Morgunblaðið - 06.04.2001, Side 24
ÚR VERINU
24 FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Klapparstíg 27, sími 552 2522.
Langur laugardagur 10-17
ath lokað laugardag í páskum
Simo kerrupokar í eldri litum nú kr. 4.900
(fullt verð kr. 7.900)
Ný sending af kerrum
„ÞORSKAFLAKERFI smábáta
hefur nú verið í gildi í nokkur ár.
Þegar Þorsteinn Pálsson kom
þessu kerfi á fyrir nokkrum árum í
samvinnu við Landssamband smá-
bátaeigenda sýndi hann mikla
framsýni og skilning á því að í ís-
lensku atvinnulífi þarf framtak
einstaklinganna að fá að njóta sín
og að ákveðið svigrúm er nauðsyn-
legt til að aðrir en fjársterk fyr-
irtæki geti náð árangri í sjávar-
útvegi,“ segir formaður Árborgar,
félags smábátaeigenda á Suður-
landi, Þorvaldur Garðarsson, í
samtali við Verið.
Hann segir að þorskaflahá-
markskerfið, svo og dagakerfi
smábáta hafi reynst hinum dreifðu
byggðum ákaflega vel og hafi það
skipað sér ákveðinn sess í útgerð-
armynstri hinna ýmsu sjávar-
byggða. Það sé því að hans mati
hrein skemmdarstarfsemi að
hreyfa við því kerfi með kvótasetn-
ingu eins og nú standi fyrir dyrum.
Á Suðurlandi myndi fyrirhuguð
kvótasetning hafa mjög alvarlegar
afleiðingar fyrir smábátaútgerðina
þar sem ýsuafli á línu hafi farið
vaxandi undanfarin ár og þeir
smábátar sem þar séu gerðir út
muni almennt fá engan eða mjög
lítinn ýsukvóta. „Ég skora því hér
með á sjávarútvegsráðherra og al-
þingismenn alla að fresta eða
ógilda á þessu þingi lögin sem
kveða á um kvótasetningu króka-
báta og koma þar með í veg fyrir
stórtjón á atvinnumynstri sjávar-
byggðanna allt í kringum landið.
Til hvers að breyta því sem gott
er,“ segir Þorvaldur Garðarsson.
Smábátar eru mikilvægir í Þorlákshöfn eins og víðar.
Til hvers
að breyta?
DÓTTURFYRIRTÆKI SÍF í
Bandaríkjunum, SÍF Iceland Sea-
food Corp, hefur sett á markað
nýja vöru fyrir veitingahúsamark-
aðinn, sem kallast „Tilapia To-
night“. Tilapia er vinsæll hlýsjáv-
arfiskur úr eldi og heitir
beitarfiskur á íslenzku. Þesi nýjung
var meðal annars kynnt á nýafstað-
inni sjávarútvegssýningu í Boston í
Bandaríkjunum.
Þetta er í fyrsta sinn sem fyr-
irtækið selur fisk af þessari tegund.
Þessi vara er unnin úr flökum
beitarfisksins en þessi fisktegund
nýtur sívaxandi vinsælda vestan
hafs og víðar. „Tilapia Tonight“ er
boðin með fjórum bragðtegundum
og er ætlað að vinna sér sess á
betri veitingahúsum.
