Morgunblaðið - 06.04.2001, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 06.04.2001, Blaðsíða 28
LISTIR/KVIKMYNDIR 28 FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ Fyrsta myndin; leikkonan unga, Michelle, sem minnti á Brando ungan. DIANA Guzman (Michelle Rodr- iguez) býr í Brooklyn ásamt föður sínum og yngri bróður. Hún á í erfiðleikum með að finna sjálfa sig, hún er stöðugt að lenda í vandræð- um í skólanum og upplifir mikið of- beldi heima hjá sér. Hún veit ekki hvernig hún á að temja innibyrgða reiði sína en dag einn uppgötvar hún boxíþróttina fyrir tilviljun og þar með hefur hún fundið farveg fyrir reiðina og vonbrigðin. Diana byrjar að æfa box í laumi og smám saman tekst henni að ná stjórn á skapi sínu og uppgötva eigin styrk og öðlast sjálfsvirðingu í umhverfi þar sem box er óneit- anlega tengt karlmennsku og ekk- ert grín fyrir unga konu að ætla sér stóra hluti á þeim vettvangi. Þannig er söguþráðurinn í bandarísku bíómyndinni Girlfight sem frumsýnd er í Háskólabíói í dag en hún hefur verið borin sam- an við bresku myndina Billy Elliot, sem fjallar um ungan dreng úr kolanámubæ sem tekur ballettinn framyfir boxið. Girlfight var sýnd í kvikmyndaklúbbnum Filmundi fyrir nokkru og stóð þá í kynn- ingu: „Báðar myndirnar fjalla um ungt fólk sem kýs að tjá sig eftir leiðum sem umhverfið samþykkir ekki auðveldlega vegna tengsla þeirra við hefðbundin kynhlut- verk.“ Girlfight, sem gerð er af óháðum bandarískum kvikmyndagerðar- mönnum, vann til aðalverðlauna á Sundance-kvikmyndahátíðinni í fyrra og Karyn Kusama var valin besti leikstjórinn á sömu hátíð og er þá aðeins upptalið örlítið brot af öllum þeim verðlaunum og tilnefn- ingum sem aðstandendur myndar- innar hafa hlotið undanfarið. Með aðalhlutverk fara Michelle Rodr- iguez, Santiago Douglas og Jaime Tirelli en Michelle Rodriguez þreytir hér frumraun sína sem leikkona í kvikmynd. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á þessum klassísku sögum sem segja frá einhverjum sem er ekki neitt en vinnur sig upp í að verða eitthvað,“ er haft eftir leikstjór- anum Kusama en Girlfight er hennar fyrsta mynd. „Ég hef alltaf haft áhuga á slíkum persónum hvort sem þær heita Terry Molloy í On the Waterfront eða Tony Manero í Saturday Night Fever.“ Kvikmyndagerðarmennirnir leit- uðu logandi ljósi að réttu stúlkunni til þess að fara með hlutverk box- arans unga. Þeir reyndu um 350 leikara í hlutverkið og ein af þeim var stúlka sem aldrei hafði leikið áður á ævinni og heitir Michelle Rodriguez. Kusama lýsir henni með þessum hætti. „Við vorum á höttunum eftir ungri stúlku sem minnti á Marlon Brando þegar hann var ungur og við fundum hana.“ Leikarar: Michelle Rodriguez, Sant- iago Douglas og Jaime Tirelli. Leikstjóri: Karyn Kusama. Boxað í laumi Háskólabíó frumsýnir bandarísku bíó- myndina Girlfight í leikstjórn Karyn Kuzama, sem fjallar um unga stúlku sem æfir box. BUDDY Amaral (Ben Affleck) er einhleypur og Abby Janello (Gwyn- eth Paltrow) er einstæð móðir. Það eina sem þau eiga sameiginlegt er að þau eru bæði að reyna að ná sér aftur eftir erfiða reynslu. Þau ekki aðeins hittast heldur rek- ast á hvort annað, eins og Abby lýsir því. Þegar samband þeirra þróast og Abby heldur að hún sé jafnvel orðin ástfangin af Buddy, kemst hún að því að þeirra fyrsti fundur var ekki eins tilviljunarkenndur og hann virtist. Þannig er söguþráðurinn í róman- tísku gamanmyndinni Bounce sem frumsýnd er í dag í Regnboganum og er með Ben Affleck og Gwyneth Paltrow í aðalhlutverkum. Með önn- ur hlutverk