Morgunblaðið - 06.04.2001, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 06.04.2001, Blaðsíða 35
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2001 35 Í Morgunblaðinu 27. mars s.l. var grein um Flatey á Breiða- firði sem bar yfir- skriftina: „Sameining Flateyjar og Stykkis- hólms í eitt sveitar- félag“, þar sem því er haldið fram að öll sú þjónusta sem Reyk- hólahreppur veitir í Flatey sé ófullnægj- andi og í algjöru lág- marki. Ýmsar rang- færslur eru í greininni, t.d. er sagt að Barðastrandar- hreppur hafi tilheyrt Austur-Barðastrand- arsýslu. Það er ekki rétt, hann er í Vestur-Barðastrandarsýslu. Af greininni má ráða að fjölmenni búi í Flatey, en þar eru aðeins 7 íbúar skráðir 1. des. sl. þó að á sumrin sé þar fólk í mislangan tíma í gömlu húsunum. Hið eina rétta sem þar er sagt er að erfitt er vegna stað- hátta að þjóna Flatey þar sem stjórnsýsla Reykhólahrepps er staðsett á Reykhólum. Það hefur hins vegar ekki komið í veg fyrir að Reykhólahreppur fullnægi öllum sínum skyldum vegna Flateyjar samkvæmt sveitarstjórnarlögum, og skal það nú rakið í stuttu máli. Sorphreinsun Venjulegri sorphreinsun er sinnt með samningi við verktaka í Stykk- ishólmi sem hefur gáma staðsetta í Flatey og eru þeir fluttir reglulega með Baldri og losaðir vikulega yfir sumarið en á 2ja vikna fresti að vetri til. Þess má geta að íbúar í öðrum hlutum Reykhólahrepps þurfa mun lengri vegalengdir til að losa sitt heimilissorp í gáma en íbúar Flat- eyjar. Kostnaður við sorplosun í Flatey ár- ið 2000 var um 400.000 kr. Slökkviliðsmál Slökkviliðsstjóri í Flatey er Magnús Jónsson í Krákuvör og heldur hann slökkvi- liðsæfingar þegar flest er af sumardval- arfólki í Flatey. Slökkvibúnaður er til- tækur á kerru og tal- inn fullnægja þörfinni sem til staðar er. Var hann keyptur fyrir nokkrum árum af Framfarafélaginu en Reykhóla- hreppur tók að sér að greiða kostn- aðinn sem var rúmlega hálf milljón króna. Skipulagsmál Fyrir nokkrum árum var unnið aðalskipulag fyrir Flatey og síðan deiliskipulag af tilteknum hlutum eyjarinnar. Uppreiknað til verð- lags í dag kostaði það um þrjár milljónir króna. Og þær breytingar sem síðan hefur þurft að gera í skipulagsmálum hafa verið unnar og auglýstar með formlegum hætti. Reykhólahreppur stendur að embætti byggingarfulltrúa ásamt Dalabyggð, Saurbæjarhreppi og nokkrum hreppum á Ströndum. Í Flatey búa 7 manns allt árið og eru með lögheimili þar. Það eru um 2% af íbúatölu Reykhólahrepps. Sveit- arstjóri og oddviti fara á hverju ári í eftirlitsferð til Flateyjar og á skrifstofu hreppsins er oft mörgu að sinna vegna Flateyjarmála. A.m.k. er það álit þeirra sem í hreppsnefnd hafa setið. Á síðasta ári fór byggingarfulltrúi 4 ferðir út í Flatey til að sinna beiðnum þar um. Miðað við sama hlutfall ætti hann að fara 197 ferðir í aðra hluta Reykhólahrepps. Mér telst til að þær ferðir séu að jafnaði 2 í mán- uði eða 24 á ári. Af því má sjá að íbúar Flateyjar hafa mun betri þjónustu frá hendi byggingarfull- trúa en þeir sem búa á fastaland- inu. Hafnarmál Fullyrðingar um höfnina í grein Sigfúsar byggjast