Frá þessu er greint í fréttabréfi
SÍF, SÍF-fréttum, sem koma út í
dag. „Við höfum þegar kynnt „Til-
apia Tonight“ fyrir umboðsmönnum
okkar og viðtökurnar hafa verið
mjög góðar,“ segir Dan Murphy,
sölu- og markaðsstjóri SÍF – ISC, í
samtali við fréttabréfið. Fyrsta
stóra kynningin á þessum fiskrétti
var hins vegar á Alþjóðlegu sjáv-
arafurðasýningunni Boston Sea-
food. „Hráefnið, sem notað er kem-
ur eingöngu frá fiskræktendum,
sem þýðir að framboðið er stöðugt,
en það er mikilvægt fyrir fram-
leiðslufyrirtæki á borð við SÍF –
ISC. Tilapia (beitarfiskur) hefur
verið ræktaður til manneldis í ára-
tugi og er óðum að verða einn af
vinsælustu fiskitegundum á mark-
aðnum,“ segir Murphy. „Hann er
meyr og bragðmildur, sem þýðir að
það er auðvelt að vinna hann í
framleiðsluferlinu og skapa þannig
vöru sem vonandi á eftir að falla
viðskiptavinum okkar í geð.“
SÍF í Bandaríkjunum
Beitarfiskur
kynntur vestra
FYRSTI fundur íslensk-rússnesku
fiskveiðinefndarinnar var haldinn í
Reykjavík fyrir skömmu. Nefndin
var stofnuð samkvæmt samningi
Íslands og Rússlands um samstarf
á sviði sjávarútvegs sem undirrit-
aður var í apríl á síðasta ári.
Þorsteinn Geirsson, ráðuneytis-
stjóri sjávarútvegsráðuneytisins,
fór fyrir íslensku sendinefndinni en
V.V. Galagan, varaformaður rúss-
neska sjávarútvegsráðsins, þeirri
rússnesku.
Á fundinum voru rædd sameig-
inleg hagsmunamál Íslands og
Rússlands á sviði sjávarútvegs-
mála. Má þar m.a. nefna reglur
varðandi veiðar íslenskra skipa í
Barentshafi, eftirlit með fiskveið-
um, samstarf Íslands og Rússlands
á vettvangi svæðisbundinna fisk-
veiðistjórnunarstofnana og sameig-
inleg verkefni fyrirtækja frá ríkj-
unum tveimur.
Áætlað er að halda næsta fund
nefndarinnar í febrúar á næsta ári.
Ræddu sam-
starf við Rússa
SKÝRSLA Byggðastofnunar um
áhrif fiskveiðistjórnunarkerfisins á
byggðaþróun á Íslandi, sem birt var
fyrir skömmu, kom mjög til umræðu
í utandagskrárumræðu á Alþingi í
gær. Guðjón A. Kristjánsson, þing-
maður Frjálslynda flokksins og
málshefjandi umræðunnar, sagði að í
umræðunni um skýrsluna hafi sjáv-
arútvegsráðherra brugðist við með
því að segja að lög um frjálst framsal
aflaheimilda hefðu haft lítil áhrif á
byggðaröskun í landinu.
Þessa fullyrðingu ráðherrans
sagði Guðjón vera öfugmæli. Hann
sagði að Farmanna- og fiskimanna-
samband Íslands hafi strax árið 1990
lýst yfir áhyggjum sínum af því lögin
um frjálst framsal aflaheimilda
myndi leiða af sér byggðaröskun,
misvægi milli einstakra útgerðar-
flokka og auka tekjumun milli sjó-
manna. Hann sagði að skýrsla
Byggðastofnunar staðfesti í mörgu
þau varnaðarorð sem sögð voru fyrir
meira en áratug síðan. „Margir þing-
menn hafa á liðnu árum áttað sig á
því að lögin um frjálsa kvótaframsal-
ið frá árinu 1990 eru einhver verstu
lög sem sett hafa verið á Alþingi og
eru tilbúnir að breyta þeim, afnema
braskið og færa réttinn aftur til
fólksins í sjávarbyggðunum. Engan
afturbata er hinsvegar að sjá hjá
hæstvirtum sjávarútvegsráðherra
og mörgum stjórnarþingmönnum.
Ráðherrann minnir í þessu máli á
frosið tré í þéttum skógi, þar sem
ekki er nægilegt rými til að skipta
um skoðun, enda þétt að honum
staðið af eintrjáningum stórgreif-
anna sem telja meira en sjálfsagt að
hagræðingin sé aðeins fyrir stórfyr-
irtækin og á kostnað fólksins í sjáv-
arbyggðunum,“ sagði Guðjón.
