Morgunblaðið - 06.04.2001, Side 21

Morgunblaðið - 06.04.2001, Side 21
VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2001 21 skrefi framar oroblu@sokkar.is - www.sokkar.is Fermingartilboð á öllum sokkabuxum 20% afsláttur Tilboðið gildir einnig í öllum Lyf og Heilsu apótekunum dagana 6.-9. apríl Kringlunni sími 568 9970 Austurveri sími 581 2101 Melhaga sími 552 2190 Kynning í Lyf og Heilsu Kringlunni í dag, föstudag 6. apríl, kl. 14-18, Lyf og Heilsu Austurveri laugardaginn 7. apríl kl. 12-16 og Lyf og Heilsu Melhaga mánudaginn 9. apríl kl. 14-18. STAFRÆNAR M Y N D A V É L A R RÚ N A 49.900.- Kodakumboðið á Íslandi, Hans Petersen, www.hanspetersen.is, sími 570 7500 FERMINGAR TILBOÐ KODAK DC 3800 lætur myndirnar lifna við! Upplausn 2,1 milljónir pixla Lítil og nett, aðeins 160 grömm 8 MB minniskort fylgir USB kortalesari 2x stafrænt zoom Ljósop 2,8 SAMKEPPNI á skrifstofuvöru- markaði virðist vera að harðna. Griffill, sem er í eigu Pennans, og Tæknival, með hina nýju verslun Office 1, sem var opnuð síðastliðinn laugardag, hafa beint spjótum að hvor öðrum í auglýsingum að und- anförnu. Á heimasíðu Tæknivals í gær var Penninn svo meðal annars sakaður um að reyna markvisst að drepa af sér keppinauta og hamla frjálsri samkeppni jafnframt því að beita blekkingum í auglýsingum. Samkvæmt upplýsingum frá Sam- keppnisstofnun hefur erindi borist til stofnunarinnar þar sem kvartað er undan auglýsingum Griffils. Málið er í meðferð Samkeppnisstofnunar sem hefur óskað eftir sjónarmiðum Griffils. Siðleysi í viðskiptum Orðaskipti fyrirtækjanna hófust með dagblaðaauglýsingu Griffils síð- astliðinn þriðjudag. Þar var borið saman verð á svipuðum vörum í Griffli annars vegar og hjá Office 1 hins vegar og sagt að vörur Griffils væru ódýrari. Tæknival svaraði fyrir sig með dagblaðaauglýsingu í gær. Í henni var fullyrt að raunverulegt verð þeirra skrifstofuvara, sem sagt hafi verið í auglýsingu Griffils að væru ódýrari en hjá Office 1, hafi verið hærra degi áður en auglýsingin var birt. Jafnframt var sagt um Pennann í auglýsingu Tæknivals eft- irfarandi: „Það er skiljanlegt að fyr- irtæki sem hefur einokað markaðinn um áraraðir reyni að berja frá sér þegar öflugur samkeppnisaðili skýt- ur upp kollinum.“ Á heimasíðu Tæknivals á Netinu er umfjöllun um samkeppni Pennans og Tæknivals undir fyrirsögninni „Siðleysi í viðskiptum.“ Þar segir meðal annars að það sé víðar en á grænmetismarkaði sem fyrirtæki með markaðsráðandi stöðu beiti ósvífnum aðferðum og óvönduðum meðulum, ekki þurfi annað en að skoða auglýsingar Pennans undir nafni Griffils síðustu dagana, bæði í dagblöðum og sjónvarpi, „til að sjá hvað viðskiptasiðferðið er á lágu stigi,“ eins og segir á heimasíðunni. Verða að vinna eftir settum reglum Árni Sigfússon, framkvæmda- stjóri Tæknivals, segir að þegar fyrir hafi legið að Office 1-stórmarkaður- inn kæmi hingað til lands hafi sá aðili sem hafi haft sterkasta stöðu á skrif- stofuvörumarkaðinum brugðist við með kaupum á Griffli. „Sá aðili hóf skæruhernað á Office 1 en varð fyrir því óhappi að gleyma að breyta verði á netsíðum. Við höfum hins vegar ekki hugsað okkur að standa í þess- um hernaði en erum undirbúin styrj- öld. Full ástæða er fyrir þann aðila, sem hefur nánast einokað markað- inn, að búa sig undir þetta. Hins veg- ar verður hann að gera það eftir sett- um reglum,“ segir Árni. Gott viðskiptasiðferði að bjóða lægsta verðið Jóhann Ingi Krisjánsson, fram- kvæmdastjóri Griffils, segist ætla að vera ódýrastur og ef hann þurfi að skoða verð hjá samkeppninni tíu sinnum á dag og lækka verðið í Griffli í hvert einasta skipti þá muni hann gera það. Honum hafi tekist að vera með lægsta verðið frá upphafi eins og allir viti og allar verðkann- anir hafi sýnt. „Ég er með sérstakan verðkönnunarbíl til að fylgjast með samkeppninni og ég býð öllum mín- um viðskiptavinum upp á 100% verð- vernd á öllum vörum sem þeir kaupa. Ef þessi alþjóðlega keðja er orðin svo vön því að valta yfir alla sam- keppni á þeim mörkuðum sem hún fer inn á, að hún þolir ekki smá mót- spyrnu, þá verða þeir bara að eiga það við sig. Eina viðskiptasiðferðið á lágu stigi hér er þessi óhróður sem eigendur Tæknivals eru að bera út um Griffil.