Morgunblaðið - 06.04.2001, Qupperneq 1
81. TBL. 89. ÁRG. FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 6. APRÍL 2001
EMBÆTTISMENN Bandaríkja-
stjórnar voru í gær bjartsýnir á að
lausn á deilunum við Kínverja væri í
sjónmáli en samskipti ríkjanna hafa
verið mjög stirð síðan á sunnudag.
Þá skullu bandarísk njósnavél og
kínversk herþota saman undan
ströndum Kína með þeim afleiðing-
um að sú kínverska fórst en banda-
ríska vélin þurfti að nauðlenda á
eynni Hainan í Suður-Kína. Kín-
versk stjórnvöld hafa sakað banda-
rísku flugmennina um að hafa verið
valdir að slysinu en því vísa Banda-
ríkjamenn á bug.
George W. Bush, forseti Banda-
ríkjanna, lýsti í gær hryggð sinni
yfir því að flugmaður herþotunnar
skyldi ekki hafa fundist ennþá. „Ég
harma að kínverski flugmaðurinn
skuli vera ófundinn,“ sagði Bush.
Embættismenn hafa sagt að
Bush muni ekki biðjast beinlínis af-
sökunar eins og kínversk stjórnvöld
hafa farið fram á. En í gær benti
ýmislegt til þess að lausn deilunnar
væri í sjónmáli. Kínverska lögregl-
an leysti til dæmis upp mótmæla-
hóp við bandaríska sendiráðið í
Peking, sem talin er vísbending um
að kínversk stjórnvöld vilji ekki að
reiði vegna atviksins breiðist út
meðal almennings þar. Kínverski
sendiherrann í Washington hitti
einnig aðstoðarutanríkisráðherra
Bandaríkjanna í gær, annan daginn
í röð.
Áhöfn bandarísku vélarinnar er
enn á eynni Hainan og krafðist
Bush þess í gær að hún yrði leyst
strax úr haldi. „Skilaboð mín til
Kínverja eru þau að við ættum ekki
að láta atvikið koma samskiptum
okkar úr jafnvægi. Samband okkar
við Kína er mjög mikilvægt.“ Craig
Quigley varaflotaforingi sagði í gær
að ekki væru neinar vísbendingar
um að áhöfn njósnavélarinnar hefði
verið yfirheyrð en ljóst þykir að
Kínverjar séu áfjáðir í að kynna sér
fullkominn tæknibúnað vélarinnar.
Áhöfnin er sögð hafa eyðilagt
megnið af búnaðinum áður en hún
nauðlenti.
Hafði áður flogið nálægt
bandarískum vélum
Að sögn embættismanna Penta-
gon, bandaríska varnarmálaráðu-
neytisins, hefur flugmaður vélarinn-
ar, Wang Wei, áður flogið nálægt
bandarískum flugvélum. Wang, sem
náði að stökkva í fallhlíf út úr vél-
inni áður en hún fórst, er talinn af.
Embættismaður í Washington
sagði að áður hefðu verið teknar
myndir af kínverskum flugmönnum
sem flogið hefðu nálægt bandarísk-
um vélum. Embættismaðurinn
sagði að kínverskir flugmenn hefðu
verið árásargjarnari undanfarnar
vikur en nokkru sinni fyrr.
Auknar líkur á
að deilan leysist
Washington. AFP, AP, The Daily Telegraph.
Bush forseti harmar lát kínverska flugmannsins
SAMKVÆMT forúrskurði
dómstóls Evrópusambandsins í
Strassborg hafa fyrirtæki á
borð við Levi Strauss ekki
„ótakmarkaðan“ rétt til að
stjórna því hvar vörur þeirra
eru á boðstólum. Þetta þýðir að
stórmarkaðir geta til dæmis
selt gallabuxur á lægra verði en
sérvöruverslanir, gegn vilja
framleiðendanna.
Málið kom upp eftir að
Tesco-verslanakeðjan í Bret-
landi hóf að flytja inn Levi’s 501
gallabuxur frá löndum utan
Evrópusambandsins og bjóða
til sölu í stórmörkuðum sínum
fyrir mun lægra verð en þekk-
ist í sérvöruverslunum. Fram-
leiðandi gallabuxnanna, fyrir-
tækið Levi Strauss, höfðaði mál
fyrir breskum dómstóli árið
1999 og krafðist þess að Tesco
yrði meinað að selja buxurnar,
á þeirri forsendu að það skaðaði
ímynd vörumerkisins.
Í forúrskurði eins af aðallög-
sögumönnum Evrópusam-
bandsdómstólsins, Christine
Stix-Hackl, segir að ekki megi
horfa fram hjá hagsmunum
innflytjenda í málum er lúta að
vörumerkjum.
