Morgunblaðið - 06.04.2001, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 06.04.2001, Blaðsíða 31
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2001 31 er af í sýningu Sauðkindarinnar. Sýningin er byggð á bandarískri kvikmynd, Clueless, sem aftur er byggð á skáldsögu Jane Austen, Emmu, sem einnig hefur verið kvik- mynduð. Það er að vísu orðið nokkuð langt síðan ég sá Clueless og sögu Austen hef ég ekki lesið, en samt er ég nokkuð viss um að handrit Kópa- vogskrakkanna fer ansi nálægt myndinni, þótt þau vísi á söguna í leikskrá. Að minnsta kosti voru kunnugleg tilsvör ansi algeng, og líklega styttra til Íslands í dag úr heimi ríkramannabarna í Los Ang- eles en enskrar yfirstéttar á dögum Austen. Ofurgellan Ellý og vinkonan Diddú eru vinsælustu og hamingju- sömustu stúlkurnar í Versló. Þær taka upp á arma sína hina lúðalegu og norðfirsku Tönju með það að göf- ugu markmiði að gera hana jafn hamingjusama og vinsæla og þær eru. En lífið er ekki alveg eins einfalt og þær hafa fyrir satt, sem betur fer, og Ellý lærir og þroskast á leiðinni gegnum verkið, enda enginn hálfviti. Að láta verkið gerast í Versló er jafn fyndið og það er áreiðanlega ósanngjarnt gagnvart Verslingum, en það verður að hafa það. Annars gengur staðfærslan auðvitað misvel upp, sumt algerlega, annað síður. Glórulaus minnir reyndar meira á annan enskan snilling en Jane Austen. Hin endalausa runa af „einlínum“, hnyttnum setningum sem persón- AÐALPERSÓNUR í Glórulaus eru sjálfsuppteknar, þröngsýnar, fordómafullar, grunnhyggnar, fá- fróðar, hrokafullar, yfirborðskennd- ar. Og algerlega ómótstæðilegar. Í þessar andstæður sækir verkið skemmtilegheitin og fjörið, sem nóg urnar dæla út úr sér og eiga að tjá sjálfsöryggi og traust tök á tilver- unni minnir einna mest á Oscar Wilde. Og líkt og hjá honum eru það einmitt þessar setningar sem af- hjúpa persónurnar, eru fyndnar bæði vegna þess að þær eru vel orð- aðar og af því þær opinbera okkur fráleit lífsviðhorf persónanna. Texti af þessum toga er kannski sá erfiðasti að láta lifna í munni leik- ara og það tókst ekki alltaf hjá Kind- inni að þessu sinni. Það er að minnsta kosti algert grundvallarat- riði að greina orðaskil, sem stundum var misbrestur á. En nóg skildist til að halda uppi góðri skemmtun og segja söguna. Það er eilífðarvandamál þess sem vill sviðsetja kvikmyndahandrit að klippitækni leikhússins stendur bíóinu nokkuð að baki. Hér fer Gunnar Hansson þá skynsamlegu leið að halda sviðsmynd í lágmarki og gefa senuskipti í skyn með allra einföldustu ráðum. Þetta gengur fullkomlega upp og skapar frábært flæði og mikinn kraft sem einkennir nánast alla sýninguna. Undir lokin dalar aðeins stuðið, enda persónurn- ar teknar að þroskast smá. Ég ætla ekki að tilgreina einstaka leikara, enda er sýningin mikið hóp- verk. Aðalatriðið er að hún er kraft- mikil, skemmtileg og þrátt fyrir glóruleysi flestra persóna hreint ekki innantóm. Víst er glóra LEIKLIST S a u ð k i n d i n , l e i k - f é l a g M e n n t a s k ó l a n s í K ó p a v o g i Leikstjóri: Gunnar Hansson. Byggt á kvikmyndinni Clueless eftir Amy Heckerling og skáldsögunni Emmu eftir Jane Austen. Leikendur: Andrea Ösp Karlsdóttir, Anna Bergljót Thorarensen, Arnar Ingi Richardsson, Ásgerður Drífa Stef- ánsdóttir, Guðlaug Björk Eiríks- dóttir, Hans Aðalsteinn Gunn- arsson, Hjálmar Ásbjörnsson, Hrefna Þórisdóttir, Jóhann V. Gíslason, Kolbrún Þorsteinsdóttir, Lilja Kristín Ólafsdóttir, María Rut Beck, Ólöf Hugrún Valdimars- dóttir, Rannveig Alda Haralds- dóttir, Sandra Björg Stefánsdóttir, Sara Valný Sigurjónsdóttir, Sverrir Árnason, Tinna Eiríksdóttir, Þóra K. Kristinsdóttir og Þórður Ingi Guðmundsson. Félagsheimili Kópavogs 4. apríl 2001. GLÓRULAUS Þorgeir