Morgunblaðið - 08.05.2001, Side 51

Morgunblaðið - 08.05.2001, Side 51
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2001 51 ✝ María MargrétJónsdóttir fædd- ist að Lækjarósi í Dýrafirði 27. febrúar 1951. Hún lést á heimili sínu 30. apríl síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru Jón Óskar Jensson, f. 3. október 1916, d. 15. nóvember 1980, og Rósa Hálfdánardótt- ir, f. 10. desember 1921, d. 9. maí 1999, og var María næst- yngst fimm systkina. Hinn 22. nóvember 1975 giftist María eftirlifandi eig- inmanni sínum, Gísla Ögmunds- syni rafvirkja, f. 4. desember 1951, og eru börn þeirra Ögmundur, f. 30. september 1975, Rósa Hrefna, f. 17. júní 1978, og Gísli Freyr, f. 16. maí 1982. Fyrir átti María soninn Jón Kristján, f. 7. maí 1975, með Erni Bjarnasyni. Barna- börnin eru þrjú. María vann fyrst við verslunarstörf en síðustu 15 ár starf- aði hún hjá Íslands- banka. Útför Maríu fer fram frá Lang- holtskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Elsku mamma mín. Núna ertu farin frá okkur, söknuðurinn og sorgin eru mikil og stundum alveg óbærileg. Sagt er að tíminn lækni öll sár, en stundum er ég ekki viss. Mér fannst þetta alltaf ganga svo vel hjá þér, elsku mamma, þú varst svo hug- rökk í veikindunum þínum, kvartaðir aldrei og alltaf leið þér bara vel þeg- ar ég hringdi í þig eða kom. Þú barð- ist eins og hetja fram á síðustu stundu og aldrei varð ég vör við von- leysi og alltaf stóð pabbi eins og klettur við bakið á þér og ég held að enginn geti þakkað honum nægilega fyrir það. En núna ertu komin á betri stað og ég trúi því að þar líði þér vel, elsku mamma. Við áttum svo margar góðar stundir saman og fyrir þær er ég svo þakklát, það var alltaf svo gott að tala við þig og við töl- uðum um allt milli himins og jarðar, þú varst alltaf til staðar þegar ég þurfti á þér að halda og studdir mig í gegnum svo margt og varst boðin og búin til þess. Gísli Máni saknar þín sárt, hann skilur alveg hvað hefur gerst og spyr mig af hverju þú sért hjá Guði, en stundum er erfitt að út- skýra hlutina fyrir litlum strák en ég mun reyna það eftir bestu getu og passa að láta hann ekki gleyma þér, hann var nú einu sinni „gullmolinn“ hennar ömmu sinnar. Elsku mamma, ég kveð þig með þessum fátæklegu orðum, takk fyrir allt sem þú hefur gefið mér, allar yndislegu minningarnar um þig mun ég alltaf geyma í mínu hjarta, þú varst mín besta vinkona. Guð geymi þig. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta, þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Þín dóttir, Rósa Hrefna. Jæja mamma mín, nú er vist þinni hér hjá okkur í þessum heimi lokið. En ég trúi því að þú sért komin á betri stað þar sem þér mun líða bet- ur. Það var ekki nema fyrir nokkrum mánuðum að það leit allt svo vel út, það virtist sem að þú myndir vinna bug á þessu. Enda varstu ákveðin í því að gera það og háðir hetjulega baráttu alveg til enda. Við áttum margar góðar stundir saman sem ég er mjög þakklátur fyrir. Þó að þetta sé erfitt núna veit ég að við munum verða saman á ný á öðrum stað og ég get þó huggað mig við, að þú munir vaka yfir okkur þangað til. Vertu sæl, elsku mamma mín, og þakka þér fyrir allt sem þú gafst mér og all- ar þær góðu stundir sem við áttum saman. Gísli Freyr. Það eru nú orðin rúm 26 ár síðan Gísli sonur minn kom með Maríu og kynnti hana fyrir okkur foreldrum sínum. Það er óhætt að segja að þau ljómuðu af hamingju og ást sem ent- ist þeim til hennar æviloka. Síðan höfum við átt samleið í gleði og sorg. Þau eignuðust þrjú börn og María átti einn son áður. Það má með sanni segja að þau urðu öll afa og ömmu miklir gleðigjafar. Ég er ekki viss um að ég hafi látið Maríu skilja það nógu vel hve mikils ég mat það hve vel hún studdi Gísla í erfiðum veikindum hans. Hann var frá vinnu í tvö og hálft ár og reyndi það mikið