“ Jóhann Ingi segir að samkeppni gangi út á að bjóða viðskiptavinum góðar vörur á hagstæðu verði. Þetta sé hins vegar ekki fyrsta verðstríðið sem hann taki þátt í enda hafi Griffill ávallt verið með lægsta verðið á skrifstofuvörum í gegnum árin. „Það er vegna þess að við erum með hnit- miðað vöruúrval, litla yfirbyggingu og viðskiptavinir okkar þekkja okk- ur af engu öðru en heiðarlegum við- skiptaháttum.“ Málflutningur Tæknivals dæmir sig sjálfur Ingimar Jónsson, framkvæmda- stjóri Pennans, segist líta málflutn- ing Tæknivals, þar sem Penninn er ásakaður um siðlausa viðskiptahætti í auglýsingu fyrirtækisins í gær og á heimasíðu þess, mjög alvarlegum augum. Skoðað verði hvernig brugð- ist verði við þeim. „Mér finnst svona málflutningur dæma sig sjálfur og vera kominn út fyrir allt sem heitir samkeppni og verðstríð. Enda á Penninn ekki aðild að stríði Office 1 og Griffils. Hins vegar er þetta ekk- ert nýtt hjá Tæknivali. Þeir hafa tal- að svona um Pennann alveg síðan þeir ákváðu samstarf við Office 1.“ Hörð samkeppni á skrifstofuvörumarkaði Tæknival og Griffill takast á Í VIÐTALI við breska dagblaðið Financial Times í fyrradag segir Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs hf., að hann telji verslunar- fyrirtækið Arcadia of lágt verðmet- ið. Baugur, sem tilkynnti í síðustu viku að félagið ætti orðið 20% hlut í Arcadia, er með sérleyfi fyrir versl- anir Arcadia á Norðurlöndum, þar á meðal Top Shop og Miss Self- ridge. Í frétt FT er sagt frá kaup- um Baugs í Arcadia og fram kemur að nokkra undrun veki að lítt þekkt íslenskt fyrirtæki skuli hafa eignast svo stóran hlut í leiðandi smásölu- fyrirtæki í Bretlandi en sala Baugs sé aðeins áttundi hluti sölu Arcadia. Verð bréfa Arcadia hefur hækk- að mikið frá því í nóvember, eða úr 38 pensum í 220 pens í gær. Hækk- un gærdagsins var rúm 26%. Baug- ur hóf kaup á fyrirtækinu í nóv- ember og hefur því náð nokkrum hagnaði út úr viðskiptunum því verðið hefur nær sexfaldast frá þeim tíma. Jón Ásgeir gaf FT ekki upp meðalverðið í viðskiptunum, svo ekki er vitað hversu mikill hagnaðurinn er. Útilokar ekki yfirtöku á Arcadia í framtíðinni Jón Ásgeir er í FT spurður hvort Baugur hyggist bjóða í öll bréf Arc- adia en segir að þeir hyggist halda hlut sínum í 20%. Til lengri tíma litið útilokar hann þó ekki að gert verði yfirtökutilboð og segir að hafi menn góða hugmynd sé alltaf mögulegt að afla fjár til að fram- kvæma hana. Arcadia sendi í gær frá sér hálf- sársuppgjör og þar var sagt frá áformum um að selja 5 af 14 tísku- keðjum félagsins. Hagnaður fyrir skatta var 29 milljónir punda en árið áður var 9 milljóna punda tap af rekstrinum. Sala jókst um 0,8% þrátt fyrir að gólfflötur minnkaði um 11,2%. Mik- il endurskipulagning hefur átt sér stað síðasta árið hjá Arcadia og hefur verslunum verið fækkað um 450 en fyrir voru þær 2.200. Þetta hefur þýtt fækkun stöðugilda um 3.500. Verðmæti Arcadia hækkar mikið Morgunblaðið/Árni Sæberg Verslunin Top Shop við Lækjargötu. GOÐI og Norðlenska, kjöt- vinnslufyrirtæki KEA, hafa tekið upp formlegar viðræður um samruna fyrirtækjanna, að sögn Jóns Helga Björnssonar, framkvæmdastjóra Norð- lenska. Hann segir að með sam- runa sé stefnt að aukinni hag- kvæmni og ef af verði muni öflugar vinnslur á Akureyri og Húsavík nýtast betur en nú. Norðlenska varð til með samruna kjötiðnaðarsviðs KEA og Kjötiðjunnar ehf. á Húsavík í fyrra. Eigendur Goða eru Norð- vesturbandalagið (38,5%), Höfn Þríhyrningur (30%) og Kaupfélag Héraðsbúa (20%). Samruni Goða og Norðlenska Formleg- ar viðræð- ur í gangi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.