Morgunblaðið - 08.05.2001, Side 14
FRÉTTIR
14 ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Í FRÉTTATILKYNNINGU sem
Baugur sendi frá sér í lok mars í fyrra
segir að fyrirtækið hafi ekki hækkað
álagningu sína milli áranna 1998 og
1999. Í yfirlýsingu sem Baugur sendi
frá sér um helgina í kjölfar skýrslu
Samkeppnisstofnunar, þar sem full-
yrt er að smásöluverslunin hafi aukið
álagningu sína, segir hins vegar að
„álagning í smásölu kunni að hafa
hækkað milli áranna 1996-2000“.
Í byrjun síðasta árs var Baugur
talsvert gagnrýndur í fjölmiðlum fyr-
ir að hafa hækkað verð á matvöru. Til
að mæta þessari gagnrýni efndu for-
ráðamenn Baugs til blaðamannafund-
ar í mars þar sem tilkynnt var að fyr-
irtækið myndi efna til sérstaks
átaksverkefnis undir kjörorðinu „Við-
nám gegn verðbólgu“. Markmið verk-
efnisins var að lækka verð á matvöru
og m.a. lýstu stjórnendur fyrirtækis-
ins því yfir að vöruverð myndi ekki
hækka vegna aukinnar álagningar
næstu tvö árin.
„Verslanir Baugs hafa lagt sitt af
mörkum í baráttunni gegn verð-
bólgu,“ sagði í fréttatilkynningu sem
dreift var á blaðamannafundinum.
„Álagning þeirra hefur ekki hækkað
milli áranna 1998-99, en verðhækkan-
ir hafa þó orðið í haust og í vetur, sem
einkum verða raktar til hækkana frá
innlendum framleiðendum og stórum
innflytjendum, en Baugur hefur að-
eins flutt inn um 7% af þeirri matvöru
sem seld er í verslunum fyrirtækis-
ins.“
Fullyrtu að stærstu birgjar
hefðu hækkað verð um 5–10%
Á blaðamannafundinum sögðu
bæði Jón Ásgeir Jóhannesson for-
stjóri Baugs og Hreinn Loftsson
stjórnarformaður að matvöruverð
hefði verið að hækka vegna verð-
hækkana frá birgjum.
„Hins vegar hafa verðhækkanir frá
birgjum skollið á fyrirtækinu,“ sagði
Jón Ásgeir. „Þess er getið í árs-
skýrslu félagsins að tíu stærstu birgj-
arnir hafa hækkað vöruverð til félags-
ins um fimm til tíu prósent síðustu 14
mánuði og nemur sú hækkun á inn-
kaupsverði Baugs 200 milljónum.
Þessu ætlum við að berjast gegn og
leita leiða til að halda verðlagi í skefj-
um,“ sagði Jón Ásgeir.
Hreinn sagði á fundinum að rétt
væri að verð á matvælum hefði hækk-
að: „Þá hefur fréttaflutningurinn oft
og tíðum verið þannig að verð hafi
hækkað í skjóli fákeppni og svo fram-
vegis. Við erum að segja að verð hafi
ekki hækkað vegna þess að við höfum
verið að hækka álagningu eins og
fréttir hafa verið, heldur vegna þess
að verð hefur hækkað til okkar. Það
er að segja að það erum ekki við, sem
erum að maka krókinn, eins og sumir
vilja halda fram, heldur erum við ein-
göngu að taka á móti þeim verðhækk-
unum sem við höfum fengið. Það er
það sem við viljum stoppa, þessa sjálf-
virkni sem hefur verið og að þeir, sem
eru orsakavaldarnir, taki nú þátt í
þessu með okkur.“
Jón Ásgeir og Hreinn hvöttu til
þess að álagning heildsala yrði skoðuð
og bentu sérstaklega á landbúnaðar-
vörur og grænmeti í því sambandi.
Í síðustu viku sendi Samkeppnis-
stofnun frá sér skýrslu um matvöru-
markaðinn og er þar haldið fram að
álagning smásala hafi aukist. Vörur
sem voru með 20% álagningu árið
1996 hafi verið með 25-26% árið 2000.
Niðurstaða stofnunarinnar er að
heildsalan hafi ekki verið að auka
álagningu sína í stórum stíl þótt vissu-
lega séu til dæmi um það.
Um helgina sendi Baugur frá sér
yfirlýsingu vegna skýrslu Samkeppn-
isstofnunar. Í upphafi hennar segir:
„Þótt álagning í smásölu kunni að
hafa hækkað milli áranna 1996–2000,
eins og haldið er fram í skýrslunni, er
þess ekki getið að á sama tíma hefur
kostnaður hækkað til mikilla muna.“
Vísað til hærra
verðs frá heildsölum
Baugur fullyrti fyrir ári að fyrirtækið hefði
ekki aukið smásöluálagningu
SAMTÖK verslunarinnar hvetja
eindregið til þess að settar verði
siðareglur um samskipti smásala
og birgja í ljósi könnunar Sam-
keppnisstofnunar um verðþróun á
dagvörumarkaði sem birt var á
föstudag.
