Morgunblaðið - 06.04.2001, Page 49

Morgunblaðið - 06.04.2001, Page 49
DC-8 vélar Loftleiða og Air Bahama, dótturfélags þess. Hundruð Íslend- inga bjuggu þar og tugir fóru þarna í gegn á leið sinni á hverjum degi. Þetta voru skemmtilegir tímar bæði í starfi og leik og þá var ekki verra fyrir ungan mann að fá að búa í skjóli Baldurs og félaga á Rúmstokk, því myndarbýli. Fyrir kom að veislur voru haldnar á þessu stórbýli og stjórnaði Baldur þeim af myndarskap og með glöðu geði. Kom stundum fyrir að vín var haft um hönd. Ýmsar skondnar sögur eru til frá þessum tíma og er nokkurra þeirra getið í ágætri bók um innrás Íslend- inga í Luxembourg sem út kom fyrir nokkrum árum. Skemmtilegastar finnst mér minningarnar um fjölskylduboðin sem haldin voru í garðinum. Þá glóð- arsteikti Kristján Karl íslenskt lambakjöt fyrir þá fullorðnu en Bald- ur var inni og hitaði kókó og útbjó poppkorn af mikilli snilld fyrir unga fólkið. Mikil gleði og samkennd var í þessari íslensku byggð. Menn og konur tóku lagið stundum við undir- leik og söng hins þjóðkunna söngv- ara Vilhjálms heitins Vilhjálmssonar sem þá var flugmaður hjá Luxair í Luxembourg og seinna ábúandi á þessu stórheimili. Baldur kom snemma inn í Íslend- ingabyggðina í Luxembourg. Hann varð einn þriggja fyrstu starfsmanna Cargolux. Áður hafði hann verið flugvirki og flugvélstjóri hjá Loft- leiðum bæði á DC-4 og DC-6 en á þeirri vélartegund var hann þátttak- andi í hinum miklu hjálparflutning- um frá Sao Tome til Biafra. Það voru reynslumiklir tímar og hlutu margir íslenskir flugmenn og flugvirkjar sína eldskírn þar. Baldri fannst þetta fyrst og fremst skemmtilegir tímar og naut þess sérstaklega að vinna undir stjórn Þorsteins E. Jónssonar og Katrínar konu hans og að vinna þar með fleira góðu fólki. Á uppgangstímum Loftleiða bauð félagið ungum mönnum til flug- virkjanáms og kostaði félagið nám og uppihald sem menn fengu að end- urgreiða eftir nánara samkomulagi. Baldur var einn af þessum mönnum og lærði hjá Spartan School of Aero- nautics í Tulsa, Oklahoma-fylki í USA. Þá naut hann einnig fjárstyrks frá hinum rausnarlega Ásbirni Ólafs- syni heildsala. Hópur Baldurs taldi 22 unga íslenska menn, af þessum hóp er góð ljósmynd í bókinni Fimm- tíu flogin ár, 1. bindi. Hann útskrif- aðist 20. desember 1963. Baldri sótt- ist námið vel, hann var duglegur og úrræðagóður flugvirki er hann var kominn til starfa hjá Loftleiðum og uppgangur hans þar skjótur. Á flug- virkja- og flugvélstjóraskírteini hans eru fyrst færð réttindi á áðurnefndar vélar, síðan réttindi á CL-44 árið 1970, DC-8 árið 1972 og loks réttindi á Boeing 747 árið 1979. Sú vélarteg- und varð hans vinnustaður þar til 1998 en þá fór hann á eftirlaun og fluttist með fjölskyldu sína til Fil- ippseyja. Þátttaka Baldurs í flugstarfsemi spannar síðasta þriðjunginn af síð- ustu öld sem jafnframt er fyrsta öld flugsins. Miklar tæknibreytingar voru á þessum tíma og naut Baldur þess að vera þátttakandi í þessari hröðu þróun og þeim mikla uppgangi sem var hjá Loftleiðum og Cargolux á þessum starfstíma hans. Vert er að geta þess að honum voru boðin störf við kennslu á flug- virkja- og flugvélstjóranámskeiðum hjá Cargolux en hann afþáði slíkan frama en naut þess