Morgunblaðið - 08.05.2001, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 08.05.2001, Qupperneq 32
ERLENT 32 ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ DONALD Rumsfeld, varnarmála- ráðherra Bandaríkjanna, hefur lagt drög að gagngerri endurskoðun á varnarstefnu Bandaríkjanna, sem felur meðal annars í sér að horfið verður frá því markmiði að geta háð stórstyrjöld á tvennum vígstöðvum í einu að því er The Washington Post hafði í gær eftir embættis- mönnum í varnarmálaráðuneytinu. Að sögn blaðsins var áformað að varnarmálaráðherrann kynnti drög- in fyrir George W. Bush Banda- ríkjaforseta í vikunni, hugsanlega í dag, en þau hafa í för með sér mestu breytingar á varnarstefnu Bandaríkjanna sem gerðar hafa verið í áratug. Hefur í för með sér fækkun hermanna Brotthvarf frá meginreglunni um að geta háð stórstyrjöld á tvennum vígstöðvum samtímis hefur meiri áhrif á stærð heraflans en á gerð hernaðar- áætlana. Undanfarinn áratug hefur Bandaríkjaher notað mögu- leikann á stríði á tvennum víg- stöðvum, til dæmis í Írak og Kóreu, til að reikna út lágmarks- fjölda hermanna, flugvéla, skipa og annars vígbúnaðar. Samkvæmt þessari meginreglu hefur um árabil þótt nauðsynlegt að hafa á hverjum tíma um 1,4 milljónir manna undir vopnum en nú er hugsanlegt að þessi tala muni lækka. Herinn fengi þá væntanlega aukið svigrúm til að kaupa ný vopn og búnað, auk þess sem fyrirsjáanlegt er að aukinn hluti af fjárveitingum til varnar- mála muni á næstu árum renna til þróunar eldflaugavarnakerfisins sem Bandaríkjastjórn hyggst koma upp. Breytingarnar munu hafa áhrif á allar deildir hersins en ljóst er að þær koma fyrst og fremst niður á landhernum sem þarfnast mests mannafla. Minni áhersla verði lögð á hefðbundinn hernað Að sögn The Washington Post er áformað að Bandaríkjaforseti kynni nýja varnarstefnu í ræðu við banda- ríska flotaháskólann í Maryland 25. þessa mánaðar, en þeir varnarmála- sérfræðingar sem blaðið ræddi við vildu sem minnst tjá sig um hvaða viðmið yrðu tekin upp í stað tveggja vígstöðva reglunnar. The Washington Post hafði eftir ónafngreindum starfsmanni varnar- málaráðuneytisins, sem komið hef- ur að stefnumótuninni, að skynsam- legast væri að tryggja að Banda- ríkjaher hefði bolmagn til að bregðast við ófyrirsjáanlegum ógnum í síbreytilegum heimi. Leggja ætti minni áherslu á hefð- bundinn hernað en efla þess í stað getuna til að takast á við ástand á borð við að verja Taívan fyrir hafn- banni af hálfu Kínverja eða að halda Hormuz-sundi við mynni Persaflóa opnu. Ljóst þykir að aukið kapp verði lagt á að Bandaríkjaher verði í far- arbroddi í tækniþróun á sviði hern- aðar- og upplýsingatækni. Þá er gert ráð fyrir að herinn muni á næstu árum fremur beina sjónum sínum að Austur-Asíu en Evrópu og að aukin áhersla verði lögð á að koma í veg fyrir útbreiðslu eld- flauga- og kjarnorkutækni í þróun- arlöndum og svonefndum „útlaga- ríkjum“. Unnið að endurskoðun á stefnu Bandaríkjastjórnar í varnarmálum Mestu breytingar á varn- arstefnunni í áratug Donald Rumsfeld JUNICHIRO