Morgunblaðið - 06.04.2001, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 06.04.2001, Blaðsíða 17
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2001 17 Föstudags- og laugardagskvöld BÉPÉ og þegiðu með sitt frábæra prógram Björgvin Ploder trommur/söngur (m.a. í Sniglabandinu o.fl.) Einar Rúnarsson Hammond/söngur (m.a. í Sniglabandinu o.fl.) Friðþjófur Ísfeld bassi (m.a. í Sniglabandinu o.fl.) Tómas Tómasson gítar/söngur (m.a. í Rokkabillybandinu o.fl.) A k u r e y r i ÞORSTEINN Gylfason, pró- fessor í heimspeki við Háskóla Íslands, flytur fyrirlestur sem hann kallar „Guð almáttugur“ í Deiglunni á morgun, laugar- daginn 7. apríl kl. 14. „Nokkuð löng hefð er komin á ferðir Þorsteins til Akureyrar til að kynna áhugasömum hug- myndir sínar. Hún nær a.m.k. aftur til ársins 1981 er Þor- steinn hélt erindið „Rauður fyr- irlestur“ í Rauða húsinu sem var og hét á Akureyri. Í ritum Þorsteins á íslensku má víða sjá þess stað að ferðir hans til áhugafólks á Akureyri og at- hugsemdir gesta hafi reynst honum vel við frekari útfærslu ritgerða og má hafa það til marks um hve góðu sambandi hann nær við áheyrendur sína,“ segir í fréttatilkynningu. Félag áhugafólks um heim- speki á Akureyri stendur fyrir fyrirlestrinum. Fyrirlest- urinn „Guð al- máttugur“ Félag áhuga- fólks um heim- speki á Akureyri Eyjarðarsveit - Stefán Magnússon í Fagraskógi, sem var formaður búgreinaráðs Búnaðarsambands Eyjafjarðar og gaf kost á sér til áframhaldandi setu í stóli for- manns, var felldur í kosningu á fundi ráðsins í fyrradag. Með hon- um í stjórn voru Gunnsteinn Þor- gilsson á Sökku og Helgi Steinsson á Syðri-Bægisá en Helgi gaf ekki kost á sér áfram. Í stað Stefáns og Helga voru kjörnir þeir Þorsteinn Rútsson, Þverá, og Guðbergur Eyjólfsson, Hléskógum. Stefán hefur verið fylgjandi inn- flutningi á norskum fósturvísum en þeir sem kosnir voru í stjórnina nú eru andstæðingar innflutnings- ins. „Ég gerði fundarmönnum grein fyrir því í minni framsögu að ég hefði ákveðnar skoðanir á inn- flutningsmálinu og benti á að ef menn ekki sættu sig við þær yrðu þeir að finna annan mann til for- ystu í samtökum okkar,“ sagði Stefán. „Ég gat allt eins átt von á þessu, það hefði verið óeðlilegt ef andstæðingar mínir í þessu máli, liðsmenn Búkollu, hefðu ekki reynt. Alls skildu 6 atkvæði Stefán og þann sem kjörinn var. Stefán sagði að hann hefði viljað að tilraun með norsku fósturvísana hefði verið gerð á félagslegum grunni, líkt og stóð til í upphafi, en nú hafi mál skipast með öðrum hætti. „Fyrst það er ekki mögulegt er einsýnt að við munum reyna aðrar leiðir. Það hníga að því öll rök að þetta sé hagkvæmt og við verðum að leita allra leiða til að ná fram hagræðingu í okkar rekstri, þetta er einn af möguleikunum sem við sjáum til þess. Ég held að menn gefi slæman höggstað á sér ef þeir ekki reyna,“ sagði Stefán. Hann sagði hóp bænda nú vinna að því að fá leyfi til að flytja inn norska fósturvísa í tilaunaskyni. „Við látum engan bilbug á okkur finna,“ sagði hann. Á sömu leið fóru kosningar aðal- fulltrúa á aðalfund