Morgunblaðið - 27.03.2001, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 27.03.2001, Blaðsíða 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2001 29 Fyrir konur sem vilja klæðast vel Nýjar sumarvörur Kjólar, jakkar, buxur og víslögð pils úr hör í nýju sumarlitunum og bómullarbolir, bómullarpeysur og jakkapeysur í sömu litum. Ljósar buxna- og pilsdragtir með stuttum jökkum. Sparikjólar. Skólavörðustíg 14 LEIKFÉLAG Siglufjarðar fagn- ar með þessari sýningu fimmtíu ára afmæli sínu. Félagið er nýendurvak- ið, síðasta leikár var það fyrsta eftir nokkurra ára hlé á leikstarfsemi á Siglufirði. Því er ekki að undra að stærstur hluti þátttakenda í Djöfla- eyjunni hefur litla sem enga reynslu eða þjálfun í leikstarfsemi. Hitt vek- ur því frekar furðu hvað hópnum tekst að skila skemmtilegri og góðri sýningu á þessu stóra og mann- marga verki. Það þarf líklega ekki að hafa mörg orð um Djöflaeyjunna, svo vel sem hún er kynnt, lesin í skólum að mér skilst og nú síðast kvikmynduð. Auk þess er söguefnið eiginlega þjóðar- sálin sjálf, við þekkjum okkur öll í þessum gölluðu hetjum og fórnar- lömbum íslenskrar menningarbylt- ingar eftirstríðsáranna. Guðjón Sigvaldason er leikstjóri með persónulegan stíl sem að mörgu leyti hentar óreyndum leikurum vel. Mig minnir að stílnum hafi verði lýst sem „glannalegum“ af dómnefnd þeirri sem tilnefndi sýningu Guðjóns og Leikfélags Hornafjarðar á Djöfla- eyjunni: Athyglisverðustu áhuga- leiksýningu ársins 1994. Mun það ekki fjarri sanni. Síðan hefur stíllinn, glannaskapurinn ef menn vilja, skerpst ef eitthvað er. Hann birtist m.a. í frumlegri notkun á ýmiss kon- ar kórum, tal- og jafnvel búkhljóða- kórum. Hér nýtast slíkir kórar vel, atriði með næturgögn sem umbreyt- ist í rómantíska jólastemmningu er gott dæmi. Þá hefur Guðjón einstakt dálæti á konum á vissum aldri með skuplur, veski og hornspangagler- augu. Það kemur sér vel hér þar sem leikgerðin byggist á notkun sögu- manna og hverjir eru betri sögu- menn en erkitýpískar sögusmettur? Guðjón leggur greinilega mikla rækt við þessi kóratriði, en virðist stund- um ekki eins sýnt um að nostra við hin fínni blæbrigði leiksins, sem stundum verður til þess að mikilvæg augnablik og atriði verða ekki eins áhrifamikil og efni standa til. Um þetta eru líka dæmi í þessari sýn- ingu, svo sem eins og sú umbreyting sem verður á valdahlutföllum í Gamla húsinu þegar kolbíturinn Danni breytist í flugkappa á einni nóttu og veltir augasteininum og ömmubarninu Badda úr sessi sem framtíðarvon fjölskyldunnar. Stíll Guðjóns er hins vegar á heimavelli þegar þarf að skapa tilfinningu fyrir horfnum heimi og er því að mestu leyti kjörinn til að endurreisa Thule- kampinn með öllum þeim einkenni- legu mönnum sem þar draga fram lífið. Leikmyndin, sem einnig er verk Guðjóns, er bæði falleg og hugvit- samleg og nýtist vel. Leikhópurinn er eins og áður sagði mikið til skipaður nýgræðing- um, þó innanum séu reynsluboltar. Í heild skilar hópurinn góðu verki og bráðskemmtilegri sýningu. Af þeim sem mest mæðir á má nefna Sigrúnu Ingólfsdóttur sem smellpassaði í hlutverk Karólínu spákonu og V. Inga Hauksson sem náði góðum tök- um á fótaþurrkunni Tomma. Páll Þorvaldsson er Baddi og sýndi ágæt- lega hvernig töffaraskapur hans er af öðru tagi en