Morgunblaðið - 06.04.2001, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 06.04.2001, Blaðsíða 70
JÓEL Pálsson er með færaridjassleikurum sinnar kyn-slóðar og þrátt fyrir unganaldur hefur hann skipað sér í fremstu röð í þeim geiranum hér á landi. Árið 1998 sendi hann frá sér sína fyrstu plötu, Prím, hið stöndug- asta verk þar sem öll lögin eru eftir Jóel fyrir utan eitt sem er þjóðlag. Jóel gerði svo samning við fyrirtækið Naxos í kjölfarið, sem er æði um- svifamikið á útgáfu á djassi – helst þó sígildri tónlist, og fékk platan dreif- ingu í fjörutíu löndum. Platan fékk hvarvetna lofsamlega dóma. Klif er önnur plata Jóels og kveður þar við nokkuð annan tón en á Prím. Hún ber líka þann heiður að vera fyrsta útgáfa Eddu á tónlistarsvið- inu, en Edda er, eins og fram hefur komið hér síðum Morgunblaðsins, nýtt útgáfufyrirtæki sem varð til við samruna Vöku/Helgafells og Máls og menningar. Platan kemur út á und- irmerki þess, Óma, sem m.a. er ætlað að taka yfir djass og sígilda tónlist. Gegnt afgreiðsluborðinu Það er alltaf menningarlegt að hittast á Mokka og ræða málin – er það ekki? Alltént mæltum við Jóel okkur mót þar til að ræða þessa nýju plötu hans. Staðurinn var valinn, að ég held, vegna hagnýtni fremur en í bóhemískum tilgangi, þar sem Jóel var við æfingar í nágrenninu. Við komum okkur fyrir úti horni, gegnt afgreiðsluborðinu, og tókum óðar að spá í umlagið á disknum sem er í senn bæði forkunnarfagurt og stílhreint. Jóel tjáir mér að höfundur myndar- innar sem prýðir það sé enginn annar Bjarni H. Þórarinsson, stundum kall- aður Kokkur Kyrjan Kvæsir, sem fastagestir veitingastaðarins 22 hér í gamla daga ættu að kannast við. „Ég er svolítið að bauka með nýjar hugmyndir á þessari plötu,“ segir Jó- el eftir að við höfum rætt lítillega um fyrri plötuna, Prím. „Það er auðvitað enginn tilgangur í því að gera hina plötuna aftur.“ Jóel segist vera að leika sér með nokkrar ólíkar hugmyndir á plötunni nýju. „Hugmyndin er sú að þetta sé ein heild frá fyrsta lagi til hins síð- asta. Einnig er ég að taka áhrif að víðar en bara úr djassi. Við leikum okkur líka svolítið með formið á lög- unum, reynum að púsla þeim aðeins öðruvísi saman en tíðkast alla jafna.“ Jóel segir að svo mikil áhersla hafi verið lögð á það að platan yrði heil- steypt að hann hefði í nokkrum til- vikum sleppt ákveðnum lögum sem voru sem slík prýðissmíðar en féllu einfaldlega ekki að heildarmyndinni. Hann segir að pælingin hafi líka verið að brjóta hljómsveitarformið upp. „Við erum svona að reyna að „fletja“ þetta út. Ekki að staðsetja mig endilega fremst, heldur líka að ég sé jafnvel að spila undir hjá þeim.“ Meðspilarar Jóels eru ekki af lakara taginu, svo mikið er víst. Þeir Hilmar Jensson gítarleikari, Skúli Sverrisson bassaleikari og Matthías Hemstock trommuleikari eru ekki aðeins með allra sjóuðustu djass- leikurum landsins heldur mynda þeir jafnframt óeiginlegt landslið Íslands um þessar mundir hvað framsækinni djasstónlist viðkemur. Jóel segir að undanfarið hafi áhugi hans í garð raftónlistar vaxið ansi mikið. „Það er ekki hægt að vera með betri menn með sér en Hilmar, Skúla og Matta. Þeir galdra fram alveg ótrú- legustu stemmningar með þessi tæki og tól sem þeir eru með. Ég notast líka við hið sjaldgæfa kontrabassa- klarinett sem ég er kolfallinn fyrir.