Tryggvason Söngskólinn í Reykjavík Bryndís Jónsdóttir Einsöngstónleikar Bryndísar Jónsdóttur sópransöngkonu verða haldnir í Tónleikasal Söngskólans, Smára, Veghúsa- stíg 7, á morgun, laugardag, kl. 17. Tónleikarnir eru lokaáfangi burt- fararprófs Bryn- dísar frá Söng- skólanum í Reykjavík. Und- irleikari á píanó er Iwona Jagla. Á efnisskránni eru m.a. íslenskir ljóðasöngvar eftir Pál Ísólfsson og söngvar Jóns Ás- geirssonar við ljóð Halldórs Kiljans Laxness úr Heimsljósi, söngvar úr „A Suite O Bairnsangs“ eftir Theu Musgrave og ljóðasöngva eftir Jo- hannes Brahms og Gabriel Fauré, aríur úr verkum eftir Purcell og Par- isotti og úr óperum Mozarts; Brúð- kaupi Figaros og Don Giovanni. Bryndís hóf framhaldsnám við Söngskólann haustið 1998 hjá Þuríði Pálsdóttur og Iwonu Jagla og hefur í vetur einnig notið leiðsagnar Ás- rúnar Davíðsdóttur. Hún lauk fyrri hluta burtfararprófs sl. vor og eru tónleikarnir nú lokaáfangi prófsins. Jafnfram námi sínu við skólann hefur hún sótt söngnámskeið, m.a. hjá Martin Isepp og André Orlowitz. Iwona Jagla píanóleikari er kennari við Söngskólann í Reykjavík. Tónlistarskóli Mosfellsbæjar Ásdís Andrésdóttir Arnalds Einsöngstónleikar Ásdísar Andrésdóttur Arnalds sópransöng- konu verða haldnir í Safnaðarheimili Lágafellssóknar í Mosfellsbæ á morgun, laugardag, kl. 14. Tónleik- arnir eru liður í lokaprófi Ásdísar frá Tónlistarskóla Mosfellsbæjar. Und- irleikari á píanó er Richard Simm. Flutt verða íslensk einsöngslög eftir Jón Ásgeirsson, Þórarin Guð- mundsson og Sigfús Einarsson. Einnig erlend ljóð eftir Gabriel Fauré, Franz Schubert og Edvard Grieg og ljóða- bálkurinn Suite O. Bairnsongs eftir Thea Mus- grave. Þá verða fluttar aríur úr Messíasi eftir Handel, Brott- náminu úr kvennabúrinu eft- ir Mozart og Æv- intýrum Hoff- mans eftir Offenbach. Ásdís hóf nám við skólann árið 1993 og sl. þrjú ár hefur hún verið nemandi Signýjar Sæmundsdóttur sópransöngkonu. Auk þess hefur Ás- dís notið leiðsagnar píanóleikaranna Jóns Sigurðssonar, Gerrits Schuils og Richards Simms, sem allir hafa kennt við skólann. Tónlistarskóli FÍH Davíð Þór Jónsson Burtfararprófstónleikar Davíðs Þórs Jónssonar píanóleikara frá Tónlistarskóla FÍH verða haldnir í sal skólans, Rauðagerði 27, á morgun, laugar- dag, kl. 17. Davíð hóf nám við Tónlistarskóla FÍH haustið 1998 á saxófón og píanó undir hand- leiðslu Sigurðar Flosasonar og Kjartans Valde- marssonar. Veturinn 1999-2000 var hann skiptinemi við Konservatoríið í Þrándheimi og sótti píanótíma hjá Vigleik Staaras. Þá hóf hann aftur nám við Tónlistarskóla FÍH og þá undir handleiðslu Hilmars Jensson- ar. Á efnisskrá tónleikanna eru aðal- lega frumsamin lög og ópusar eftir Keith Jarrett og Dave Douglas. Með honum á tónleikunum spila Jóel Pálsson á saxófón, Valdimar Kol- beinn Sigurjónsson á kontrabassa, Helgi Svavar Helgason á trommur og slagverk og Matthías M.D. Hem- stock á trommur og slagverk. Burtfararprófs- tónleikar Bryndís Jónsdóttir Davíð Þór Jónsson Ásdís Andrésdóttir Arnalds KVENNAKÓR Suðurnesja heldur vortónleika sína í Háteigskirkju annað kvöld, laugardagskvöld, kl. 20.30. Kórinn hefur í vetur verið undir stjórn Estherar Helgu Guðmunds- dóttur og hefur mikil áhersla verið lögð á gospeltónlist í þessu sam- starfi og bera tónleikarnir keim af því. Einnig verða flutt lögin úr kvikmyndinni Sister Act. Kórinn mun flytja tvö verk eftir Hreiðar Inga Þorsteinsson sem eru tileink- uð Esther Helgu og er annað þeirra frumflutt. Kórnum til fulltingis í því lagi er hörpuleikarinn Monika Abendroth. Píanóundirleik annast Helgi Már Hannesson, bassi Þórólfur Þórsson, trommur Gestur Pálmason. Laufey Helga Geirsdóttir og Sigrún Ósk Ingadóttir munu sjá um einsöng. Miðasala við innganginn, 1.200 kr. Gospelhátíð