stundum að kennarar ráðfærðu sig við hann í kennslustundum. Ýmsir töldu hann yfirburðamann í sinni starfsgrein. Baldur fylgdist ekki bara vel með í sínu fagi. Hann var bókhneigður og vel að sér í fornsögunum og vitnaði títt til þeirra. Einnig las hann nú- tímabókmenntir og var hrifinn af meistara Þórbergi. Sumarið 1983 fékk ung dóttir mín far með B747-vél Cargolux til Houston í Texas og til baka til Luxembourg. Baldur var flugvélstjóri á heimleiðinni og hafði áhyggjur að telpunni myndi leiðast þetta langa flug. Hann færði henni því bókina Bréf til Láru með þeim tilmælum að ákveðinn kafli væri allt- af jafnskemmtilegur. Svona var þessi drengur, vel að sér í sínu fagi en einnig víðlesinn. Hann átti það til að setjast niður við ritstörf og semja vísur, jafnvel heila kvæðabálka sem hann vildi svo senda vinum sínum og varð hann þá stundum að notast við símskeyta- stöðina í sínu heimalandi og stafa skáldskapinn ofan í ritara þar. Gæti ég trúað að svipurinn á þeim hafi verið skrítinn er þetta stóð yfir. Við þessi tækifæri var hann stundum þunghugsi og Bakkus með í spilinu. Í mörg ár heimsótti ég hann reglu- lega á heimili hans. 1974 var hann fluttur af Rúmstokk og í íbúð í Itzig, þar var mikil Íslendingabyggð og þekkti ég þar marga. Hverfið gekk stundum undir nafninu Landakot. Seinna flutti hann í nýbyggt einbýlis- hús í Junglinster og í því hverfi bjó einnig margur landinn. Hann var þægilegur nágranni og greiðvikinn að annarra sögn enda hafði hann góða og trausta nærveru. Nú verða þessar heimsóknir ekki fleiri. Baldur fékk hægt andlát á heimili sínu í Filippseyjum 13. mars síðast- liðinn, aðeins 58 ára gamall. Flug- veður hefur verið gott undanfarna daga og síðasta ferðin hans kyrrlát. Syni hans, Birgi, dætrunum Jacq- uline Guðrúnu og Geraldine og sér- staklega einkasystur hans, Hólm- fríði, og fjölskyldum þeirra sendum við Guðrún og börnin einlægar sam- úðarkveðjur. Sigurður Karlsson. Með nokkrum orðum langar okk- ur að minnast vinar okkar Baldurs Þorvaldssonar sem við kynntumst þegar við áttum öll heima í Lúxem- borg. Það er gott að kynnast mönnum eins og Baldri, hann var drengur góður. Við sendum öllu hans skyldfólki okkar innilegustu samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Baldurs. Ólína og Páll Andrésson. Vinur minn Balli og samstarfs- félagi til margra ára er farinn í síð- ustu ferðina. Balli starfaði hjá Cargolux sem flugvélstjóri í Lúxem- borg en lét af störfum þegar störf flugvélstjóra voru lögð niður með nýrri og fullkomnari flugvélum. Engum kom á óvart Þegar Balli söðl- aði um og flutti til Filippseyja og bjó þar um árabil, en þangað hafði hugur hans alltaf stefnt. Balli var nokkuð sérstakur, fór ekki troðnar og hefð- bundnar slóðir heldur markaði sér lífsstíl sem menn virtu, sérstaklega með tilliti til þess að Balli var traust- ur og kunni sitt fag. Var sérstaklega gott að vera með Balla í flugi ef hlut- irnir gengu ekki upp, þá kom í ljós hversu Balli var vel lesinn og úr- ræðagóður, yfirvegaður og bjó yfir einstakri ró sem smitaði út frá sér og gerði flókin mál einföld. Á ferðum okkar vítt og breitt um heiminn þar sem hótel voru okkar annað heimili fór ekki hjá því að menn kynntust, stundum mjög náið þegar menn eru fjarri