Morgunblaðið - 08.05.2001, Qupperneq 25
!""
KORNUPPSKERA hér á landi sex-
faldaðist á sex ára tímabili 1995–
2000, að báðum árum meðtöldum.
Árið 1995 var uppskeran 960 tonn
en er talin hafa verið um 6.300 tonn
á síðasta ári. Þetta kemur fram í
einum af fjölmörgum greinum sem
birtast í nýútkominni Handbók
bænda fyrir árið 2001, 51. árgangi.
Ritstjóri er Matthías Eggertsson en
Bændasamtökin gefa handbókina
út. Þar ritar Jónatan Hermannsson
hjá Rannsóknastofnun landbúnaðar-
ins, RALA, grein um kornræktina á
síðasta ári.
Jónatan birtir einnig töflu er sýn-
ir þróun kornuppskerunnar frá
árinu 1991. Frá 1991 til 1995 var
uppskeran sveiflukenndari og fór úr
240 tonnum árið 1992 upp í 1.700
tonn árið 1994. Árið 1995 snar-
minnkaði uppskeran síðan niður í
960 tonn. Í grein Jónatans kemur
fram að um áætlun sé að ræða þar
sem beinar upplýsingar um upp-
skeru á ökrum bænda liggja ekki
fyrir hjá RALA.
„Hefði þótt gott
suður á Skáni“
Uppskeran er metin eftir notkun
sáðkorns annars vegar og meðal-
uppskeru úr tilraunareitum hins
vegar. Jónatan telur líkur á að töl-
urnar í meðfylgjandi töflu séu held-
ur í hærra lagi. Bæði sé uppskera úr
tilraunum oft heldur meiri en úr
ökrum á sama stað og eins gæti sá
hlut akra, sem sleginn er sem græn-
fóður, verið vanáætlaður. Sam-
kvæmt þessum tölum mun korn-
rækt í landinu engu að síður nema
allt að 15% af kjarnfóðurnotkun í
landinu.
Jónatan segir í greininni um síð-
ustu uppskeru að sumarið hefði ver-
ið í meðallagi gott sunnanlands en
með því besta sem gerðist norðan-
lands, bæði hlýtt og sólríkt. Upp-
skeran hefði verið í samræmi við
þetta. „Sums staðar var hún svo
mikil að gott hefði þótt suður á
Skáni,“ segir Jónatan enn fremur.
Kornakrar skiptast eftir lands-
hlutum þannig, miðað við árin 1999–
2000, að helmingur þeirra er á Suð-
urlandi, um þriðjungur á Norður-
landi, 15% á Vesturlandi og 5% á
Austurlandi.
Í þessu sambandi má að lokum
geta þess að ráðstefna um íslenska
kornrækt fer fram á Sauðárkróki 8.
júní nk., sem Bændasamtökin og
fleiri aðilar standa að, og verður
Jónatan Hermannsson meðal fyrir-
lesara.
Kornuppskera sex-
faldaðist á sex árum
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2001 25
Apotheker
SCHELLER
N A T U R K O S M E T I K
Aðalfund-
ur Okkar
manna
AÐALFUNDUR Okkar
manna, félags fréttaritara
Morgunblaðsins á landsbyggð-
inni, verður haldinn í blaðhúsi
Morgunblaðsins næstkomandi
laugardag og hefst klukkan
13.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa verður á dagskrá fund-
arins sérstakur liður þar sem
fjallað er um breytingar á
skipulagi Morgunblaðsins og
samskipti fréttaritaranna við
blaðið. Björn Vignir Sigur-
pálsson fréttaritstjóri og
aðstoðarritstjórarnir Karl
Blöndal og Ólafur Þ. Steph-
ensen hafa framsögu og sitja
síðan fyrir svörum ásamt
Styrmi Gunnarssyni ritstjóra.
Ljósmyndasamkeppni
Þá verða kynnt úrslit í ljós-
myndasamkeppni fréttaritar-
anna og verðlaun afhent. Úr-
val ljósmynda úr samkeppn-
inni er nú til sýnis í Kringlunni
í tengslum við alþjóðlegu
fréttaljósmyndasýninguna
World Press Photo. Sýningin
stendur til 14. þessa mánaðar.
