Morgunblaðið - 06.04.2001, Blaðsíða 21
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2001 21
skrefi framar
oroblu@sokkar.is - www.sokkar.is
Fermingartilboð á öllum
sokkabuxum
20% afsláttur
Tilboðið gildir einnig í öllum
Lyf og Heilsu apótekunum
dagana 6.-9. apríl
Kringlunni
sími 568 9970
Austurveri
sími 581 2101
Melhaga
sími 552 2190
Kynning í Lyf og Heilsu Kringlunni
í dag, föstudag 6. apríl, kl. 14-18,
Lyf og Heilsu Austurveri
laugardaginn 7. apríl kl. 12-16
og Lyf og Heilsu Melhaga
mánudaginn 9. apríl kl. 14-18.
STAFRÆNAR
M Y N D A V É L A R
RÚ
N
A
49.900.-
Kodakumboðið á Íslandi, Hans Petersen, www.hanspetersen.is, sími 570 7500
FERMINGAR
TILBOÐ
KODAK DC 3800 lætur myndirnar lifna við!
Upplausn 2,1 milljónir pixla
Lítil og nett, aðeins 160 grömm
8 MB minniskort fylgir
USB kortalesari
2x stafrænt zoom
Ljósop 2,8
SAMKEPPNI á skrifstofuvöru-
markaði virðist vera að harðna.
Griffill, sem er í eigu Pennans, og
Tæknival, með hina nýju verslun
Office 1, sem var opnuð síðastliðinn
laugardag, hafa beint spjótum að
hvor öðrum í auglýsingum að und-
anförnu. Á heimasíðu Tæknivals í
gær var Penninn svo meðal annars
sakaður um að reyna markvisst að
drepa af sér keppinauta og hamla
frjálsri samkeppni jafnframt því að
beita blekkingum í auglýsingum.
Samkvæmt upplýsingum frá Sam-
keppnisstofnun hefur erindi borist
til stofnunarinnar þar sem kvartað
er undan auglýsingum Griffils. Málið
er í meðferð Samkeppnisstofnunar
sem hefur óskað eftir sjónarmiðum
Griffils.
Siðleysi í viðskiptum
Orðaskipti fyrirtækjanna hófust
með dagblaðaauglýsingu Griffils síð-
astliðinn þriðjudag. Þar var borið
saman verð á svipuðum vörum í
Griffli annars vegar og hjá Office 1
hins vegar og sagt að vörur Griffils
væru ódýrari. Tæknival svaraði fyrir
sig með dagblaðaauglýsingu í gær. Í
henni var fullyrt að raunverulegt
verð þeirra skrifstofuvara, sem sagt
hafi verið í auglýsingu Griffils að
væru ódýrari en hjá Office 1, hafi
verið hærra degi áður en auglýsingin
var birt. Jafnframt var sagt um
Pennann í auglýsingu Tæknivals eft-
irfarandi: „Það er skiljanlegt að fyr-
irtæki sem hefur einokað markaðinn
um áraraðir reyni að berja frá sér
þegar öflugur samkeppnisaðili skýt-
ur upp kollinum.“
Á heimasíðu Tæknivals á Netinu
er umfjöllun um samkeppni Pennans
og Tæknivals undir fyrirsögninni
„Siðleysi í viðskiptum.“ Þar segir
meðal annars að það sé víðar en á
grænmetismarkaði sem fyrirtæki
með markaðsráðandi stöðu beiti
ósvífnum aðferðum og óvönduðum
meðulum, ekki þurfi annað en að
skoða auglýsingar Pennans undir
nafni Griffils síðustu dagana, bæði í
dagblöðum og sjónvarpi, „til að sjá
hvað viðskiptasiðferðið er á lágu
stigi,“ eins og segir á heimasíðunni.
Verða að vinna eftir settum reglum
Árni Sigfússon, framkvæmda-
stjóri Tæknivals, segir að þegar fyrir
hafi legið að Office 1-stórmarkaður-
inn kæmi hingað til lands hafi sá aðili
sem hafi haft sterkasta stöðu á skrif-
stofuvörumarkaðinum brugðist við
með kaupum á Griffli. „Sá aðili hóf
skæruhernað á Office 1 en varð fyrir
því óhappi að gleyma að breyta verði
á netsíðum. Við höfum hins vegar
ekki hugsað okkur að standa í þess-
um hernaði en erum undirbúin styrj-
öld. Full ástæða er fyrir þann aðila,
sem hefur nánast einokað markað-
inn, að búa sig undir þetta. Hins veg-
ar verður hann að gera það eftir sett-
um reglum,“ segir Árni.
Gott viðskiptasiðferði
að bjóða lægsta verðið
Jóhann Ingi Krisjánsson, fram-
kvæmdastjóri Griffils, segist ætla að
vera ódýrastur og ef hann þurfi að
skoða verð hjá samkeppninni tíu
sinnum á dag og lækka verðið í
Griffli í hvert einasta skipti þá muni
hann gera það. Honum hafi tekist að
vera með lægsta verðið frá upphafi
eins og allir viti og allar verðkann-
anir hafi sýnt. „Ég er með sérstakan
verðkönnunarbíl til að fylgjast með
samkeppninni og ég býð öllum mín-
um viðskiptavinum upp á 100% verð-
vernd á öllum vörum sem þeir kaupa.