Kvenna- kórs Suðurnesja Listamaður aprílmánaðar í Reykjanesbæ NÝ mynd mánaðarins verður af- hjúpuð í Kjarna, Hafnargötu 57 í Reykjanesbæ, á morgun, laugar- dag, kl. 13.30. Listamaður apríl- mánaðar er Eiríkur Árni Sig- tryggsson. Eiríkur er fæddur 14. sept. 1943 í Keflavík og hefur stundað list sína frá unga aldri. Hann hefur sótt námskeið víða um heim og aðalleiðbeinendur hans hér á landi voru Hringur Jóhannesson og Valtýr Pétursson. Myndir eftir Eirík má m.a. sjá á Listasafni Reykjanesbæjar, Hitaveitu Suður- nesja og hjá Grindavíkurbæ. Nýtt verk eftir Eirík Eiríkur hefur haldið níu einka- sýningar, síðast í Árskógum í sept- ember 2000. Hann hefur einnig tek- ið þátt í mörgum samsýningum, m.a. sýningu Félags íslenskra myndlistarmanna á Kjarvalsstöð- um. Við opnunina frumflytur málm- blásarasextett tónverk eftir Eirík sem ber heitið Keilir. Verkið lýsir undirbúningi og gönguferð á fjallið Keili. Heyra má í göngufólkinu og leiðsögumönnunum. Í lokin glymja húrrahrópin þegar tindinum er náð. Afturhvarf í Listasafni Borgarness greiðslutíma þess, 13–18 alla virka daga og 20–22 á fimmtudags- kvöldum. Sýningin stendur til 4. maí. AFTURHVARF er yfirskrift sýn- ingar sem opnuð verður á morg- un, laugardag, kl. 15–17, í Lista- safni Borgarness. Þar sýnir Hrefna Harðardóttir leirverk sín sem eru innblásin af hugmyndum lettneska mál- og fornleifafræð- ingsins Mariju Gimbutas (1921– 1994) um gyðjudýrkun á forsögu- legum tíma og einnig verða til sýnis leirvasar sem nefnast Steinar. Hrefna Harðardóttir stundaði nám á myndlistarbraut MA og í Myndlistar- og handíðaskóla Ís- lands 1992–95 og útskrifaðist úr leirlistadeild. Hún hefur sótt námskeið í grafík, ljósmyndun og leirlist í Frakklandi, Ítalíu, Ung- verjalandi og Englandi og tekið þátt í mörgum samsýningum en þetta er önnur einkasýning henn- ar. Hrefna er félagi í Sambandi íslenskra myndlistarmanna og Samlaginu Listhúsi á Akureyri. Hrefna er búsett á Akureyri. Listasafn Borgarness er til húsa í Safnahúsi Borgarfjarðar, Bjarnarbraut 4–6, Borgarnesi, og verður sýningin opin á af- Verk eftir Hrefnu Harðardóttur. Tónleikar með sýslu- mönnunum HLJÓMSVEITIN Sýslumennirnir heldur tónleika í Pakkhúsinu á Sel- fossi í kvöld, föstudagskvöld, kl. 22. Sýslumennirnir eru fullskipuð dixiel- andhljómsveit úr Árnessýslu. Aðgangseyrir er 1.000 kr. Söngdagur barnakóra á Selfossi „ÓAFLÁTANLEGA syngjandi“ er yfirskrift söngdags barna- og ung- lingakóra í Selfosskirkju í dag, laug- ardag. Hátíðin hefst kl. 13 og stend- ur til kl. 17. Kórar kirkjunnar og þrír gestakórar syngja og eru söngvarar um 180 talsins og þar af um 50 ein- söngvarar úr röðum kóranna. Fram koma Barnakórar Selfos- skirkju, yngri og eldri, stjórnandi, Glúmur Gylfason, Kór Sólvallaskóla, stjórnandi Elín Gunnlaugsdóttir, Barnakór Biskupstungna, stjórn- andi Hilmar Örn Agnarsson, Barna- kór Hallgrímskirkju, stjórnandi Bjarney Ingibjörg Gunnlaugsdóttir, og Unglingakór Selfosskirkju, stjórnandi Margrét Bóasdóttir. Aðgangseyrir er 1.000 og rennur í ferðasjóð kóranna. Foreldrafélagið í Selfosskirkju sér um kaffiveitingar sem eru innifaldar í aðgangseyri. Þrír kórar í Breiðholts- kirkju ÞRÍR kórar halda sameigin- lega tónleika í Breiðholtskirkju á morgun, laugar- dag, kl. 15. Kórarnir eru Gerðubergskór- inn (kór Félags- starfs Gerðu- bergs), Þingey- ingakórinn og M.R.60. Kórarnir eiga það sameig- inlegt að Kári Friðriksson tenór- söngvari er stjórnandi þeirra allra, en hann kemur einnig fram á tón- leikunum sem einsöngvari. Undirleikarar eru Unnur Eyfells, Benedikt Egilsson, Arngrímur Mar- teinsson og Jón Friðrik Möller. Aðgangseyrir er 1.000 kr. en 500 kr. fyrir eldri borgara. Kári Friðriksson ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.