fara Joe Morton, Nat- asha Henstridge, Tony Goldwyn og David Paymer. Leikstjóri og hand- ritshöfundur er Don Roos, sem áður gerði gamanmyndina The Opposite of Sex. „Ég vildi búa til ástarsögu sem var öðruvísi en aðrar ástarsögur,“ er haft eftir Roos. „Það er engin vandi að fylla slíka sögu af kaldhæðni en ef þú ætlar að fjalla um ástarsamband af einhverri alvöru, ef þú ætlar að búa til ástarsamband á milli tveggja einstaklinga, verður maður að láta kaldhæðnina lönd og leið. Þú getur ekki falið þig á bak við neitt. Þú verður að opna þig algerlega og leyfa tilfinningunum að koma fram.“ Hugmyndin kom til hans allt að því fullmótuð. „Ég hef alltaf verið áhugasamur um hvernig örlög fólks ráðast ýmist af tilviljun eða þeim leiðum sem það velur í lífinu og sag- an um Buddy og Abby hafði að geyma allt það sem ég hefði velt fyrir mér í þeim efnum.“ Hann segir að miklu hafi skipt að fá leikarann Affleck til þess að taka að sér hlutverk Buddys. Affleck vakti fyrst verulega athygli í mynd Kevin Smiths, Chasing Amy, en hef- ur síðan orðið einn af helstu leikur- unum í Hollywood af yngri kynslóð- inni. „Don Roos er leikaraleikstjóri,“ er haft eftir stjörnunni. „Honum er mjög umhugað um leikinn og stend- ur með manni í gegnum þykkt og þunnt.“ Þá segir leikstjórinn að það hafi verið sérstakur fengur fyrir sig að fá Paltrow í aðalkvenhlutverkið en í Bounce leikur hún móður í fyrsta skipti á ferli sínum. „Ég lít á Abby sem klett í hafinu,“ segir leikkonan um hlutverk sitt. „Hún neyðist til þess að lifa við þessar erfiðu aðstæð- ur sem einstæðar mæður þekkja en tekst á við það með þeim hætti að maður hlýtur að virða hana fyrir það.“ Leikarar: Ben Affleck, Gwyneth Paltrow, Joe Morton, Natasha Henstridge, Tony Goldwyn og David Paymer. Leikstjóri: Don Roos (The Opposite of Sex). Paltrow og Affleck leika ástfangið par í myndinni Bounce. Abby og Buddy; Paltrow leikur einstæða móður sem Affleck virðist hitta af tilviljun. Buddy, Abby og ástin Regnboginn frumsýnir rómantísku gam- anmyndina Bound með Ben Affleck og Gwyneth Paltrow í aðalhlutverkum. Ýmislegt gengur á í liði klappstýranna í myndinni Sykri og kryddi. A-KLÍKAN er dæmigerð stelpuklíka í bandarískum menntaskóla. Diane (Marley Shelton) er foringi hennar og skotin í aðalíþróttastjörnu skól- ans, Jack Bartlett (James Marsden). Hannah (Rachel Blanchard) er full af réttlætiskennd. Kansas (Mena Suv- ari) er uppreisnargjarna stelpan í klíkunni en móðir hennar (Sean Young) situr í fangelsi. Lucy (Sara Marsh) hugsar ekki um annað en að komast inn í Harvard-háskóla og Cleo (Melissa Geroge) dreymir um að elta spjallþáttastjórnandann Conan O’Brien á röndum. Um klíku þessa fjallar bandaríska gamanmyndin Sugar and Spice eða Sykur og krydd, sem frumsýnd er í Laugarásbíói í dag. Með aðalhlut- verkin fara Marley Shelton, James Marsden, Rachel Blanchard, Mena Suvari, Sean Young og Sara Marsh en leikstjóri er Ástralinn Francine MacDougall. Hún lítur svo á að Sykur og krydd gangi lengra en aðrar unglingamynd- ir sömu gerðar í lýsingu sinni á lífi menntaskólanema. „Ég leit á söguna sem góðhjartaða gamansögu sem grínaðist svolítið með hugsjónirnar á bak við ameríska drauminn,“ er haft eftir henni. „Mér fannst sú hugmynd frábær að vinkonurnar ákveða að hjálpa einni af þeim, sem er ólétt, með því að ræna banka.“ Leikstjór- inn segist hafa viljað draga fram háðsádeiluna í sögunni og áður en tökur hófust kynnti hún sér til hins ýtrasta menntaskólalífið í Bandaríkj- unum og sem Ástralíubúi þurfti hún ekki síst að kynna sér leikreglurnar í ameríska ruðningnum. „Við höfum engar klappstýrur í Ástralíu,“ segir hún, „svo það var alveg ný hlið á íþróttunum hvða mig snertir. Og við í Ástralíu þekkjum nær ekkert til ruðningsboltans.