Morgunblaðið - 06.04.2001, Page 39

Morgunblaðið - 06.04.2001, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2001 39 DRÁTTUR á svörumstjórnvalda vegnaáforma Norðuráls um150 þúsund tonna stækk- un á framleiðslugetu álversins á Grundartanga, hefur orðið til þess að líklegt er nú talið að könnuð verði hagkvæmni þess að stækka um 90 þúsund tonn í næsta áfanga og yrði samanlögð framleiðslugeta álversins þá 180 þúsund tonn. Gildandi starfs- leyfi álversins er einmitt upp á slíka framleiðslu og því þyrfti ekki að fara fram sérstakt mat á umhverfisáhrif- um stækkunarinnar. Ragnar Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri fjármála- og stjórn- unarsviðs Norðuráls, segir að frá því áform um stækkun voru kynnt, hafi komið í ljós að stjórnvöld hafi áhuga á því að kanna möguleika á því að áfangaskipta stækkun um 150 þús- und tonn. „Raunhæfara virðist að kanna fyrst forsendur fyrir því að skipta verkefninu í tvo áfanga, fyrst 90 þús- und tonna stækkun og síðar 60 þús- und tonn því til viðbótar. Áfanga- skipting veldur hins vegar því að fjárfesting á hverja framleiðsluein- ingu verður heldur hærri og sömu- leiðis verður rekstrarkostnaður nokkru meiri þar til fullri stærð er náð. Áfangaskipting mun því minnka hagkvæmni stækkunarinn- ar, en við erum engu að síður til- búnir til að kanna möguleika á slík- um framkvæmdum,“ segir hann. Ragnar segir að fram hafi komið áhyggjur af afleiðingum óska Norð- uráls á áform um uppbyggingu stór- iðju á Austfjörðum. Vegna þessa hafi Þjóðhagsstofnun verið falið að kanna þjóðhagsleg áhrif stækkunar álversins á Grundartanga og niður- stöður hennar séu þær að áformin á Grundartanga hafi ekki veruleg áhrif á framkvæmdir við hugsanlegt álver í Reyðarfirði og verkefnin úti- loki ekki hvort annað. „Við munum fara yfir fjárhagsleg- ar forsendur stækkunar í áföngum þegar þær liggja fyrir og þegar ljóst er hvert raforkuverðið verður. Fyrr er ekki hægt að segja hvort hag- kvæmt sé að stækka álverið eða ekki,“ segir Ragnar ennfremur. Forsvarsmenn Norðuráls kynntu í október sl. hugmyndir sínar um stækkun álversins á Grundartanga upp í allt að 300 þúsund tonna fram- leiðslugetu á ári. Þá vöktu þær mikla athygli, enda var vitað að stækkun álversins úr 60 þúsund tonnum í 90 þúsund tonn gekk vel og var á áætl- un. Hugmyndirnar gerðu ráð fyrir að strax yrði ráðist í byggingu 150 þúsund tonna stækkunar, þannig að heildarstærð álversins verði 240 þúsund tonn. Með nýrri tækni, þar á meðal betri nýtingu á kerum, voru síðan áform uppi um að ná fram- leiðsluaukningu til viðbótar upp á 60 þúsund tonn, svo heildarframleiðslu- getan yrði 300 þúsund tonn. Forráðamenn Norðuráls höfðu metið það svo að byggingartími þessa þriðja áfanga álversins gæti verið 20–24 mánuðir. Titringur á stjórnarheimilinu Eins og fram kom í Morgun- blaðinu fyrir áramót, ollu áform Norðuráls um svo stórfellda stækk- un nokkrum titringi á stjórnarheim- ilinu. Athygli manna hafði einkum beinst að sk. Reyðaráls-verkefni austur á fjörðum síðustu misserin, þ.e. álveri í Reyðarfirði með tilheyr- andi virkjunarframkvæmdum á Austurlandi og lagningu raflína frá Fljótsdal til Reyðarfjarðar, og því setti hið óvænta útspil Grundar- tangamanna nokkurt strik í reikn- inginn. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins gengu viðræður Norðuráls og iðnaðarráðuneytisins fremur treglega í upphafi, ekki síst þar sem Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráð- herra leggur sjálf ofuráherslu á að Reyðaráls-verkefnið hafi forgang og vill hún ekki tefla því í tvísýnu vegna þessa máls. Nokkur breyting virðist þó hafa orðið að undanförnu, og virð- ist sem skýrsla Þjóðhagsstofnunar eigi sinn þátt í því. Allt að einu hermir Morgunblaðið að á allra næstu dögum verði skipuð formleg viðræðunefnd af hálfu ráðu- neytisins sem hafa mun umboð til þess að ná samkomulagi um málið með áfangastækkun að markmiði. Þetta er ekki síst gert vegna þess að sjálfstæðismenn sækja stíft að samkomulag náist við Norðurál, enda telja þeir ekki veita af innspýt- ingu fjármagns í efnahagslífið. Ekki er talið óhugsandi að þeir geti sætt sig við þá lausn að Norðurál fái að stækka um 90 þúsund í næsta áfanga gegn því að framkvæmdir hefjist sem fyrst. Virkjunarfram- kvæmdir vegna slíkrar stækkunar yrðu að öllum líkindum allar í Þjórsá og þykir líklegast að Norðlingaalda verði nýtt í því sambandi. Þeir aðilar innan Framsóknar- flokksins sem Morgunblaðið ræddi við vegna þessa máls í gær, lögðu áherslu á að flokkurinn væri ekki að draga lappirnar í þessu máli. Þvert á móti væri álver á Grundartanga af- rakstur baráttu Finns Ingólfssonar, fyrrv. iðnaðarráðherra, í stóriðj- umálum og alls ekki væri sanngjarnt að stilla málum upp þannig að af hálfu flokksins væri verið að stefna frekari uppbyggingu á Grundar- tanga í tvísýnu. Annar áfangi álversins tekinn í notkun nú í sumar Gert er ráð fyrir að annar áfangi álversins á Grundartanga – stækkun upp á 30 þúsund tonn – verði tekinn í fulla notkun nú í sumar og verður framleiðslugeta verksmiðjunnar 90 þúsund tonn á ári eftir breytinguna. Um 50 starfsmenn hafa verið ráðnir til álversins vegna stækkunarinnar og eru þeir nú í starfsþjálfun, en fyr- ir starfa um 170 í álverinu. Í nýrri skýrslu Þjóðhagsstofnun- ar kemur fram að verði aðeins af stækkun Norðuráls á árunum 2002 til 2005, en ekki framkvæmdum fyr- ir austan, muni fjárfesting verða 20% hærri á þessu árabili en annars hefði orðið. Árleg mannaflaþörf verði 700 til 800 ársverk, eða um 0,5% af áætluðum mannafla á vinnu- markaði. Þá megi búast við að at- vinnuleysi lækki um þriðjung úr prósentustigi á framkvæmdatíma. Þá segir að alls megi gera ráð fyrir um 240 nýjum framtíðarstörfum í ál- verinu. Á hinn bóginn er talið að verð- bólga gæti orðið um 1 prósentustigi hærri 2002–2005 en án fram- kvæmdanna. Reikna megi með að þjóðar- og landsframleiðsla verði um 1½% hærri á framkvæmdatíma en án framkvæmda. Gert er ráð fyrir að varanleg aukning þjóðar- og lands- framleiðslu verði um 0,5%. Horfur eru á að hlutfall viðskipta- halla og landsframleiðslu hækki um 2% að jafnaði á framkvæmdatíma en lækki að þeim loknum vegna aukins útflutnings. Búast má við að varan- leg aukning útflutnings nemi 3½–4½% og að erlendar skuldir verði komnar í svipað horf og annars um 2015, að því er fram kemur í skýrslunni. Í henni er einnig fjallað um mögu- leika á því að ráðist verði í fram- kvæmdir á Grundartanga og tengd- ar virkjanir, samhliða framkvæmd- um vegna Reyðaráls og að fram- kvæmdir yrðu á árunum 2002 til 2009. Árleg mannaflaþörf 1.400 ársverk