Morgunblaðið - 08.05.2001, Side 8
FRÉTTIR
8 ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Ég er afturgenginn, hr. greifi. Ég er frá eftirlitsdeild „Sameign þjóðarinnar“.
Kynningarátak í gangi
Veldu kennslu –
veldu Reykjavík
Kynningarátak fernú fram hjáFræðslumiðstöð
Reykjavíkur sem ætlað er
að laða að kennara í
Reykjavík, vekja athygli á
stærsta og fjölbreyttasta
vinnustað landsins. Óðinn
Pétur Vigfússon hefur
ásamt fjögra manna nefnd
annast þetta verkefni.
Hann var spurður hvers
vegna þyrfti að vekja sér-
staka athygli á Reykjavík í
þessum efnum.
„Það er vegna þess að
kennaraskortur hefur ver-
ið á landinu undanfarið og
núna fyrst er þessi skortur
að verða í Reykjavík. Það
er ljóst að Reykjavík þarf
núna að keppa við önnur
sveitarfélög um kennara,
þeir eru ekki aðeins eftirsóttir til
kennslu heldur í önnur störf einn-
ig. Það má því búast við að sveit-
arfélög þurfi að keppa um kennara
næstu árin. Eðlileg endurnýjun á
svona stórum vinnustað eins og
skólar Reykjavíkur eru gefur til
kynna að þörf sé á 40 til 50 nýjum
kennurum árlega á næstunni.“
– Hver er endurnýjunin um
þessar mundir?
„Við fengum síðasta haust þá
kennara sem þurfti en það lítur dá-
lítið ögrandi út hvað næsta
kennsluár snertir. Hins vegar seg-
ir þetta ekki alla söguna því nú
starfa um 100 leiðbeinendur við
grunnskóla Reykjavíkur og mark-
miðið er að sem flestir þessir leið-
beiðendur verði sér úti um
kennsluréttindi og kennaramennt-
að fólk fylli allar kennarastöður
borgarinnar.“
– Hvernig ætlið þið að haga bar-
áttunni við að ná þessu markmiði?
„Við höfum haft kynningarfundi
með nemendum í Kennaraháskóla
Íslands og Háskóla Íslands til þess
að kynna okkar starfsemi. Þá höf-
um við gefið út bækling sem heitir
Veldu kennslu – veldu Reykjavík.
Það hafa um 350 kennarar útskrif-
ast úr Kennaraháskóla Íslands á
síðustu þremur árum og um það
bil 90 þeirra hafa ekki farið að
kenna.“
– Í hvers konar störf önnur en
kennslu eru kennarar eftirsóttir?
„Það eru störf eins og fræðslu-
fulltrúar hjá fyrirtækjum, í starfs-
mannastjórnun, hjá tölvufyrir-
tækjum og fleira. Kennarar eru
yfirleitt skipulagðir í hugsun og
vinnu.“
– Hvað segja önnur sveitarfélög
um þetta átak í Reykjavík?
„Málið er það að önnur sveitar-
félög hafa gegnum árin yfirboðið
kennara til að fá þá til starfa hjá
sér. Þeim hefur boðist ódýrt og
jafnvel ókeypis húsnæði, hærra
kaup og ýmisleg önnur hlunnindi.
Þetta er freistandi fyrir fólk sem
er að koma úr námi og
þarf að ná sér upp fjár-
hagslega.“
– Hvaða sveitarfélög
eru það helst?
„Segja má að flest
sveitarfélög úti á landi
hafi boðið hlunnindi en
önnur sveitarfélög á
höfuðborgarsvæðinu
hafa reynt að koma til móts við
þessar nýju aðstæður. Það eðlilegt
í vaxandi samkeppni að Reykjavík
með sinn metnað reyni að fá góða
kennara til starfa hjá sér.“
– Virðist ykkur að það sé mikill
áhugi hjá ungu fólk að fara í kenn-
aranám?
„Það virðist vera töluverður
áhugi hjá konum en minni hjá
körlum. Það er vandamál sem þarf
að taka á.“
– Hefur ímynd kennara skaðast
vegna áralangrar baráttu til betri
kjara?
„Já, það er hugsanlegt að það sé
hluti af dæminu en það er von
manna að nýgerðir kjarasamning-
ar gefi ímyndinni ferskari blæ.
Átaki okkar núna er ekki síst beint
að karlmönnum í kennarastétt og
reynt að fá þá aftur inn í kennslu.
Það eru margir karlmenn mennt-
aðir kennarar en starfa við annað.“
– Hvað stendur til á næstunni í
málefnum kynningarátaks ykkar?