á misskilningi. Bryggjan í Flatey er ekki undir stjórn Reykhólahrepps; um er að ræða ferjubryggju og eru slík mannvirki alfarið í umsjón og á ábyrgð Siglingastofnunar. Hins vegar eru gömul hafnarmannvirki frá fyrri tímum sem tilheyra hreppnum og má þar nefna Grýlu- vog, Silfurgarð og Stóragarð. Unn- ið hefur verið að endurbótum á þeim undanfarin ár í samvinnu við Þjóðminjasafnið og Siglingastofn- un og hefur Reykhólahreppur greitt sín lögboðnu framlög vegna þeirra framkvæmda. Árið 2000 var framkvæmt við Stóragarð fyrir 665.000 kr. Í tillögu til þingsályktunar um sjóvarnaráætlun 2001–2004 er síð- an áætlað að vinna fyrir 2,9 millj. árið 2002 vegna viðgerða á grjót- kanti við gamla frystihúsið og aust- an við bryggjuna. Endurbætur gamalla húsa í Flatey Gerður hefur verið vörslusamn- ingur við Minjavernd til 40 ára um viðgerð á nokkrum af gömlu hús- unum í Flatey, sem voru í eigu gamla Flateyjarhrepps. Búið er að endurbyggja Bókhlöðuna og verið er að vinna við pakkhúsin og sam- komuhúsið. Minjavernd hefur stað- ið vel að því máli og lagt í það millj- ónir króna. Sumarhúsaeigendur í Flatey hafa margir hverjir staðið vel að endurbyggingu gamalla húsa í „þorpinu“ í Flatey og er útlit og umhverfi til mikillar fyrirmyndar. Einnig hafa þeir á hverju ári staðið að hreinsunarátaki í eyjunni, en því miður ekki fengið liðsinni allra ábúenda við þá framkvæmd. Hvað varðar vatnsveitu fyrir Flatey, þá segir í lögum um vatns- veitur sveitarfélaga nr. 81/1991, 2.mgr. 1.gr.: „Í hreppum er hreppsnefnd heimilt að starfrækja vatnsveitu og leggja í framkvæmd- ir vegna hennar, enda sýni rann- sóknir og kostnaðaráætlanir að hagkvæmt sé að leggja veituna og reka hana“. Það var einhliða ákvörðun sum- arhúsaeigenda að fara út í að byggja vatnsveitu í Flatey fyrir sumarhúsin í „þorpinu“. Reykhóla- hreppur stóð ekki að því enda bar honum ekki skylda til þess. Hvað varðar óskir sumarhúsa- eigenda um að flytja stjórnsýslu Flateyjar til Stykkishólmsbæjar þá hefur það mál verið í biðstöðu, vegna sameiningarviðræðna við Dalabyggð og Saurbæjarhrepp, en málið þó verið reifað við sveitar- stjórn Stykkishólms. Ekki verður meira gert í því máli fyrr en að loknum þeim sameining- arviðræðum sem í gangi eru. Af öllu þessu má sjá að Reyk- hólahreppur sinnir fullkomlega lögboðnum skyldum sínum og vel það hvað varðar þjónustu við íbúa Flateyjar og er öllum fullyrðingum um annað vísað algjörlega á bug. Stjórnsýsla í Flatey Jóna Valgerður Kristjánsdóttir Sveitarstjórnarmál Af þessu má sjá, segir Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, að Reykhólahreppur sinnir fullkomlega lögboðnum skyldum sínum og vel það, hvað varðar þjónustu við íbúa Flateyjar. Höfundur er sveitarstjóri Reykhólahrepps. Klapparstíg 44, sími 562 3614 Kokkabókastatív Litir: Svart, blátt, grænt, grátt Verð kr. 3.995 Cranio-nám Norðurland / Akureyri 28. 04 — 3. 05. 2001 Thomas Attlee, DO, MRO, RCST College of Cranio—Sacral Therapy Félag höfuðbeina og spjaldhryggsjafnara www.simnet.is/cranio 422 7228, 699 8064, 897 7469
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.