Í skýrslunni kemur fram að fram- kvæmdir við álverin og tengdar virkjanir leiði til 30% hærri fjárfest- ingar á árunum 2002–2009 en ann- ars hefði orðið. Árleg mannaflaþörf vegna fram- kvæmda verði í námunda við 1.400 ársverk eða tæplega 1% af áætluð- um mannafla á vinnumarkaði. Gert er ráð fyrir að atvinnuleysi lækki að jafnaði um ½ prósentustig vegna aukinnar vinnuaflseftirspurnar í hagkerfinu. Alls megi því gera ráð fyrir um 850–900 nýjum framtíðar- störfum í álverunum tveimur. Þá kemur fram að búast má við auknum þrýstingi á verðlag og gætu áhrif á verðbólgu á árunum 2002– 2009 að jafnaði orðið um 2½–3 pró- sentustig. Einnig að horfur séu á því að þjóðar- og landsframleiðsla verði að jafnaði 3½–4% hærri á fram- kvæmdatíma en annars. Athugunin bendir til að lands- framleiðsla gæti hækkað varanlega um 2% og þjóðarframleiðsla 1½–2%. Búast megi við að hlutfall viðskipta- halla og landsframleiðslu hækki um 3% á framkvæmdatíma en lækki að þeim loknum vegna aukins útflutn- ings. Varanleg aukning útflutnings er áætluð 13–15%. Erlendar skuldir í hlutfalli af landsframleiðslu ættu að vera komnar í svipað horf og annars hefði orðið á árunum 2015–2020, að því er skýrsluhöfundar Þjóðhags- stofnunar segja. Framkvæmdastjóri SA skorar á stjórnvöld að sinna erindinu Ýmsir aðilar í atvinnulífinu hafa áhyggjur af þróun mála, enda talið mikilvægt að laða að erlent fjár- magn og vinna bug á halla á við- skiptum við útlönd með auknum út- flutningi. Þannig gerir Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins, þessa stöðu að umtals- efni í leiðara í nýju fréttabréfi sam- takanna sem kom út í gær og segir að íslenskum stjórnvöldum beri skylda til að sinna erindi Kenneths Petersons eiganda Norðuráls. Ari segir að fram hafi komið op- inberlega að dráttur hafi orðið á því að stjórnvöld gæfu eiganda verk- smiðjunnar svar og hæfu viðræður við hann um heimildir til stækkunar og möguleika á orkusölu. Við svo bú- ið megi ekki standa. „Stjórnvöld bera ríkar skyldur gagnvart þessum erlenda fjárfesti, sem sýnt hefur frumkvæði í því að byggja upp íslenskt atvinnulíf. Fyr- irtækið á möguleika á því að vaxa og dafna og stækkun verksmiðjunnar gerir því kleift að ná stóraukinni hagkvæmni,“ segir Ari m.a. í grein- inni. Hann segir að sumir virðist telja að stækkun Norðuráls myndi spilla fyrir möguleikum Reyðaráls, sem stjórnvöld eiga þegar í viðræðum við. Svo þurfi alls ekki að vera, þar sem framkvæmdir Norðuráls gætu hafist um næstu áramót og yrði lokið á árinu 2004. Reyðarálsframkvæmd- ir yrðu í hámarki á árinu 2005, en taka þyrfti á ákveðinni skörun á árinu 2004 ef til kæmi. Þá sé alls ekki rétt að stilla þessum tveimur fram- kvæmdum upp sem einhverjum keppinautum og hefja jafnvel póli- tískar umræður um það hvort fram- kvæmdir megi fara fram í Norðvest- urkjördæmi, eða bara í Norð- austurkjördæmi. Í lokaorðum sínum segir fram- kvæmdastjóri SA síðan: „Stað- reyndin er sú að eigandi Norðuráls er tilbúinn til að hefjast handa við fjárfestingu sem íslenskt efnahagslíf þarf nauðsynlega á að halda og ís- lenskum stjórnvöldum ber skylda til að sinna erindinu. Dráttur á við- brögðum stjórnvalda getur hæglega leitt til þess að ekkert verði af fram- kvæmdum hjá Norðuráli, án þess að nokkur vissa sé fyrir því á þessu stigi að áform Reyðaráls verði að veruleika. Að hika er sama og tapa.