Morgunblaðið - 27.03.2001, Blaðsíða 16
LANDIÐ
16 ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Egilsstöðum - Björgunarsveitin
Hérað tók formlega í notkun nýtt
húsnæði 24. febrúar sl. í Miðási 1–5
á Egilsstöðum. Húsið, sem er að
hluta til nýbygging, er um 720m² að
stærð og er þar m.a. glæsilegt
kennsluhúsnæði, fundaaðstaða,
stjórnstöð með fullkomnum tölvu-
búnaði, fjarskiptaherbergi, eldhús
og félagsaðstaða, miklar geymslur
fyrir búnað og 300m² vélasalur fyrir
bifreiðir, vélsleða og fleira af því
taginu. Rauðakrossdeild Héraðs og
Borgarfjarðar eystri á 20% af hús-
næðinu og samnýtir aðstöðu með
björgunarsveitinni.
Í hinu nýja húsnæði er samræmd
björgunarstjórnstöð fyrir alla við-
bragðsaðila á Fljótsdalshéraði, en
þeir eru auk björgunarsveitarinnar
almannavarnir, lögregla og slökkvi-
lið. Í stjórnstöðinni er öflugur tölvu-
búnaður og allt sem nöfnum tjáir að
nefna til skipulagningar og sam-
ræmingar skyndiaðgerða þegar vá
ber að dyrum.
Björgunarsveitin Hérað er af-
sprengi nýlegrar sameiningar
tveggja björgunaraðila á Fljóts-
dalshéraði, björgunarsveitarinnar
Gróar, sem stofnuð var 1958, og
Hjálparsveitar skáta, sem tók til
starfa árið 1979.
Stefán Sigurðsson, formaður
björgunarsveitarinnar, segir það
ekki síst hafa verið sameiningu
landssamtakanna Slysavarnafélags
Íslands og Landsbjargar sem hvatti
björgunaraðila á Héraði til að sam-
ræma krafta sína. „Sameiginlegir
hagsmunir okkar og hugmyndin um
eitt almennilegt húsnæði réðu
þarna mestu,“ segir Stefán.
Félagaskrá Héraðs telur um 400
manns, en virkir félagar eru á bilinu
40 til 50. „Á landsvísu þykir þetta
ágætt miðað við stærð félagssvæð-
isins segir Kjartan Benediktsson
varaformaður. Aðspurður um
helstu viðfangsefni björgunarsveit-
arinnar segir hann að þau séu al-
hliða björgunarstörf, en sveitin á
Héraði hafi þó nokkra sérstöðu, til
dæmis landfræðilega. „Á Austur-
landi er starfandi hópur björgunar-
aðila, m.a. frá okkur, sem kallast
Rústasveit Austurlands, og í henni
er mannskapur sem hefur þjálfað
sig sérstaklega í rústabjörgun.
Þetta er geysiöflugur hópur sem
hefur mjög yfirgripsmikla þekkingu
á björgunarstörfum. Björgunar-
sveitin Hérað á, auk annars bún-
aðar, öfluga rústakerru, sem hefur
að geyma rafstöð og margvísleg
verkfæri til að bjarga fólki úr rúst-
um, en þá er átt við til dæmis jarð-
skjálfta og snjóflóð. Raunar eigum
við fyrirtaksbúnað til allra björgun-
arstarfa. Við höfum byggt búnaðinn
okkar þannig upp að við séum full-
komlega sjálfbær með hýbýli,
svefn- og sjúkraðstöðu, orkugjafa,
matvæli, vatn og fjarskipti í fjóra til
fimm daga,“ segir Kjartan.
„Mest af starfi okkar er við leit-
ir,“ segir Stefán. „Við lendum líka í
sjúkraflutningum og sjúkragæslu.
Ég tek undir það að sveitin hér sé
dálítið sérstök. Auk nálægðar við
snjóflóðahættusvæði er afar stutt
héðan inn á öræfin og Vatnajökul.
Við höfum þjálfaðan mannskap sem
þekkir hálendið vel og einnig sér-
þjálfaða menn í fjallabjörgun. Þá er
Austurland mjög vaxandi göngu-
svæði og það hefur aukist að við
þurfum að hjálpa fólki sem ýmist
slasast eða týnist.“
Meðlimir sveitarinnar hittast
einu sinni í viku til skrafs og ráða-
gerða og sífellt er verið að halda
námskeið og þjálfa mannskapinn.
Næst á að taka fyrir viðbrögð við of-
kælingu. Menn eru nýkomnir úr æf-
ingaferð í Kverkfjöll og segir Kjart-
an að þar hafi verið svartaþoka
allan tímann og gríðarmikill snjór.
„Til marks um það er að við ætl-
uðum að skoða volgru við íshellinn
fyrrverandi, en það sá hvergi í hana
fyrir snjóbunkum. Sigurðarskáli er
aukinheldur hálfur á kafi í snjó.“
Næsta verkefni björgunarsveit-
arinnar er að halda grunnnámskeið
fyrir rústabjörgunarmenn. Það
verður líklega haldið á Eiðum og er
búist við í það minnsta 30 þátttak-
endum. Þeir Stefán og Kjartan vilja
koma á framfæri kæru þakklæti til
þeirra sem gáfu björgunarsveitinni
ýmsan búnað þegar húsið var form-
lega tekið í notkun.
Fyrsta samræmda björgunarmiðstöð landsins
Björgunarsveitin Hérað í
nýtt og fullkomið húsnæði
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Kjartan Benediktsson (t.v.) og Stefán Sigurðsson, stjórnendur Björg-
unarsveitarinnar Héraðs, við rústabjörgunarkerru sveitarinnar.