“ Með aðalhlutverkin í myndinni fara ungar og upprennandi leikkonur vestra. Marley Shelton hefur áður leikið í „Pleasantville“ og „The Bachelor“ og Rachel Blanchard er kunn úr sjónvarpsþáttunum „Clue- less“. Líklega er þó Mena Suvari þekktust af ungu leikkonunum eftir myndina „Amerísk fegurð“ eða „Am- erican Beauty“ þar sem hún lék á móti Kevin Spacey. „Það sem ég kann svo vel við við persónu mína í Sykri og kryddi, Kansas, er að hún stendur með vinum sínum sama á hverju gengur,“ er haft eftir Suvari. „Vinir hennar koma í stað fjölskyldu hennar og hún kann því fjarska vel.“ Suvari segir að hlutverk Kansas sé ólíkt öllum öðrum sem hún hefur leik- ið. „Yfirleitt er ég sakleysið uppmál- að á hvíta tjaldinu en Kansas er harð- jaxl sem kann að bjarga sér.“ Leikarar: Marley Shelton, James Marsden, Rachel Blanchard, Mena Suvari, Sean Young og Sara Marsh. Leikstjóri: Francine MacDougall. Sykur og krydd Laugarásbíó frumsýnir bandarísku bíó- myndina Sugar and Spice með Menu Suvari. Í FRÖNSKU myndinni Fátt nýtt gerist fátt eitt. Ungur maður hættir í fyrirtæki þar sem hann prufukeyrir tölvuleiki en veit ekki hvað hann á að taka sér fyrir hendur. Glæsimey hjá vinnumiðlun, sem hann sefur líklega hjá, bendir honum á námskeið í stjórnun þungavinnuvéla og hann slær til og slær í gegn þar því að stjórna vinnuvél er mjög líkt því að stjórna tölvuleik. Á námskeiðinu vingast hann við sérlega lélegan nemanda og hjálpar honum eftir bestu getu en á meðan hann er í burtu óttast hann að fjölskylda sín leysist upp. Svo er það nú búið. Örsögu þessa segir leikstjórinn Emilie Deleuze ásamt tveimur handritshöfundum með þeim hætti að myndin virðist gersamlega stefnulaus. Dagarnir líða einn af öðrum í malargryfjum þar sem æfingar á þungavinnuvélar fara fram, eitthvað hittast þeir á kvöldin og bauka, um helgar fer okk- ar maður í bæinn að hitta fjölskyldu sína, kemur svo aftur, hefjast þá æf- ingar á þungavinnuvélar, eitthvað að bauka á kvöldin – og maður spyr sig, hvað er í gangi hérna? Deleuze virð- ist hafa í hyggju að fjalla um mann sem vill breyta til. Hefur náð þeim aldri að hann gæti staðnað og vill það ekki. Vill ráða sínum eigin örlögum. En það er engin dramatísk spenna í sögunni, maðurinn hefur í sjálfu sér engin önnur markmið en að breyta til, virðist engan sérstakan áhuga hafa á þungavinnuvélum, ólíkt vini sínum, sem myndin hefði kannski átt að fjalla um því að þar er ákveðin þroskasaga á ferðinni, og er sama skaplausa góðmennið frá upphafi til enda. Lítillegt rifrildi hans við eig- inkonu virkar eins og ferskur gustur inn í mengunina af vinnuvélunum. Hér er engin pólitísk rétthugsun á ferðinni, ég man ekki eftir mynd sem er jafnhreykin af mengun og þessi. Leikstjórinn leggur allt upp úr of- urraunsæi og myndin virkar eins og löng heimildarmynd um lífið á þungavinnuvélanámskeiði. Einhver gæti kannski hafa gert úr því al- mennilega bíómynd. Ekki Deleuze. Maður og þungavinnuvélar KVIKMYNDIR R e g n b o g i n n F r a n s k i r b í ó d a g a r Leikstjóri: Emilie Deleuze. Hand- rit: Emilie Deleuze, Laurent Guyot, Guy Laurent. Kvikmyndataka: Antoine Héberlé. Aðalhlutverk: Samuel Le Bihan, Marcial Di Fonzo Bo. Frakkland 1999. 90 mínútur. FÁTT NÝTT „PEAU NEUVE“1 ⁄2 Arnaldur Indriðason Listamaður mánaðarins á www.jolahusid.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.