Í tilkynningu frá Samtökum
verslunnarinnar segir að íslenskir
heildsalar séu hlynntir frjálsri
samkeppni sem leiði til lægra
vöruverðs fyrir neytendur. Þeir
telja að innan íslenskrar heild-
verslunar sé slík samkeppni virk.
„Könnun Samkeppnisstofnunar
sýnir hins vegar að fákeppni ríkir
á smásölumarkaði. Um tveir þriðju
hlutar smásölumarkaðarins eru nú
á hendi tveggja fyrirtækja. Sú
hætta er því fyrir hendi að þau
misnoti sér markaðsráðandi stöðu
sína.
Könnun Samkeppnisstofnunar
staðfestir það sem Samtök versl-
unarinnar hafa margoft bent á að
hækkanir á dagvörumarkaði um-
fram verðlags- og gengisþróun
stafar af hækkun á smásöluálagn-
ingu. Á þeim tíma sem könnunin
nær til hefur heildsöluverð ekki
hækkað umfram gengisþróun og
erlendar verðbreytingar.
Þess eru jafnvel dæmi að verð á
vörum frá heildsölum hafi verið
svipað í ársbyrjun 1996 og undir
lok ársins 2000 en hækkað í
verslunum. Á sama tíma hefur
kostnaður heildsala vegna þjón-
ustu við smásala sífellt aukist með-
al annars meiri þátttöku í auglýs-
ingakostnaði smásölunnar og
uppstilla í búðum svo nokkuð sé
nefnt.
Nú liggur fyrir að smásalar hafa
hækkað álagningu umfram verð-
lagsþróun. Samkeppnisstofnun
boðar rannsókn á því hvort samn-
ingar og samningsskilmálar á milli
einstakra verslunarkeðja, birgða-
húsa eða matvöruverslana annars
vegar og birgja hins vegar feli í
sér ákvæði sem eru skaðleg sam-
keppni og fari gegn samkeppn-
islögum, þar með talið vegna mis-
notkunar á markaðsráðandi
stöðu,“ segir ennfremur í tilkynn-
ingunni.
Í ljósi þessa beina Samtök versl-
unarinnar því til samkeppnisyfir-
valda að þau beiti sér fyrir því að
koma á siðareglum um samskipti
smásala og birgja til að tryggja
eðlilega viðskiptahætti. Slíkar
siðareglur yrðu öllum til hagsbóta,
birgjum og smásölum sem og ís-
lenskum neytendum.
Hvetja til siðareglna
um samskipti
Samtök verslunarinnar um skýrslu Samkeppnisstofnunar
ÞÓRARINN Kristinsson, einn eig-
enda Tungulækjar í Landbroti, hélt
sig hafa veitt fyrstu laxa þessarar
vertíðar 27. apríl síðastliðinn. Hann
veiddi fjóra fiska, þrjá um það bil 4
punda og einn 5 punda á spón í
veiðistaðnum Faxa í Tungulæk.
Þórarinn hirti þann fimm punda og
fékk það staðfest hjá Veiðimála-
stofnun að um var að ræða full-
þroskaða hrygnu, bjarta og fallega.
Þórarinn sleppti hinum fiskunum
þremur.
Guðni Guðbergsson hjá Veiði-
málastofnun sagði í samtali við
Morgunblaðið að þetta hefði komið
sér á óvart. Þórarinn hafi í fyrstu
haldið að um laxbirting, þ.e.a.s.
blending á laxi og birtingi, væri að
ræða, en slíkir fiskar veiðast tíðum í
Tungulæk. „Þegar ég las af hreist-
ursýni kom hins vegar í ljós, að
þrátt fyrir laxalegt útlit fisksins þá
var þetta sjóbirtingur. Ég get engu
svarað um hvort þetta var einhvers
konar blendingur, til þess þyrfti að
gera erfðarannsóknir á fiskinum,“
sagði Guðni. Það var sum sé ekki lax
og því er líklegt að hinir fiskarnir
þrír sem Þórarinn veiddi á sama
stað, litu allir út eins og laxar, og var
sleppt, hafi einnig verið birtingar.
Það er hins vegar ekki síður athygl-
isvert að akfeitur og bjartur birt-
ingur með þroskuð hrogn veiðist á
þessum árstíma, því almennt hefur
verið talið að í vorveiðinni veiði
menn annað hvort geldfiska eða
slápa sem hrygndu haustið áður.
Mokveiði í Litluá
og Minnivallalæk
Minnivallalækur og Litlaá voru
báðar opnaðar 1. maí og var mok í
báðum. Í báðum er aðeins veitt á
flugu og öllum fiski sleppt. Í Minni-
vallalæk veiddust að sögn Þrastar
Elliðasonar 18 urriðar fyrsta dag-
inn þrátt fyrir kalsveður og voru
það fiskar á bilinu 3 til 8 pund. Síðan
hefur veiði verið góð flesta daga og
segir Þröstur það mál kunnugra að
enn meira sé af fiski í læknum en áð-
ur. Nobblerar í ýmsum útgáfum
ásamt Montana púpu hafa verið
drýgstu flugurnar til þessa
Litlaá í Kelduhverfi var einnig
opnuð með pompi og pragt og þar
voru leigutakarnir, Pálmi Gunnars-
son og Erling Ingvason að veiðum
ásamt gestum sínum. „Við vorum að
veiða og merkja og þetta var mikið
ævintýri. Áin ótrúlega skemmtileg
fluguveiðiá,“ sagði Pálmi. Dæmi
voru um að menn væru að draga
sömu fiskana oftar en einu sinni, til
marks um það voru merkin á bökum
fiskana.
ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN?
„Laxinn“ var sjóbirtingur
Morgunblaðið/Einar Falur
Veiðimenn kasta flugum út af Lambhaga í landi þjóðgarðsins.
DR. PÁLL Skúlason, rektor Há-
skóla Íslands, og dr. Sigmar Witt-
ig, rektor Universität Karlsruhe,
Þýskalandi, undirrituðu í gær
samning um framhaldsnám
kandídata með BS-gráðu í verk-
fræði frá Háskóla Íslands við
Universität Karlsruhe.
Samningurinn við Universität
Karlsruhe felur í sér að stúd-
entar frá Háskóla Íslands sem
lokið hafa þriggja ára BS-námi
geta gengið beint inn í þýska
verkfræðinámið, og lokið prófi
hliðstæðu meistaragráðu á tveim
árum.
Verkfræðingar með próf frá
Háskóla Íslands hafa undanfarna
áratugi sótt sér framhalds-
menntun til útlanda. Námið við
H.Í. hefur verið vel sniðið að
framhaldsnámi í skólum í Banda-
ríkjunum og á Bretlandi, og einn-
ig hefur verið auðvelt að stunda
framhaldsnám á Norðurlönd-
unum. Erfiðara hefur verið að
stunda framhaldsnám í Þýska-
landi, þar sem nám þar er að
sumu leyti frábrugðið námi við
Háskóla Íslands.
Framangreindur samningur er
endurnýjun á hliðstæðu sam-
komulagi frá 1980.
Eftir að meistaranám í verk-
fræði var tekið upp við Háskóla
Íslands hefur grunnám í verk-
fræði verið stytt, og því var
nauðsynlegt að endurskoða
gamla samkomulagið og gera
formlegri samning. Yfir 100 ís-
lenskir verkfræðingar hafa
stundað framhaldsnám í Karls-
ruhe samkvæmt samkomulaginu
frá 1980, og gerir það skólann í
Karlsruhe að næst stærsta fram-
haldsnámsskóla erlendis fyrir ís-
lenska verkfræðinga, næst á eftir
Tækniháskólanum í Kaupmanna-
höfn.
Morgunblaðið/Kristinn
Dr. Páll Skúlason, rektor Háskóla Íslands, og dr. Sigmar Wittig, rektor
Universität Karlsruhe í Þýskalandi, undirrituðu í gær samning um
framhaldsnám kandídata með BS-gráðu í verkfræði frá Háskóla Íslands
við Universität Karlsruhe.
Samningur
HÍ um
framhalds-
nám í
Karlsruhe
ÞRÍR ölvaðir piltar á aldrinum 16-20
ára eru grunaðir um að hafa spraut-
að úr slökkvitæki í Vestfjarðagöng-
um á sunnudagsmorgun.
Lögreglumaður sem var á heim-
leið eftir vaktina á sunnudagsmorg-
un ók fram á piltana í göngunum, en
á fatnaði þeirra voru hvítar skellur
sem taldar eru af völdum slökkvi-
duftsins. Piltunum var ekið á lög-
reglustöð þar sem þeir gistu fanga-
klefa fram eftir degi. Þeir hafa ekki
játað á sig verknaðinn samkvæmt
upplýsingum frá lögreglunni á Ísa-
firði.
Piltarnir
þaktir hvít-
um skellum
♦ ♦ ♦
FÓLKSBIFREIÐ valt út af Djúp-
veginum í Mjóafirði skömmu eftir
hádegi í gær. Lögreglan á Ísafirði
telur að bíllinn hafi oltið tvær veltur.
Ökumaður og tveir farþegar skrám-
uðust og einn þeirra kvartaði undan
bakmeiðslum.
Bílvelta
í Djúpinu
BROTIST var inn í skip í Reykjavík-
urhöfn í gær, samkvæmt upplýsing-
um frá lögreglunni í Reykjavík. Þar
var farið inn í káetur auk þess sem
rótað var í lyfjakistu skipsins. Úr
setustofu var stolið geislaspilara og
magnara.
Talsverður erill var hjá lögreglu í
gær. Tilkynnt var um eignaspjöll á
Malarhöfða í gærmorgun en þar
höfðu rúður verið brotnar í vinnu-
vélum og bifreiðum. Laust eftir
klukkan átta í gærmorgun voru unn-
in eignaspjöll á bensínstöð við Stóra-
gerði. Þar var skorið á dæluslöngu
og dælubyssu stolið.
Lögregla segir að falsaðir pen-
ingaseðlar komi af og til í umferð og
biður fólk um að hafa vara á sér.
Brotist inn
í skip
♦ ♦ ♦