Koizumi, forsætisráð- herra Japans, flutti fyrstu stefnu- ræðu sína á japanska þinginu í gær og lofaði umfangsmiklum kerfis- breytingum til að blása lífi í efna- hag landsins. Hann hét því einnig að gera allt sem á valdi sínu stæði til að stjórnmálamennirnir end- urheimtu traust almennings. Ræða Koizumis mæltist vel fyrir og hagfræðingar sögðu að hann væri á réttri braut en þyrfti að út- færa umbótatillögur sínar frekar. Skoðanakönnun, sem birt var í gær, bendir til þess að Koizumi njóti enn mikils stuðnings meðal kjósenda þótt margir þeirra telji enn óljóst hvort hann geti staðið við loforðin. Um 80% Japana styðja nýja forsætisráðherrann ef marka má könnunina sem gerð var um helgina. AP Boðar róttækar umbætur í Japan JOHANNES Rau, forseti Þýska- lands, sagði í gær að þýska stjórnin hefði þegar beðið Ný-Sjálendinga afsökunar á staðhæfingu þýskrar stofnunar um að riðuveiki herjaði á sauðfé á Nýja-Sjálandi og ekki væri þörf á annarri afsökunarbeiðni. Rau kom í opinbera heimsókn til Nýja-Sjálands á sunnudag og búist var við að hann myndi biðjast form- lega afsökunar á þessari staðhæf- ingu sem kom fram í bæklingi sem markaðsstofnun þýsku stjórnarinn- ar dreifði til 33 milljóna heimila í Þýskalandi í mars. Staðhæfingin um að riðuveiki herjaði á ný-sjálenskt sauðfé olli miklu uppnámi á Nýja-Sjálandi. Helen Clark forsætisráðherra krafðist þess að þýska stjórnin bæðist afsökunar og Jim Sutton landbúnaðarráðherra sagði að full- yrðingin hefði orðið til þess að sala á ný-sjálensku lambakjöti í Þýska- landi hefði minnkað verulega. „Ég vil taka fram að þýska stjórnin og viðkomandi stofnun hafa beðist afsökunar á þessari staðhæfingu, sem var svo augljós- lega röng, og ég vona að þessu máli sé nú lokið með þessari yfirlýsingu, hvað stjórnvöld á Nýja-Sjálandi varðar,“ sagði Rau. Forsetinn bætti við að þetta mál hefði borið á góma þegar hann ræddi landbúnaðarmál og viðskipti landanna við Clark og stjórnarand- stöðuleiðtogann Jenny Shipley í gær. Nýja-Sjáland Rau segir aðra afsök- unarbeiðni óþarfa Wellington. AFP. FYRSTI geimferðalangurinn, bandaríski auðkýf- ingurinn Dennis Tito, kom til jarðar á sunnudag eftir átta daga dvöl í geimnum. „Ég er að koma úr paradís,“ sagði Tito er hann steig út úr rússnesku Soyuz-geimflauginni sem flutti hann og tvo rúss- neska geimfara frá Alþjóðlegu geimstöðinni. Soyuz-farið lenti á sunnudagsmorgun nálægt Arkalyk í Kasakstan, um 400 km frá höfuðborg- inni Arkana. Tito var óstöðugur er hann gekk út úr flauginni, en það er ekki óvenjulegt eftir dvöl í þyngdarleysi. Hann bar sig þó vel og sagði heim- ferðina hafa gengið vel og lendinguna mjúka. „Þetta var stórkostlegt, best af öllu,“ sagði Tito með bros á vör. Geimförunum þremur voru samkvæmt venju færð epli við komuna og Tito reyndi að kasta þeim í hringi í loftinu. „Ég er ennþá vanur þyngdar- leysinu, þið skiljið,“ kímdi geimferðalangurinn. „En ég naut ferðarinnar út í ystu æsar. Draumur minn hefur verið uppfylltur.