Morgunblaðið - 28.04.2001, Qupperneq 13
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2001 13
RJÚKANDI kaffiilmur berst
að vitum þar sem gengið er
inn í aðstöðu heilsdagsskólans
í Engjaskóla þar sem nokkrir
foreldrar unglinga í hverfinu
hafa komið saman. Það er
fimmtudagskvöld og fyrr um
daginn hafa tíundubekkingar
lokið samræmdu prófunum.
Af því tilefni ætla foreldrarnir
að rölta um Engjahverfi, að-
allega í þeim tilgangi að sýna
sig og líta eftir þeim ungling-
um sem hugsanlega hafa farið
á stjá til að fagna próflokun-
um.
Yfir heitu kaffinu er spjall-
að um daginn og veginn og lok
samræmdu prófanna. Búið
var að skipuleggja óvissuferð
fyrir tíunda bekkinn sem lagt
var upp í fyrr um daginn en
þátttaka nemendanna olli
vissum vonbrigðum því aðeins
17 af 38 krökkum fóru í ferð-
ina. Þeir af foreldrunum, sem
eiga tíundabekkjarkrakka,
halda þó að þeir muni taka því
rólega í kvöld. Ein móðirin
upplýsir meira að segja að
krakkarnir hennar séu að
passa litlu systur sína á með-
an hún er í foreldraröltinu og
vekur það kátínu viðstaddra.
Ekki dugir þó að gleyma
sér yfir kaffinu og hópurinn
drífur sig í útigallann og held-
ur af stað út í rokið og rign-
ingarúðann sem er í Grafar-
vogi þetta kvöld. Á leiðinni frá
Engjaskóla mætum við tveim-
ur unglingspiltum sem veifa
kumpánalega til foreldranna
og skipst er á nokkrum orðum
í stríðnistón. Á bensínstöðinni
eru tvær stelpur að kaupa sér
nammi og þær rabba svolítið
við nokkrar mömmurnar.
Það er greinilegt að for-
eldrarnir þekkja flesta krakk-
ana í hverfinu enda segir Guð-
brandur Guðmundsson sem
er hópstjóri þetta kvöld að
einn megintilgangurinn með
röltinu sé að kynnast hverfinu
og fólkinu sem í því býr.
Uppákomur í
sjötta hvert skipti
Að hans sögn eru það for-
eldrar barna í 5.–10. bekk
skólans sem taka formlega
þátt í röltinu og skipta þeir
með sér föstudagskvöldunum
auk þess sem hóað er í fólk
þegar tilefni þykir til, eins og
þetta kvöld.
„Engjaskóli er tiltölulega
ungur skóli og þar voru í
fyrsta skipti útskrifaðir nem-
endur úr tíunda bekk síðast-
liðið vor. Stjórnir foreldra- og
kennarafélagsins hafa undan-
farin ár verið með foreldrarölt
í huga og rölt nokkrum sinn-
um en ekki talið þörf á skipu-
legu rölti fyrr en nú í vetur.
Síðastliðið haust fannst okkur
hins vegar tímabært að koma
reglu á þetta og settum upp
skipulag sem unnið er eftir,“
segir Guðbrandur. Hann seg-
ir að reynslan þennan vetur
hafi sýnt að lítið er um vand-
ræði í hverfinu um helgar.
„Í sjálfu sér höfum við mjög
lítið orðið vör við alvarlega
hluti. Við skráum alltaf í bók
hvernig kvöldið hefur verið og
ef henni er flett þá sést að það
hefur verið mjög rólegt. Við
höfum örsjaldan orðið vör við
vandræði meðal krakkanna
og það er reynslan almennt í
foreldrarölti víða um borgina
að það er ekki nema u.þ.b. í
sjötta hvert skipti sem eitt-
hvað kemur upp á,“ segir
hann og bætir því við að komi
eitthvað upp á skipti foreldr-
arnir sér ekki beint af krökk-
unum.
„Við erum svona í kantinum
að fylgjast með og það hefur
áhrif á hegðun krakkanna.
Svo erum við með síma og
getum hringt í foreldra og
lögreglu ef eitthvað er.“
Kræsingar hjá
lögreglunni
Mitt í þessum samræðum
staðnæmist lögreglubíll hjá
göngugörpunum. Lögreglu-
þjónn stingur höfðinu út um
glugga og spyr hvort hópur-
inn ætli ekki að kíkja niður á
stöð í vöfflur til Gauja á eftir.