drykkjufélaganna, byggður á draumum og frösum en ekki raunveruleikanum. Brynjar Sindri Sigurðarson fór sérstaklega eðlilega og fallega með eintöl Danna. Maríanna Kr. Leós- dóttir og Guðmundur Guðlaugsson voru og prýðileg sem hjónin Dollý og Grettir. Það væri svo sem hægt að halda áfram að telja upp, Drykkjukonan Þórgunnur, nískupúkarnir Fía og Tóti og fleiri eiga sinn þátt í að gera þetta að kostulegri sýningu. Hitt er mikilvægara að vita að nú er greini- lega að renna upp blómaskeið í leik- list á Siglufirði. Það er því rétt að óska til hamingju með afmælið og hlakka svo til næstu heimsóknar. Braggabörn Í umsögn Þorgeirs Tryggvasonar segir meðal annars: „Í heild skilar hópurinn góðu verki og bráðskemmtilegri sýningu. Nú er greinilega að renna upp blómaskeið í leiklist á Siglufirði.“ LEIKLIST L e i k f é l a g S i g l u - f j a r ð a r Höfundur: Einar Kárason, leikgerð Kjartans Ragnarssonar Leikstjóri: Guðjón Sigvaldason Nýja bíó, Siglu- firði, föstudaginn 23. mars 2001. DJÖFLAEYJAN Þorgeir Tryggvason FINNSKA myndin Litla systir eftir Taru Mäkelä segir frá ástum ungrar hjúkrunarkonu í Helsinki í síðari heimsstyrjöldinni. Hún hefur misst eiginmann sinn í stríðinu en kynnist grallara að nafni Arvo á spítalanum og hrífst af honum, þótt ekki sé það sýnilegt þegar það ger- ist, og gamall æskuvinur, Eero, biðl- ar til hennar en er á leiðinni í styrj- öldina aftur og veit ekki hvort hann á afturkvæmt. Úr sögu þessari gerir Mäkelä dauflega en einlæga mynd og gerir sér far um að fjalla á skyn- saman og jarðbundinn hátt um stöðu finnskra kvenna á heimavíg- stöðvunum í styrjöldinni þegar þær stóðu yfir moldum eiginmanna sinna og kynntust nýjum mönnum á óvissutímum. Mäkelä gefur sér allan þann tíma sem hún þarf til þess að segja sög- una með sínum hætti, sem er hægur og lítið dramatískur. Frásagnarað- ferðin er ákaflega lágstemmd, til- finningar hjúkrunarkonunnar eru kaldar og bældar, kannski á finnska vísu, og það er drungi yfir sögunni, sem fellur ágætlega að efninu; myndin gerist öll að vetrarlagi og leikstjórinn notfærir sér það til hins ýtrasta. Það sem enn dregur niður í henni er aðalleikkonan, Vera Kiiskinen. Hún virðist gersamlega ófær um að sýna nokkrar tilfinningar en er sama steinandlitið alla myndina út í gegn. Hún skiptir sjaldnast um svip hvort sem hún er að kveðja ástina sína, sem er á leið í stríðið, situr við banabeð ungs manns, kemst að því að Arvo er ekki allur þar sem hann er séður eða hvað annað sem er. Það er engin leið að komast að því hvað hún er að hugsa, hvaða áhrif atburðirnir í lífi hennar hafa á hana, hvernig hún upplifir sjálfa sig í róti tímans. Hún gefur aldrei færi á sér. Kannski var það meiningin. Út- koman er hins vegar sú að maður er engu nær um aðalpersónu mynd- arinnar. Hún virðist engum breyt- ingum taka frá upphafi til enda. Svo hér er á ferðinni athyglisvert sögusvið en daufleg saga í meira lagi. Ástarsaga Katri KVIKMYNDIR H á s k ó l a b í ó N o r r æ n k v i k m y n d a h á t í ð Leikstjórn: Taru Mäkelä. Aðal- hlutverk: Vera Kiiskinen, Kai Leht- inen, Tarmo Ruubel, Seela Sella, Pirkko Hämäläinen og Anna- Leena Sipilä. Finnland 1999. LITLA SYSTIR – „PIKKUSISAR“ Arnaldur Indriðason Gól fe fn i á s t igahús Ármúla 23, sími 533 5060
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.