Morgunblaðið - 27.03.2001, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 27.03.2001, Blaðsíða 58
 !$"/ &   "" "/ )#$# ) *#+#,-  ' ( "" " - "/ .'# / 0#  &    "   - "/ 1' . +#  ) * (+(, "" "  - "/ "#2 3# 4   ' (  "    - "/ 5 2 6 7  *#  -(+   ! !$ - $"" / ./ 0 /1/ #  / 0#  - $"" G .  "/ ' ( )#8-# 6 ,-  $ !$"/ 2 (,' 3 4   4   ! !$ ""/ 2 (,' 3 4  14  3'   ! !$ .  " / 94-,  $# /- ,#*: " + 37   5  *6   "!$ . "/ ;## ; '  2 (,' 3 4   -"!"$ !$"/ < -# = ! ) ,# '     - "" 0883 Ang Lee var alsæll með Óskars- verðlaunin sem hann hlaut fyrir bestu erlendu myndina. „ÉG VAR stressaður svo að segja all- an tímann,“ segir Sigurjón Sigurðs- son eða Sjón um upplifun sína á 73. Óskarsverðlaunaafhendingunni í Los Angeles sem hann var þá nýkominn af. „Ég átti alls ekki von á að við ynn- um en samt var ég logandi hræddur um að það myndi gerast. Og ef það hefði gerst hefðu þessir 800 milljón áhorfendur sem sáu þetta, mínus 280.000 Íslendingar, sagt: „Nei fjandinn hafi það. Þau tóku verðlaun- in af Bob Dylan.“ – Ég vildi alls ekki þurfa að lifa með það á samviskunni.“ Enginn einn sigurvegari Engin ein mynd stóð upp úr sem sigurvegari á 73. Óskarsverð- launahátíðinni sem fór fram hér í Los Angeles aðfaranótt mánudags. Þó að Gladiator hafi fengið flest verðlaun eða fimm (tólf tilnefningar), þar af sem besta mynd, tapaði hún í flestum stærstu flokkunum. Crouching Tig- er, Hidden Dragon, sem fékk fern verðlaun (tíu tilnefningar), og Traf- fic, sem fékk fern verðlaun (fimm til- nefningar), voru of nálægt Gladiator til þess að hún gæti kallast sigurveg- ari kvöldsins. Russell Crowe, sem var valinn besti leikari fyrir hlutverk Maximus í Gladiator, var greinilega brugðið þegar nafn hans var lesið upp. Eftir að hann kom upp á sviðið sendi hann skilaboð til allra þeirra sem væru „forréttindalausir og hefðu hugrekk- ið eitt að vopni: Þetta er hægt“. Á blaðamannafundi eftir afhendinguna sagðist Crowe hafa átt von á að Ed Harris (fyrir Pollack) eða Tom Hanks (fyrir Castaway) hlytu verð- launin. Óvænt úrslit urðu einnig í flokkn- um fyrir bestu leikkonu í aukahlut- verki þar sem Marcia Gay Harden (Pollock) „stal“ verðlaununum af Kate Hudson, sem tilnefnd var fyr- ir Almost Famous. Hudson var nú tilnefnd til Óskarsverð- launa í fyrsta skipti og flestir sér- fræðingar og spámenn höfðu gert ráð fyrir því að hún myndi feta í fótspor móður sinnar, Goldie Hawn, sem hlaut þessi sömu verðlaun fyrir sitt fyrsta hlutverk árið 1969. Harden var bæði þakklát og snortin þeg- ar hún tók við verðlaununum og þakkaði leikstjóra sínum og meðleik- ara, Ed Harris, fyrir að deila með sér ástríðu sinni og hæfileikum. Harden leikur Lee Krasner, konu bandaríska expressjónistans Jackson Pollocks, sem myndin fjallar um og Harris leikur. Julia Roberts elskar heiminn Hin tvenn leikaraverðlaunin fóru eins og sagt var fyrir um. Julia Ro- berts var kosin besta leikkonan fyrir Erin Brockovich og Benicio Del Toro var valinn besti leikari í aukahlut- verki. Julia Roberts fór langt fram yfir úthlutaðan þakkarræðutíma, sem var 45 sekúndur, og setti hvað eftir annað ofan í við „manninn með prikið sem er að veifa í mig til að reyna að koma mér út af sviðinu“. Hún þakkaði fjöldanum öllum af fólki en gleymdi að minnast á Erin Brockovich, konuna sem hún leikur í myndinni. Í staðinn sagði hún: „Ég elska heiminn, ég er svo hamingju- söm. Takk fyrir.“ Á blaðamanna- fundinum baðst Roberts afsökunar á að hafa gleymt að minnast á Brocko- vich. Fyrirsjáanlegur Del Toro en óvæntur Soderbergh Benicio Del Toro, sem hefur á und- anförnum áratug vaxið með hverri myndinni (The Usual Suspects, Basquiat, Snatch), þótti líklegastur til að vinna verðlaunin sem besti leik- ari í aukahlutverki fyrir túlkun sína á spænskumælandi lögreglumanni í Traffic. Þessi beinskeytta kvikmynd um undirheima eiturlyfjanna vann fern verðlaun, þar á meðal fyrir besta handrit byggt á bók eða öðru efni (þ.e. ekki frumsamið). Handritshöf- undurinn, Steve Gaghan, sagði að hann hefði eytt 22 árum í að rannsaka efni myndarinnar og vísaði þar í sína eigin fortíð sem eiturlyfjafíkill. „Eins og bleyða reyndi ég að murka líftór- una úr mér hægt og rólega því mig skorti kjark til þess að gera það í einu vetfangi.