Morgunblaðið - 06.04.2001, Page 57

Morgunblaðið - 06.04.2001, Page 57
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2001 57 FRÍMERKJAKAUPMENN hafa á liðnum árum vikið að því við mig, að á það skuli bent í frímerkja- þætti, að menn fari gætilega að, þegar verið sé að taka til í gömlum dánarbúum og henda því, sem menn telja fánýtt og jafnvel einskis virði. Skiptir þá litlu eða jafnvel engu, hvort um er að ræða muni, sem er ekki lengur þörf fyrir eða í tízku í nútímaþjóðfélagi, en menn vilja samt ógjarnan fleygja út á haug eða í Sorpu, svo að notað sé nútíðarmál. Menn hafa líka séð, að þessir munir hafa margir hverjir sögulegt gildi. Má þar minna á gömul búsáhöld og amboð, sem forfeður okkar notuðu við dagleg störf sín. Sem betur fer er margt af þessu komið á byggða- söfn, þar sem ókomnar kynslóðir geta virt þessa gömlu muni fyrir sér og þá jafnvel í sögulegum húsum, sem flutt hafa verið á safnsvæðið, oft um langan veg. Hef ég þá m.a. í huga hið mikla björgunarstarf vinar míns, Þórðar Tómassonar í Skógum undir Eyjafjöllum. Vissulega er mörgum vorkunn, ekki sízt á þeim velferðartímum, sem við lifum á, þegar flestir virðast hafa allt til alls, að átta sig á, hvað gera skuli við „allt þetta drasl“, sem safnazt hefur saman í áranna rás og fer oft heldur illa í sambúð í nútíma heimilum. Þá verður þrautalending eftirkomendanna oft sú að losa sig við sem mest „á einu bretti“ og farga því með einum eða öðrum hætti. En hér er samt margs að gæta, enda mætti segja mér, að menn geti síðar séð eftir því að hafa verið heldur fljótir á sér við „hrein- gerninguna“. Hér vil ég vekja athygli á einum þætti þessa oft viðkvæma máls, en það er varðveizla bréfasafna, sem margur lætur eftir sig að vegferð lokinni. Ég hef grun um, að margur erfinginn vilji helzt ekki, að þau bréf komist í hendur óviðkomandi, eink- um mjög persónuleg bréf, og það er í raun ofur skiljanlegt. Hinu verður samt ekki neitað, að bréf þeirra manna, sem voru eða eru fyrir- ferðarmiklir í lífi sínu og koma víða við, eru oft betur geymd en gleymd fyrir samtímasögu þeirra og eins þjóðarsöguna. Dettur mér hér í hug maður eins og Einar Benediktsson, sem var mikill athafnamaður um næstliðin aldamót og á fyrstu ára- tugum síðustu aldar. Oft hefði verið erfitt að skrifa sögu hans og rekja jafn nákvæmlega og Guðjón Frið- riksson hefur gert, ef bréfa- og skjalasafn Einars og margra sam- starfsmanna hans hefði ekki varð- veitzt að öllu eða einhverju leyti. En frímerkjasafnarinn lítur ekki alveg sömu augum á silfrið. Hann hugsar einkum um umslögin utan af bréfunum og þeim frímerkjum og stimplum, sem þar eru á, enda þótt bréfin mættu gjarnan fylgja með. Hér er ég kominn að því, sem ég vil segja í frímerkjaþætti við alla þá, sem handleika gömul bréf og um- slög: Farið að öllu með gát og hend- ið þeim ekki eða rífið frímerkin af þeim. Ráðfærið ykkur við frí- merkjakaupmenn eða safnara, áður en þið gerið það. Þetta segi ég að fenginni reynslu og eins af sögu- sögnum um mörg umslögin, sem hafa af hugsunarleysi farið forgörð- um. Fyrir mörgum árum skrifaði ég frímerkjaþátt, þar sem var einmitt bent á þetta mál. Síðan hef ég haft af því spurnir, að einhverjir lesend- ur hafi tekið til greina það, sem þar sagði, og með góðum árangri. Þetta vil ég því endurtaka hér og ekki sízt, þar sem enn er verið „að taka til“ í gömlum dánarbúum. Fyrir og um næstliðin aldamót og raunar lengur var það algengur sið- ur, að menn geymdu bréf frá vinum og kunningjum í umslögunum og skrifuðu jafnvel aftan á þau, hvenær þeir fengu þau í hendur. Hið sama mun hafa gilt um viðskiptabréf fyrirtækja. Síðan munu þessi söfn oft hafa verið bundin saman eftir ár- um og þeim svo komið fyrir til geymslu á stöðum, þar sem þau voru ekki fyrir, en þó aðgengileg, ef á þyrfti að halda. Þannig mynduðust margir „árgangar“ af bréfum. Ýmsum sögum hefur