bæði á hana og börnin. Fyrir tveimur árum kom annað áfall þegar að María greindist með krabbamein. Það var tekist á við það af mikilli bjartsýni og hugrekki. Ég dáðist að því hve hún tók sínum erf- iðu veikindum vel, var létt og gam- ansöm og hafði það fínt þegar maður hringdi í hana. Nú þegar vorið er komið, blómin farin að gægjast úr moldinni og fugl- arnir syngja liðlangan daginn er hennar hetjulegu baráttu lokið. Ég bið um styrk handa okkur öll- um sem þótti vænt um hana. Hrefna Gísladóttir. Vertu alltaf hress í huga hvað sem kann að mæta þér. Lát ei sorg né böl þig buga, baggi margra þyngri er. Vertu sanngjarn, vertu mildur, vægðu þeim sem mót þér braut. Bið þinn guð um hreinna hjarta, hjálp í lífsins vanda og þraut. Treystu því að þér á herðar þyngri byrði ei varpað er, en þú hefur afl að bera, orka blundar næg í þér. Þerraðu kinnar þess er grætur þvoðu kaun hins særða manns. Sendu inn í sérhvert hjarta, sólargeisla kærleikans. Elsku María, þessar fallegu ljóð- línur færðir þú okkur samstarfs- félögum þínum þegar þú varst orðin veik. Fyrir það viljum við þakka þér og eflaust eiga þær eftir að hjálpa okkur síðar á lífsleiðinni, því þær hljóma eins og falleg boðorð. Þú ert búin að vera mikil hetja síð- ustu tvö árin og þú varst svo ákveðin í því að sigra í baráttunni við þann illvíga sjúkdóm sem að lokum hafði betur í þeirri baráttu. Á sorgar- og kveðjustund sem þessari fljúga allar góðu minning- arnar um huga okkar og sumar hverjar eru frá haustinu 1985 þegar þú hófst störf hjá bankanum sem þá hét Verslunarbankinn, útibú í Breið- holti og síðar Íslandsbanki í Breið- holti. Við, sem höfum fengið að starfa með þér hjá bankanum á 15 ára tímabili, viljum færa þér okkar bestu þakkir fyrir þær frábæru samveru- stundir sem við höfum átt saman í leik og starfi. Oft var glatt á hjalla og stutt í glensið. Við biðjum algóðan Guð að blessa þig og leiða um alla ei- lífð. Fjölskyldu Maríu og öllum að- standendum hennar sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum Guð að veita þeim styrk í þeirra miklu sorg. Kveðja frá samstarfsfélögum í útibúum Íslandsbanka, Þarabakka og Lóuhólum. F.h. starfsmanna Ís- landsbanka í Breiðholti, Þuríður Sölvadóttir. Vina mín kær; hér kveðjumst við nú. Kannski get ég vart trúað, svo örstutt það er. Lá saman leið er kynntist ég þér. Nú lávarður lífsins þig fel í bæn minni og trú. Hækkandi sól, sumar og vorsins bjarmi sefi og græði, gefi huggun gegn harmi. (Rh.) Kveðja, Aðalheiður Hákonardóttir. Með fáeinum orðum langar mig að minnast mágkonu minnar Maríu Margrétar, Maju eins og hún var kölluð.Við kynntumst fyrir þremur árum þegar Jens bróðir hennar kynnti okkur. Hún tók mér strax opnum örmum inn í fjölskylduna, hún var hress, jákvæð og þægileg manneskja. Það var alltaf gott að koma í heimsókn í Viðarásinn til Maju og Gísla, þau voru einstaklega elskuleg og samhent hjón. Þær syst- ur Maja og Ásta voru miklar vinkon- ur. Var einnig mikið samband milli maka þeirra, Gísla og Þóris. Þau stunduðu golfíþróttina af miklum áhuga og höfðu gert seinni árin. Maja var alltaf tilbúin að rétta hjálp- arhönd, hún reyndist bróður sínum mikill félagi eftir að hann flutti suð- ur. Þegar við Jens stofnuðum heimili í Dofraborgum voru Maja og Gísli boðin og búin að hjálpa. Móðir henn- ar, Rósa, naut einnig stuðnings þeirra hjóna eftir að hún varð ekkja og þurfti að flytjast til Reykjavíkur, var hún mikið á heimili þeirra meðan hún lifði. Maja starfaði sem þjón- ustufulltrúi í Íslandsbanka í Mjódd, þar þekktum við sameiginlega skjól- stæðinga sem hún þjónaði dyggi- lega. Það sem Maju var kærast voru eiginmaður hennar, börnin og barnabörnin. Hún var svo lánsöm að hafa dótturson sinn Gísla Mána mik- ið hjá sér, var hann augasteinn afa og ömmu. Sonardætur hennar Rannveig og Sólbjört, litlu prins- essurnar