Morgunblaðið - 06.04.2001, Blaðsíða 45
starfsverkefni allt frá Latabæ til
Medeu. Metnaðarfullt, framsækið og
fjölbreytt leikhús er aðal Leikfélags
Íslands og verður dagskrá þess og
umfang helst borið saman við Þjóð-
leikhús og Borgarleikhús. Í þeim
samanburði er þó einn augljós mun-
ur. Á síðasta ári hlaut Leikfélag Ís-
lands sinn stærsta opinbera styrk
fram til þessa, alls 5 milljónir eða
tæplega 1% af því styrktarfé sem
stofnanaleikhúsin hlutu. c) Það ber
einnig að hafa það í huga að núver-
andi fyrirkomulag er ekki hollt sam-
keppni sem þarf að þrífast á leikhús-
markaðnum eins og annars staðar.
Mesta hættan er á undirboðum, eink-
um á útleigum og verði aðgöngumiða.
Nú er ekki verið að mæla á móti lágu
aðgöngumiðaverði í leikhús heldur
benda á ójafnar leikreglur á milli op-
inberra leikhúsa og sjálfstæðra. Það
er vafasamt að opinber leikhús nýti
styrktarfé til að bjóða aðgöngumiða
langt undir markaðsverði. Það er
andstætt reglum um jafnræði í sam-
keppni. Um leið er höggvið grimmi-
lega í stærsta tekjustofn sjálfstæðu
leikhúsanna sem reiða sig nær ein-
göngu á tekjur af seldum aðgöngu-
miðum. Í áliti Samkeppnisstofnunar,
2. grein frá 5. mars sl., er þetta ójafn-
ræði staðfest og þeim tilmælum beint
til yfirvalda að æskilegt sé að gæta að
jafnræðissjónarmiðum við eflingu
leiklistar og talið að „misræmi í op-
inberum stuðningi stríði gegn mark-
miðum samkeppnislaga“. Hér hafa
verið reifuð meginrök LÍ gegn nú-
verandi úthlutun styrkja til leikstarf-
semi. Margir aðilar hafa tekið í svip-
aðan streng með e.t.v. öðrum
áherslum, sbr. Bandalag sjálfstæðu
leikhúsanna (SL) og fleiri. Góðu heilli
hafa þeir sem um þessi mál fjalla sýnt
skilning á því að núverandi fyrir-
komulag er ótækt. Tillaga Bandalags
íslenskra listamanna (BÍL) til
menntamálaráðherra um hækkun á
framlagi ríkis til sjálfstæðu leikhús-
anna er virðingar- og þakkaverð.
Menntamálaráðherra hefur tekið til-
löguna til alvarlegrar skoðunar. Það
er góðs viti enda hefur menntamála-
ráðherra ávallt verið hliðhollur sjálf-
stæðum leikhúsum. Reykjavíkur-
borg hefur, eins og áður sagði, stutt
Leikfélag Reykjavíkur dyggilega í
gegnum tíðina og beint háum styrkj-
um til þess félags. Í ljósi þess er
ánægjulegt að borgarstjórn hafi
einnig ákveðið að styrkja sjálfstæðu
leikhúsin í Reykjavík. Framlagið,
sem er fremur lágt en mun stig-
hækka á næstu árum, er mjög lofs-
vert. Meginhlutverk yfirvalda, sem
annast úthlutun styrkja til sviðslista,
er að tryggja sanngirni í úthlutunum
sínum. Hvað er þá sanngjarnt að
sjálfstæð leikhús fái í sinn hlut? Mið-
að við kraftmikla starfsemi sjálf-
stæðu leikhúsanna teldist lágmark
fjórðungur til þriðjungur þeirrar
upphæðar sem stofnanaleikhúsin fá
nokkuð sanngjarnt. Þannig væri yf-
irburðastaða stofnanaleikhúsanna
áfram tryggð, ef það er markmið í
sjálfu sér, og kraftmikil sjálfstæð
leiklist gæti þrifist samhliða. Ef ís-
lensk leiklist á að rísa upp með krafti,
tign og glæsileik verður blómlegur
jarðvegurinn umleikis eikartrén að
dafna. Athyglin og umönnunin má
ekki öll beinast að eikartrjánum því
að þá er hætt við að allt annað líf deyi
í skugga þeirra og jarðvegurinn
skorpni. Nú er að koma vor og þá
þarf að taka til í garðinum. Það er al-
veg ljóst hvar þarf að taka til hend-
inni.
Höfundur situr í stjórn
Leikfélags Íslands.
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2001 45
UM þessar mundir er að ljúka hjóna-
námskeiðum vetrarins á vegum
Hafnarfjarðarkirkju. Undanfarna 5
vetur hafa um 4.000 manns tekið þátt
í þessum námskeiðum. Námskeiðin
eru ætluð öllum sem eru í hjónabandi
eða sambúð, ekki aðeins þeim sem
eiga við vandamál að stríða, heldur
hinum líka sem vilja styrkja samband
sitt.
