Morgunblaðið - 08.05.2001, Side 55
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2001 55
FRÆÐSLUKVÖLD og hópstarf
um sorg, sorgarviðbrögð og úr-
vinnslu sorgar í nærhópi í Lang-
holtskirkju.
Eins og undanfarin ár eru fyrir-
lestrar, námskeið og hópstarf í
Langholtskirkju um missi og úr-
vinnslu sorgar. Á vormisseri var
starfið tengt missi vegna dauðsfalla.
Sóknarprestur og djákni hafa um-
sjón með starfinu. Hópstarfinu lýk-
ur þriðjudagskvöldið 8. maí kl. 20 á
fræðslukvöldi í litla salnum í safn-
aðarheimili Langholtskirkju. Þá
mun sr. Gunnar Rúnar Matthíasson
sjúkrahúsprestur flytja erindi þar
sem horft er fram á veginn án ást-
vinarins sem er látinn. Kaffiveiting-
ar verða í boði safnaðar og á eftir
gefst tækifæri til að beina spurning-
um til sr. Gunnars, sóknarprests og
djákna safnaðar. Fræðslukvöldið er
öllum opið. Verið hjartanlega vel-
komin.
Safnaðarstarf
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurs-
hópa í neðri safnaðarsal kl. 10–14 í
umsjá Þórönnu Þórarinsdóttur.
Skemmtiganga kl. 10.30. Júlíana
Tyrfingsdóttir leiðir gönguhópinn.
Bæna- og fyrirbænastund í kirkj-
unni kl. 12 í umsjá Guðrúnar K.
Þórsdóttur djákna. Léttur hádegis-
verður á vægu verði eftir stundina.
Samvera foreldra ungra barna kl.
14–16 í neðri safnaðarsal. Herdís
Storgaard, hjúkrunarfræðingur og
framkvæmdastjóri Árvekni, kemur í
heimsókn og ræðir um slys á börn-
um í heimahúsum. Tólf spora hóp-
arnir hittast kl. 19 í neðri safnaðar-
sal.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðs-
þjónusta í dag kl. 10.30. Beðið fyrir
sjúkum.
Háteigskirkja. Sundferð unglinga-
klúbbsins MeMe kl. 18 með Gunn-
fríði. Hittumst fyrir framan safnað-
arheimilið og förum saman í
Laugardalslaugina.
Langholtskirkja. Vorferð endur-
minningahóps karla í Langholts-
söfnuði á Kjalarnesi. Karlar í end-
urminningahópum athugið: Í dag,
þriðjudaginn 8. maí, verður fundur-
inn haldinn heima hjá Svölu djákna
á Furugrund á Kjalarnesi. Farið
verður frá Langholtskirkju kl.
13.30. Sr. Sigurður Haukur Guð-
jónsson verður gesturog umræðu-
efnið verður spíritismi. Verið vel-
komnir og takið með ykkur gesti. Ef
ykkur vantar frekari upplýsingar
hafið þá samband við Svölu í síma
520-1314 eða 862-9162.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl.
6.45–7.05. Þriðjudagur með Þorvaldi
kl. 21. Lofgjörðarstund þar sem
Þorvaldur Halldórsson leiðir söng
við undirleik Gunnars Gunnarsson-
ar. Sr. Bjarni Karlsson flytur guðs
orð og bæn. Fyrirbænaþjónusta kl.
21.30 í umsjón bænahóps kirkjunn-
ar.
Neskirkja. Tíðasöngur kl. 12. Litli
kórinn, kór eldri borgara, kl. 16.30–
18. Stjórnandi Inga J. Backman.
Foreldramorgunn miðvikudag kl.
10–12. Kaffi og spjall.
Seltjarnarneskirkja. Foreldra-
morgunn kl. 10–12. Kaffi og spjall.
Verið öll hjartanlega velkomin.
Árbæjarkirkja. Foreldramorgunn í
safnaðarheimilinu kl. 10–12. Göngu-
ferð um nágrennið ef veður leyfir.
Hittumst, kynnumst, fræðumst.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón-
usta með altarisgöngu kl. 18.30.
Bænaefnum má koma til sóknar-
prests í viðtalstímum hans.