farið um ör- lög þessara hluta, þegar fram liðu stundir, og því miður margt farið í glatkistuna í áranna rás. Þó má sjá í frímerkjasöfnum, að mörgu hefur verið bjargað, trúlega oft fyrir hreina tilviljun. Jafnvel hafa umslög verið komin út í ruslatunnur, en dregin þaðan upp af athugulum eða forvitnum mönnum og síðan orðið þeim til hagsbóta, söfnurum til gleði og póstsögu til framdráttar. Hér má enn minnast á Einar Benediktsson. Hann gaf fyrstur manna út dagblað á Íslandi, Dagskrá, nokkru fyrir aldamótin 1900. Hann stóð því í sambandi og bréfaskriftum við um- boðsmenn og áskrifendur víða um land. Hann virðist hafa geymt bréfasafn sitt frá þeim árum, því að umslög og bréfspjöld til hans og blaðsins má sjá í ýmsum ágætum ís- lenzkum frímerkjasöfnum. Fylgir hér mynd af einu slíku umslagi. Af sjálfu sér leiðir, að í upphafi 21. aldar verður æ sjaldgæfara að finna óvænt slík bréfasöfn, a. m. k. jafn áhugaverð fyrir frímerkjasafnara og hér hefur verið vikið að. Engu að síður er sjálfsagt, að menn hafi aug- un opin, ef eitthvað slíkt kemur fyrir sjónir þeirra. Þá er sjálfsagt að velta fyrir sér fallega frímerktum og vel stimpluðum umslögum frá fyrri hluta síðustu aldar og eins eftir árið 1944, þ. e. frá fyrstu áratugum lýð- veldisins, áður en Sorpa gleypir þau. Að endingu er hér enn ein ábend- ing til safnara og póstnotenda. Eins og kunnugt er, hefur Íslandspóstur hf. markvisst unnið að því að útrýma frímerkjum á póstsendingum sínum og nota þess í stað gúmstimpla, sem eru einskis virði að mínum dómi. Hins vegar leiðir af þessu, að um- slög og kort með þeim frímerkjum, sem nú eru gefin út og eru fallega stimpluð, verða góðir safngripir, þegar fram líða stundir. Hvet ég því alla, sem áhuga hafa á frímerkjum, að halda þeim póstsendingum til haga og nota jafnframt frímerki sem mest á bréf sín og sendingar til vina og kunningja. Þau umslög og kort eiga eftir að gleðja margan safnarann á nýrri öld. Hvað leynist á háaloft- um eða í kjöllurum? FRÍMERKI E . v . t . e r u þ a r k o r t o g b r é f a s ö f n í g ö m l u m u m s l ö g u m Fallegt umslag til Einars Benediktssonar með kórónustimpli frá Lækjamóti í Víðidal og leiðarstimplinum Strandasýsla. Jón Aðalsteinn Jónsson UPPBOÐ Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á skrifstofu embættisins á Hörðuvöllum 1, Selfossi, sem hér segir: Hafbjörg ÁR-015, skipaskrárnr. 1091, þingl. eig. Ingólfsfell ehf., gerðarbeiðandi Íslandsbanki-FBA hf., mánudaginn 9. apríl 2001 kl. 10.00 Sýslumaðurinn á Selfossi, 4. apríl 2001. ÝMISLEGT Diskótek Sigvalda Búa Tek að mér öll böll og uppákomur. Allar græjur og tónlist fylgja. Diskótek Sigvalda Búa, nýtt símanúmer er 898 6070. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF I.O.O.F. 1  181468½  Dd. I.O.O.F. 12  181468½  Bi. Aðalstöðvar KFUM og KFUK, Holtavegi 28. Lífshlaup 2001 - kristniboðsvika. Listakvöld: Mannlíf í tuskunum. Fjölbreytt dagskrá í höndum ungra listamanna. Meðal atriða eru Afríkufrænkur, Kanga-kvart- ettinn, Neverlone, tískusýning frá Afríku, amharískukennsla og margt fleira. William Lopeda frá Kenýu flytur hugvekju. Aðgang- ur ókeypis, en tekið verður á móti gjöfum til kristniboðsins. Dagskráin hefst kl. 20:00. Allir eru hjartanlega velkomnir. www.kfum.is Í kvöld kl. 21 heldur sr. Hannes Örn Blandon erindi: „Hvað teng- ir trúarbrögðin?“ í húsi félags- ins, Ingólfsstræti 22. Á laugardag kl. 15-17 er opið hús með fræðslu og umræðum, kl. 15.30 í umsjón Guðrúnar Hjörleifsdóttur. Á morgun kl. 14-15.30 er bóka- safn félagsins opið til útláns fyrir félaga. Á sunnudögum kl. 17-18 er hugleiðingarstund með leiðbein- ingum fyrir almenning. Á fimmtudögum kl. 16.30- 18.30 er bókaþjónustan opin með miklu úrvali andlegra bók- mennta. Guðspekifélagið er 122 ára alþjóðlegt félag um andleg mál, hið fyrsta sem byggði á hug- myndinni um algert frelsi, jafn- rétti og bræðralagi meðal mannkyns. Óvissuferð sunnud. 