Boðinu er tekið með þökkum
og við eftirgrennslan kemur í
ljós að Gaui þessi er Guðjón
St. Garðarsson lögreglu-
flokkstjóri sem gjarnan býður
í vöfflur á föstudagskvöldum
þegar foreldrarnir eru á rölt-
inu.
Vöffluilmurinn lætur held-
ur ekki á sér standa þegar
komið er inn á hverfisstöð lög-
reglunnar í Miðgarði nokkru
síðar en þar er Guðjón búinn
að dekka borð og býður fólki
að gjöra svo vel. Aðspurður
segist hann ekki vera í vafa
um að foreldraröltið hafi já-
kvæð áhrif á krakkana í hverf-
inu og foreldrarnir taka undir
það. Einhver bendir á að með
þessu finni krakkarnir að for-
eldrunum sé ekki sama og
finnist ákveðið öryggi af að
hafa þá í nánd. Jafnvel séu
dæmi um það í öðrum hverf-
um að unglingar hafi sótt for-
eldra sem voru á rölti til
hjálpar þegar hlutir hafi farið
úr böndunum.
Fleira er nefnt til eins og að
drykkja eða önnur vímuefna-
neysla fari síður fram þar sem
fullorðnir eru nærstaddir. En
fara krakkarnir ekki bara
eitthvað annað þar sem for-
eldranna er síður að vænta?
„Það getur verið,“ segir Guð-
brandur, „en það er samt al-
veg óþarfi að gera þeim auð-
veldara fyrir með þetta. Það
þýðir heldur ekki að gefast
upp fyrir fram því þá næst
enginn árangur í baráttunni.“
Eftir kaffið og vöfflurnar er
haldið út í nóttina á ný og rölt
heim á leið. Á myndbandaleig-
unni eru nokkrir krakkar að
velja sér spólur en annars er
varla sála á ferli. Það er sem
sagt rólegt í Engjahverfi
þetta kvöld.
Vöfflur á vaktinni
Vígalegir foreldrar á ferli.
Morgunblaðið/Ásdís
Meðal þeirra sem röltu voru Sigþrúður Hilmarsdóttir, Þorkell Arnarson, Guðbrandur Guðmundsson, Margrét S. Grímsdóttir og Kristín Reynisdóttir.
Grafarvogur
TÓLF ára strákur úr Kópa-
vogi hefur farið fram á það
við stjórn bæjarins að settir
verði upp hjólabrettapallar í
bænum. Svo ákveðinn er
stráksi í að koma þessu í
gegn að hann er búinn að
setja sig í samband við bæj-
arstjórann í Immenstaad í
Þýskalandi og hefur beðið
um að fá teikningar af hjóla-
brettagarði sem þar er.
Daníel Bergmann Sig-
tryggsson, en svo heitir pilt-
urinn, segir aðstöðu fyrir
hjólabrettakappa í Kópa-
vogi vera enga eftir að pall-
ar, sem voru í Smárahverfi,
voru rifnir niður vegna sjáv-
arútvegssýningar sem þar
var fyrir tveimur árum.
„Þeir tóku þetta bara og
eyðilögðu pallana og nú eru
bara tveir pallar eftir og
það er bara af því að ein-
hverjir 18 ára gaurar sem
eru á hjólabrettum fengu
gröfu og sóparavél og tóku
burtu steina og svoleiðis.
Þetta er samt alveg ónýtt
miðað við hvernig þetta
var,“ segir Daníel. Hann er
greinilega orðinn ansi leiður
á framistöðu bæjaryfirvalda
því hann segir að jafnóðum
og brettastrákar setji upp
palla séu þeir rifnir niður.
„Það varð að
gera eitthvað“
En hvernig datt honum í
hug að leggja inn beiðni í
bæjarstjórn? „Það varð að
gera eitthvað. Ég og vinur
minn vorum oft búnir að
hringja og þeir sögðu alltaf
að þeir ætluðu að gera eitt-
hvað í málunum en það hef-
ur aldrei verið gert.“ Þann-
ig var það hálfgert ör-
þrifaráð að snúa sér beint til
bæjarstjórnarinnar en Dan-
íel er jafnvel búinn að sjá út
hvar best væri að koma pöll-
unum fyrir eða á sparkvell-
inum milli Hlíðarhjalla og
Dalvegar.
