Morgunblaðið - 06.04.2001, Blaðsíða 22
VIÐSKIPTI
22 FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fermingargjafir
Damask sængurverasett með ísaumuðum skammstöfunum
eða nafni. Merkjum einnig í handklæði. Póstsendum.
Upplýsingar í síma 557 1415.
Merkjasaumur - Skemmuvegi 4 - Kópavogi
Íslandi hf. og Fjarskiptafélaginu
Títan hf., samtals að fjárhæð tæp-
lega 1,2 milljarðar króna.
Ýmis sóknarfæri fyrir
hendi erlendis
Á fundinum kom fram að Ís-
landssími hafi hafið útrás með
stofnun TeleF í Færeyjum, en Ís-
landssími á 50% í því félagi. For-
stjóri sagði ýmis önnur sóknarfæri
vera fyrir íslensk fjarskiptafyrir-
tæki erlendis og mikil þekking sé á
þessu sviði hér á landi. Íslandssíma
bjóðist ýmis tækifæri um þessar
mundir. Þá sé ekki síður áhuga-
verður kostur að flytja þekkingu út
beint og Íslandssími hafi þróað
reikninga- og þjónustukerfi, cWell,
í samstarfi við IBM og Ericsson.
Kerfið sé að fullu í eigu Íslands-
síma en þrír aðilar noti það í dag.
Mikil fjölgun smærri fjarskiptafyr-
irtækja í Evrópu sé viðskiptatæki-
færi fyrir cWell sem vert sé að
skoða af fullri alvöru og hafi
stjórnin ákveðið að setja þetta
verkefni í sjálfstætt fyrirtæki, sem
miklar vonir séu bundnar við.
8% hlutdeild í hefðbundinni
símaþjónustu heimila
2.000 GSM-farsímasamningar
hafa verið gerðir frá því farið var
að bjóða þá þjónustu fyrir nokkr-
um vikum. Forstjóri félagsins segir
að viðskiptavinir ættu að óbreyttu
að vera orðnir 20.000 í árslok. Fyr-
irtæki í heildarþjónustu eru nú yfir
200, sem er meira en áætlanir
gerðu ráð fyrir. Þar af eru 34 af
100 stærstu fyrirtækjum landsins
og þrjú af stærstu sveitarfélög-
unum í viðskiptum við Íslandssíma.
Íslandssími er með 10% hlutdeild í
símtölum út úr landinu og 20% inn
í landið. Hlutdeild Íslandssíma í
hefðbundinni símaþjónustu við
heimili er nú um 8%, en þjónustan
var fyrst boðin í nóvember í fyrra.
Hluthafar voru 751 í lok síðasta
árs og hafði þeim þá fjölgað um
706 á árinu. Aðeins Burðarás ehf.
og 3P Fjárhús hf. eiga yfir 10% í
Íslandssíma, en þau eiga 14% hvort
félag.
Líkur á tveimur skráðum fjar-
skiptafyrirtækjum fyrir árslok
Stjórnarformaður greindi frá því
að unnið sé að undirbúningi fyrir
skráningu félagsins á aðallista
Verðbréfaþings Íslands. Tekin hafi
verið ákvörðun um að ljúka þessu
ferli fyrir mitt ár samhliða útboði á
nýju hlutafé. Hann sagði miklar
líkur vera til þess að fyrir lok
þessa árs muni almenningi og fag-
fjárfestum bjóðast hlutabréf í
tveimur skráðum fjarskiptafyrir-
tækjum á Verðbréfaþingi Íslands.
Það muni efla bæði innlendan
hlutabréfamarkað og fjarskiptaiðn-
að.
Á aðalfundinum, þar sem mætt
var fyrir 67,19% hlutafjár, var
samþykkt samhljóða að greiða ekki
út arð fyrir síðasta ár. Fundurinn
kaus félaginu nýja stjórn. Í henni
sitja Páll Kr. Pálsson, Kristján
Gíslason, Margeir Pétursson og
Vilhjálmur Þorsteinsson, sem allir
áttu sæti í fyrri stjórn. Eyþór Arn-
alds hætti í stjórn en Stefán H.
Stefánsson kom nýr inn.
