Morgunblaðið - 08.05.2001, Side 29

Morgunblaðið - 08.05.2001, Side 29
ÚR VERINU MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2001 29 - trygging fyrir l águ verði! OPIÐ: Mánud. - föstud. kl. 9-18, laugard. kl. 10-14 Við Fellsmúla Sími 588 7332 www.heildsoluverslunin.is Lagerrýmingarsala 20-50% afsláttur Sturtuhurðir þrískiptar, rennihurðir. 4mm öryggisgler. 80x80 rúnnaður sturtubotn úr plasti Gufu- nuddsturtuklefi með 6 nuddstútum og tölvustýrðu stjórnborði. 90x90 cm rúnnaður. Öryggisgler. 3 tæki í tösku: höggborvél stingsög og juðari. Verð aðeins kr. 7.900.- Fræsari 700W 8mm leggur, 5 fræsitennur fylgja. Kemur í ál tösku Verð kr. 7.900.- Hjólsög 1100 W Verð aðeins kr. 6.900.- 24 W hleðsluborvél með 13mm patrónu, ásamt 72 fylgihlutum í tösku Verð aðeins kr. 7.900.- SDS höggborvél 2 patrónur 500 W í tösku með borasetti Verð aðeins kr. 6.900.- Kr. 129. 000,- Frá kr. 9 .900,- Kr. 2.50 0,- Antik- og stál- undirbor ðsofnar Frá kr. 3 1.900,- w w w .d es ig n. is © 20 01 Hellubor ð Frá kr. 7 .000,- ÚTVEGSMENN á Norðurlandi vilja að tilflutningi á aflaheimildum frá stærri skipum að minni verði hætt og hvetja til þess að kerfinu, sem gildir um smábátana, verði lok- að. Þetta kom fram á fundi sem Út- vegsmannafélag Norðurlands hélt á Hótel KEA á Akureyri á sunnudag. Þorsteinn Már Baldvinsson, for- stjóri Samherja og formaður Út- vegsmannafélagsins, segir að þegar kvótakerfið var sett á hafi smábáta- aflinn verið áætlaður 3% í þorski en nú sé hann langleiðina í 30%. Það þýði að búið sé að taka á annan tug þúsunda tonna af þorski af fyrir- tækjum á Norðurlandi, sem hafi haft alvarlegar afleiðingar fyrir veiðar og vinnslu á svæðinu og í raun miklu alvarlegri afleiðingar en á Vestfjörðum. Að sögn Þorsteins Más var farið yfir málin, til dæmis varðandi ýsu og steinbít, „og þau ósannindi Guð- jóns Arnars [Kristjánssonar alþing- ismanns] um að við nýtum ekki heimildirnar okkar. Guðjón Arnar, sem var skipstjóri, veit að hann fer með rangt mál og hann afbakar hlutina,“ segir Þorsteinn Már og bætir við að útgerðin hafi haft möguleika á að breyta um 5% á milli tegunda og hafi margir nýtt sér það. Samherji hafi t.d. nýtt ýsu og steinbít til að veiða meira í grá- lúðu en nú megi reyndar ekki breyta eins miklu og áður. Auk þess hverfi umræddur fiskur ekki þótt hann sé ekki nýttur, en um tak- markaða auðlind sé að ræða. Það sem einn fær hlýtur að vera tekið af öðrum. „Að segja að það sé ekki tekið af neinum er fjarstæðukennt,“ segir Þorsteinn Már. Morgunblaðið/Kristján Alþingismennirnir Tómas Ingi Olrich og Vilhjálmur Egilsson voru á meðal fundarmanna hjá Útvegsmanna- félagi Norðurlands á Hótel KEA á sunnudag. Fyrir aftan þá sitja m.a. þeir Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, og Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja og formaður Útvegsmannafélagsins. Tilflutningi á afla- heimildum verði hætt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.