Síðasta sumar var hann á
ferð í Þýskalandi ásamt for-
eldrum sínum og kom við í
bænum Immenstaad en þar
er hjólabrettagarður sem
hann játar að hafa kolfallið
fyrir. „Við keyrðum þarna
fram hjá í rigningu og
stoppuðum og ég prófaði
garðinn sem er svona 200
fermetrar. Það var fullt af
skemmtilegum pöllum sem
eru allir steyptir. Svo er
mikið af pípum og hólum og
einhverskonar kössum,“
segir hann og bætir því við
að til sé fullt af slíkum görð-
um í útlöndum.
Þetta varð til þess að
Daníel setti sig í samband
við bæjarstjórann í Immen-
staad, með hjálp góðra vina.
„Ég ætlaði bara að fá teikn-
ingarnar af pöllunum svo
það væri hægt að gera
svona hérna. Sérstaklega af
því að þeir eru úr sementi
og það er ekki hægt að
brjóta það og skemma fyrir
manni,“ segir hann með
þunga.
Hann er meira að segja
búinn að fá stutt bréf til
baka. „Bæjarstjórinn ætlaði
að tala við arkitektinn svo
að við gætum fengið teikn-
ingarnar en hann er ekki
búinn að svara og við viljum
eiginlega fá þetta fyrir sum-
arið. En bæjarstjórnin gæti
líka bara keypt teikningar á
netinu,“ segir Daníel og er
greinilega búinn að kynna
sér málið til hlítar. Hann
hefur meira að segja fundið
heimasíðu þar sem hægt er
að gera slík viðskipti og í
bréfi sínu til bæjarstjórnar
mælir hann sérstaklega með
ákveðnum tegundum af pöll-
um sem þar er að finna.
Daníel segir hjólabretta-
fólkið vera mikið útundan
þegar kemur að því að setja
upp aðstöðu fyrir íþróttir og
bendir á að fótboltavellir
séu út um allan bæ en engin
aðstaða fyrir hjólabretti.
Í lok bréfsins sem hann
sendi Kópavogsbæ segir
hann: „Ég tek það fram að
þið verðið að gera þetta
FYRIR SUMARIÐ þannig að
þið verðið að fara að drífa
ykkur. Stórt og mikið takk
fyrir hönd brettamanna í
Kópavogi. P.s. Ég vona að
þið séuð á sama máli og ég.“
Hjólabrettastrákur fer fram
á aðstöðu fyrir íþrótt sína
Búinn að biðja
um teikningar
frá Þýskalandi
Morgunblaðið/Jim Smart
Daníel Bergmann Sigtryggsson er langþreyttur á aðstöðuleysi fyrir hjólabretti í Kópavogi.
Kópavogur
BÆJARRÁÐ Mosfellsbæjar
samþykkti með þremur at-
kvæðum á fundi sínum í
fyrrakvöld drög að bréfi til
umsækjenda vegna stjórn-
sýslukæra varðandi lóðaút-
hlutanir við Svöluhöfða og
Súluhöfða.
Eins og greint var frá í
Morgunblaðinu í liðinni viku
úrskurðaði félagsmálaráðu-
neytið í tveimur stjórnsýslu-
kærum vegna málsins og
komst að þeirri niðurstöðu
að setning nýrra viðmiðun-
arreglna stríddi verulega
gegn ákvæðum stjórnsýslu-
laga og að ákvörðunin væri
ekki í samræmi við góða
stjórnsýsluhætti. Ráðuneyt-
ið beindi þeim tilmælum til
kærða að hafnar yrðu við-
ræður við kærendur og aðra
umsækjendur sem uppfylltu
skilyrði um lóðaúthlutun
samkvæmt eldri reglum en
var meinað að taka þátt í út-
hlutun umræddra lóða.
Með fyrrnefndri sam-
þykkt hefur bæjarráð Mos-
fellsbæjar brugðist við til-
mælum ráðuneytisins en að
öðru leyti var samþykkt að
vísa málinu til meðferðar
bæjarstjórnar.
Viðræður
við um-
sækjendur
Mosfellsbær
UMFERÐARNEFND Sel-
tjarnarness ætlar í samstarfi
við Mýrarhúsaskóla, for-
eldrafélag skólans, íþrótta-
og æskulýðsráð og slysa-
varnadeild kvenna að sjá um
umferðarviku meðal skóla-
barna 30. apríl–5. maí.
Vikunni er ætlað að hvetja
foreldra til að láta börnin
ganga í skólann á morgnana
við sem öruggastar aðstæður
og vekja fólk til umhugsunar
um öruggustu gönguleiðirn-
ar.
Fólk vakið
til um-
hugsunar
Seltjarnarnes
♦ ♦ ♦