Digraneskirkja. Kirkjustarf aldr-
aðra. Ferð til Keflavíkur með við-
komu í Bláa lóninu. Lagt af stað frá
kirkjunni kl. 10.45. Skráning hjá
Önnu í síma 554-1475.
Fella- og Hólakirkja. Göngustund.
Á þriðjudögum kl. 10.30 er lagt af
stað frá Fella- og Hólakirkju í göngu
í umsjón Lilju G. Hallgrímsdóttur
djákna. Gangan er ætluð fólki á öll-
um aldri. Á eftir er boðið upp á djús
eða kaffi í safnaðarheimilinu.
Grafarvogskirkja. Opið hús fyrir
eldri borgara kl. 13.30. Helgistund,
handavinna, spil og spjall. Alltaf
eitthvað gott með kaffinu. Kirkju-
krakkar í Engjaskóla kl. 18–19 fyrir
börn á aldrinum 7–9 ára. KFUK fyr-
ir stúlkur 12 ára og eldri, annan
hvern miðvikudag kl. 20.30–21.30.
Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðar-
stund kl. 18.
Kópavogskirkja. Foreldramorgunn
í dag kl. 10–12 í safnaðarheimilinu
Borgum.
Seljakirkja. Foreldramorgnar. Opið
hús milli kl. 10 og 12. Kaffi og spjall.
Víðistaðakirkja. Aftansöngur og
fyrirbænir kl. 18.30.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir
10–12 ára börn í Vonarhöfn, Strand-
bergi, kl. 17–18.30.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús
kl. 17–18.30 fyrir 7–9 ára börn.
Vídalínskirkja. Helgistund í
tengslum við félagsstarf aldraðra kl.
16. Starf fyrir stúlkur 10–12 ára í
samstarfi við KFUK kl. 17.30 í safn-
aðarheimilinu.
Lágafellskirkja. Fjölskyldumorg-
unn í safnaðarheimili, Þverholti 3, 3.
hæð, frá kl. 10–12.
Keflavíkurkirkja. Kirkjulundur op-
inn kl. 13–16 með aðgangi að kirkj-
unni og Kapellu vonarinnar eins og
virka daga vikunnar. Gengið inn frá
Kirkjuteigi. Starfsfólk kirkjunnar
verður á sama tíma í Kirkjulundi.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorg-
unn kl. 10–12.
Borgarneskirkja. TTT, tíu til tólf
ára starf, alla þriðjudaga kl. 17–18.
Helgistund í kirkjunni sömu daga
kl. 18.15–19.
Þorlákskirkja. Mömmumorgnar
þriðjudaga kl. 10–12.
Hvammstangakirkja. Æskulýðs-
fundur í kvöld kl. 20 í Hrakhólum.
Krossinn. Almenn samkoma kl.
20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomn-
ir.
Frelsið, kristileg miðstöð. Biblíu-
skóli í kvöld kl. 20.
Fræðslukvöld
og hópstarf um
sorg og sorgar-
viðbrögð
Langholtskirkja
KIRKJUSTARF
Nú hefur hún lang-
amma kvatt þennan
heim. Loksins fékk hún
hvíldina og tilbúin var hún eftir að
hafa lifað sína tvo eiginmenn og skilað
sínu með sóma í þessari jarðvist.
Langamma lést á sjúkrahúsi Pat-
reksfjarðar þar sem hún dvaldi síð-
ustu árin. Þótt árin væru orðin 103 og
rúmlega það var það ekki nema hin
síðustu ár sem heilsan var farin að
bila eitthvað að ráði.
Ég varð mest hissa þegar ég áttaði
mig á því að langamma var um sjö-
tugt þegar ég fer að muna eftir henni
og þær eru margar minningarnar því
löngu eftir það lifði langamma ríku
lífi.
Langamma hafði alltaf sérstöðu í
huga mínum. Yfir henni var einhver
dýrðarljómi yfirvegaðrar visku, hún
bjó í Steininum og hún var eina
manneskjan sem ég þekkti sem hafði
átt samskipti við álfa. Það var í
Breiðafjarðareyjunum þar sem
langamma ólst upp og bjó til fertugs,
sem hún komst í kynni við huldukonu
og bar falleg gömul brúða sem
langamma átti nafn í minningu henn-
ar, Kala Lind. Seinna skírði ég dúkk-
una mína líka Kölu Lind.