Ýmsar aðrar breytingar haft
áhrif á byggðaþróun
Árni M. Mathiesen, sjávarútvegs-
ráðherra, sagði að skýrsla Byggða-
stofnunar væri um margt athyglis-
verð. Hins vegar væri hann
ósammála þeirri fullyrðingu skýrslu-
höfundar um að frjálst framsal veiði-
heimilda hefði víðtækar afleiðingar á
þróun byggðar í landinu. Ekki væri
reynt að draga ályktun af efni
skýrslunnar til að standa undir þess-
ari fullyrðingu. Með þessu væri hann
hinsvegar ekki að segja að breyting-
ar í sjávarútvegi og starfsumhverfi
sjávarútvegs hafi ekki haft áhrif á
þróun byggðar í landinu. Sagði Árni
að framsal hafi verið virkt í kvóta-
kerfinu allt frá upphafi en ýmsar
aðrar breytingar hafi einnig átt sér
stað í kerfinu. Þannig hafi orðið tölu-
verður samdráttur í afla, útflutning-
ur á fiski hafi verið gefinn frjáls sem
og verðmyndun á fiski. Þessar breyt-
ingar hafi allar kallað á meiri sam-
keppni um hráefni en áður og þyngd-
arpunkturinn í íslenskum sjávar-
útvegi hafi flust af vinnslunni yfir til
útgerðarinnar. „Þessar breytingar
urðu bæði á landvinnslunni sjálfri og
eins að vinnslan fluttist í meira
magni út á sjó. Þetta þýddi að það
urðu færri árskverk í fiskvinnslu en
áður. Þessar breytingar tel ég að
skipti miklu meira máli en framsalið
gerði. Jafnvel þó að framsalið hefði
beinlínis verið bannað, hefði orðið til-
flutningur á aflaheimildum og það
hefði orðið hagræðing með samein-
ingum fyrirtækja. Ef þessi sveigjan-
leiki hefði ekki verið hefðum við fryst
atvinnugreinina eins og hún var á til-
teknum tíma og hún hefði þá ekki
getað brugðist við og skapað þau
verðmæti sem hún hefur skapað
okkur frá því að við hófum þessar
breytingar,“ sagði Árni.
Ekki lengur hægt að búa
við óbreytt kerfi
Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri
grænna, sagði skýrslu Byggðastofn-
unar staðfesta að gjörbreyting hafi
orðið á starfsumhverfi íslensks sjáv-
arútvegs á síðustu árum. Hann sagði
framkvæmd laga um stjórn fiskveiða
hafa leitt til mikils tilflutnings á fisk-
veiðiheimildum milli byggðarlaga,
þar sem ákveðin landsvæði og ein-
staka byggðarlög hafi borið skarðan
hlut frá borði. Hann sagði íbúa við
strendur landsins búa við mikið óör-
yggi, enda hefðu þeir ekkert að segja
um ráðstöfun fiskveiðiheimildanna
eða aflann þegar hann kemur að
landi. Skýrsla Byggðastofnunar
undirstriki það að ekki sé lengur
hægt að búa við óbreytt kerfi.
Karl V. Matthíasson, þingmaður
Samfylkingarinnar, sagði skýrslu
Byggðastofnunar taka af öll tvímæli
um að framkvæmd fiskveiðistjórn-
unarkerfisins hafi verið mörgum
byggðum landsins mjög dýrkeypt.
Nokkur byggðarlög hafi tapað mikl-
um kvóta og þar með hafi fólk sem
unnið hefur við fiskvinnslu misst
vinnu sína. „Í beinu framhaldi af því
hafa tekjur sveitarfélaganna minnk-
að. Margföldunaráhrifin eru mikil og
þjónusta sveitarfélaganna verður
minni en skuldirnar meiri og meiri
eftir því sem svikamylla kerfisins
malar og malar,“ sagði Karl.