Einnig er hvatt til þess að
breski dómstóllinn, sem kveða
mun upp endanlegan úrskurð í
málinu síðar á þessu ári, kanni
hvernig sölu Levi’s gallabuxna
sé háttað utan Evrópu enda
hafi komið fram vísbendingar
um að viðskiptavinir njóti ekki
alls staðar aðstoðar sérþjálfaðs
starfsfólks eða hafi aðgang að
mátunarklefum, eins og fram-
leiðandinn heldur fram að sé
nauðsynlegt.
Gallabux-
ur á góðu
verði
Brussel. AP.
GEORGE W. Bush, fyrrverandi
Bandaríkjaforseti og faðir núver-
andi forseta, brosti og breiddi
faðminn mót sólinni þar sem hann
var í bátsferð á Lugano-vatni í gær.
Lá leiðin til Bissone í Sviss þar sem
snæddur var hádegisverður. Bush
er í Lugano í einkaheimsókn.
AP
Brosleitur í Sviss
SPRENGIKÚLUM var skotið á
Netiv Haasarah-samyrkjubúið í
Ísrael í gærkvöld, skammt frá
landamærunum við Gaza-svæðið, að
því er ísraelska sjónvarpið greindi
frá. Einnig var skotið á landnáms-
svæði gyðinga nyrst á Gaza. Svo
virðist sem árásin í gærkvöld hafi
verið svar íslömsku skæruliðasam-
takanna Jihad, eða Heilags stríðs,
við morði á einum félaga samtak-
anna, Iyad Hardan, fyrr í gær
skammt frá borginni Nablus á Vest-
urbakkanum. Fregnir herma að
Hardan hafi fallið er falin sprengja
sprakk í símaklefa sem hann notaði
oft.
Bandaríkjastjórn fordæmdi í gær
áætlanir Ísraela um ný landnáms-
svæði á palestínskum landsvæðum
og sagði áætlanirnar „ögrun“ og
ganga þvert á það sem Bandaríkin
telji stuðla að friði og stöðugleika
fyrir botni Miðjarðarhafs. Ennfrem-
ur var krafist skýringa á því að skot-
ið hefði verið að bílalest embættis-
manna Palestínustjórnar er var á
heimleið frá Tel Aviv til Gaza en hún
hafði átt viðræður við ísraelska full-
trúa að undirlagi Bandaríkjamanna.
Munu sendimenn hinna síðast-
nefndu hafa verið í grennd við bíla-
lestina er skothríðin hófst. Richard
Boucher, talsmaður utanríkisráðu-
neytisins í Washington, sagði að um
alvarlegan atburð væri að ræða. Það
væri skylda Ísraela að tryggja ör-
yggi samningamanna Palestínu-
manna sem væru á leið til og frá við-
ræðufundum. „Fyrir fundinn höfðu
ísraelskir embættismenn fullvissað
okkur um að það yrði gert,“ sagði
Boucher.
Evrópusambandið fordæmdi
einnig áætlanirnar um landnám og
sagði brýnt að þær kæmu ekki til
framkvæmda. Ýmsir leiðtogar frið-
arsinna í Ísrael voru einnig hvass-
yrtir og sögðu að með áætlununum
virtust stjórnvöld vera markvisst að
grafa undan öllum tilraunum til að
semja um frið.
Landnámssvæðin, sem ganga í
berhögg við alþjóðalög, hafa verið
einn helsti ásteytingarsteinninn í
uppreisn Palestínumanna gegn her-
námi Ísraela undanfarið hálft ár.
Skotið á samyrkjubú
nálægt Gaza-svæðinu
Jerúsalem, Washington. AFP.
HLUTABRÉF á Dow Jones-mark-
aðnum bandaríska hækkuðu í gær
um rúm 402,6 stig eða 4,2% og hafa
þau ekki hækkað meira á einum degi
síðan í mars í fyrra. Nasdaq-vísitalan
hækkaði enn meira eða um 8,9%.
Tvö stórfyrirtæki, tölvufyrirtækið
Dell og álsamsteypan Alcoa, sendu í
gær í fyrsta skipti í nokkra mánuði
frá sér tilkynningu um góðan hagn-
að.
Er talið að tíðindin hafi aukið mjög
vonir manna um að samdrætti í efna-
hagnum sé að ljúka og þannig ýtt
undir hækkun. Sumir sérfræðingar
voru þó varkárir og sögðu að fleiri
góð tíðindi yrðu að berast á næstunni
ef takast ætti að snúa þróuninni við.
Hlutabréfamarkaðirnir
Veruleg hækkun
New York. AP.
ÆTTINGJAR Serba, sem horfið
hafa í Kosovo, mótmæla í Belgrad í
gær í tilefni fundar Vojislavs Kost-
unica, forseta Júgóslavíu og Hans
Hækkerups, æðsta fulltrúa Samein-
uðu þjóðanna í Kosovo.
Reuters
Mótmæli í Belgrad
Leiðtogar /26