“ Eftir læknisskoðun var flogið með þremenn- ingana til Moskvu og þeir voru síðan færðir til þjálfunarbúða fyrir geimfara skammt fyrir utan höfuðborgina, þar sem þeir hafa gengist undir frekari skoðanir. Talsmaður þjálfunarbúðanna sagði í gær að Tito væri við hestaheilsu og að hann hefði ekki kennt neinna óvenjulegra aukaverkana vegna geimferðarinnar. „Ólýsanleg reynsla“ Tito hóf sögulega för sína að morgni 28. apríl, þegar Soyuz-fari var skotið á loft frá geimferða- miðstöð Rússa í Kasakstan með hann innanborðs, auk tveggja rússneskra geimfara. Farið tengdist Alþjóðlegu geimstöðinni 30. apríl og þar dvaldi Tito í sex daga. Önnur Soyuz-flaug, sem verið hafði flóttafar Rússa í geimstöðinni, flutti þre- menningana aftur til jarðar en fyrrnefnda farið leysti það gamla af hólmi sem flóttafar. Tito, sem er sextugur að aldri, er eldflaugaverk- fræðingur að mennt og starfaði áður hjá Geim- ferðastofnun Bandaríkjanna, NASA. Hermt er að hann hafi greitt sem svarar tveimur milljörðum króna fyrir geimferðina og af ummælum hans að dæma varð hann ekki fyrir vonbrigðum. Auðkýfingurinn Dennis Tito kominn til jarðar eftir átta daga dvöl í geimnum „Ég er að koma úr paradís“ Astana, Moskva. AFP, AP. Reuters Dennis Tito, lengst til vinstri, kastar eplum upp í loftið ásamt félögum sínum, Talgat Musabajev og Júrí Batúrín, eftir lendinguna í Kasakstan á sunnudag. EIGINKONA svissneska sendiherr- ans í Þýskalandi og fyrrverandi Ungfrú Texas hefur beðið sviss- neska utanríkisráðuneytið afsök- unar á því að hafa látið taka af sér ögrandi ljósmyndir, sem birtust í þýsku tímariti. Í bréfinu segist hún ekki hafa áttað sig á hvaða uppnámi myndirnar gætu valdið. Shawne Fielding, 32 ára gömul, sat fyrir í myndröð, sem bar nafnið „Kúrekastelpan í Ölpunum“ og birt- ist í þýska tímaritinu Max. Á einni myndanna var hún í rauðu pínupilsi fyrir framan svissneska fánann og á annarri var hún á hrossi á sendiráð- ströppunum og í hlýralausum kjól. Þá var hún líka sýnd með banda- ríska fánann sem hálsklút og doll- aramerkið letrað á bringuna. Myndirnar ollu mikilli hneykslan víða, ekki síst í Sviss þar sem fjöl- miðlar og kunnir stjórnmálamenn kröfðust þess, að eiginmaður henn- ar, Thomas Borer, yrði sviptur sendiherrastöðunni. Lofar bót og betrun Frú Fielding brást í fyrstu hin versta við gagnrýninni og sagði hana koma frá „ákaflega þröngsýnu fólki“ en á sunnudag dró hún í land og kvaðst ekki hafa ætlað að „óvirða Sviss og Svisslendinga“. Kemur það líka fram í bréfi, sem hún hefur sent svissneska utanrík- isráðuneytinu, og þar lofar hún að leita samþykkis þess við viðtölum síðar og hún ætlar ekki að vera við- stödd vígslu nýs sendiráðs Sviss í Berlín á fimmtudag til að koma í veg fyrir óeðlilega umræðu í fjöl- miðlum. Talsmaður svissneska utanríkis- ráðuneytisins segir, að þetta mál sé enn til athugunar og ákvarðanir um framhaldið verði teknar þegar þar að komi. Svissneska sendiherrafrúin í Berlín biðst afsökunar á ögrandi ljósmyndum Ætlaði ekki að óvirða Sviss Bern. AFP, Reuters. AP Svissnesku sendiherrahjónin Thomas Borer og Shawne Fielding. ♦ ♦ ♦
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.