Morgunblaðið - 06.04.2001, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 06.04.2001, Blaðsíða 53
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2001 53 ✝ Nelson IvanJapke Adriasola fæddist í Valparaíso í Chile 22. mars 1957. Hann lést í umferðar- slysi í Lögbergs- brekku á Suðurlands- vegi 31. mars síðast- liðinn. Foreldrar hans eru hjónin Guido Japke Salas og Alicia Adriasola, nú búsett í Santiago, en bjuggu áður í Quilpue þar sem Nel- son ólst upp. Bræður hans eru Guido (látinn) og Marco. Nelson kvæntist 29. júlí 1980 eftirlifandi eiginkonu sinni, Maritzu Sepúlv- eda Benner, f. 10. ágúst 1954. For- eldrar hennar eru hjónin Maria Benner Martinez og Carlos Sep- úlveda Vega (látinn). Börn Nel- sons og Maritzu eru þrjú: 1) Pablo, f. 6. ágúst 1976, unnusta hans er Þrúður Helgadóttir, f. 18. febrúar 1984. 2) Christian, f. 14. ágúst 1981, eiginkona hans er Marilen Varas, f. 12. nóvember 1983, og sonur þeirra Guido Javier Japke Varas, f. 3. nóvember 2000. 3) Maritza f. 2. desem- ber 1983. Nelson lauk námi í bókhaldi og endur- skoðun í heimalandi sínu og rak um tíma endurskoðunarskrif- stofu í Viña Del Mar. Hann vann sem mat- reiðslumaður og bif- reiðastjóri í Andorra í nokkur ár og starfaði hjá trygg- ingafélaginu Santa Maria í Chile. Nelson fluttist til Íslands í janúar 2000 og settist að á Bjargi í Djúp- árhreppi í næsta nágrenni Hellu. Þar starfaði hann hjá Glerverk- smiðjunni Samverki til dauðadags. Bálför Nelsons fer fram á Ís- landi en duftker hans verður jarð- sett í Chile. Minningarathöfn um hann og Paulu Andreu Yañez Vega verður í Oddakirkju á Rang- árvöllum í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Nelson Ivan Japke Adriasola kom til vinnu í Samverk fyrir einu ári. Hann bauð strax af sér góðan þokka og varð fljótt einn af okkur. Í fyrstu talaði hann enga íslensku og samskipti fóru aðallega fram með handahreyfingum í bland við spænsk orð og gekk það vel. Nelson lagði sig fram um að læra íslensku með því að lesa dagblöð og bækur og eftir því sem mánuðirnir liðu tókum við eftir því að hann var farinn að skilja málið betur og gat orðið bjargað sér allvel í daglegum samskiptum. Nelson var mjög þægilegur mað- ur, áhugasamur og duglegur við verk sín. Hann var rólegur maður að yfirbragði en alltaf var stutt í brosið og góða kímnigáfu. Öllum vinnu- félögunum líkaði mjög vel við hann og er hans sárt saknað. Við viljum því kveðja góðan sam- starfsfélaga og vin og senda eigin- konu hans, Maritzu, börnum þeirra og öðrum aðstandendum, okkar dýpstu samúðarkveðjur. Megi sál hans hvíla í friði. Einnig sendum við aðstandendum Paulu Andreu Yanez Vega innilegar samúðarkveðjur. Fyrir hönd samstarfsfólks í Sam- verk. Ragnar Pálsson. NELSON IVAN JAPKE ADRIASOLA MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@- mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðu- grein af hæfilegri lengd, en aðr- ar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfi- lega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir grein- unum. Formáli minningargreina Æskilegt er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um. Frágangur afmælis- og minning- argreina "   @@/."3  # 77 ! 8$  ! $   2$  $2$    4 &+%,, 7 0       , @07  5  #        1 3 & +/,, $    65(7859#65(7859##'*59 =, 8               :    ; :    ; 1 $       > 3 8  8/3 3;. ! + =0<D! 7 (7,   )* +   0!   8      !    # ,1,    , @07  < $ #       1 3 &     76  6 7! " ,     " 3 /. 1 ; @9# %D! +0 -7=!    1   + & = 1     >  $>  1   4 &+%,, 6 8  0! 68 0 ! 1 4/0 E=6 60! 5 (   6  ! 6   60, . "        + @ "A/2  @3   #   -+ -!0  -  ! 3F"4 9!    !    21     + & = 1     !1    $   4 &+%,, 7=-  0       , .           A3.13;.  -5(7(19  !           ! 5  $  / &   $   6 $   ++ &+%,, "  " 6 0!   "7  !  " 6   ! 8  7 ?=*0! #  # !