hefur fengist
staðfest hvort einhver vélanna fjög-
urra hafi numið aðdragandann að
slysinu án þess að hann hafi komið
fram á skjánum þar sem stillt hafi
verið á aðra vél á þeim tíma. Ekki
eru til upptökur af því sem vélarnar
námu, enda er slíkum búnaði ekki til
að dreifa.
Þegar slysið vildi til var hefðbund-
inni kennslustund í skólasundi lokið
og var stúlkan ásamt bekkjarsystk-
inum sínum í frjálsum tíma. Tilkynn-
ing um slysið barst lögreglunni í
Keflavík klukkan 16.38 og úrskurð-
aði læknir sem sendur var á vett-
vang, stúlkuna látna rúmlega hálfri
klukkustund síðar. Þá höfðu lífgun-
artilraunir ekki borið árangur, en
þær hófust þegar í stað eftir fund
stúlkunnar og stóðu yfir á meðan
beðið var komu sjúkraliðs.
Til athugunar er m.a. að hafa einn
starfsmann sundlaugarinnar alfarið
við myndavélagæsluna, án þess að
víkja frá til að sinna afgreiðslu eins
og stundum er gert og eins það
hvort endurbæta eigi myndavéla-
búnaðinn þannig að unnt verði að
taka upp á myndband sjónarhorn
vélanna.
Að sögn Stefaníu Ólafsdóttur að-
stoðarskólastjóra Grunnskóla
Grindavíkur, leggur skólinn sig eftir
því að fylgja reglugerð menntamála-
ráðuneytisins um sundkennslu. Í
reglugerðinni er m.a. kveðið á um að
sundnemendum sé ekki hleypt út í
laug fyrr en kennari er kominn á
laugarbakka og sundkennari víki
ekki frá nemendum í kennslustund
eða fari frá lauginni fyrr en síðasti
nemandi er kominn upp úr.
Lögreglan hefur unnið að því m.a.
að kanna allar aðstæður á slysstaðn-
um og leita svara við því hvernig eft-
irliti við laugina var háttað og með
hvaða hætti lát stúlkunnar bar að. Á
meðan skólasundið stóð yfir var
laugin opin almenningi og voru tekn-
ar skýrslur af sundlaugargestum og
starfsfólki laugarinnar um helgina.
Ítarleg skoðun
á eftirlitskerfi
Banaslysið í sundlauginni í Grindavík
STÚLKAN sem
fannst látin í sund-
laug Grindavíkur síð-
degis á föstudag hét
Bhawana Gurung, til
heimilis á Verbraut 3
í Grindavík. Hún var
sex ára, frá Nepal,
fædd 3. nóvember
1994. Hún fluttist í
haust til Grindavíkur
ásamt foreldrum sín-
um, Minu Kumurai
Gurung og Bhakta
Bahadur Gurung,
sem starfa þar við
fiskvinnslu. Faðir Bhawönu hef-
ur verið leiðsögu-
maður í fljótasigl-
ingum hjá
Bátafólkinu, en
hann fluttist hingað
til lands árið 1995,
eftir að hafa verið
sumarlangt á Ís-
landi árið 1993.
Bhawana Gurung,
var nemandi í 1.
bekk Grunnskóla
Grindavíkur þar
sem haldin var
minningarathöfn um
hana í gærmorgun
með tónlist og bænarorðum.
Minningarathöfn
í skólanum
TVÖ kaupskip hafa verið kyrrsett af
Siglingastofnun. Á föstudaginn var
skipið Geysir, sem siglt hefur fyrir
Atlantsskip hf. með varning fyrir
varnarliðið, kyrrsett í Hafnarfjarðar-
höfn og í gær var færeyskt kaupskip
kyrrsett í höfninni í Sandgerði.
Hálfdán Henrysson, verkefnastjóri
á skoðunarsviði Siglingastofnunar,
sagði að þar sem Ísland væri aðili að
Hafnarríkiseftirlitinu, sem er stofnun
19 ríkja í Evrópu auk Kanada og
Bandaríkjanna, bæri Siglingastofnun
að skoða 25% þeirra kaupskipa sem
koma til landsins. Hálfdán sagði að
við skoðun á Geysi hefði komið í ljós
að ástand skipsins var ekki nægilega
gott og því hefði það verið kyrrsett.
Hann sagði að það fengi ekki leyfi til
þess að sigla á ný fyrr en gert hefur
verið við það og Siglingastofnun sam-
þykkt ástand þess. Hann sagðist bú-
ast við að skipið færi í slipp á næstu
dögum. Færeyska skipið var kyrrsett
í Sandgerði þar sem skoðun leiddi í
ljós að of fáir voru í áhöfn skipsins.
Hálfdán sagði að það hefði vantað
stýrimann og því hefði Siglingastofn-
un kyrrsett skipið. Hann sagði að
skipið fengi ekki að sigla frá landinu
fyrr en bætt hefði verið úr þessu. Að
sögn Hálfdáns kyrrsetur Siglinga-
stofnun um sjö skip á ári og því er
óvenjulegt að tvö skip séu kyrrsett
með nokkurra daga millibili.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Geysir fær ekki leyfi til að sigla á ný fyrr en gert hefur verið við skipið og Siglingastofnun samþykkt ástand þess.
Tvö kaupskip kyrrsett
ÖKUMAÐUR fólksflutningabif-
reiðar hefur í Héraðsdómi Norður-
lands eystra verið dæmdur í þriggja
mánaða fangelsi, skilorðsbundið til
þriggja ára, fyrir manndráp af gá-
leysi. Þá var hann sviptur ökurétti í 6
mánuði og gert að greiða sakar-
kostnað.