Íslandssími stefnir að skráningu á Verðbréfaþing fyrir mitt ár
Mikill vöxt-
ur ein-
kenndi
reksturinn
5(6
5(&
!
7
( !
-
8
1
*!!
, 4
" !
9
8
1! "28
,
9!(
&
,
0
0
.
0
0
)*
0
.
)
!"
!#"
$!"
#"
$%&"
&%"
&&&"
#"
&"
$#%"
#"
$%"
&"
"
'
( ))
( ))
( ))
'
'
Eyþór Arnalds, forstjóri Íslandssíma, segir markmið félagsins að hagnaður verði af rekstrinum á þessu ári.
AÐALFUNDUR Íslandssíma hf.
var haldinn í gær. Þar kom fram í
ræðu stjórnarformanns, Páls Kr.
Pálssonar, að heildarvelta sam-
stæðunnar hefði í fyrra verið um
790 milljónir króna, sem sé um-
fram þau markmið sem félaginu
hafi verið sett í lok árs 1999. Árið í
fyrra var fyrsta heila rekstrarár
félagsins, en árið á undan voru
tekjur félagsins 12 milljónir króna.
Eyþór Arnalds, forstjóri Íslands-
síma, sagði í skýrslu sinni til fund-
arins að markmið félagsins væri að
vera með yfir hálfan annan millj-
arð króna í tekjur á yfirstandandi
ári. Þá væri gert ráð fyrir hagnaði
á árinu, en í fyrra var tap félagsins
tæpur hálfur milljarður króna.
Eignir fjórfölduðust milli ára
Mikil uppbygging hefur átt sér
stað hjá félaginu. Fjárfesting í var-
anlegum rekstrarfjármunum nam
rúmum hálfum öðrum milljarði
króna, þar af fóru um 80% í fjar-
skiptabúnað. Innborgað hlutafé
nam tæpum 1,1 milljarði króna á
árinu og ný langtímalán voru tekin
að upphæð rúmar 250 milljónir
króna. Stærsti þáttur fjármögnun-
ar var hækkun skammtímaskulda
upp á tæpa 1,4 milljarða króna. 880
milljónir króna af þessari upphæð
var breytanlegt skuldabréf hjá
Landsbanka Íslands. Bankinn hef-
ur heimild til að breyta höfuðstóli
lánsins í hlutafé að nafnverði allt
að 55 milljónir króna og gildir
heimildin til loka júní á þessu ári.
Hlutafé er nú 388 milljónir króna.
Alls jukust eignir félagsins úr
rúmum einum milljarði króna í
tæpa fjóra milljarða króna. Hluti
aukinna umsvifa félagsins fólust í
fjárfestingum þess í öðrum félög-
um. Hæst ber fjárfestingar í Ís-
landssíma GSM ehf., Interneti á
Morgunblaðið/Rax
LÍNA.Net og Tal hafa skrifað undir
samtengisamning um flutning sím-
tala milli ljósleiðarakerfis Línu.Nets
og hins almenna símanets í gegnum
Tal. Með samningnum verður
Lína.Net fyrsta íslenska fjarskipta-
fyrirtækið, sem veitir einstaklingum
og fyrirtækjum almenna símaþjón-
ustu með IP-símtækni. Viðskiptavin-
ir fá þjónustuna í gegnum tengingu
við ljósleiðarakerfi Línu.Nets. Í til-
kynningu um samninginn kemur
fram að með IP-símtækni er mögu-
legt að flytja símtöl yfir netkerfi fyr-
irtækja, stofnana og heimila á auð-
veldan hátt því þá þarf ekki lengur
aðgreindar síma- og tölvulagnir. Við-
skiptavinurinn fær einn kapal inn til
sín og getur síðan valið sér þjónustu,
svo sem síma, netaðgang, LAN-
LAN, hýsingu, fjarfundi eða gagn-
virkt sjónvarp. Í tilkynningunni seg-
ir að markmiðið með hinum nýja
samningi sé að tengja saman fjar-
skiptakerfi Línu.Nets og Tals svo að
símaumferð fari óhindruð sína leið
milli IP-símstöðva Línu.Nets og al-
menna símkerfisins.