“ Gaghan þakkaði fólki sem hefði komið sér til bjargar „fyrir fjór- um árum þegar [hann] bað um hjálp“. Valið á Steven Soderbergh sem besta leikstjóra kom mjög á óvart, ekki vegna þess að það þætti óverð- skuldað, heldur vegna þess að hann var tilnefndur bæði fyrir Traffic og Erin Brockovich. Það þótti víst að Soderbergh myndi gjalda fyrir þetta; fólk myndi ýmist kjósa hann fyrir Traffic eða Brockovich og að Ang Lee myndi því hljóta flest atkvæði fyrir Crouching Tiger. Svo varð þó ekki, því Soderberg fékk verðlaunin fyrir Traffic. Hann brá út af venju fólks sem fær Óskarinn í hönd, þakk- aði hvorki móður sinni né dóttur, heldur þakkaði „öllum þeim sem eyða hluta úr deginum í sköpun. Mér er sama hvort það er kvikmynd, bók, tónlist, dans eða hvað. Ef það væri ekki fyrir listir byggjum við í hræði- legri veröld“. „Ég virkilega naut þess að sjá Sod- erbergh þarna,“ sagði Sjón. „Þetta er maður sem Hollywood hafnaði, en hann hélt áfram að fást við sína hluti og nú er hann að uppskera.“ Taívanska myndin Crouching Tig- er, Hidden Dragon vann engin af „stóru verðlaununum“ en aðstand- endur hennar geta vel við unað eftir að myndin vann m.a. fyrir bestu kvik- myndatöku, tónlist og sem besta er- lenda myndin. Björk í svanskjól Eins og fyrr sagði hafði Bob Dylan verðlaunin af Íslendingunum (og Dananum), eins og búist hafði verið við. Dylan flutti lag sitt, og seinna þakkarræðuna, í beinni útsendingu frá Ástralíu. Áður hafði Björk flutt „I’ve Seen It All“, íklædd hvítum fiðruðum svanakjól. Kynnir kvölds- ins, Steve Martin, sagðist hafa hætt við að koma í sínum svanakjól því hann væri kominn úr móð. Björk virkaði taugaóstyrk á svið- inu, sem er kannski ekkert skrítið í ljósi þess að Óskarsverðlaunaafhend- ingin er stærsta og þekktasta verð- launaathöfn í heimi. „Það tók mig óratíma að átta mig á því að ég var í rauninni á Óskarsverð- launahátíðinni sjálfri, en ekki í Gamla bíói,“ sagði Sjón um sína eigin upp- lifun og taugaóstyrk við að sitja í salnum. „Síðan var ég mjög hissa á því að maðurinn uppi á sviði væri í raun og veru Steve Martin en ekki bara einhver leikari sem leit út eins og hann. Eftir það þurfti ég að glíma við þá staðreynd að það var ég sem var tilnefndur, en ekki Einar Örn.“ Sjón er ekki einn um að lýsa Ósk- arsverðlaunaathöfninni sem skrítinni og óraunverulegri reynslu. Julia Ro- berts sagði upplifunina líkt og úr öðr- um heimi. Russell Crowe kallaði reynsluna „ólýsanlega fáránlega og fjarstæðukennda“ og sagðist hafa verið að hugsa um „nákvæmlega ekki neitt“ þegar nafn hans var lesið upp. Fínt að tapa fyrir Dylan 73. óskarsverðlaunahátíðin var vel heppnuð og skemmtileg sýning. Árið 2000 var gott ár í kvikmyndum og ekki spillti að akademían hristi af sér það orð að úrslitin gætu ekki lengur komið á óvart. Hátíðin var krydduð með tilnefn- ingum Íslendinga í annað skipti í sög- unni. Og þótt okkar fólk hafi ekki unnið getum við og þau vel við unað. Því er Sjón sammála. „Það var fínt að tapa fyrir Bob Dylan. Ég gæti hugs- að mér að tapa fyrir honum á hverju ári.“ Óvæntur Óskar Íslenska þjóðin var með öndina í hálsinum þegar umslagið sem innihélt nafn óskars- verðlaunahafans fyrir besta sönglagið var opnað, enda Sjón og Björk tilnefnd. Svo fór að Bob karlinn Dylan hreppti hnossið. Sig- urbjörn Aðalsteinsson er í Los Angeles og fylgdist með hátíðinni. Hann komst m.a. að því að Sjón vildi alls ekki þurfa að lifa með það á samviskunni að hafa unnið. Skælbrosandi Óskarsverðlaunahafar saman- komnir að hátíð lokinni: Benicio Del Toro, Marcia Gay Harden, Julia Roberts og Russell Crowe. Það kom nokkuð á óvart að Stev- en Soderbergh skyldi hreppa Óskar fyrir bestu leikstjórn. 73. Óskarsverðlaunahátíðin var haldin í Los Angeles á sunnudaginn Reuters Bob Dylan hélt þakkarræðu sína í beinni útsendingu frá Ástralíu. Að vanda vakti útlit og framkoma Bjarkar mikla at- hygli en hún var klædd í kjól sem líktist hvít- um svan. FÓLK Í FRÉTTUM 58 ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ VÁKORT Eftirlýst kort nr. 4543-3700-0029-4648 4543-3700-0036-1934 4543-3700-0034-8865 4507-4100-0006-6325 4548-9000-0056-2480 4543-3700-0027-8278 4507-4500-0028-0625 4507-2800-0004-9377                                  !  "# "$% & '    ()( )$$$
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.