Langafa minn Gísla hitti ég aldrei á
lífi en Pétur afi og langamma áttu
greinilega hamingjuríkt hjónaband.
Þetta var á Patró þar sem ég ólst upp
með þau í næsta húsi. Það var alltaf
gott að heimsækja þau í Steininn þar
sem andrúmsloftið einkenndist af ást-
ríkri virðingu. Heimili þeirra var fal-
legt og út um allt mátti sjá handa-
vinnu, dúka og dúllur gerðar af
langömmu. Hún var mjög listfeng í
höndunum, sérstaklega heklaði hún
mikið.
Alltaf var heimilið fínt og fágað
þótt aldrei virtist langamma vera á
kafi í heimilisstörfum. Allt var gert
jafnóðum af stóískri ró en ekki þeim
asa sem við lifum við í dag. Ég man þó
eftir langömmu uppi á þurrklofti, sem
var enn einn leyndardómurinn, að
rulla. Þar geymdi hún líka spennandi
dót fyrir okkur krakkana til að leika
okkur að. Hjallurinn var líka spenn-
andi.
Þar hékk þvotturinn og oft einhver
dularfullur matur. Kunningjar lang-
ömmu komu reglulega færandi hendi
með selkjöt og spekk sem var eitt
mesta sælgæti sem hún gat hugsað
sér. Þetta var arfur úr eyjunum, einni
stærstu matarkistu Íslendinga. Þar
svalt ekki fólk og maturinn hefur
greinilega verið undirstöðugóður því
langlífi er mikið meðal gamalla eyja-
skeggja. Þær voru margar sendiferð-
irnar útí mjólkurstöð fyrir langömmu
að sækja „drukk“ eða sýru á mjólk-
urbrúsa. Í eldhúsinu hjá langömmu
mátti treysta á það að fá ískalda
mjólk og sandköku, köldustu mjólk á
Patró, einu mjólkina sem ég gat
drukkið árum saman. Hjá langömmu
lærði ég líka hluti eins og að syngja
ekki sult í húsið, það gerir maður ekki
og ekki fer maður með tyggjó í kirkju.
Langamma hafði lag á því að segja
hlutina þannig að maður hlustaði og
gleymdi því ekki sem hún sagði. Hún
þurfti aldrei að æsa sig eða brýna
róminn. Langamma var stolt kona og
vönd að virðingu sinni. Um leið var
hún mjög víðsýn kona og umburðar-
lynd eins og fólk verður sem hefur á
langri ævi náð þroska og dýpri skiln-
ingi á mannfólkinu. Glæsileg var hún
þegar hún var búin að klæða sig í upp-
hlutinn sinn og setja upp flétturnar
sínar sem voru hennar mesta stolt.
Mikið fannst henni það erfitt þegar
hún á gamals aldri þurfti að fórna
þeim. Langamma var hlý og blíð kona
MAGÐALENA LÁRA
KRISTJÁNSDÓTTIR
✝ Magðalena LáraKristjánsdóttir
fæddist 13. nóvem-
ber 1897 í Sviðnum á
Breiðafirði og ólst
upp í Bjarneyjum.
Hún andaðist á
Sjúkrahúsinu á Pat-
reksfirði 23. apríl
síðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Fossvogskirkju
2. maí.
þótt hún væri ekki
skaplaus, síður en svo,
og hún hafði ríkan húm-
or. Þegar ég var orðin
eldri naut ég þess oft að
sitja með langömmu og
spjalla. Því miður fór
þeim stundum fækk-
andi þar sem fjarlægðir
voru miklar og ekki
gafst tækifæri til að
heimsækja hana eins
oft og ég hefði viljað.
Eftir að ég var flutt
frá Patró kom ég ferm-
ingarsumarið mitt og
vann þar í fiski. Þá bjó
langamma hjá þeim Svövu ömmu og
Geira afa. Alla daga beið langamma
með matinn tilbúinn á slaginu tólf
þegar við hin komum í hádegismat.