Lína.Net og
Tal gera sam-
tengisamning
STJÓRN breska seðlabankans ákvað
í gærmorgun að lækka stýrivexti
bankans í 5,5%, eða um 25 punkta og
hafa stýrivextir bankans ekki verið
lægri í 16 mánuði. Þetta er í annað
skiptið á þessu ári sem bankinn lækk-
ar stýrivextina, en í febrúar lækkaði
bankinn vextina um 25 punkta.
Í tilkynningu frá bankanum kemur
fram að vaxtalækkunin sé vegna
áhrifa samdráttar í Bandaríkjunum á
efnahagslífið í Bretlandi. Vísar stjórn-
in einnig í þau áhrif sem gin- og
klaufaveikin hefur haft á efnahagslíf í
landinu og samdrátt í efnahagskerfi
heimsins.
Breski seðla-
bankinn
lækkar vexti
TILBOÐSFRESTUR yfirtöku-
tilboðs til hluthafa Frjálsa fjár-
festingarbankans hf. rann út 26.
mars síðastliðinn og samþykktu
alls um 21,4% hluthafa tilboðið.
Kaupþing hf. og aðilar sem stóðu
sameiginlega að kaupum á Frjáls
fjárfestingarbankanum hf. um
síðustu áramót hafa því eignast
98,64% af heildarhlutafé félagsins.
Alls 68 hluthafar hafa ekki
svarað tilboðinu og er langstærsti
einstaki útistandandi hlutinn að
nafnvirði 6.504.610 krónur.
Eins og fram kom í yfirtöku-
tilboðinu var fyrirhugað að sækja
um afskráningu hlutabréfa
félagsins hjá Verðbréfaþingi Ís-
lands hf., enda uppfylla þau ekki
skilyrði 9. gr. reglna um skrán-
ingu verðbréfa á Verðbréfaþingi
Íslands hf.
Kaupþing
með
98,64%
hlutafjár
Frjálsi fjárfesting-
arbankinn hf.
STJÓRN Verðbréfaþings Íslands hf.
hefur ákveðið að breyta reglum um
skráningu verðbréfa á Verðbréfa-
þingi þannig að félög þurfi ekki að
hafa þriggja ára rekstrarsögu eins
og hingað til hefur verið. Við níundu
grein reglna um skráningu verð-
bréfa hefur bæst eftirfarandi máls-
grein: „Stjórn þingsins getur við
skráningu veitt undanþágu frá skil-
yrði um aldur, enda sé slíkt æskilegt
í þágu útgefandans og stjórn þings-
ins telur að fjárfestar hafi nauðsyn-
legar upplýsingar til þess að geta
myndað sér skoðun á útgefandanum
og hlutabréfum þeim sem sótt er um
skráningu á, kostum þeirra og göll-
um.“ Í tilkynningu frá Verðbréfa-
þingi segir að rökin fyrir þessari
breytingu séu þau að aldur hafi ekki
afgerandi áhrif á verðmyndunina.
Yngri
félögum
heimiluð
skráning
Breyting á
reglum VÞÍ
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
ÍSLENSKIR aðalverktakar hf. hafa
selt Landsbankanum-Fjárfestingu
hf. hlutafé í Eignarhaldsfélaginu Al-
þýðubankanum hf., EFA, að upphæð
50.830.000 krónur og eftir þau við-
skipti er eignarhlutur Íslenskra að-
alverktaka hf. í EFA samtals
84.125.575 krónur, eða 6,27% af út-
gefnu hlutafé. Við kaupin fer saman-
lagður eignarhlutur Landsbanka Ís-
lands hf. og dótturfélaga í EFA úr
38.454.821 krónum að nafnverði, eða
2,9%, í 89.284.821 krónur að nafn-
verði, eða 6,7%. Samþykkt var á aðal-
fundi Eignarhaldsfélagsins Alþýðu-
bankans hf. 4. apríl síðastliðinn útgáfa
nýs hlutafjár að upphæð 69.955.574
krónur til lúkningar kaupsamnings
við Íslenska aðalverktaka hf. vegna
fyrri kaupa EFA á 25,5% hlut í
Landsafli hf. Eftir þá hlutafjárútgáfu
varð eignarhlutur Íslenskra aðalverk-
taka hf. í Eignarhaldsfélaginu Al-
þýðubankanum hf. samtals 10,06%.
Landsbankinn kaupir í EFA