Morgunblaðið - 08.05.2001, Page 65
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2001 65
Á DÖGUNUM keypti ég forrit af
fyrirtæki á netinu. Forritið heitir
Netstudio og var á sérstöku tilboðs-
verði, kostaði
tæpa 70 dollara.
Ég vissi að ég
myndi þurfa að
greiða 28 dollara í
sendingarkostn-
að. Fyrir hvort
tveggja greiddi
ég með greiðslu-
korti mínu.
Pakkinn var
um hálfan mánuð
á leiðinni og svo tók við alls kyns ves-
en; þurfti að faxa undirritað leyfi til
tollafgreiðslu í Reykjavík svo þar
mætti opna pakkann því „við tökum
ekkert mark á græna miðanum með
verðinu utan á pakkanum“ sagði mér
Halla nokkur á tollafgreiðslu. Einn
starfsmaður Íslandspósts sagði að
ég þyrfti að fylla út aðflutnings-
skýrslu eða greiða fyrirtækinu 1.500
krónur fyrir slíkt en annar starfs-
maður bar það til baka.
Broshýr stúlka af pósthúsinu á
Akranesi birtist svo með pakkann og
krafði mig um 3.595 krónur! Hún
vissi nú ekki fyrir hvað þessi upphæð
væri. Skyndilega hafði varan hækk-
að um rúmlega 50%, í meðförum tolls
og Íslandspósts. Ég hringdi út og
suður og fékk loks þessar skýringar:
Kr. 905,- tollur.
Kr. 2.440,- vsk.
Kr. 250,- tollmeðferðargjald.
Tollurinn var ekki bara lagður á
vöruna sem ég keypti (geisladiskinn)
heldur einnig á sendingarkostnað.
Ég borga líka virðisaukaskatt af
flutningskostnaði og loks borga ég
einhverju skrifstofuliði 250 kall fyrir
að reikna þetta allt út.
Nú efast ég ekki um að þetta sé
löglegt (enda fullvissaði fyrrnefnd
Halla mig um það – óumbeðin). Ég
vil hins vegar benda öllum þeim sem
hafa hugsað sér að kaupa forrit að
reyna að hlaða þeim niður af vefnum!
Það er dálítið mikið að borga meira
en 50% ofan á verðið bara til að
skaffa fólki á skrifstofum vinnu,
finnst mér. Svo vil ég endilega benda
Íslandspósti og tollinum á að láta
kúnnana sína greiða virðisaukaskatt
og toll af frímerktum póstkortum og
bréfum sem berast frá útlöndum. Ef
verið er að skattleggja sendingar-
kostnað á að gera það hvort sem um
er ræða litlar sendingar á borð við
póstkort eða verðmæti á borð við
heilan geisladisk. Í frímerkjum ligga
stórkostleg, enn óskattlögð, verð-
mæti, a.m.k. er kílóið af frímerkjum
ábyggilega frekar dýrt.
HARPA HREINSDÓTTIR,
framhaldsskólakennari og
áhugamaður um forrit,
Vallholti 19, Akranesi.
Hvernig væri að
tolla frímerki?
Frá Hörpu Hreinsdóttur:
Harpa
Hreinsdóttir
FLESTIR Íslendingar sem búa er-
lendis kannast við þá tilfinningu að
ætternisást okkar blossar upp þegar
við höfum verið fjarri Íslandi í nokk-
urn tíma. Það þýðir ekki að við
dáumst að öllu sem íslenskt er, en
landið, menningin og hrein náttúra
er sannarlega eitthvað sem við sökn-
um. Aðrir þættir kalla fram efa-
semdir. Þannig spretta upp fyrir-
tæki sem hafa náð heimsfrægð af
nánast engu, en það virðist hlakka í
landanum ef öðrum gengur miður,
s.s. Íslenskri erfðagreiningu, sem ég
tel eitt merkasta fyrirtæki sem kom-
ið hefur fram á Íslandi í langan tíma.
Ég er sannfærð um að því fyrirtæki
mun vegna vel.
Við erum ekki bara stolt af landi
okkar og menningu. Íslendingar er-
lendis eru eins konar sendiherrar
um allan heim. Við bendum á Björk,
en oftar en ekki þurfum við aðeins að
taka undir það sem blöðin skrifa um
hana og menninguna heima. Þegar
kemur að landinu og náttúru Íslands
höfum við yfirleitt lent í nokkrum
erfiðleikum. Þá er lýsing með orðum
svo fátækleg í samanburði við það
sem augað sér.