“ Tafir á svörum stjórnvalda við óskum Norðuráls um stækkun álversins á Grundartanga Líklega stækkað í samræmi við gildandi starfsleyfi Forráðamenn Norður- áls hafa hætt vinnu við mat á umhverfisáhrifum þriðja áfanga álvers fyr- irtækisins á Grund- artanga upp á 150 þús- und tonn, skrifar Björn Ingi Hrafnsson. Ástæð- an er lítill áhugi iðn- aðarráðuneytisins á svo mikilli stækkun með til- liti til áforma um upp- byggingu stóriðju á Austurlandi. Ljósmynd/Emil Þór Framkvæmdir standa nú yfir við stækkun álversins á Grundartanga úr 60.000 í 90.000 tonna ársframleiðslu. ktors við Stúdenta- am á svör atímabils- kjaradeil- mið á fót gera áætl- md prófa kvarðanir lls kemur. n Félags rófessora, ráðs um skrifstofu rva sem nd stúd- a.: narmið í verkfall veldur stúdenta mjög stórs linn mun r til þess túdenta.“ í gær að kýlausan, rðislegan, andi fyrir ekki frá Háskólinn ans valdi gert. Með hvaða hætti það yrði sagðist rektor ekki geta sagt til um að svo stöddu. Rektor sagði það meginviðfangs- efni stjórnar Háskólans í samvinnu við samninganefnd FH og samn- inganefnd ríkisins að leysa deiluna. „Við leggjum alla áherslu á að þetta leysist og í mínum huga verð- ur þetta að leysast og ég geri allt sem í mínu valdi stendur til að stuðla að því,“ sagði rektor. „Þessi staða fyrir rektor er óþolandi þar sem Háskólinn er settur á milli tveggja deiluaðila og verður á viss- an hátt valdalaus. Mín tilfinning í dag er hins vegar sú að samningar náist tiltölulega hratt þar sem vilja samningsmanna til þess skortir ekki,“ sagði Páll. Engin svör fengust á fundinum við spurningum nemenda um hvort próftími yrði jafnlangur kæmi til verkfalls eða hvort hann yrði stytt- ur og öll yfirferð hraðari. Lokarit- gerðaskil, einkunnaskil og útskrift nemenda eru enn óljós sem og hvernig staðið verður að sumarfrí- um kennara komi til verkfalls og frestun prófa. Þetta er meðal þeirra mörgu verkefna sem bíða úrvinnslu hjá samráðsnefnd rektors. Hagsmunir á sjöunda þúsund nemenda í húfi Stjórn Stúdentaráðs hefur sent frá sér ályktun þar sem skorað er á mennta- og fjármálaráðherra að beita sér í kjaradeilu kennara og ríkis svo lausn náist áður en til verkfalls kemur. „Í húfi eru hagsmunir á sjöunda þúsund stúdenta sem búa við mikla óvissu um framkvæmd prófa og af- greiðslu námslána. Verkfall mun lama alla starfsemi skólans um ófyrirséðan tíma og stjórnvöld verða að leggja sitt af mörkum svo að slíkt gerist ekki í stærsu mennta- stofnun þjóðarinnar,“ segir í álykt- uninni. Stjórn LÍN, Lánasjóðs íslenskra námsmanna, hefur samþykkt að skipa starfshóp sem mun gera til- lögur til stjórnarinnar um viðbrögð sjóðsins við verkfallinu. Samkvæmt upplýsingum frá LÍN er ekki ófrávíkjanleg regla að aðeins sé hægt að greiða úr sjóðn- um þegar námsárangur liggur fyrir þar sem dæmi séu fyrir því að námslán séu borguð út á grundvelli námsástundarvottorða frá skóla. Heimildir til þessa séu þó innan ákveðinna marka. Vinnuhópur LÍN mun kynna þá kosti sem fyrir liggja á næsta stjórnarfundi sjóðsins sem fyrirhugaður er 20. apríl nk. háskólakennara Morgunblaðið/Árni Sæberg alls sem haldinn var í gær. ð- a r skóla Félags sem efnt í na

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.