Námskeiðin sækir fólk af öllu land-
inu og þau hafa verið haldin á Selfossi,
Eyrarbakka, Höfn í Hornafirði, Ak-
ureyri, Hvammstanga, Egilsstöðum,
Borgarnesi, Keflavík, Seltjarnarnesi,
í Reykjavík, og í Árnesi auk þess að
vera reglulega í Hafnarfjarðarkirkju.
Á námskeiðunum er fjallað um
samskipti foreldra og barna, stjórnun
innan fjölskyldunnar og hvernig þessi
atriði endurspeglast í hegðun barna
og unglinga utan fjölskyldunnar. Far-
ið er í gegnum helstu gildrur sambúð-
arinnar, hvernig fjölskyldumynstrum
hægt er að festast í, fjallað um vænt-
ingar, vonir og vonbrigði þeirra sem
tilheyra fjölskyldunni. En fyrst og
fremst er talað um þær leiðir sem
hægt er að fara til að sleppa út úr
vítahring deilna og átaka í sambúð og
hvernig styrkja má innviði fjölskyld-
unnar. Við skoðum líka ýmsar fjöl-
skyldugerðir og veltum því fyrir okk-
ur hvað hægt er að gera til þess að
fyrirbyggja deilur og samskiptaörð-
ugleika. Aðeins 14–18 pör taka þátt í
hverju námskeiði.
Auðvitað er ekki hægt að leysa öll
mál á námskeiði sem þessu enda for-
sendur þeirra er taka þátt mjög mis-
munandi. Þau pör er taka þátt geta
þess vegna skráð sig í einkaviðtöl
mánuði eftir að námskeiðinu lýkur,
þyki þeim þörf þar á. Einnig er vísað
til presta og annarra fagaðila er geta
veitt nánari aðstoð, sé þess óskað.
Námskeiðið fer fram í formi sam-
tals milli þátttakennda og leiðbein-
anda þar sem pörin eru m.a. látin
vinna ýmis verkefni, hvert fyrir sig.
Enginn þarf að tjá sig á námskeið-
inu frekar en hann vill.
Leiðbeinandi á námskeiðunum er
sr. Þórhallur Heimisson, prestur Í
Hafnarfjarðarkirkju, en hann samdi
einnig efnið.
Safnaðarstarf
Hallgrímskirkja. Passíusálmalestur
kl. 12.15.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl.
6.45–7.05. Mömmumorgunn kl. 10–12
í umsjá Hrundar Þórarinsdóttur
djákna. Kaffispjall fyrir mæður, góð
upplifun fyrir börn. Unglingakvöld
Laugarneskirkju, Þróttheima og
Blómavals kl. 20 fyrir 9. og 10. bekk.
Langholtskirkja. Kirkjan er opin til
hljóðrar bænagjörðar í hádeginu.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús í
Strandbergi laugardagsmorgna. Trú
og mannlíf, biblíulestur og kyrrðar-
stund.
Boðunarkirkjan, Hlíðasmára 9. Sam-
komur alla laugardaga kl. 11–12.30.
Lofgjörð, barnasaga, prédikun og
biblíufræðsla þar sem ákveðið efni er
tekið fyrir, spurt og svarað. Barna- og
unglingadeildir á laugardögum. Súpa
og brauð eftir samkomuna. Allir vel-
komnir.
Frelsið, kristileg miðstöð. Föstu-
dagskvöld kl. 21 Styrkur unga fólks-
ins. Dans, drama, rapp, prédikun og
mikið fjör.
Lífshlaup – kristniboðsvika. Lista-
kvöld á Holtavegi 28 kl. 20. Á dag-
skrá: Afríkufrændur, Birta, tískusýn-
ing frá Afríku, Neverlone, sýni-
kennsla í matargerð innfæddra
Afríkubúa, einsöngur, kristniboðsæv-
intýri, amharískukennsla, jóðl, flauta,
Kangakvartettinn og kannski eitt-
hvað fleira. Allir hjartanlega vel-
komnir.
Sjöundadags aðventistar á Íslandi:
Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Biblíu-
fræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11.
Ræðumaður Björgvin Snorrason.
Safnaðarheimili aðventista, Blika-
braut 2, Keflavík: Biblíufræðsla kl.
10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður
Einar Valgeir Arason.
Safnaðarheimili aðventista, Gagn-
heiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl.
10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður
Eric Guðmundsson.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest-
mannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnar-
firði: Guðsþjónusta kl. 11. Biblíu-
fræðsla kl. 12. Ræðumaður Gavin
Anthony. Súpa og brauð að samkomu
lokinni.
Hjónanámskeið
á vegum Hafn-
arfjarðarkirkju
Hafnarfjarðarkirkja
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050