„Það er áhersla á auglýsingar í
sjónvarpi, útvarpi og blöðum. Þeg-
ar lengra dregur eru áætlaðir
fleiri fundir með kennaranemum.“
– Er ætlunin að hringja í kenn-
ara til þess að fá þá til starfa í
Reykjavík?
„Mér fyndist það eðlilegur hlut-
ur að Reykjavík, sem leiðandi afl í
menntamálum þjóðarinnar, geri
allt sem hægt er til að fá sem hæf-
ast fólk til kennslustarfa. Skóla-
stjórar hafa verið og eru mjög
virkir í að reyna að ná í góða kenn-
ara.“
– Væri hugsanlegt að útbúa
nám fyrir kennara sem væri
styttra en sérhæfðara?
„Alls ekki styttra
kennaranám, miklu
frekar þarf að lengja
það. Það eru mjög
skiptar skoðanir á
þessu efni. Borgar-
holtsskóli hefur mennt-
að skólaliða sem eiga
að vera kennurum til
aðstoðar en það leysir
ekki kennaravandann enda eru
skólaliðar ekki kennarar. Í sam-
bandi við kennaranám má koma
fram að mjög fáir karlar eru nú í
því námi, það virðist svo sem
kennsla sé að verða algjört
kvennastarf. Þetta er vandamál og
það er spurning hvort Kennarahá-
skólinn ætti gera átak í því að laða
að fleiri karlmenn í kennaranám.
Heyrst hefur að fleiri karlmönnum
sé hafnað en konum við inntöku í
Kennaraháskóla Íslands.“
Óðinn Pétur Vigfússon
Óðinn Pétur Vigfússon fædd-
ist á Ólafsvík 1953. Hann lauk
stúdentsprófi frá Danmörku og
BA-prófi í sögu, kristnifræði og
uppeldisfræði frá Massachusetts
í Bandaríkjunum og framhalds-
námi í skólastjórnun frá sama
stað. Hann hefur starfað sem
kennari við grunnskóla í
Ólafsvík, var gestakennari í
Massachusetts og kennari og
deildarstjóri við Vejlfjordskolen
í Danmörku frá 1984 til 1994 og
síðan kennari, árganga- og fag-
stjóri við Réttarholtsskóla. Hann
á sæti í stjórn Kennarafélags
Reykjavíkur. Óðinn er kvæntur
Sonju Riedmann sjúkraþjálfara
og eiga þau fjóra syni.
Átaki okkar er
ekki síst
beint að kenn-
aramennt-
uðum karl-
mönnum
HÁMARKSREFSING vegna
nauðgana þar sem fórnarlambið get-
ur ekki varist sökum áfengisdauða
eða svefndrunga af völdum áfengis
er sex ár. Beiti gerandi ofbeldi eða
byrlar fórnarlambinu svefnlyf er há-
marksrefsingin hins vegar 16 ár.
Á síðustu tveimur árum komu 60
mál þar sem fórnarlambið svaf
áfengissvefni til kasta Neyðarmót-
töku vegna nauðgana á slysa- og
bráðadeild Landspítalans-háskóla-
sjúkrahúss. Að auki komu upp um 15
mál þar sem fórnarlambið vaknaði
eftir að verknaðurinn var hafinn að
sögn Eyrúnar B. Jónsdóttur, um-
sjónarhjúkrunarfræðings.
Hún segir að fórnarlömb veigri
sér við að kæra í slíkum málum enda
sönnunarbyrðin erfið. Líði langur
tími frá verknaði til læknisskoðunar
er einnig erfitt að finna líkamleg
sönnunargögn. Það sama eigi við
þegar grunur leikur á að konum hafi
verið byrluð ólyfjan. Eyrún segir að
á síðustu árum hafi komið upp nokk-
ur tilfelli þar sem grunur leikur á að
konum hafi verið gefið lyfi Rohypnol
en það dregur úr meðvitund og veld-
ur tímabundnu minnisleysi. Efnið
skilst afar hratt úr líkamanum og
finnst ekki nema skammt sé liðið frá
atburðinum.
Sif Konráðsdóttir hrl. telur fulla
þörf á því að hækka refsirammann
vegna nauðgana þar sem fórnar-
lambið sefur áfengissvefni eða getur
ekki varist sökum ölvunar til sam-
ræmis við refisrammann í nauðgun-
armálum enda séu afleiðingar brot-
anna sambærilegar. Hún minnir á að
þar sem refsingarnar við nauðgun-
um þar sem fórnarlambið sefur
áfengissvefni sé sex ár fyrnist brotið
á 10 árum. Refsingar við nauðgunum
fyrnast hins vegar á 15 árum.