Landssam- bands kúabænda en þeir Guðberg- ur og Þorsteinn ásamt Gunnsteini á Sökku og Þórði Þórðarsyni, Hvammi, voru voru kjörnir fulltrú- ar Eyfirðinga á fundinn. Ný stjórn hjá búgreinaráði Búnaðarsambands Eyjafjarðar Liðsmenn Búkollu sigruðu fylgjendur fósturvísanna Ólafsfjörður - Hermann Tómasson, framhaldsskólakennari við Verk- menntaskólann á Akureyri, kynnti nefnd um eflingu framhaldsnáms við utanverðan Eyjafjörð ýmis gögn sem hann hefur viðað að sér vegna hugs- anlegrar stofnunar framhaldsskóla á svæðinu, en hann var ráðinn til að vinna áætlun um hvernig hægt væri að reka sjálfstæðan framhaldsskóla í utanverðum Eyjafirði á fundi bæjar- ráða Dalvíkurbyggðar og Ólafsfjarð- ar í lok janúar. Í verksamningi óskaði Hermann eftir því að skipaður yrði samráðs- hópur fulltrúa bæjarfélaganna til að fylgjast með framgangi verksins, taka afstöðu til hugmynda, viðfangs- efna og áherslna, og til að fylgjast með að unnið verði innan þeirra marka sem bæjarfélögin telja viðun- andi. Í nefndina voru tilnefnd þau Helgi Jónsson frá Ólafsfjarðarbæ, Ingileif Ástvaldsdóttir frá Dalvíkur- byggð og Óskar Þór Sigurbjörnsson skólamálafulltrúi. Hermann hefur farið ofan í ýmsar lagalegar forsendur, afstöðu íbúanna á grundvelli rannsóknar Rannsóknar- stofnunar Háskólans á Akureyri frá í fyrra. Tölur um íbúafjölda á svæðinu og nemendafjölda í grunnskóla hafa verið skoðaðar. Þá hefur Hermann gert sérstaka úttekt á sókn nemenda af svæðinu eftir póstnúmerum á hinar ýmsu námsbrautir VMA sem draga má lærdóm af. Einnig veltir hann fyr- ir sér hugsanlegu námsbrauta- og námsgreinaframboði, námshópa- stærð, stöðugildum kennara og fjar- námi og samspili þessara þátta og áhrifum á skólagerð. Hermann birti forvitnilega, tölulega samantekt um nemendafjölda á námsbrautum lítilla framhaldsskóla víða um land, skóla sem margir hafa svipað eða fámenn- ara aðland en svæðið við utanverðan Eyjafjörð. Hann gat þess einnig að lítið hefði gerst á landsvísu varðandi nýskipan sjávarútvegsfræðslu en fylgst væri með þeim málum. Her- mann áréttaði að störf hans hingað til hefðu að mestu verið fólgin í öflun skólafaglegra heimilda en rekstrar- legar áætlanir kæmu í kjölfarið. Nefndarmenn lýstu ánægju sinni með gögn og upplýsingar sem þeir fengu á fundinum og þótti það sem fram kom renna frekari stoðum undir hugmyndir manna á svæðinu um stofnun sjálfstæðs framhaldsskóla. Fundarmenn urðu ásáttir um að stefna að því að skýrsla sem nota má til fyrstu kynningar og sóknar í mál- inu verði tilbúin tímanlega áður en sumarleyfi hefjast almennt. Seinna í sumar liggi svo fyrir áætlun um sjálf- stæðan framhaldsskóla við utanverð- an Eyjafjörð ásamt nákvæmri rekstr- aráætlun svo sækja megi málið af fullum þunga til fjárveitingavaldsins við fjárlagagerð á Alþingi. Nefnd um rekstur sjálfstæðs fram- haldsskóla við utanverðan Eyjafjörð Morgunblaðið/Helgi Jónsson Ingileif Ástvaldsdóttir, Dalvík, Óskar Þór Sigurbjörnsson, Ólafsfirði, og Hermann Tómasson, Verkmenntaskólanum á Akureyri. Áætlun liggi fyrir í sumar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.