Morgunblaðið - 06.04.2001, Page 55
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2001 55
STÚLKNASVEIT Melaskóla
vann yfirburðasigur í stúlknaflokki á
Íslandsmóti grunnskólasveita sem
fram fór um síðustu helgi. Melaskóli
vann allar skákir sínar, 12 að tölu.
Hólabrekkuskóli lenti í öðru sæti
með 6½ vinning. Hamarsskóli kom
þar rétt á eftir með 5½ v. og Austur-
bæjarskóli varð í fjórða sæti. Sig-
ursveit Melaskóla var þannig skipuð:
1. Hlín Önnudóttir
2. Hildur Hamíðsdóttir
3. Ingunn Jensdóttir
4. Dóra Sif Ingadóttir
vm. Ásgerður Snævarr
Það er ekki að efa að þessar stúlk-
ur eiga framtíðina fyrir sér í skák-
inni ef þær halda áfram á þessari
braut. Liðsstjóri Melaskóla var Arn-
grímur Gunnhallsson, sem hefur nú
um árabil séð um skákþjálfun í skól-
anum. Sveitir skólans hafa verið afar
sigursælar undir stjórn hans og á
hann mikið lof skilið fyrir það mikla
og óeigingjarna starf sem hann hef-
ur innt af höndum við skákþjálfun
barna og unglinga.
Sveit Hólabrekkuskóla, sem hlaut
silfurverðlaunin, var skipuð þessum
efnilegu stúlkum:
1. Elsa María Þorfinnsdóttir
2. Eyrún Heiðarsdóttir
3. Agnes Eir Magnúsdóttir
4. Iðunn Eva Magnúsdóttir
vm. Unnur Ósk Eggertsdóttir
Hólabrekkuskóli var um langt
árabil stórveldi á skáksviðinu og
ljóst er á frammistöðu þessarar
stúlknasveitar að enn er hlúð að
skákinni í skólanum.
Skákstjóri á mótinu var stórmeist-
arinn Helgi Ólafsson, skólastjóri
Skákskóla Íslands.
Barna- og unglingastarf í skólum
og taflfélögum hefur um árabil verið
borið uppi af fáum einstaklingum,
sem þó hafa sinnt sínu hlutverki af
mikilli elju án þess að mikið hafi fyr-
ir þeim farið. Þeir sem til þekkja vita
hins vegar hversu mikil vinna liggur
að baki árangri á þessu sviði – lík-
lega meiri vinna en felst í nokkrum
öðrum þætti skáklífsins hér á landi.
Þrátt fyrir það er sjaldgæft að þeir
sem mest og best vinna að barna- og
unglingastarfi hljóti nokkra opin-
bera viðurkenningu fyrir störf sín.
Það er kannski tímabært fyrir skák-
hreyfinguna að huga betur að þess-
um hógværu burðarásum skáklífs-
ins. Einn öflugur einstaklingur
getur nefnilega gert kraftaverk í
þjálfun barna og unglinga eins og
hefur sýnt sig á undanförnum árum.
Madonna metnaðarfull
í skákinni
Það eru ekki eingöngu íslenskar
skólastúlkur sem eru metnaðarfullar
í skákinni. Söngkonan Madonna er
vön því að vera í fyrsta sæti á vin-
sældalistunum og það vill hún einnig
vera þegar hún sest við skákborðið.
Þetta kann að koma ýmsum á óvart,
því í huga sumra er fátt fjarlægara
en glæst líf stórstjarnanna annars
vegar og að sitja við skákborðið í
þungum þönkum hins vegar. Eigi að
síður er það staðreynd að Madonna
teflir og hefur meira að segja orðið
sér úti um skákþjálfara, því hún
sættir sig ekki við neitt hálfkák í
þessum efnum fremur en öðrum.
Þess má reyndar geta að fleiri
þekktar stjörnur tefla og sumar
þeirra fara ekki í ferðalög öðruvísi
en að hafa taflborðið með sér.
Fyrir nokkru birtist í Sunday
Times grein um þau hjónakorn Ma-
donnu og Guy Ritchie. Þar kemur
fram að Skotlandsmeistarinn Alan
Norris hefur verið með þau skötuhjú
í skákþjálfun, þótt Alan neiti að gefa
nokkrar upplýsingar um það hvort
þeirra standi sig betur í baráttunni á
borðinu. Madonna veit hins vegar
hvað hún syngur og ekki kæmi á
óvart þótt innsæið brygðist henni
ekki í skákinni fremur en tóneyrað
þegar hún semur smellina sína. Í
greininni segir að greinilega sé vax-
andi áhugi á skák meðal þekktra
tónlistarmanna og kvikmynda-
stjarna.
Ný rússnesk skákstjarna
Hin 16 ára gamla Alexandra
Kosteniuk er einhver efnilegasta
skákkona Rússlands um þessar
mundir. Hún er með yfir 2.400 skák-
stig, er stórmeistari kvenna og al-
þjóðlegur skákmeistari. Evgeny
Bebchuk, skólastjóri Skákskóla
Moskvu, fjallaði nýlega um þessa
hæfileikaríku stúlku á vefsíðu
FIDE, alþjóðlega skáksambandsins.