Ef þessi alþjóðlega keðja er orðin
svo vön því að valta yfir alla sam-
keppni á þeim mörkuðum sem hún
fer inn á, að hún þolir ekki smá mót-
spyrnu, þá verða þeir bara að eiga
það við sig. Eina viðskiptasiðferðið á
lágu stigi hér er þessi óhróður sem
eigendur Tæknivals eru að bera út
um Griffil.“
Jóhann Ingi segir að samkeppni
gangi út á að bjóða viðskiptavinum
góðar vörur á hagstæðu verði. Þetta
sé hins vegar ekki fyrsta verðstríðið
sem hann taki þátt í enda hafi Griffill
ávallt verið með lægsta verðið á
skrifstofuvörum í gegnum árin. „Það
er vegna þess að við erum með hnit-
miðað vöruúrval, litla yfirbyggingu
og viðskiptavinir okkar þekkja okk-
ur af engu öðru en heiðarlegum við-
skiptaháttum.“
Málflutningur Tæknivals
dæmir sig sjálfur
Ingimar Jónsson, framkvæmda-
stjóri Pennans, segist líta málflutn-
ing Tæknivals, þar sem Penninn er
ásakaður um siðlausa viðskiptahætti
í auglýsingu fyrirtækisins í gær og á
heimasíðu þess, mjög alvarlegum
augum. Skoðað verði hvernig brugð-
ist verði við þeim. „Mér finnst svona
málflutningur dæma sig sjálfur og
vera kominn út fyrir allt sem heitir
samkeppni og verðstríð. Enda á
Penninn ekki aðild að stríði Office 1
og Griffils. Hins vegar er þetta ekk-
ert nýtt hjá Tæknivali. Þeir hafa tal-
að svona um Pennann alveg síðan
þeir ákváðu samstarf við Office 1.“
Hörð samkeppni á skrifstofuvörumarkaði
Tæknival og
Griffill takast á
Í VIÐTALI við breska dagblaðið
Financial Times í fyrradag segir
Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri
Baugs hf., að hann telji verslunar-
fyrirtækið Arcadia of lágt verðmet-
ið. Baugur, sem tilkynnti í síðustu
viku að félagið ætti orðið 20% hlut í
Arcadia, er með sérleyfi fyrir versl-
anir Arcadia á Norðurlöndum, þar
á meðal Top Shop og Miss Self-
ridge. Í frétt FT er sagt frá kaup-
um Baugs í Arcadia og fram kemur
að nokkra undrun veki að lítt þekkt
íslenskt fyrirtæki skuli hafa eignast
svo stóran hlut í leiðandi smásölu-
fyrirtæki í Bretlandi en sala Baugs
sé aðeins áttundi hluti sölu Arcadia.
Verð bréfa Arcadia hefur hækk-
að mikið frá því í nóvember, eða úr
38 pensum í 220 pens í gær. Hækk-
un gærdagsins var rúm 26%. Baug-
ur hóf kaup á fyrirtækinu í nóv-
ember og hefur því náð nokkrum
hagnaði út úr viðskiptunum því
verðið hefur nær sexfaldast frá
þeim tíma. Jón Ásgeir gaf FT ekki
upp meðalverðið í viðskiptunum,
svo ekki er vitað hversu mikill
hagnaðurinn er.
Útilokar ekki yfirtöku
á Arcadia í framtíðinni
Jón Ásgeir er í FT spurður hvort
Baugur hyggist bjóða í öll bréf Arc-
adia en segir að þeir hyggist halda
hlut sínum í 20%. Til lengri tíma
litið útilokar hann þó ekki að gert
verði yfirtökutilboð og segir að hafi
menn góða hugmynd sé alltaf
mögulegt að afla fjár til að fram-
kvæma hana.
Arcadia sendi í gær frá sér hálf-
sársuppgjör og þar var sagt frá
áformum um að selja 5 af 14 tísku-
keðjum félagsins.
Hagnaður fyrir skatta var 29
milljónir punda en árið áður var 9
milljóna punda tap af rekstrinum.
Sala jókst um 0,8% þrátt fyrir að
gólfflötur minnkaði um 11,2%. Mik-
il endurskipulagning hefur átt sér
stað síðasta árið hjá Arcadia og
hefur verslunum verið fækkað um
450 en fyrir voru þær 2.200. Þetta
hefur þýtt fækkun stöðugilda um
3.500.
Verðmæti
Arcadia
hækkar mikið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Verslunin Top Shop við Lækjargötu.
GOÐI og Norðlenska, kjöt-
vinnslufyrirtæki KEA, hafa
tekið upp formlegar viðræður
um samruna fyrirtækjanna, að
sögn Jóns Helga Björnssonar,
framkvæmdastjóra Norð-
lenska. Hann segir að með sam-
runa sé stefnt að aukinni hag-
kvæmni og ef af verði muni
öflugar vinnslur á Akureyri og
Húsavík nýtast betur en nú.
Norðlenska varð til með
samruna kjötiðnaðarsviðs KEA
og Kjötiðjunnar ehf. á Húsavík
í fyrra.
Eigendur Goða eru Norð-
vesturbandalagið (38,5%),
Höfn Þríhyrningur (30%) og
Kaupfélag Héraðsbúa (20%).
Samruni Goða
og Norðlenska
Formleg-
ar viðræð-
ur í gangi