Þá var borðað, svo lögðu sig allir og
hlustuðu á fréttirnar og fóru svo end-
urnærðir í vinnuna aftur klukkan eitt.
Allt í föstum skorðum og jafnvægi.
Nú hafa þau öll kvatt. Fyrst afi 1982.
Eftir það bjuggu þær mæðgurnar
saman þar til langamma fór á spít-
alann. Það var mikið áfall fyrir lang-
ömmu þegar Svava amma lést árið
1997. Í dag er langamma farin til
þeirra hinna og eiginmanna sinna
tveggja. Eftir lifir sterk og falleg
minning um langömmu mína, sterka
konu, konu sem ég vildi líkjast.
Þórey Sigþórsdóttir.
Ástkær amma mín hefur nú kvatt
þessa jarðvist 103 ára gömul. Hún var
fædd í Sviðnum á Breiðafirði 13. nóv-
ember 1897 og ólst hún upp í Bjarn-
eyjum. Uppvaxtarárin í faðmi fegurð-
ar og sterkra náttúruafla Breiða-
fjarðareyjanna mótuðu hennar líf.
Amma var aðeins sautján ára þegar
hún fór sem ráðskona til afa, Gísla
Bergsveinssonar í Rauðseyjum.
Hann var þá ekkjumaður með þrjú
börn. Þau giftust og eignuðust fimm
börn saman.
Þegar afi lést var amma rúmlega
fertug. Hún flutti þá búferlum úr
Eyjunum til Patreksfjarðar þar sem
hún dvaldist síðan. Á Patreksfirði
kynntist amma síðari manni sínum,
Pétri Guðmundssyni. Þegar ég fædd-
ist voru þau gift, þannig að hann varð
Pétur afi. Þau áttu góða æfi saman.
Samband þeirra einkenndist af virð-
ingu, ástúð og hlýju sem hafði sterk
áhrif á alla sem kynntust. Ekki síst
okkur barnabörnin sem vorum svo
lánsöm að alast upp við hliðina á þeim
og undum við hvergi eins vel og í
Steininum, eins og húsið þeirra var
nefnt. Þar var algjör friðarreitur í ná-
vist þeirra. Amma ávítaði okkur börn-
in aldrei, hún sagði aðeins „svona ger-
ir maður ekki“, með þeirri ró sem
einkenndi hana. Hún upplýsti okkur
um lífið og allt það sem máli skipti í
samskiptum við aðra. Við hlustuðum
alltaf á það sem amma sagði. Hún var
þannig.
Í öll þessi ár sá ég ömmu aldrei
reiðast. Hún var einstök kona, víðsýn,
greind og full af visku. Hún hafði ríka
réttlætiskennd og lifði þannig að við
sem þekktum hana elskuðum hana og
virtum. Hlýjan hennar umvafði okkur
öll. Góða skapið og hinn sterki per-
sónuleiki var styrkur hennar í lífinu.
Í minningunni á ég fullt af heilræð-
um og visku frá henni ömmu og
ógleymanlegum stundum sem munu
ylja mér um ókomna tíð.
Orð segja fátt um svo stórbrotna
konu en þau verðmæti sem hún gaf
okkur með því að vera það sem hún
var eru ómetanleg. Amma var mikil
listakona til allra verka. Hún var allt-
af með heklunálina nálægt sér og eru
ótalin öll þau verk sem hún gerði.
Einnig elskaði amma blóm og var
heimili hennar alltaf umvafið blómum
og þá helst rósum. Blómin annaðist
hún af umhyggju eins og allt sem hún
fór höndum um. Síðustu æviárin
dvaldi amma á Sjúkrahúsi Patreks-
fjarðar og vil ég þakka öllum þar fyrir
alúð og hlýju í hennar garð.
Í hljóðri bæn vil ég þakka fyrir að
hafa átt þá ömmu sem hún var. Guð
varðveiti elsku ömmu mína.
Sólrún Þorgeirsdóttir.
< 4
# # ,
'# " ,% '
4! !
!
5
/1/2 ; 7 --')6 "&
!%& E8
6
( !
5#%
&) 5#% "# ! !' "
%&" 5#% "# !' " #
3 # '
! # ,
4
" ,"'
4!
I 9
9 & ;7 "#
"