Morgunblaðið - 06.04.2001, Side 52
MINNINGAR
52 FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Björn Friðriks-son verslunar-
maður fæddist í
Sveinungsvík í Þistil-
firði 2. september
1918. Hann lést á
Landspítalanum
Landakoti 27. mars
síðastliðinn. Björn
var sonur hjónanna
Þorbjargar Björns-
dóttur frá Svein-
ungsvík og Friðriks
Guðnasonar frá Hóli
á Melrakkasléttu.
Björn var elstur átta
systkina, en þau eru:
Guðni, Jóhann og Friðný Friðriks-
börn og Guðmundur, Friðrik,
Signý og Björg Guðrún, Einars-
börn Einarssonar.
Björn kvæntist Hlaðgerði Odd-
geirsdóttur 5. maí 1942. Hlað-
gerður er dóttir Aðalheiðar Krist-
jánsdóttur og Oddgeirs Jó-
hannssonar frá Hlöðum á
Grenivík.
Björn og Hlaðgerður eignuðust
níu börn: 1) Friðrik sjómaður á
Raufarhöfn, f. 1943, er kvæntur
Hugrúnu Selmu Hermannsdóttur
og eiga þau fjögur börn: Önnu,
Björn, Hermann og Þorvald Frey.
2) Oddgeir húsasmiður í Keflavík,
f. 1944, er kvæntur Fanneyju Sæ-
mundsdóttur og eiga þau fjögur
börn: Björn, Hlaðgerði, Brynju og
Örnu. 3) Skjöldur Vatnar fram-
haldsskólakennari í Reykjavík, f.
1947, er kvæntur Sigríði Sigurð-
ardóttur og eiga þau einn son:
Rúrik Vigni. 4) Björgólfur sölu-
stjóri í Reykjavík, f. 1949, er í
sambúð með Hólm-
fríði Svavarsdóttur
og á hann tvær dæt-
ur: Birgittu og
Brimrúnu. 5) Þor-
björg, f. 1951, dó
þriggja dægra göm-
ul. 6) Þorbjörg þjón-
ustustjóri í Reykja-
vík, f. 1953, er gift
Óttari Strand Jóns-
syni og eiga þau tvo
syni: Börk Strand og
Darra Strand. 7)
Arnheiður sjúkraliði
og nuddari í Reykja-
vík, f. 1957, er gift
Ottó Tómasi Ólafssyni og hún á
tvö börn: Bríeti og Breka Kon-
ráðsbörn. Ottó á eina dóttur, Þóru
Kristínu. 8) Aðalheiður sjúkraliði
í Hafnarfirði, f. 1957, á fjögur
börn: Sigríði Önnu, Friðmar, Ey-
þór og Örvar Bjartmarsbörn. 9)
Edda Hrafnhildur forstöðumaður
í Reykjavík, f. 1959.
Björn stundaði nám við Héraðs-
skólann á Laugum í Reykjadal frá
1937–40. Þegar Björn og Hlað-
gerður byrjuðu sinn búskap á
Raufarhöfn vann Björn ýmis
verkamannastörf, aðallega hjá
Síldarverksmiðjum ríkisins. Síðar
hóf hann verslunarstörf hjá Kaup-
félagi Norður-Þingeyinga á Rauf-
arhöfn og sinnti þeim mestan sinn
aldur. Einnig kenndi hann íþróttir
við Grunnskólann á Raufarhöfn
um hríð. Björn söng með Kirkju-
kór Raufarhafnar í tæp 50 ár.
Útför Björns fer fram frá Breið-
holtskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 15.
Þriðjudaginn 27. mars síðastliðinn
stóð ég ásamt systkinum mínum og
móður við rúmstokk föður míns með-
an hann lauk jarðvist sinni á ljúfasta
og friðsælasta hátt sem ég get hugs-
að mér. Þessi endir var í góðu sam-
ræmi við lífshlaup hans.