Steingrímur J. Sigfússon, þing-
maður Vinstri grænna, sagði sjávar-
útvegsstefnuna hafa afgerandi áhrif
á aðstæður og framtíðarmöguleika
byggðarlaga við sjávarsíðuna, eink-
um þeirra smærri. Sagði Steingrím-
ur nauðsynlegt að vinda ofan af kerf-
inu. Eina varanlega lausnin væri
tengja einhvern grundvallaratvinnu-
rétt við byggðarlögin.
Vilhjálmur Egilsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, sagði að til að
byggja upp samkeppnishæfan at-
vinnuveg þurfi að vera samkeppni á
milli fyrirtækja í greininni. Það hafi í
för með sér samkeppni á milli byggð-
arlaga sem byggist á atvinnugrein-
inni. „Það er verkefni stjórnenda í
sjávarútvegsfyrirtækjunum að rísa
undir kröfum fólks um bætt lífskjör.
Stjórnendur fyrirtækja hafa sannar-
lega verið að rísa undir þessum kröf-
um og fært landsmönnum 25% kaup-
máttaraukningu á fimm ára tímabili
milli áranna 1995 og 2000. Fyrirtæki
sem ekki rísa undir þessum kröfum
líða undir lok, missa sitt starfsfólk og
fá ekki fjármagn. Það er ekki hægt
að vernda byggðir með því að hamla
gegn framförum og afnema sam-
keppni í helstu atvinnugrein viðkom-
andi byggða. Frjálst framsal er einn
af mörgum þáttum sem skapa virka
samkeppni innan sjávarútvegsins,“
sagði Vilhjálmur.
Árni R. Árnason, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, sagði að skoða yrði
fleiri þætti en flutning aflaheimilda
þegar rætt væri um byggðarþróun í
landinu. Hann sagði að til dæmis
hefði samruni sjávarútvegsfyrir-
tækja haft mikil áhrif á byggðaþróun
í landinu. Einnig hafi fiskiskip skipt
um eigendur og fyrirtækin hagrætt í
rekstri sínum. Árni sagði að ekki síst
hafi orðið flutningur á fyrirtækjum á
milli landshluta og byggðarlaga.
Einnig benti Árni á að stór hluti afla
smábáta er sendur frá löndunarstað
til vinnslu.
Eina leiðin að bjóða
heimildirnar upp
Svanfríður Jónasdóttir, þingmað-
ur Samfylkingarinnar, sagði að eina
leiðin til að tryggja að sambærilegt
jafnræði gæti orðið meðal þegnanna,
og áður en aðgangurinn að auðlind-
inni var takmarkaður, væri að bjóða
upp veiðiheimildirnar og gefa þannig
öllum kost á að nálgast þær. Með því
fengju sjávarbyggðirnar aftur notið
sérstöðu sinnar. Þannig kæmist líka
aftur á eðlilegt rekstrarumhverfi í
stað þess einokunarkerfis sem nú
ríkir. Svanfríður sagði að fyrst þyrfti
að vinda ofan af gildandi úthlutunar-
kerfi með því að innkalla skipulega
þann kvóta sem útgerðin hafi nú til
ráðstöfunar. Hann yrði síðan boðinn-
upp jafnharðan og á ákveðnum tíma
yrðu allar veiðiheimildir komnar á
markað og útgerðaraðilar þannig
jafnt settir að allir þurfi að greiða
fyrir veiðiréttinn. Andvirðið rynni til
þjóðarinnar og mætti til dæmis verja
til endurskipulagningar atvinnulífs-
ins svo byggðir geti haldið áfram að
blómstra þó áfram fækki fólki við
veiðar og vinnslu.
Hagræðingin aðeins
fyrir stórfyrirtækin
Utandagskrárumræða um sjávarútveg og byggðaþróun