fjölskyldunni, oft til lengri tíma, er þá víða komið við í um- ræðum, varð því þráðurinn sem þannig myndaðist mjög sterkur. Við Balli náðum vel saman, komum víða við, andleg mál voru Balla ofarlega á baugi, voru fjörlegar umræður og stundum langar um þau málefni. Balli var tifinningamaður undir hrjúfu yfirbragði þeim sem ekki þekktu hann. Ég minnist ávallt at- viks, þegar við Balli vorum á göngu í fátækrahverfi í Bombay umkringdir börnum að biðja um ölmusu og Balli gaf óspart, fannst mér þetta frekar tilgangslaust þar sem fjöldinn var slíkur, ekki var vinur minn Balli á sama máli, sagði að sá sem gæfi fá- tækum lánaði Drottni, „og ég fæ þetta margfalt til baka, Siggi minn“. Nú hefur Balli fengið flugtaks- heimild fyrir sitt síðasta flug, til þess ákvörðunarstaðar sem okkar allra bíður. Ég óska vini mínum Balla góðrar ferðar í þá ferð sem ekki er skráð í hefðbundna áhafnarskrá heldur af þeim sem öllu ræður. Á grænum grundum lætur hann mig hvíl- ast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. SI: 23.2. Góða lendingu. Sigurður Óskar Halldórsson. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2001 49 ✝ Eyþór Gíslasonfæddist á Þor- ljótsstöðum í Vestur- dal í Skagafirði 18. apríl 1920. Hann lést á líknardeild Land- spítalans í Fossvogi 29. mars síðastliðinn. Foreldrar hans voru Gísli Jónasson og Sigurlaug Árnadótt- ir. Eyþór átti þrjár alsystur, Ragnheiði Jónínu sem dó ung, Ingibjörgu sem er látin og Ragnheiði sem búsett er á Ak- ureyri. Einnig átti hann tvær hálfsystur, samfeðra, Indíönu og Kristínu, og eru þær báðar látn- ar. Árið 1944 kvæntist Eyþór Sæ- unni Jónsdóttur, f. 23. okt. 1924, d. 28. maí 1997. Eyþór og Sæunn eignuðust sex börn: 1) María, f. 1944, bókasafnsfræðingur í Reykjavík. 2) Birna, f. 1945, starf- ar á heilsustofnun NLFÍ í Hvera- gerði. Var gift Braga Sveinssyni og eiga þau fjögur börn, Kristínu, f. 1967, Þóru, f. 1970, Aðalheiði, f. 1973, og Björn Braga, f. 1978. Fóstursonur Ingólfur Þorbergs- son, f. 1984. 3) Gísli, f. 1950, húsa- smiður í Kópavogi, kvæntur Sig- rúnu Þorvarðardóttur og á hann fimm börn: Ágúst, f. 1971, móðir Guðbjörg Ágústsdóttir, Eyþór, f. 1972, Þorvarð Hrafn, f. 1976, Erlu Maríu, f. 1978, og Ólaf, f. 1980. 4) Ingi- björg, f. 1954, starf- ar á heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði og á hún þrjár dæt- ur: Kolbrúnu Ösp Gestsdóttur, f. 1980, Berglindi Örnu Gestsdóttur, f. 1981, og Sæunni Marín Harðardóttur, f. 1991. 5) Kári, f. 1958, kvæntur Pa- melu Wright og eiga þau þrjá syni: Kára Þór, f. 1977, Erni, f. 1980, og Ómar, f. 1990. 6) Jón Hörður, f. 1967, starfar við sjómennsku á Ólafsfirði, í sambúð með Heiðu Jónu Guðmundsdótt- ur. Þau eiga tvo syni, Guðmund Inga, f. 1996, og Grétar Óla, f. 1998. Eyþór og Sæunn voru fyrstu búskaparár sín í Breiðagerði í Skagafirði en bjuggu síðan nokk- ur ár á Sauðárkróki. Vorið 1950 fluttu þau í Vesturhlíð þar sem þau bjuggu næstu 15 árin en það- an lá leiðin til Reykjavíkur þar sem Eyþór lærði múrverk og starfaði við það meðan kraftar entust. Útför Eyþórs fer fram frá Ás- kirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Ég ætla að minnast pabba míns fáum orðum. Þó svo fátt væri ósagt á milli okkar þá langar mig að segja frá hversu góður