Morgunblaðið - 27.03.2001, Blaðsíða 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2001 27
HILMAR Þórðarson – Sjálfsmynd,
er yfirskrift tónleika sem haldnir
verða í Salnum í Kópavogi í kvöld kl.
20. Tónleikarnir eru hluti af tón-
leikaröð kennara Tónlistarskóla
Kópavogs sem skólinn hefur staðið
fyrir í vetur í samvinnu við bæjaryf-
irvöld í Kópavogi. Fram til þessa
hafa allir flytjendur á tónleikunum
komið úr röðum kennara skólans en
að þessu sinni er það fulltrúi tón-
skálda við skólann sem flutt verða
verk eftir og koma flytjendurnir úr
ýmsum áttum.
Um er að ræða „portrett-tón-
leika“, þar sem öll verkin á efnis-
skránni eru eftir Hilmar Þórðarson
tónskáld. Hann er annar forstöðu-
manna Tölvutónvers Kópavogs sem
nýverið hlaut Menningarverðlaun
DV í tónlist fyrir að hafa átt frum-
kvæði að fyrstu Alþjóðlegu raf- og
tölvutónlistarhátíðinni á Íslandi,
ART 2000.
Klassík og tölvuhljóð
Flytjendur á tónleikunum eru þau
Marta Guðrún Halldórsdóttir
sópransöngkona, Örn Magnússon
píanóleikari, Camilla Söderberg
blokkflautu- og midi-flautuleikari,
Martial Nardeau flautuleikari, Lauf-
ey Sigurðardóttir fiðluleikari, gítar-
leikararnir Páll Eyjólfsson og
Kristinn H. Árnason og Ríkharður
H. Friðriksson eldingaleikari. Að
sögn Hilmars eru langflest verkin
skrifuð fyrir viðkomandi flytjendur.
Að sögn Hilmars má skipta tón-
smíðum hans í tvo meginhluta; verk
fyrir klassísk hljóðfæri og verk fyrir
tölvuunnin hljóð. Á þessa efnisskrá
kveðst hann hafa reynt að velja verk-
in þannig að vel megi skynja þessa
tvo hluta. Þannig sé fyrri helmingur
efnisskrárinnar að mestu fyrir klass-
ísk hljóðfæri en í þeim síðari komi
tölvuhljóðin mikið við sögu – en mis-
mikið þó. „Annars vegar eru þessi
hefðbundnu hljóðfæri sem maður
ólst upp við og eru ennþá rík í huga
manns. Síðan hef ég kynnst öðrum
möguleikum, ekki síst eftir að ég fór
út í nám, og alltaf er einhver forvitni
og nýjungaleit sem rekur mann
áfram,“ segir Hilmar og bætir við að
í raun líti hann á tölvu- og raftónlist-
ina sem framlengingu á hinum hefð-
bundnu hljóðfærum og því sé þrátt
fyrir allt ekki um svo gjörólíka heima
að ræða. Áheyrenda vegna hafi hann
samt sem áður ákveðið að byggja
tónleikana þannig upp að skarpari
skil væru á milli klassísku tónlistar-
innar og tölvutónlistarinnar.
Sleðakassi, MIDI-flauta
og eldingahljóðfæri
Hilmar segir að verkin sem hann
hafi valið til flutnings á tónleikunum
eigi það öll sameiginlegt að vera ný-
leg og hafa ekki verið flutt mikið hér-
lendis. „Ekkert þeirra hefur verið
flutt oftar en einu sinni opinberlega
áður,“ segir hann. Nokkur verkanna
eru frumflutt nú, m.a. fimm sönglög
við ljóð eftir Gyrði Elíasson, úr ljóða-
bókinni Tvö Tungl. Annað splunku-
nýtt verk, sem enn hefur ekki fengið
nafn, verður frumflutt í lok tón-
leikanna. Flytjendur eru þau Cam-
illa Söderberg, sem leikur á midi-
flautu, Ríkharður H. Friðriksson,
sem leikur á eldingahljóðfæri, og
Hilmar sjálfur en hann leikur á svo-
kallaðan sleðakassa. Tónskáldið er
beðið um að lýsa þessum hljóðfær-
um. Eldingahljóðfærinu lýsir hann
sem tveimur prikum sem sveiflað er
út í loftið og myndar þannig hljóð.
„Það blikkar pínulítið – eins og las-
ersverð í Star Wars,“ útskýrir Hilm-
ar. „MIDI-flautan er bara flauta sem
Camilla blæs í. Hún er með tökkum
eins og saxófónn eða klarínetta. Úr
henni liggur snúra sem skilar
blæstrinum inn í tölvu sem aftur
skilar honum til hljóðfæra sem senda
hljóðið út,“ heldur hann áfram. Sjálf-
ur segist hann spila á lítinn svartan
kassa með litlum sleðum sem hann
geti fært upp og niður. „Þetta verður
mjög framúrstefnuleg hljómsveit á
sviðinu,“ segir hann.
Hilmar nam trompetleik við Tón-
listarskóla Kópavogs og Tónlistar-
skólann í Reykjavík en söðlaði um og
útskrifaðist frá tónfræðadeild Tón-
listarskólans í Reykjavík árið 1985.
Eftir það hélt hann til Bandaríkj-
anna til frekara náms í tónsmíðum
og lauk meistaraprófum í þeirri
grein frá California Institute of the
Arts og Yale-háskólanum. Á árunum
1992-1995 starfaði Hilmar sem
gestatónskáld við tónver tónlistar-
skólanna í Stanford og Berkeley í
Kaliforníu. Frá árinu 1995 hefur
Hilmar kennt hljómfræði og tölvu-
tónlist við Tónlistarskóla Kópavogs.
Tónleikaröð kennara Tónlistarskóla Kópavogs í Salnum
Morgunblaðið/Jim Smart
Örn Magnússon píanóleikari, Marta Guðrún Halldórsdóttir sópransöngkona og Hilmar Þórðarson tónskáld á
æfingu fyrir sjálfsmyndartónleika þess síðastnefnda sem haldnir verða í Salnum í kvöld og hefjast kl. 20.
Rekinn áfram af for-
vitni og nýjungaleit
Á SÍÐUSTU háskólatónleikum
þessa skólaárs í Norræna húsinu á
morgun, miðvikudag, kl. 12.30
syngur Ingibjörg Guðjónsdóttir,
sópran, við gítarundirleik Péturs
Jónassonar verk eftir John Dow-
land, Henry Purcell, Fernando
Obradors og Enrique Granados.
Tónleikarnir taka um það bil
hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir er kr. 500. Ókeypis
er fyrir handhafa stúdentaskír-
teina.
Sópran-
söngur við
gítarleik
Ingibjörg Guðjónsdóttir