Málsatvik eru þau að maðurinn ók
fólksflutningabifreiðinni í byrjun
ágúst á síðasta ári suður Hringveg
við Þelamerkurskóla, bifreið sem ek-
ið var á undan honum hægði ferðina
þegar henni var beygt inn á afleggj-
ara við skólann, en til að forða
árekstri við hana nauðhemlaði öku-
maðurinn og fór yfir á öfugan veg-
arhelming þar sem hann lenti fram-
an á bifreið sem ekið var á móti.
Ökumaður þeirrar bifreiðar, útlend-
ur ferðamaður, lést samstundis við
áreksturinn.
Ökumaðurinn bar að hann hefði
sýnt alla þá aðgæslu sem honum var
unnt. Hann neitaði því að hafa ekið
yfir á rangan vegarhelming en sagði
malbikið hafa verið blautt af olíu og
eftir að hann hefði nauðhemlað hefði
framendi hópbifreiðarinnar leitað
undan halla sem þarna er á veginum.
Við áreksturinn hefði bifreið sín
skekkst og farið með fólksbílinn á
undan sér út fyrir veg. Í ákæru er
tekið fram að ökumaðurinn hafi ver-
ið að tala í farsíma þegar áreksturinn
varð, en hann segir að samtalinu hafi
verið lokið.
Gætti ekki
nægilegrar varúðar
Í dómnum kemur fram að fullyrð-
ing um að yfirborð vegarins hafi ver-
ið blautt af olíu hafi ekki fengið
stuðning hjá vitnum. Ósannað þótti
að símtal sem ökumaðurinn átti
skömmu fyrir áreksturinn hefði haft
áhrif á akstur hans. Hins vegar þótti
með framburði vitna sannað að hóp-
bifreiðin hefði lent yfir á röngum
vegarhelmingi. Þótti dómnum sann-
að að ökumaður hefði við akstur hóp-
bifreiðarinnar ekki gætt þeirrar var-
úðar sem honum bar lögum
samkvæmt.
Ökumaðurinn var í máli þessu
einnig ákærður fyrir að hafa verið
við akstur fólksflutningabifreiðar í
17 daga án þess að taka sér lög-
skylda vikuhvíld, sem sé a.m.k. 36
stunda frí frá akstri. Var ökumann-
inum því einnig gerð refsing vegna
þess brots.
Flutningabílstjóri
dæmdur fyrir mann-
dráp af gáleysi
Þriggja mánaða
skilorðsbundið
fangelsi
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær fyrrum strætisvagnabíl-
stjóra til að greiða 100.000 krónur í
sekt vegna hegningar- og umferðar-
lagabrots. Í dómnum kemur fram að
vagnstjórinn, kona á fimmtugsaldri,
hafði áður hlotið 5 refsidóma fyrir
brot á umferðarlögum. Lilja Ólafs-
dóttir, forstjóri SVR, segir að á um-
sóknareyðublaði hafi hún ekki gefið
það upp að hún ætti sakaferil að baki.
Í niðurstöðum dómsins segir að
vagnstjórinn hafi ekki sýnt nægilega
aðgæslu og tillitssemi þegar hann lok-
aði afturdyrum vagnsins og ók af stað
frá biðstöð við Rofabæ í Reykjavík
þann 11. maí í fyrra. Dyrnar lokuðust
á sjötuga konu sem dróst um 80 m
með vagninum áður en vagnstjórinn
nam staðar. Ragnheiður Bragadóttir,
settur héraðsdómari, kvað upp dóm-
inn.
Konan hlaut brot á öxl og viðbeini,
tvö brot á ökkla, stórt sár á olnboga
og framhandlegg þar sem allir mjúk-
vefir höfðu skrapast af beini, sár á
fingri og áverka á kvið.
Vagnstjórinn sagðist ekki vita hvað
hefði gerst í umrætt sinn. Hún hafi
talið að konan væri komin út og horfin
sjónum þegar hún ók af stað.
Í dómnum kemur fram að konan
átti sér nokkurn sakarferil 1980–
1992. Á þessum árum hlaut hún fimm
refsidóma, alla fyrir brot á umferð-
arlögum. Hún var tvívegis dæmd fyr-
ir ölvunarakstur og tvisvar svipt öku-
rétti. Fjórum sinnum var hún dæmd
fyrir akstur án ökuréttar. Á sama
tíma gekkst hún fimm sinnum undir
dómsátt.
Þann 1. ágúst sl. gekkst hún undir
greiðslu sektar vegna ölvunaraksturs
og var svipt ökurétti í 12 mánuði frá 1.
september sl.
Vissu ekki
um sakarferill
Lilja Ólafsdóttir segir að á umsókn-
areyðublaði fyrirtækisins sé fólk beð-
ið um að gera grein fyrir því hvort það
eigi sakarferill að baki. Konan hafi
hins vegar ekki gefið það upp að hún
ætti nokkurn sakarferill að baki, fyr-
irtækið hafi því ekki vitað um hann
fyrr en dómurinn var kveðinn. Hefði
fyrirtækinu verið kunnugt um þetta
hefði konan ekki verið ráðin.
Lilja segir að SVR muni herða
kröfur til umsækjanda. Þó telur hún
að ekki verði farið fram á sakarvott-
orð. „Við munum miklu frekar fara
fram á að fólk gefi okkur glöggar upp-
lýsingar um hvort eitthvað í ferli
þeirra, þó sérstaklega að því er varð-
ar ökuferil, sé athugavert.“
Hafði áður fengið
5 refsidóma fyrir
umferðarlagabrot
Strætisvagnabílstjóri dæmdur
til að greiða 100.000 krónur í sekt