Það kom því sem himnasending
þegar ég fékk ábendingu um Iceland
worldwide www.iww.is. Þessi vefur
er víst til á íslensku líka. Allir, sem
ég sýni Ísland á þessum vef, falla
fyrir landinu. Þangað verð ég að
fara. Af einhverjum ástæðum hef ég
aldrei lesið neitt um þennan vef,
hvorki á Morgunblaðinu, Vísi eða
öðrum vefmiðlum. Ef til vill er það
fjarlægðin sem gerir það að okkur
finnst þessi vefur stórkostlegur.
Utanríkisráðuneytið og ferða-
málayfirvöld á Íslandi ættu að taka
sig saman um að kynna þennan vef.
Allir Íslendingar búsettir erlendis
ættu að vita af honum. Fyrir ólaun-
aða sendiherra eins og okkur er
þetta kynningarefni meira en nóg
laun. Alltof oft skortir okkur hæv-
ersku, en í þessu tilfelli er hún óþörf.
KRISTBJÖRG ÞORSTEINS-
DÓTTIR BLOMBERG
Svíþjóð.
Óþarfa hæverska
Frá Kristbjörgu Þorsteinsdóttur
Blomberg:
EKKI eru þingmenn bestir í hag-
fræðinni. Þeir hafa gert reglur um
það að öryrkjar sem búa einir eiga
ekki að fá meira en um 402.000 kr. á
ári. Það er ekki einu sinni hálf millj-
ón á ári. Sjálfir fá þeir miklu meira
en eina milljón á mánuði, þó ekki sé
sagt frá því. Flest þekkja muninn á
ca. 12 milljónum á ári eða 402.000 kr.
á ári.
Af þessu að dæma hefur veikt fólk
ekkert með lífið að gera, að þeirra
áliti, en eiga bara að skrimta þar til
þau deyja öll. Hvers vegna er það
talið sjálfsagt?
Fyrst þingmenn geta ekki virt
veikt fólk sem manneskjur þá eru
þeir með skemmda greind og ættu
ekki að vera við stjórn í þessu mál-
efni sem öðrum málefnum. Tel ég því
rétt að þeir hætti störfum vegna van-
hæfni í starfi því að þeir eru ekki
réttir í hagfræðinni til að hugsa á
rökréttan og samviskulegan hátt og
þess vegna virðast þeir ekki vera
með heilbrigða greind og eru þess
vegna ekki færir til að vinna þau op-
inberu störf sem þeir hafa unnið við
hingað til.
Við verðum að viðurkenna það
sem við erum vitni að, þó ekki sé að
finna að slík uppsögn hafi gerst áður
í mannkynssögunni. Eitthvað verður
að gera við þessa órökvísu einstak-
linga. Ekki er hægt að hafa þá áfram
í þingstarfi til að sjá um fjármál
þjóðarinnar þar sem þeir virðast
ekki færir um að virða mannleg rétt-
indi.
Ég krefst þess að þeir hætti op-
inberum störfum sem þingmenn, þ.e.
þeir sem eru nú í þeim störfum og
ættu þeir ekki að hafa leyfi til að
bjóða sig fram á þing aftur.
KATRÍN HALLDÓRSDÓTTIR,
Möðrufelli 3,
Reykjavík.
Megi þau hæfi-
leikaríku ríkja
Frá Katrínu Halldórsdóttur:
AFMÆLI
Ármann Halldórsson
fæddist 8. maí 1916 á
Snotrunesi í Borgarfirði
eystra, sonur Halldórs
bónda þar (f. 26. febr-
úar, 1888) Ármannsson-
ar bónda í Rauðholti í
Hjaltastaðaþinghá, Eg-
ilssonar og konu hans
Gróu (f. 29. júlí 1895)
Björnsdóttur, bónda á
Staffelli í Fellum Jóns-
sonar.
Ármann ólst upp á
Snotrunesi og vandist
öllum algengum bú-
störfum, frá æsku til
unglingsára, og á námsárunum í
Kennaraskólanum vann hann tvö
sumur á búgarði Thors Jensens á
Korpúlfsstöðum.
árið 1934 hóf Ármann nám í al-
þýðuskólanum á Eiðum og var þar
tvo vetur. Hann tók gagngræðapróf
frá Flensborg 1937 og kennarapróf
frá Kennaraskólanum 1939. Sumarið
1947 stundaði hann nám í „Den Int-
ernationale Højskole“ á Helsingja-
eyri, og fór síðar til frekara dönsku-
náms í Danmörku.
