Morgunblaðið - 08.05.2001, Page 47
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2001 47
Gullsmiðir
kvaddur tæknistjóri flugvélarinnar,
sem hefur meiri reynslu en flestir
aðrir hér á landi í meðferð hreyfla af
þeirri gerð sem hér um ræddi. Þess-
ar upplýsingar hefði þingmaðurinn
að sjálfsögðu átt að hafa undir hönd-
um áður en hann tók flugið í púlti Al-
þingis.
Rannsóknin fór fram með þeim
hætti að öll kerfi hreyfilsins og íhlut-
ar sem að mati RNF gátu gefið til-
efni til rannsóknar voru fjarlægð og
þau rannsökuð frekar hér á landi eða
send til Kanada til rannsóknar.
Rannsókn hreyfilsins er einnig ítar-
lega lýst í skýrslu RNF, þótt þetta
hafi einhverra hluta vegna farið fram
hjá þingmanninum, og er aðeins um
hana að segja: Hún leiddi í ljós að
ekkert fannst athugavert eða neitt
það sem gat leitt til stöðvunar hreyf-
ilsins annað en skortur á eldsneyti til
hans og um þetta voru allir sammála.
Málið var nú svo einfalt. Að rannsókn
lokinni var hreyflinum skilað í hend-
ur eigandans en þá var engin lög-
reglurannsókn hafin í þessu máli.
Það má geta þess að þingmaðurinn
hélt því fram að hreyfillinn hafi ekki
verið til staðar eftir að RNF lét hann
af höndum. Það er ekki rétt. Hreyfill-
inn var mánuðum saman eða allt
fram í janúarlok til staðar eftir af-
hendinguna en engir sýndu honum
áhuga og er ekki vitað annað en
Rannsóknarlögreglan uni þeirri
rannsókn sem RNF framkvæmdi á
honum. Þess vegna spyr ég enn:
Hvað í þessari rannsókn telur þing-
maðurinn að hafi ekki staðist þær
kröfur sem gera verður til hennar og
ég spyr líka; vantreystir hann þeim
sem að henni komu?
Í fyrrnefndum Kastljósþætti
komst þingmaðurinn svo að orði að
með ólíkindum væri „hversu harðir
aðstandendur fórnarlamba flugslyss-
ins hefðu verið í að grafa upp upplýs-
ingar og draga fram sannleikann í
þessu máli, svo við getum lært af
þeim“. Ég hlýt enn að spyrja þing-
manninn hverjar þessar upplýsingar
séu og sem hann saknar í skýrslu
RNF og hver sé sannleikurinn í
þessu máli, sem RNF hefur legið á.
Dettur þingmanninum í hug að rann-
sakendur telji sig komast upp með
það að fela sannleikann og hvaða
hagsmuni gæti RNF haft af af slíku
háttalagi? Spyr sá sem ekki veit.
Hefur þingmanninum nokkuð
komið til hugar að þessi „rannsókn“
aðstandenda sé með öðrum for-
merkjum en þeim sem RNF hefur.
Ennfremur hver sé ástæða þess að
þessir sömu aðstandendur hafa borið
brigður á niðurstöðu nefndarinnar
og að þeir uni þeim ekki. Skyldi það
vera vegna þess að þeir séu að berj-
ast fyrir auknu öryggi í flugi eins og
hann sjálfur hefur svo mikinn áhuga
á. Eða gæti verið að niðurstöður í
skýrslu RNF henti ekki tilgangi
þeirra, hver svo sem hann er – en
sem þeir sjálfsagt telja sig hafa til
réttlætingar á því að gera RNF að
blóraböggli í öllu þessu máli og hafa
ekki aldeilis sparað meðulin eins og
almenningur hefur orðið vitni að.
Þegar ég hugleiði hvernig hátt-
virtur þingmaður leyfir sér að haga
orðum sínum á Alþingi í garð RNF
og á opinberum vettvangi spyr ég
sjálfan mig, er þetta það sem Össur
formaður kallar á þingmannamáli að
stjórnarandstöðu beri skylda til að
gera til að veita stjórnvöldum aðhald
í þessu máli. Verður það ekki gert á
annan hátt en hafa uppi óhróður og
rangan málflutning úr ræðustól á Al-
þingi um RNF sem ég fullyrði, eftir
20 ára nefndarsetu mína þar, að vinni
sín verk af allri þeirri trúmennsku
sem henni er best gefin.
Lúðvík Bergvinsson kaus að kljást
við samgönguráðherra á Alþingi með
þeim hætti að gera RNF að skot-
spæni í pólitískum skollaleik sínum.
Ég velti fyrir mér hverjir vilji bjóð-
ast til starfa í RNF í framtíðinni, því
það getur ekki verið eftirsóknarvert
hlutskipti að eiga von á slíkri máls-
meðferð frá þeim sem síst skyldi.
Að endingu vil ég segja þetta. Ég
ætla ekki að víkjast undan mínum
þætti í því að RNF baðst undan því
að mæta fyrir samgöngunefnd Al-
þingis að kröfu m.a. fyrrnefnds þing-
manns og þurfa þar að svara ávirð-
ingum hans – og lái mér hver sem
vill. Þar að auki sé ég ekki hverjum
tilgangi það þjónar að sjálfstæð og
óháð rannsóknarnefnd þurfi að mæta
fyrir samgöngunefnd, og ég tel að
RNF muni láta skera úr um það
hvort slíkt sé eðlilegt, áður en til slíks
fundar verður boðað aftur.
Lúðvík Bergvinsson hefur sakað
RNF um að sýna Alþingi óvirðingu.
Ég vil harðlega mótmæla þeirri
ásökun. Það voru aldrei tilburðir í þá
átt af hendi RNF, þó að hann kjósi að
beina athygli fólks frá því sem málið
snerist um, sem var fyrst og fremst
málflutningur hans sjálfs á hinu háa
Alþingi. Þingmaðurinn þarf ekki að
leita liðsinnis RNF við að óvirða Al-
þingi, mér sýnist að hann sé einfær
um það.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Flugþjónustunnar ehf. og á sæti
í RNF.
Eru vandamál á toppnum?
Ofnæmi, flasa, exem, psoriasis, feitur eða þurr hársvörður?
ÚTSÖLUSTAÐIR: HEILSUVÖRUVERSLANIR OG APÓTEK UM ALLT LAND.
HÁRVÖRUR LEYSA VANDANN
OG ÞÚ BLÓMSTRAR.
Flísar
og
parketBorgartúni 33, Reykjavík • Laufásgötu 9, Akureyri