Morgunblaðið - 08.05.2001, Blaðsíða 21
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2001 21
LEIKSKÓLAR á höfuðborgarsvæð-
inu voru með opið hús laugardaginn
5. maí síðastliðinn og var tilgangur-
inn sá að kynna það starf sem leik-
skólarnir hafa upp á að bjóða. Allir
leikskólarnir vinna samkvæmt aðal-
námskrá leikskóla en fara mismun-
andi leiðir í skólastarfinu.
Einn þessara leikskóla er Álfta-
borg í Safamýri. Morgunblaðið leit
þar inn og fékk leiðsögn um vistar-
verur hússins. Það var Helga Guð-
rún, 5 ára gömul, sem tók það hlut-
verk að sér. Hún sagðist eiga einn
bróður sem heitir Björn Áki og eina
systur sem heitir Magnea. „Hann er
12 ára og hún er að verða 17 ára göm-
ul,“ sagði hún, til þess að hafa allt
sem nákvæmast og réttast. Sjálf
kvaðst hún eiga afmæli 7. desember.
Og eftir þennan inngang sýndi hún
blaðamanni húsakynnin og það sem
hún og félagar hennar hafa verið að
gera í vetur.
„Þetta er hönd og byrjar á H,“
sagði hún og benti á teikningu á
veggnum. „Við erum nefnilega að
læra stafina.“
Kanntu þá alla?
„Næstum því.“
Svo gekk hún að möppunni sinni
sem lá hjá öðrum möppum og var til
sýnis eins og þær.
„Ég teiknaði þetta,“ sagði Helga
og brá upp mynd af lítilli hnátu.
„Þetta er ég.“ Og áfram fletti hún.
„Hér er penni og hér eru stafirnir og
svo litirnir og tölurnar.“ Ekki vafðist
fyrir henni að telja fyrir blaðamann;
allt á hreinu þar. Og svo þekkti hún
líka fugla og dýr, s.s. frosk og gæs og
mús. Og þarna var meira að segja
mynd af trölli.
„Þetta er nú dálítið erfitt,“ sagði
hún og benti á eina örkina, þar sem
var reikningsdæmi með hringjum,
þríhyrningum og ferningum og öðru
slíku.
Ætlar að verða
dýralæknir í Afríku
En nú lék blaðamanni forvitni á að
vita hvers vegna börn væru yfir höf-
uð í leikskóla.
„Nú, til þess að læra kurteisi,“
sagði Helga Guðrún, hissa yfir þess-
ari fáfræði. „Og borða fallega,“ bætti
hún við, eftir smá umhugsun.
Ertu búin að læra mikla kurteisi?
„Já, svolítið.“
En hvað gera börnin nú annað í
leikskóla?
„Teikna, púsla, kubba, spila á alls-
konar spil, eru í dúkkuleik...“
Ekki þó strákarnir?
„Neeeiii, þeir eru að gera allt
mögulegt annað sem þá langar til að
gera.“
En þeir mega ekki vera í byssu-
leik, er það nokkuð?
„Nei, af því að það er ljótt og
krakkarnir geta meitt sig ef eitthvað
spýtist úr byssunum.“
En hvað skyldi henni finnast
skemmtilegast að gera í leikskólan-
um? „Að vera í dúkkuleik og lita og
spila „Áfram fyrsti bekkur“,“ svaraði
hún að bragði og var heldur ekki í
vandræðum að svara því hvers vegna
leikskólar borgarinnar væru opnir
almenningi einu sinni á ári.
„Það er til að sýna hvað við erum
flink að teikna og gera allt mögu-
legt,“ sagði Helga Guðrún sem ætlar
að gerast dýralæknir og vinna í dýra-
garði í Afríku þegar hún verður stór.
Opið hús var hjá fjölda leikskóla síðastliðinn laugardag
„Læra
kurteisi í
leikskól-
anum“
Safamýri
Morgunblaðið/Þorkell
Helga Guðrún sýnir hér stolt sjálfsmynd sem hún gerði í leikskólanum
Álftaborg. Á bak við stendur móðir hennar, Dagmar Gunnarsdóttir,
sem þótti gott að fá að staldra aðeins lengur við en hún gerir alla jafna
og kynnast því hvernig leikskólastarfið gangi fyrir sig dagsdaglega.