Egilsstöðum - Fegurðarsamkeppni
Austurlands 2001 var haldin í Hótel
Valaskjálf á laugardagskvöld. Oddný
Ólafía Sævarsdóttir frá Egilsstöðum
var krýnd fegurðardrottning og mun
hún, ásamt ljósmyndafyrirsætu
Austurlands, Önnu Dögg Einars-
dóttur, taka þátt í keppninni um tit-
ilinn fegurðardrottning Íslands
2001. Oddný hlaut einnig titilinn net-
stúlka Skjávarps og Anna Dögg, sem
er frá Stöðvarfirði, var kjörin vinsæl-
asta stúlkan innan hópsins. Þá var
Laufey Sigurðardóttir frá Neskaup-
stað valin sportstúlka Austurlands.
Keppnin var glæsileg að vanda,
mikil stemmning meðal gesta og
augljóslega hvergi til sparað í um-
gjörð og allri framkvæmd. Sigurður
Ananíasson matreiðslumeistari
sýndi meistaratakta í glæsilegum
kvöldverði og undir borðum var m.a.
tískusýning frá verslunum Centrum
og Skógum og baðfata- og kjólaatriði
keppenda, sem voru 8 talsins. Kol-
brún Nanna Magnúsdóttir var sem
fyrr framkvæmdastjóri keppninnar,
en Ágúst Ólafsson kynnti dagskrár-
liði og úrslit.
Í dómnefnd sátu Signý Ormars-
dóttir, fatahönnuður, Elín Gests-
dóttir, framkvæmdastjóri Fegurðar-
samkeppni Íslands, Þórarinn J.
Magnússon, útgáfu- og ritstjóri
Heimsmyndar, Anna Lilja Björns-
dóttir, fegurðardrottning Reykjavík-
ur árið 2000, og Þorsteinn Þórólfs-
son frá Rolf Johansen.
Hönnun og framkvæmd skreyt-
inga og blómvanda var í höndum
Guðrúnar Sigurðardóttur.
Fegurðarsamkeppni Austurlands
Fríðasta
fljóðið
frá Egils-
stöðum
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Oddný Ólafía Sævarsdóttir frá
Egilsstöðum var krýnd fegurð-
ardrottning Austurlands 2001
og netstúlka Skjávarps í Vala-
skjálf um helgina.
ÞJÓÐAHÁTÍÐ Vestfirðinga var
haldin í fjórða sinn 17.–24. mars
sl. Nú býr á Vestfjörðum fólk frá
meira en fjörutíu þjóðlöndum.
Atburðum hátíðarinnar var
dreift á um vikutíma og jafn-
framt milli byggðarlaga á Vest-
fjörðum.
Þjóðahátíð Vestfirðinga 2001
er tengd og haldin í tilefni af
degi Sameinuðu þjóðanna gegn
kynþáttafordómum, 21. mars.
Tilgangurinn er að auka sam-
gang Íslendinga og útlendinga.
Listsýningu með afrakstri sam-
keppni grunn- og leikskólanema
var komið upp, sérstakur dagur
var fyrir Íslandskynningu fyrir
útlendinga með þátttöku sveit-
arfélaga, haldið var pólskt kaffi-
boð með menningardagskrá,
kynning var á alþjóðlega dúkku-
safninu á Flateyri, haldið var
afrískt kvöld og viðamikil
lokahátíð með menningu og mat
í stærsta íþróttahúsi fjórðungs-
ins.
Ljósmynd/Sigurjón J. Sigurðsson
Gestir á Þjóðahátíð Vestfirðinga gæða sér á framandi réttum frá Austurlöndum fjær.
Vel heppnaðri Þjóðahátíð lokið
Blönduósi - Samstarfsnefnd
Blönduósbæjar og Engihlíðar-
hrepps um sameiningu samnefndra
sveitarfélaga hélt kynningarfundi
fyrir íbúa sveitarfélaganna í sl.
viku. Á fundina mættu um 60
manns og að sögn samstarfsnefnd-
armanna var þátttaka Enghlíðinga
hlutfallslega mun meiri en Blöndu-
ósinga á kynningarfundunum.
Kosning um sameiningu fer
fram laugardaginn 7. apríl og verð-
ur kosið á tveimur stöðum, ann-
arsvegar á Fremstagili í Engihlíð-
arhreppi og hins vegar í
félagsheimilinu á Blönduósi. Til
þess að sameiningartillagan gangi
eftir þurfa íbúar beggja sveitar-
félaganna að samþykkja tillöguna
og gildir þá einfaldur meirihluti í
hvoru sveitarfélagi. Ef samþykkt
verður tekur sameiningin gildi við
næstu sveitarstjórnarkosningar. Á
kynningarfundunum kom fram í
máli samstarfsnefndarmanna að
afar mikilvægt væri að kjörsókn
yrði góð svo enginn velktist í vafa
um áhuga íbúanna fyrir málefninu.
Þó svo að hér sé einungis tillaga
um sameiningu tveggja sveitar-
félaga af tíu í A-Hún., leggja
nefndarmenn þunga áherslu á,
gangi sameining eftir, að hér sé
aðeins upphaf á stærri sameiningu
að ræða, einungis sé spurning um
tíma.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Ágúst Þór Bragason, forseti bæjarstjórnar Blönduóss, kynnir tillögur
sameiningarnefndar. Ásgerður Pálsdóttir fundarstjóri og Ragnar Ingi
Tómasson fundarritari fylgjast með.
Kosið verður um sameiningu
Blönduósbæjar og Engihlíðarhrepps
Góð kjörsókn
er mikilvæg