#  #  #  0       , ✝ Paula AndreaYañez Vega fæddist í Valparaíso í Chile 11. maí 1975. Hún lést í umferðar- slysi í Lögbergs- brekku á Suður- landsvegi 31. mars 2001. Foreldrar hennar eru hjónin Rosa Vega Cataldo og Miguel Yañez Nieto, búsett í Viña Del Mar, þar sem Paula átti heima mestan hluta ævi sinnar. Bræður henn- ar eru Fernando, Claudio og Sebastian. Hún giftist 16. apríl 1999 eftirlifandi eiginmanni sín- um Jorge Andrési Rojas Sepúlv- eda, f. 5. mars 1975. Foreldrar hans eru hjónin Luz María Sepúlv- eda Benner og Ant- onio Chávez Mend- oza. Sonur Paulu og Andrésar er Franco Yañez Yañez, f. 23. mars 1993. Paula stundaði læknarit- aranám og vann verslunarstörf í Chile áður en hún fluttist til Íslands í mars 1999 og settist að á Hellu. Þar starf- aði hún á Dvalar- heimilinu Lundi til dauðadags. Bálför Paulu fer fram á Íslandi en duftker hennar verður jarðsett í Chile. Minning- arathöfn um hana og Nelson Ivan Japke Adriasola verður í Odda- kirkju á Rangárvöllum í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Kveðja frá Dvalarheimilinu Lundi Þín augu mild mér brosa á myrkri stund og minning þín rís hægt úr tímans djúpi sem hönd er strýkur mjúk um föla kinn þín minning björt. (Ingibjörg Haraldsd.) Sannarlega er minning okkar allra um Paulu björt, bæði starfsfólks og heimilisfólks á Dvalarheimilnu Lundi. Hún var einstaklega glæsileg stúlka og viðfelldin. Það geislaði af henni suðræn hlýja og bjart brosi. Það lýsir áræði og dugnaði að taka sig upp frá heimalandi sínu Chile og flytj- ast hingað með dvöl til lengri tíma í huga. Ég hef oft leitt að því hugann hve menning okkar væri snauð ef við ættum þess ekki kost að kynnast fólki frá öðrum þjóðum. Paula notaði tím- ann vel á Íslandi til að búa sér og manni sínum heimili svo hún gæti vel fyrir séð Franco syni sínum. Hann dvaldi í Chile hjá afa sínum og ömmu þar til í nóvember sl. að þau hjónin sóttu hann. Þegar þau komu aftur eft- ir mánaðardvöl í Chile sagði hún mér hversu ánægð hún væri að vera kom- in til Íslands á ný. Það var yndislegt að fylgjast með Paulu umvefja Franco móðurkærleika eftir hina löngu fjarvist. Paula var hamingju- söm og ætlaði ásamt Andres svo margt að gera, augun tindruðu þegar hún sagði frá því sem var á döfinni. En eins og hendi sé veifað er endi bundinn á hennar jarðneska líf. Hví var þessi beður búinn, barnið kæra, þér svo skjótt? Svar af himni heyrir trúin hljóma gegnum dauðans nótt. Það er kveðjan: ,,Kom til mín!" Kristur tók þig heim til sín. þú ert blessuð hans í höndum, hólpin sál með ljóssins öndum. (Björn Halldórsson.) Laugardagurinn 31. mars rann upp bjartur og fagur og sól skein í heiði. Ekki óraði okkur fyrir að áður en dagur rynni fengjum við þá harma- fregn að kær samstarfsfélagi okkar og vinkona, hún Paula, væri látin. Hún lést ásamt landa sínum, Nelson, í hörmulegu bílslysi þann dag. Paula kom til okkar í vinnu fyrir um einu og hálfu ári, framandi og falleg í útliti, prúð og alveg sérstaklega elskuleg í fasi, alltaf brosandi. Maður getur rétt ímyndað sér hvað það hljóti að vera erfitt að flytja frá landi eins og Chile til lands eins og Íslands þar sem ekki bara loftslagið er gerólíkt heldur og menningarheimurinn allt annar. En Paula var ekki í neinum vandræðum með að aðlagast íslenskum aðstæðum og íslenskri menningu og talaði hún oft um það hversu ánægð hún og fjöl- skylda hennar væru hér á Íslandi. Paula var alveg einstaklega vinnusöm og natin við sín störf. Heimilisfólkinu á Lundi sýndi hún einstaka hlýju og velvild, alltaf tilbúin að rétta því hjálparhönd. Það var eftirtektarvert hversu fljót Paula var að tileinka sér íslenskuna og var hún sjaldan í vand- ræðum með að gera sig skiljanlega og lagði allan sinn metnað í að skilja okk- ur samstarfsfélagana og heimilisfólk- ið. Þar skorti sko ekki þolinmæðina. Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins blóm er verður að hlíta þeim lögum að beygja sig undir þann allsherjar dóm sem ævina telur í dögum. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni. Og nú ertu genginn á guðanna fund það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingr.) Við söknum Paulu sárt og þökkum henni samfylgdina þennan stutta tíma sem við nutum hennar. Skarðið í starfsmannahópi Lundar sem hún skilur eftir sig verður vandfyllt. Við sendum Andreas eiginmanni hennar, Franco syni hennar og öðrum ástvin- um okkar dýpstu samúðarkveðjur. Biðjum Guð að styrkja ykkur í sorg- inni. Samstarfsfólk á Lundi, Hellu. PAULA ANDREA YAÑEZ VEGA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.