Egilsstöðum - Söngdagskrá með
lögum Vilhjálms Vilhjálmssonar
(1945–1978) var frumflutt í Foss-
hóteli Valaskjálf um síðustu helgi,
fyrir fullu húsi gesta. Flytjendur
dagskrárinnar eru frá Egilsstöðum,
Eskifirði, Fellabæ, Reyðarfirði og
Seyðisfirði og mynda þannig nokk-
urs konar „héraðsfirskan“ hóp
listamanna.
Fimm söngvarar fluttu rúmlega
tuttugu af þekktustu lögum Vil-
hjálms. Það voru þau Aldís Fjóla
Ásgeirsdóttir og Berglind Ósk Guð-
geirsdóttir, Bjarni Þór Sigurðsson,
Helgi Georgsson og Þorsteinn Helgi
Árbjörnsson. Hljómsveit kvöldsins
var skipuð gamalreyndum tónlist-
armönnum úr Austurlandsfjórð-
ungi, þeim Ármanni Einarssyni,
Einari Braga Bragasyni, Helga Ge-
orgssyni áðurnefndum, Jóni Arn-
grímssyni og Valgeiri Skúlasyni.
Þeir, ásamt söngvurum, sýndu slíka
takta að salurinn var nánast á hvolfi
af fögnuði.
Dagskránni var skipt í fernt; í
tregakafla, gamanlög, skrítin lög
og ástarsöngva. Voru kaflarnir
fléttaðir saman á kátlegan hátt með
ýmsum vangaveltum um lífið og
ástina, og þá ekki síst um vand-
ræðagang vangarjóðra unglinga í
Vaglaskógi.
Hljómsveitin Nefndin lék fyrir
dansi eftir að Vilhjálmsdagskránni
lauk, sem til stendur að flytja í það
minnsta þrisvar til viðbótar.
Berglind Ósk Guðgeirsdóttir
flutti lagið Lítill drengur sem Vil-
hjálmur Vilhjálmsson gerði svo eft-
irminnilegt. Einar Bragi Bragason
spilaði með á saxófón og Ármann
Einarsson á gítar.
Söngdagskrá með
lögum Vilhjálms
Vilhjálmssonar
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Flateyri - Nýlega var haldinn stofn-
fundur Sparisjóðs Vestfirðinga á
Núpi í Dýrafirði. Er hinn nýi spari-
sjóður stofnaður upp úr samruna
Sparisjóðanna í Súðavík, Önundar-
firði, Þingeyri og Eyrasparisjóðs.
Samanlagt hafa sparisjóðirnir starf-
rækt 8 afgreiðslustaði frá Króks-
fjarðarnesi að Súðavík og mun eng-
um afgreiðslustað lokað í kjölfar
samrunans.
Á stofnfundinum var kjörin
fyrsta stjórn sjóðsins. Að hálfu
stofnfjáreigenda voru kjörnir;
Bjarni Einarsson, Gísli Þór Þor-
geirsson og Guðmundur Steinar
Björgmundsson. Sparisjóðsstjóri
nýja sparisjóðsins mun verða Ang-
antýr Valur Jónasson með aðsetur í
höfuðstöðvum SPVF á Þingeyri.
Aðstoðarsparisjóðsstjóri verður Ei-
ríkur Finnur Greipsson með aðset-
ur á Flateyri og Ísafirði.
Sparisjóðirnir fjórir eiga sér mis-
langa sögu, en þeirra elstur er
Sparisjóður Þingeyrarhrepps sem
var stofnaður árið 1896 og hét þá
Sparisjóður Vestur-Ísafjarðarsýslu.
Yngsti Sparisjóðurinn í samrunan-
um er Sparisjóðurinn í Súðavík sem
stofnaður var árið 1972. Hinn nýi
Sparisjóður Vestfirðinga á sér því
djúpar rætur í langri og farsælli
sögu Sparisjóða á Vestfjörðum.
1,5 milljónir króna
til leikskóla
Á fundinum var einróma sam-
þykkt tillaga undirbúningsstjórnar
um að gefa öllum starfandi leikskól-
um í sveitarfélögum Sparisjóðs
Vestfirðinga eina og hálfa milljón
króna til tölvukaupa eða annarrar
uppbyggingar skólanna.
Markmiðið með fjárgjöfinni er að
efla og styrkja enn frekar mikil-
vægt uppeldis- og fræðsluhlutverk
leikskólanna í samfélaginu.
Sparisjóður Vest-
firðinga stofnaður
Frá stofnfundi Sparisjóðs Vestfirðinga sem haldinn var á Núpi í Dýrafirði fyrir skemmstu.