“ Býsna opið Klif er þannig plata að mann grun- ar að hún eigi eftir að hafa nokkuð víðtæka skírskotun. Þarna er nægi- lega mikill djass fyrir djassarana en svo er hún vel skreytt af áhrifum héð- an og þaðan svo að aðdáendur tónlist- ar sem er rokkkyns eða þá með til- raunakenndum brag kveikja hæglega á plötunni. „Fólk hérna virðist orðið býsna op- ið fyrir nýjungum,“ segir Jóel og seg- ir það koma sér þægilega á óvart. Hann segir í framhaldi að áhrif frá Hilmari og Matthíasi hafi haft nokk- ur áhrif á íslenska ungliða í djass- heiminum í dag, en þar hafa menn verið afar opnir fyrir tilraunastarf- semi ýmiss konar. Hann tiltekur at- hyglisvert dæmi í þessu sambandi. „Við héldum nokkra tónleika er- lendis í tengslum við fyrri plötuna. Sumum útlendingum fannst þau lög vera meira úti á jaðrinum á meðan við sjálfir álitum plötuna vera í hefð- bundnari kantinum.“ Undanfarin 2-3 ár hafa ungir djassarar eins og Samúel Samúels- son, Davíð Þór Jónsson, Helgi Svavar Helgason, Valdimar Kolbeinn Sigur- jónsson og Ómar Guðjónsson verið áberandi í íslensku djasslífi í gegnum verkefni eins og Drum’n’Brass, Flís og a(superscript: d)-(a)n’ak svo dæmi séu nefnd. „Það er fullt af strákum sem hafa verið að koma fram undanfarið sem eru alveg ferlega góðir og alveg til í að gera eitthvað meira en að vera bara ferlega góðir,“ segir Jóel athug- andi. „Það er allt í lagi að vera ferlega góður en það er bara ekki nóg. Það verður að vera eitt- hvað meira.“ Jóel bætir því svo við að fjöldi góðra spilara hér á landi sé al- veg lygileg- ur og staðall- inn sé mjög hár. Innblástur Talið berst aftur að meðspilurunum. Jóel segist hafa spilað mjög mikið með Hilmari og Matta eins og hann kallar hann. „Þá er ég farinn að þekkja býsna vel. Þeir eru alltaf leitandi í tónlistinni. Það er ekki nóg með að þeir séu frábærir hljóðfæraleikarar heldur eru þeir alltaf að þróa og þroska smekkinn hjá sér. Það er alveg nauðsynlegt ef mað- ur ætlar ekki að staðna í því sem maður er að gera. Þess vegna veita þeir mér sífelldan innblástur.“ Skúla segist hann svo þekkja ágætlega þótt hann hafi ekki spilað mikið með honum. „Ég var mjög ánægður að hann skyldi hafa komið hingað sérstaklega til að gera þetta (Skúli býr í New York) í miðjum upp- tökum með Laurie Anderson,“ segir Jóel að lokum, sýnilega sáttur með þessu nýju og metnaðarfullu plötu sína. „Í lagi að vera ferlega góður – en það er bara ekki nóg“ Fyrsta tónlistarútgáfa hins nýstofnaða út- gáfufyrirtækis Eddu er verkið Klif eftir saxófónleikarann Jóel Pálsson. Arnar Egg- ert Thoroddsen ræddi við Jóel um plötuna sem markar viss vatnaskil í útgáfu hérlendis. Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson Jóel Pálsson: „Enginn tilgangur í því að gera hina plötuna aftur.“ Jóel Pálsson gefur út hljómplötuna Klif í dag arnart@mbl.is Klif er önnur plata Jóels. FÓLK Í FRÉTTUM 70 FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ Ferskir og fallegir litir fyrir alla. Komdu við í Aveda búðinni í Kringlunni og fáðu ráðgjöf. VOR 2001 FÖRÐUNARVÖRUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.