Fyrir utan mikla skákhæfileika hef-
ur hún staðið sig vel í námi og nýtur
dyggrar aðstoðar fjölskyldu sinnar
bæði í skákinni og náminu. Evgeny
rifjar upp fyrstu kynni sín af Alex-
öndru við skákborðið, en þá var hún
tólf ára gömul. Þau tefldu hraðskák
og þótt umhugsunartíminn væri
stuttur náði Alexandra að finna end-
urbót á taflmennsku fléttumeistar-
ans Rudolfs Spielman í skák sem
hann hafði teflt þremur aldarfjórð-
ungum fyrr. Munurinn var sá að
Spielmann hafði hugsað sig um í 25
mínútur, en það tók Alexöndru innan
við tvær mínútur að finna endur-
bótina. Það er greinilegt að Evgeny
bindur miklar vonir við framtíð
Alexöndru í skákinni.
Stúlknasveit Melaskóla sigraði
á Íslandsmóti grunnskólasveita
SKÁK
S k á k s a m b a n d
Í s l a n d s
1.4. 2001
ÍSLANDSMÓT
GRUNNSKÓLASVEITA –
STÚLKUR
Daði Örn Jónsson
Alexandra Kosteniuk Madonna
Sigursveit Melaskóla. Aftari röð frá vinstri: Ragna Ólafsdóttir skóla-
stjóri, Ásgerður Snævarr, Dóra Sif Ingadóttir, Ingunn Jensdóttir og
Arngrímur Þór Gunnhallsson liðsstjóri. Fremri röð frá vinstri: Hlín
Önnudóttir og Hildur Hamíðsdóttir.
Bankastræti 3,
sími 551 3635
Póstkröfusendum
BIODROGA
*MOIST* rakakremið
byggir upp, styrkir og nærir húðina.
Þú ert örugg með BIODROGA
Lífrænar jurtasnyrtivörur
Fermingarmyndatökur
Erling Ó. Aðalsteinsson
Ljósmyndastofa
Laugavegi 24, sími 552 0624
Pantanir í síma 552 0624
frá kl. 13-18
Nú er síðasti hlekk-
ur móðursystkina
minna brostinn. Látinn
er Bjarni Ingibergur
Sigfússon.
Bjarni fæddist á Syðri-Brekkum
árið 1916 en afi og amma bjuggu þar
frá 1904 og var tvíbýli á bænum. Um
haustið 1917 brennur bærinn og
urðu afi og amma að búa um sig í
fjárhúsum með sjö börn sem þau
áttu þá og í janúar 1918 missa þau
Sigurð son sinn, 19 ára að aldri.
Þessi ár voru einhver hörðustu
sem komu á síðustu öld. En þrátt
fyrir fátækt og mikla erfiðleika tókst
ömmu og afa að glæða hjá börnum
sínum sérstaka bjartsýni og trú á líf-
ið sem mótaði lífsviðhorf þeirra alla
tíð. Eflaust hefur reynsla þeirra
þegar bærinn brann 1917 fært þau
nær hvert öðru en mér er í barns-
minni hvað systkinin voru samhent
og samkennd þeirra mikil.
Þessum eiginleikum miðluðu þau
svo til okkar afkomenda sinna.
Afi og amma flytja að Hofi á
Höfðaströnd um vorið 1918 og í
ágúst eignast þau dreng sem þau
skíra Sigurð. Að Gröf flytjast þau
1921. Bjarni elst upp í glaðværum
hópi systkina sem eftir þetta eru
kölluð Grafarsystkin. Bjarni vandist
öllum störfum til sveita og var sá
harðduglegasti maður sem ég hef
séð vinna, sama að hverju hann
gekk. Við Agnar vorum í sveit hjá
ömmu og afa til 1941 en það ár deyr
amma og Bjarni tekur við búinu.
Hann, ásamt Ólafi Jónssyni og Svan-
hildi systur hans, keypti jörðina
1937 og byggðu tveggja íbúða hús
1938 og eftir það er tvíbýli í Gröf.
Bjarni festi ráð sitt 1943, eignaðist
einstaklega góða konu, Gunnlaugu
Stefánsdóttur frá Gautastöðum í
Fljótum, en hún var í vist hjá
mömmu og Árna Jóhannsyni á
Siglufirði þegar þau kynntust.
Við Agnar vorum í sveitinni hjá
Bjarna og Laugu til ársins 1945. Á
ég bjartar minningar um þessi ár.
Bjarni var vinnuharður og gekk að
öllum störfum með miklum krafti.
Eitt sinn vantaði nýmeti. Bjarni
rauk niður í Grafargerðisgil og beitti
nokkra stokka af línu. Hann tók svo
Agnar með sér og lögðu þeir línuna
af árabát sem hann átti. Ég var að
sniglast í fjörunni og fylgjast með en
þeir voru rétt fyrir utan víkina.