Þá segir Sif að hækka þurfi refs-
irammann í kynferðisbrotum gegn
börnum. Yfirleitt líði langur tími þar
til slík mál séu kærð og því mikil-
vægt að fyrningafrestur sé rúmur.
Vægari refsingar voru við
broti gegn karlmanni
Nýlega var karlmaður sem játaði
á sig margvísleg kynferðisbrot gegn
ungum dreng sýknaður af Héraðs-
dómi Vestfjarða þar sem brotin voru
fyrnd. Þau áttu sér stað á árunum
1980 til 1986, þegar drengurinn var 5
til 11 ára gamall en þau voru kærð 13
árum eftir að síðasta brotið átti sér
stað. Brotin voru fjölmörg og gróf en
í dómnum kemur fram að gegn neit-
un ákærða sé ekki sannað að hann
hafi gert drengnum til að hafa við sig
samræði.
Dæmt er eftir þeim lögum sem
voru í gildi á þeim tíma sem brotin
voru framin. Samkvæmt lagabók-
stafnum átti hver sá sem átti sam-
ræði við barn yngra en 14 ára að
sæta fangelsi allt að 12 árum. Þó
skyldi beita vægari refsingu fyrir
önnur kynferðismök en samræði og
skyldu refsingarnar vera í samræmi
við brotið.
Hins vegar er annað ákvæði þar
sem segir að það varði fangelsi allt
að sex árum að hafa kynferðismök
við persónu af sama kyni. Því var
harðasta refsing sem hægt var að
dæma manninn í sex ár. Þar sem
refsing var vægari en 10 ár fyrntist
það á 10 árum en hefði að öðrum
kosti fyrnst á 15 árum. Hefði mað-
urinn brotið gegn stúlku hefðu brot-
in ekki verið fyrnd.
Karlmenn gerendur
en konur þolendur
Til ársins 1992 gerðu almenn
hegningarlög ráð fyrir því að karl-
menn væru gerendur kynferðisof-
beldis en konur þolendur. Hámarks-
refsing fyrir að nauðga kvenmanni
var þá 16 ár. Væri gerandi og fórn-
arlamb karlmaður var harðasta refs-
ing sex ár.
Þessu var breytt árið 1992 um leið
og heiti kaflans í hegningarlögum
um „skírlífisbrot“ var breytt í kyn-
ferðisbrot. Í greinargerð með frum-
varpinu kemur fram að slíkar breyt-
ingar hafi verið gerðar á dönsku
hegningarlögunum árið 1981 og í
Svíþjóð árið 1984.
Kolbrún Linda Ísleifsdóttir, lög-
fræðingur og kennslustjóri við laga-
deild Háskóla Íslands, segir að svo
virðist sem hugarflug þeirra sem
settu lögin hafi ekki náð lengra en
svo að telja aðeins mögulegt að karl-
menn brytu kynferðislega gegn kon-
um. Það hafi vart vakað fyrir mönn-
um að mismuna kynjunum. Þá hafi
kynferðisbrot gegn börnum verið
hálfgert bannyrði og lítið sem ekkert
rædd. Alþingismenn hafi því seint
gert sér grein fyrir því að það þyrfti
að breyta lögunum.
Kolbrún segir að í kjölfar þess að
nágrannalönd okkar settu ákvæði í
hegningarlög sem gerðu ekki grein-
armun á kynjunum hafi slíkt komist
til umræðu hér á landi fyrir alvöru.
Árið 1984 var sett á laggirnar nauðg-
unarmálanefnd sem var falið að gera
tillögur um úrbætur. Nefndin skilaði
niðurstöðum árið 1988 en það var
ekki fyrr en fjórum árum síðar sem
breytingar voru gerðar á hegning-
arlögum.
Konur veigra sér við að kæra svokallaðar „svefnnauðganir“
Vægari refsing sofi
þolandi ölvunarsvefni
Í KÖNNUNARFLUGI Land-
helgisgæslunnar á föstudag
voru talin 35 skip sem voru að
úthafskarfaveiðum á Reykja-
neshrygg við 200 sjómílna
mörkin.
Um helmingur skipanna var
frá Rússlandi og Eystrasalts-
löndunum en þar eru einnig
norsk, færeysk, þýsk, pólsk,
spænsk og portúgölsk skip að
veiðum. Haft var samband við
eitt skip og sagði skipstjóri
þess að veiði væri afar dræm.
35 skip á
karfaveiðum
á Reykjanes-
hrygg