vinur þú varst. Ég man fyrst eftir þér þegar ég var mjög ungur en kynntist þér lít- ið fyrr en ég var 15 ára, eftir að aðstæður höguðu því þannig einn daginn að við urðum tveir einir í heimili og vissum hvorki hvernig þvottavélar væru notaðar hvað þá annað. Í gegnum þessar þrautir fórum við saman og var því samb- and okkar náið og sterkt þrátt fyr- ir fjörutíu ára aldursmun. Sérstak- lega man ég eftir því hvað þú varst hvetjandi við mig, þú sagðir mér hvað þú dáðist að áræði mínu og jafnvel þegar illa gekk hjá mér tókst þú á þig þungar byrðar sem voru af mínum völdum, jafnvel þá var stuðningurinn og hvatningin hvað mest við mig. Á síðustu tíu árum varð ég þess aðnjótandi að hafa þig hjá mér á mínum vinnustað og þrátt fyrir að þú værir kominn á áttræðisaldur hef ég sjaldan haft jafnoka þinn í vinnu og ég veit að börnin mín og eiginkona nutu þess jafn-vel og ég að vinna með þér. Ég er þess fullviss að þessi góði tími sem ég átti með þér hefur gert mig að betri og þroskaðri manni og eitt af mörgu sem ég dáðist að í fari þínu var hversu laus þú varst við að dæma aðra. Þegar ég sneri mér frá atvinnu- rekstri og fór í nám varstu jafn- áhugasamur og alltaf um það sem ég var að gera. Það fór ekki fram hjá neinum að á síðasta ári tók að halla undan fæti hjá þér hvað heilsuna varðar. Þú veiktist hastarlega fyrir nokkr- um vikum og ljóst varð hvert stefndi. Daginn áður en þú fórst sagðir þú við mig, Kári, á morgun ætla ég að klára þetta. Þannig man ég þig, þú tókst ákvörðun og fylgd- ir henni. Við höfum alltaf verið sáttir og góðir vinir, elsku pabbi, það var ómetanlegt að vera samferða þér í lífinu. Kveðja, Kári og Pamela. Eyþór tengdafaðir minn var maður hófseminnar sem naut þess að vera í góðra vina hópi þar sem ekki var verra ef sagðar voru frétt- ir að norðan og ég tala nú ekki um ef kveðskapur kom þar við sögu, því hann átti mjög sterkar rætur til Norðurlandsins og fannst hann alltaf tilheyra Skagafirði og þang- að leitaði hugur hans jafnan. Hann hefur ekki haldið margar skálaræður í kokteilboðum í gegn- um árin og ekki staðið upp til að tala mikið á fundum því það var einfaldlega ekki hans stíll. En hann hefur í gegnum ævina staðið upp fyrir þeim sem minna mega sín og honum hefur fundist halla á, þá var oft ekki mikið sagt en hjálp boðin fram án þess að setjast í dómarasætið eða ætlast til einhvers í staðinn. Börnin hans og þeirra fólk hafa í gegnum tíðina oft notið góðs af þessum kærleika og því umburð- arlyndi sem hann sýndi öðru fólki sem var í raun hans aðalsmerki því þau vissu alltaf að hann var til staðar fyrir þau. Ef hann hafði minnsta grun um að eitthvað væri að þá gaf hann sig fram. Mig langar með fáeinum orðum að kveðja mann sem sl. 30 ár hefur haft svo mikil áhrif á tilveru mína og kennt mér hvað það er sem skiptir máli í þessu lífi. Hann hefur kennt mér að það eru ekki alltaf bestu kennararnir sem hafa hátt og mikið ber á. Menn eins og tengdafaðir minn eru oft þeir sem skilja mest eftir sig til komandi kynslóða. Því hvað er heillavænlegra til árangurs en veganesti sem inniheldur kærleik, fordómaleysi og umhyggju fyrir öðru fólki? Elsku Eyþór, við kveðjum þig með söknuði en þó með þakklæti í huga fyrir að þú þurftir ekki að þreyja langt