Pabbi fékk parkinsonssjúkdóm
fyrir um áratug en svo bættist við
alzheimer, sem varð honum öllu erf-
iðari. Hann átti því orðið erfitt bæði
með hreyfingu og hugsun. Með því
að ganga í gegnum þessi vandamál
með vini sínum og föður, að tapa frá
sér vitneskjunni og persónuleikan-
um að hluta, verður dauðinn sjálfur
frekar fallegur endir heldur en sorg,
þó að söknuðurinn hjá okkur ætt-
ingjum hans, sem eftir lifum, sé mik-
ill.
Ég er pabba þakklátur fyrir það
uppeldi sem ég fékk hjá honum en
það var mjög látlaust og virtist mér
það sem barni og unglingi ekki vera
markvisst eins og tíðkast í dag. Það
var í formi fyrirmyndar án fyrirskip-
ana og predikana og einmitt þess
vegna fór ég úr föðurhúsum með
frjálsa og óbundna skoðun án fast-
mótunar eða fordóma.
Ég býst við að flest samferðafólk
hans hugsi um ljúfan, heiðarlegan,
hæglátan mann, sem raulaði lagstúf
fyrir munni sér við vinnuna og víst er
að oft heyrði ég Binna hælt fyrir
áreiðanlega og lipra þjónustu við
skip og aðra sem þurftu vöru utan af-
greiðslutíma. Þegar hann kom heim
sagði hann stundum að það væri ekki
friður fyrir vinnunni. Það var vegna
þess að hann vildi gjarnan vera
heima eða að gera eitthvað með sinni
fjölskyldu. Þó að hann stundaði vinn-
una sína vel og af mikilli samvisku-
semi og nákvæmni held ég að hann
hafi haft meira gaman af allri lífs-
umgjörðinni. Hann var ánægður
þegar hann var að heyja fyrir kúna,
að útbúa hreiðurstað fyrir hænurn-
ar, að salta bútung eða kjöt í tunnur
fyrir heimilið. Það voru gleðistundir
að fylgjast með honum að búa til
jólatré, skápa og annað sem ekki var
keypt í þá daga. Hann byggði húsið
sitt á Raufarhöfn sjálfur og hugsaði
vel um það. Ég held að hann hefði
viljað hugsa vel um heimilið sitt og
þurfa ekkert að vinna úti. Oft hjálp-
aði ég honum við þess háttar vinnu
en fórst misjafnlega. Með aldrinum
gekk mér betur að gera eins vel og
honum líkaði best. Hann vildi þekkja
fortíðina vel og skila öllu vel til fram-
tíðar. Hann var ekki mikill félags-
maður en hafði sem dæmi mjög gam-
an af kirkjukórsstarfinu og leik-
fimikennslunni með krökkunum.
Ég þekkti hann pabba best sem
unnanda náttúrunnar og alvörunátt-
úrubarn. Hann undi sér vel með okk-
ur börnunum sínum uppi í heiði á
Melrakkasléttu við læki og vötn, úti
á bjargbrún við eggjatöku eða að
tína fjallagrös og ber, með allan
heimsins tíma þar sem ekkert lá á.
Gott fannst honum að liggja milli
þúfna, naga gras og tala við okkur
um fugla, fiska, gróður, himin og
jörð. Á þeim stundum var hann mér
sönn fyrirmynd um falslausa nægju-
semi, lítillæti og hógværð í um-
gengni við sjálfa náttúruna svo of-
veiði eða önnur græðgi komst hvorki
að í huga né verki. Hann bjó til hjá
mér gleði í hjarta yfir því einu að
vera til og vera hluti af lífskeðjunni.
Á kvöldin var hann latur og ljúfur.
Oft sagði hann okkur sögur og þær
voru flestar úr fortíðinni. Sumar af
unglingsárum hans, sem voru þá
fyndnar sögur af skrítnum körlum
úr sveitinni. Þegar mamma las fyrir
okkur á kvöldin fengum við að velja
lesefni en þegar pabbi las vildi hann
oft fá að lesa úr Íslendingasögunum.
Ég flutti úr foreldrahúsum til
Reykjavíkur 16 ára og fór þá að upp-
lifa pabba svona meira utan frá og
kynntist honum síðan aftur á for-
sendum fullorðinna. Þau kynni okk-
ar voru í raun alveg eins. Hann tók
mér sem jafningja, þótti greinilega
vænt um mig eins og ég hefði alist
upp á einhverjum góðum stað. Eins
og við öll hafði pabbi minn kosti og
galla en það fór ekki mikið fyrir
hvorugu vegna mildi hans.