Agnar, sem seinna varð sjómaður,
varð sjóveikur og setti Bjarni hann í
land og sagði honum að sækja hest
og kerru undir aflann og tók mig
með sér á sjóinn. Dró hann svo lín-
una sem var með heilmikinn fisk.
Agnar kom svo með kerruna og um
kvöldið var mikill fiskur á hlaðinu í
Gröf. Þetta var minn eini línuróður
og á ég hann Bjarna að þakka. Hann
átti til að hringja í Grafargerðis-
bændur eftir kvöldmat í góðu veðri
og biðja þá að mæta niður í gil og
taka nokkur fyrirdráttarköst. Ég
man eftir ágætisveiði eitt sinn og
eftir að aflanum hafði verið skipt í
þrjá staði lá stór sjóbirtingur í fjör-
unni. Bjarni brá hnífi á fiskinn og
skipti honum í þrjá hluta. Í Graf-
BJARNI
INGIBERGUR
SIGFÚSSON
✝ Bjarni Ingiberg-ur Sigfússon
fæddist á Syðri-
Brekkum í Blöndu-
hlíð í Skagafirði 21.
júní 1916. Hann and-
aðist á Landspítalan-
um 29. mars síðast-
liðinn og fór útför
hans fram frá Bú-
staðakirkju 5. apríl.
argerði var þá tvíbýli,
skipta ætti afla rétt. Í
þessu fólst mikil
kennsla fyrir okkur
strákana.
Bjarni átti afbragðs-
góða hesta, ég man sér-
staklega eftir Bjarna-
brún, hann var stór og
ofsaviljugur, aldrei
fékk ég að ríða á hon-
um, okkur var bara
treyst á þægari hesta.
Bjarni hafði mikla og
bjarta söngrödd, í Gröf
var mikið sungið. Eftir
að síminn kom áttu
þeir það til Bjarni og vinur hans,
Gísli á Sleytustöðum, að syngja í
símann og Bjarni spilaði þá gjarna
líka á munnhörpu og öll sveitin lá á
hleri. Þetta voru yndisleg ár. Eftir
að Jónína fæddist átti Lauga til að
kalla á mig og láta mig passa hana
seinni part dags svo hún gæti farið í
heyskapinn með Bjarna, afa og Agn-
ari sem að sjálfsögðu var miklu dug-
legri en ég.
Það urðu breytingar árið 1946, þá
deyr afi og við fórum ekki í sveitina
um sumarið, fórum að vinna á Sauð-
árkróki hjá Sigurði bróður Bjarna
sem þá var búinn að hasla sér völl
þar við byggingaframkvæmdir. Þar
urðu miklar breytingar, stofnaður
Gagnfræðaskóli og Iðnskóli og bær-
inn fékk kaupstaðarréttindi 1947.
Íbúum fjölgaði og fólk vantaði til
starfa. Bjarni selur Ólafi sinn hluta
jarðarinnar 1947 og flytur til Sauð-
árkóks. Byggðu þau Lauga fallegt
hús að Hólavegi 13, þar sem heimili
þeirra stóð, öllum opið og sama gest-
risnin og var í Gröf. Bjarni vann hjá
Sigurði bróður sínum, fyrst við
byggingavinnu og síðan verslunar-
störf.
Til Reykjavíkur flytja þau árið
1966 og kaupa hús á Sogavegi 100,
það var alltaf gaman að heimsækja
þau, tekið var á móti manni með
veisluborði fyrirvaralaust. Vissulega
hefðu þær heimsóknir mátt vera
fleiri því alltaf var gaman að hitta
Bjarna og rifja upp árin í Gröf.
Bjarni og Lauga áttu góð ár í
Reykjavík. Hann stundaði verslun-
arstörf og hún vann auk þess utan
heimilis. Þau höfðu gaman af að
ferðast og fóru margar ferðir til sól-
arlanda með vinum sínum.
Milli Grafarsystkinanna var alla
tíð mikið og kærleiksríkt samband.
Höfum við niðjar þeirra reynt að
halda því við með ættarmóti á fimm
ára fresti. Nú eru það börnin okkar
sem fyrir þeim standa. Í sumar er
ætlunin að hittast í Reykholti, þar
mun Bjarna verða saknað. Ég vissi
af veikindum Bjarna og að hann var
að berjast við ólæknandi sjúkdóm.
Ég kveð frænda minn með sökn-
uði, hann kenndi mér og Agnari
bróður mínum ungum að vinna og
var fyrirmynd í leik og starfi. Fyrir
það og margar ánægjustundir vil ég
nú þakka.
Ég kveð Bjarna með ljóðlínum
sem ortar voru í minningu föður
hans, Sigfúsar Hanssonar:
Minn kæri vinur, ég þakka þér.
Ég þakka tímann sem liðinn er,
já, þökk fyrir gleði og gaman.
Máske við hittumst á himneskri strönd
og hleypum þar fáki um sólskinslönd,
þá skulum við syngja þar saman.
(Árni Jóhannsson.)
Við Auður sendum öllum aðstand-
endum innilegar samúðarkveðjur.
Guð veri með ykkur.
Sverrir Sveinsson.