8. apríl. Gönguleið 12-13 km, göngu- tími 4—5 klst., skemmtileg leið í nágrenni Reykjavíkur. Fararstjóri Sigurður Kristjáns- son. Verð 1.400 kr. Brottför frá BSÍ og Mörkinni 6 kl. 10.30. Söguslóðir Njálu með Arthúri Björgvini Bollasyni föstudag- inn langa. Heimsókn og hádegis- verður í Sögusetrinu á Hvolsvelli innifalið í fargjaldi. Nauðsynlegt er að panta í Njáluferð á skrif- stofu F.Í. Verð 3800 kr. fyrir fé- lagsmenn og 4300 kr. fyrir aðra. Vegna forfalla er 1 sæti laust í skíðagönguferð um Arnar- vatnsheiði 12.—14. apríl. Páskaferð í Þórsmörk 14.— 16. apríl. „Fast þeir sóttu sjóinn“, rað- göngur og heimsóknir á forna útgerðarstaði á Suð- urnesjum. Fyrsta ferðin á ann- an dag páska, 16. apríl, á Stafnes og að Básendum. Leiðsögumað- ur Reynir Sveinsson, forstöðu- maður Fræðasetursins í Sand- gerði. Takið þátt í spurningaleikn- um á heimasíðu F.Í. Dagsferðar- miði dreginn út í hverri viku. www.fi.is, textavarp RUV bls. 619. RAÐAUGLÝSINGAR BJÖRN Bjarnason menntamála- ráðherra hefur skipað samstarfs- nefnd um starfsnám á framhalds- skólastigi fyrir annað starfstímabil nefndarinnar, en fyrri nefnd lauk störfum í desember sl. Helsta hlutverk nefndarinnar skv. fram- haldsskólalögum er að stuðla að tengslum skóla og atvinnulífs og að vera menntamálaráðherra til ráðuneytis um stefnumótun í starfsnámi. Nefndin skal jafnframt gera til- lögur um forgangsröðun verkefna í starfsnámi svo og um sérstakar til- raunir og þróunarverkefni. Samstarfsnefndin er skipuð 18 einstaklingum, 12 þeirra eru til- nefndir af samtökum aðila á vinnu- markaði. Nýr formaður nefndar- innar er Guðjón Petersen, fyrr- verandi framkvæmdastjóri Al- mannavarna ríkisins og bæjar- stjóri í Snæfellsbæ. Skipulagi nefndarinnar breytt Fyrsti fundur nýrrar samstarfs- nefndar var haldinn 28. mars sl. og ávarpaði menntamálaráðherra fundinn. Í máli hans kom fram að ætlunin væri að breyta skipulagi nefndarinnar í þeim tilgangi að auka sjálfstæði hennar og efla frumkvæði með því að færa um- sýslu með málefnum nefndarinnar til Menntar, sem er samstarfsvett- vangur atvinnulífs og skóla. Samið verður við Mennt um að annast til- tekin verkefni er lúta að störfum nefndarinnar og hafa með höndum eftirfylgni einstakra verka er nefndin vinnur að á hverjum tíma. Á fundinum var kjörin sérstök framkvæmdastjórn skipuð 7 ein- staklingum, er stýrir störfum nefndarinnar milli funda og gerir drög að starfsáætlun hennar til næstu fjögurra ára. Stefnt er að auknu samstarfi við 14 starfsgreinaráð sem skipuð voru árið 1998 að fengnum til- lögum fyrri samstarfsnefndar. Starfsgreinaráð hafa m.a. með höndum vinnu að námskrá starfs- náms og verða fyrstu námskrár samkvæmt hinu nýja fyrirkomu- lagi gefnar út á vori komanda. Skipað í samstarfs- nefnd um starfsnám SAMTÖK verslunarinnar leggj- ast gegn samþykkt þingsálykt- unartillögu sem kveður á um að embætti umboðsmanns neyt- enda verði stofnað og telja rétt- ara að efla þær stofnanir sem þegar eru sérhæfðar til að fara með neytendamál. Í fréttatilkynningu segir að í svo litlu þjóðfélagi sem Íslend- ingar búa við sé ástæðulaust „að búa til stofnanir í kringum alla skapaða hluti sem fela í sér mikil fjárútlát“. Þá segir í til- kynningunni: „Í dag eru frjáls- um félagasamtökum neytenda veittir tugir milljóna króna til að sinna neytendavernd og verður ekki séð að með sam- þykkt tillögunnar eigi að gera breytingar þar á.“ Þá vara samtökin við því að færa þann lagakafla, sem fjallar um ólögmæta viðskiptahætti, úr samkeppnislögum í ný lög um umboðsmann neytenda eins og lagt er til í greinargerð með þingsályktunartillögunni þar sem kaflinn geti líka náð til samskipta fyrirtækja á milli. Réttara að efla þær stofnanir sem fyrir eru Leggjast gegn þingsályktunartillögu um umboðsmann neytenda

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.