hennar, voru henni mjög kærar. Hún hafði gaman af að gefa þeim eitthvað fallegt. Skjótt skipast veður í lofti, enginn veit hvenær heilsan brestur. Það var fyrir tveim- ur árum að Maja greindist með ill- vígan sjúkdóm. Hún barðist hetju- lega og ætlaði sér að sigra, það kom aldrei neitt annað til greina hjá henni. Hún sýndi einstakan vilja- styrk í baráttunni við sjúkdóminn. Það var henni efst í huga að vera með fjölskyldunni, nú um páskana buðu þau hjónin nánustu fjölskyld- unni í sumarbústað við Ölfusborgir. Þá fékk hún tækifæri til að hitta son sinn Jón Kristján, Freyju, Rann- veigu og Sólbjörtu, en þau eru bú- sett á Austfjörðum. Þrátt fyrir að hún væri orðin mikið veik gat hún notið þessarar stundar. Með aðstoð eiginmans og barna sinna tókst henni að dvelja á heimili sínu þar til hún lést, mánudaginn 30. apríl. Elsku Gísli, Rósa, Ögmundur, Gísli Freyr, Jón Kristján, barnabörn og tengdabörn. Ég votta ykkur dýpstu samúð í sorginni og bið Guð að gefa ykkur styrk. Mínerva Sveinsdóttir. MARÍA MARGRÉT JÓNSDÓTTIR ✝ Karítas Geirs-dóttir fæddist að Hallanda í Hraun- gerðishreppi 5. júlí 1927. Hún lést á heimili sínu 29. apríl síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru Mar- grét Þorsteinsdóttir og Geir Vigfússon og eru þau bæði látin. Systkini Karítasar eru: Helga, f. 1923, Sólveig, f. 1924, Ósk- ar, f. 1928, Sigur- björg, f. 1932, Mar- grét, f. 1934, og Hörður, f. 1942. Einnig átti hún hálfbróður, Reyni Geirsson, sem er látinn. Árið 1968 giftist hún eft- irlifandi eiginmanni sínum, Jens Árna Ingimundarsyni frá Djúpa- vogi, f. 6.8. 1932, sonur þeirra er Sigurður Jensson, f. 7.11. 1967, í sambúð með Laufeyju Gunnlaugs- dóttur, f. 1966, og eiga þau 2 dæt- ur, Karítas, f. 1993, og Önnu Bríeti, f. 1998. Fyrir átti Kar- ítas Höllu Margréti Þórarinsdóttur, f. 12.9. 1950, hún er í sambúð með Birgi Ólasyni, f. 1958, þeirra sonur er Brynjar, f. 19.8. 1988. Fyrir átti Halla Margréti Gígju Rafnsdóttir, f. 2.10. 1971, en hún ólst upp hjá Karítas og Jens. Margrét Gígja er í sambúð með Gunnari Jens Elí Einarssyni, f. 1968, og er þeirra sonur Jens Elí, f. 29.9. 2000. Karítas ólst upp í Hallanda og bjó þar meira og minna þangað til hún fluttist til Reykjavíkur 1967. Útför Karítasar verður gerð frá Árbæjarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Elsku amma. Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvíl- ast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga þig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur.) Elsku amma mín, ég kveð þig með söknuði. Elsku afi, megi góðar minningar styrkja þig í sorg þinni. Brynjar. Okkur systurnar langar að minn- ast með nokkrum orðum ömmu okk- ar sem lést þann 29. apríl síðastlið- inn. Amma Kæja, eins og hún var alltaf kölluð á okkar heimili, var mjög góð kona. Við systur höfum verið svo heppnar að hafa búið mjög nálægt ömmu Kæju og afa Jens. Alltaf var jafn gott að koma á heim- ili þeirra hvort sem það var í pössun eða bara í smá heimsókn. Amma var mikil húsmóðir og alltaf var nóg til með kaffinu hjá henni eða eitthvað spennandi í skápunum. Ósjaldan kom hún einnig færandi hendi heim til okkar með kleinur, pönnukökur eða annað góðgæti í poka. Að missa ömmu svona snöggt er mjög sárt. Það var svo margt sem við áttum eftir að gera saman og hún að kenna okkur. Amma var dul kona og ekki allra en þeir sem stóðu henni næst voru umvafðir ástúð og hlýju, fyrir það verðum við ævinlega þakklátar. Elsku amma, hvíl þú í friði. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Elsku afi, missir þinn er mikill, við munum styðja þig eins og við getum. Kveðja. Karítas og Anna Bríet. KARÍTAS GEIRSDÓTTIR                                           ! "#           $ %&"  "#  &&&"' "#  (&) *  "#    +*  "#       , ! -&"'    . &"

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.