og erfitt dauðastríð. Því það má segja að þú hafir dáið eins og þú lifðir, með reisn, hljóð- lega og án þess að kvarta. Sigrún Þorvarðardóttir. EYÞÓR GÍSLASON Það er með söknuði sem ég kveð elskulega frænku mína Petr- únellu eða Petu frænku eins og við systkinin kölluðum hana. Peta var systir ömmu minnar Dínu og man ég vel hvað ávallt ríkti á milli þeirra mikil vinátta og hlýhugur. Það er ljúf minning að hugsa til baka til bernskuáranna þegar Peta var að koma í heimsókn á Langholtsveg, það varð allt svo glaðvært í kringum Petu. Það sem ég minnist sérstak- lega er hvernig Peta talaði við okk- ur krakkana, hún tók okkur alltaf eins og jafningjum, talaði við okkur eins og að við skiptum máli, hún sýndi okkur áhuga og því sem við vorum að fást við. Þær systurnar áttu samliggjandi sumarbústaði við ✝ Petrúnella Aðal-heiður Kristjáns- dóttir fæddist í Sjó- búð á Akranesi 22. júlí 1913. Hún andað- ist hinn 22. mars síð- astliðinn og fór útför hennar fram frá Frí- kirkjunni í Reykja- vík 29. mars. Þingvallavatn og þegar við vorum í heimsókn hjá ömmu og afa var það ekki svo sjaldan að við kíktum yfir til Petu frænku því þar var alltaf tekið svo vel á móti manni og ég fann fyrir þessum mikla hlýhug sem Peta sýndi okkur systkinunum ávallt. Það var ekki hægt annað en að end- urgjalda þennan hlý- hug og þegar ég hugsa til baka sé ég að kynni mín við Petu hafa verið mér afar kær. Ekki síður eftir að amma Dína dó, en þá fannst mér böndin við hana jafnvel styrkjast því hún var fyrir mér síðasti fulltrúi kynslóðar hennar og ömmu, brunn- ur visku og hlýju, fulltrúi kynslóðar sem hafði önnur gildi en við í dag, hafði alltaf tíma þó næg væru verk- efnin. Það er með trega sem ég kveð Petu frænku en þó minnist ég hve oft hún talaði um það þegar hún loksins fengi að hitta aftur eigin- mann sinn Jón og ömmu Dínu og aðra látna ástvini sem hún saknaði, ég held að Peta hafi kvatt þennan heim sátt, enda dagsverkið orðið gott. Elsku Peta, ég veit að þú ert nú meðal þeirra ástvina og bið góð- an guð að blessa þig og minningu þína. Aðstandendum Petu votta ég innilega samúð. Ruth Sigurðardóttir. Mig langar til að senda kveðjuorð til minnar kæru Petu, eins og við kölluðum hana. Já, nú er hún horfin en minning hennar lifir með okkur og vil ég þakka henni samfylgdina öll árin, en þau eru orðin mjög mörg. Þó ttvið værum ekki á sama aldri áttum við oft skemmtilegar samræður, bæði í síma og heima við, því þessi yndislega manneskja var svo lifandi og skapgóð að unun var að umgangast hana. Foreldrar mínir og Jón og Peta voru vinir og þessi heiðurshjón komu oft á heimilið og eitt sinn er foredrar mínir voru að skipta um húsnæði bjuggum við í húsi þeirra hjóna um tíma. Þá var oft glatt á hjalla og hefur oft verið minnst á það. Peta var trúuð kona og lifði sam- kvæmt því, talaði vel um alla og var hreinskiptin. Heilsa hennar var ekki sem best hin síðari ár, en þó var kátínan og gleðin í fyrirrúmi og oft hlógum við saman. Ég vil að lokum þakka henni fyrir alla tryggðina og Ingimarsfjölskyld- an mun muna hana. Börnum hennar og öllum að- standendum sendi ég hlýjar sam- úðarkveðjur. Hvíl í friði. Martha Ingimarsdóttir. PETRÚNELLA AÐALHEIÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.