Ég vildi óska að allir fengju að
alast upp við jafngóðar aðstæður og
ég gerði.
Með þakklæti og virðingu kveð ég
þig, elsku pabbi.
Þinn sonur,
Skjöldur Vatnar.
Ég kveð í dag afa minn en eftir lifa
góðar minningar.
Á uppvaxtarárum mínum á Rauf-
arhöfn var mikið verið í Röðli hjá afa
og ömmu. Húsið var í miðju þorpinu
þannig að það var alltaf í leiðinni,
sama hvort maður var á leiðinni
frameftir eða úteftir. Ef svo ólíklega
vildi til að enginn var heima var hús-
ið alltaf opið. Hjá þeim afa og ömmu
hittumst við frændsystkinin og þeg-
ar fólkið kom að sunnan var setið
fram eftir kvöldi í spjalli, oftast í eld-
húsinu þar sem sjá mátti þegar bátar
komu inn. Það var hátíð í bæ þegar
afi var með myndasýninu á stóru
tjaldi og oft hlegið að skemmtilegum
myndum sem teknar höfðu verðið í
útilegum eða að gömlum myndum
þar sem sjá mátti hvað fólkið breytt-
ist milli ára. Þetta var nokkuð sem
enginn vildi missa af hvað sem mað-
ur var orðinn gamall.
Þegar þið fluttuð suður var ég svo
heppin að þið fluttuð í næsta stiga-
gang við okkur og var mikill sam-
gangur á milli og fengu synir mínir
að kynnast langafa sínum vel og er
ég þakklát fyrir það.
Þú varst alltaf svo þakklátur fyrir
það sem gert var fyrir þig, hvort sem
það var morgunganga, bílferð eða
bara að fara með skjöl í bankann.
Þú varst mikill reglumaður, nátt-
úruunnandi og útivistarmaður.
Nú sitjum við ömmurnar, eins og
þú kallaðir okkur ömmu alveg frá því
ég var smástelpa, og söknum þín en
við munum styðja hvor aðra í fram-
tíðinni.
Elsku afi minn, takk fyrir allt og
góða ferð til nýrra heimkynna, þín
Birgitta, Ingimar, Jóel
og Viktor Ernir.
BJÖRN
FRIÐRIKSSON
!
" #$%&'!
" ( ()* !
+
, - ! . + / 0!
1 * - ! 2 3 0!
4, - ! 1 4. 0!
)* ", -0! 1 *," !
-5 # !" " ! !
. 6 ! 6 + !1 4( !
! 1 !
0# 4.7!
" ( (!+ 8 09 ,
3:;.!
0 <<!
!
! "
#
$
%
&
1 4 0! 3 4/ = !
6 0! 6 !
# # 0# # # ,
'
>
3 "
3;.!
2 %!
7 (7!
(
&
)
%
&
* $ $
+,
&+-,,
+0 0!
0 / 0!
2 6- 0! / = !
6- 3 0,
.
8 3
?(? 6 !
@0 &<!
7 (7!
(
&
!
"
$
/
&
" 6 ( 8 !
1 *
(#0 ! 8 8 70!
#0 0! + = 1 4 !
4 " (#0 ! /
-0!
," #0 0! /4( !
#0 0!
# # 0# # # ,
>@A13 A
*6( 6 !
7 'B!
0-
1
@ !
1 4" 6 ( 0!
1- ( 0! 4
0# # ,
8/2
$
2 $
1
3
&+-,,
" !
78 0! " 4 6 " 6 !
8 0! $6 !
7 5 8 0! ( !
8 8 0!
+0 # 8 ! . / 0!
3 = 8 ! 6 . 0!
3 = 8 !
" = 8 !
# # 0# # # ,
!$
>
+.;>
/.;.!
80 %C!
7 (7!
(
&
(
%
&
/ = +0 # 0! 4 .7 !
+0 # 0! " 7 /
07 ,