Íslenzka, sem hann
unni mjög, og danska
voru aðalkennslugrein-
ar hans við alþýðuskól-
ann á Eiðum.
Ármann var barna-
kennari í Eiðahreppi
1939–1941 og í Seyðis-
fjarðarhreppi 1941–
1944. Hann var 31 ár
kennari við alþýðuskól-
ann á Eiðum, frá 1944–
1975. Veturinn 1959–
1960 var hann settur
skólastjóri í orlofi Þór-
arins Þórarinssonar.
Frá 1975 til 1985 var hann skjalavörð-
ur á Héraðsskjalasafni Austurlands.
Ármann tók mikinn þátt í félags-
málum: var í stjórn Ungmenna- og
íþróttasambands Austurlands frá
1945 og í skólanefnd Eiðaskólahéraðs
frá 1949.
Ármann fékkst mikið við ritstörf.
Hann var ritstjóri „Snæfells“ 1947–
1949; ritstjóri „Múlaþings“ frá 1966
og ritstjóri „Sveitir og jarðir í Múla-
þingi“ I–IV 1974–1978. Hann gaf út
bækurnar „Í neðra og efra“, frásagnir
af Borgarfirði eystri og Úthéraði
1979; „Geymdar stundir“, fjögur
bindi með frásögnum af Austurlandi,
1981–1988; „Alþýðuskólinn á Eiðum“,
1983; „Hrafn á Hallormsstað“, ævi-
saga 1986; „Saga sýslunefndar Norð-
urmúlasýslu“, 1875–1988, sem var
fylgirit Múlaþings 1991; „Mávabrík“,
greinar og eigin minningar, 1992.
Greinar í safnritum: Gísli Helgason
í Skógargerði, í „Bóndi er bústólpi“ V.
bindi 1984; Þorsteinn Stefánsson á
Þverhamri, í „Bóndi er bústólpi“ í VI.
bindi 1985; Stefán Th. Jónsson, í
„Þeir settu svip á öldina“, 1987. Auk
þess á hann ýmsar greinar í Austur-
landi, Austra, Gálgási og fleiri blöð-
um.
Ármann kvæntist 6. febrúar 1954
Ingibjörgu (f. 8. maí 1926) Krist-
mundsdóttur, verkamanns á Skaga-
strönd, Jakobssonar og konu hans Jó-
hönnu Árnadóttur.
Fósturdóttir þeirra er Eygló Eiðs-
dóttir (f. 24. nóv. 1956) Péturssonar (f.
7. sept. 1922) og Margrétar Ágústu
Halldórsdóttur (f. 4. okt. 1922).
Ég vil nota þetta tækifæri til þess
að þakka þér, Ármann, frábæra leið-
sögn og hvatningu til náms, fyrst í
barnaskóla og síðar í alþýðuskólanum
á Eiðum.
Til hamingju með daginn.
Einar Jón Vilhjálmsson.
ÁRMANN
HALLDÓRSSON
INNLENT
DR. JOSÉ Molinelli heldur fyrirlest-
ur á vegum Umhverfisstofnunar Há-
skóla Íslands um náttúruvá og önnur
umhverfismál í Puerto Rico þriðju-
daginn 8. maí.
Dr. Molinelli er prófessor og for-
stöðumaður umhverfisfræðiskorar
raunvísindadeildar háskólans í Pu-
erto Rico, San Juan.
Rannsóknir hans hafa meðal ann-
ars fjallað um jarðvegseyðingu og
setmyndanir í vötnum, umhverfis-
áhrif framkvæmda og skipulagsmál,
varnir gegn mengun grunnvatns,
auk ýtarlegra rannsókna á áhrifum
jarðskjálfta og fellibylja á stærri
borgir í Puerto Rico. Fyrirlesturinn
fer fram í Lögbergi, stofu 205, og
hefst kl. 14:30.
Fyrirlesturinn er á ensku og ber
heitið: „Natural Hazards and Land
Use Planning Issues in Puerto
Rico“.
Fyrirlestur um
umhverfismál í
Puerto Rico
VINSTRIHREYFINGIN – grænt
framboð boðar til stofnfundar félags-
deildar á Suðurnesjum miðvikudag-
inn 9. maí kl. 20.30.
Félagsdeildin mun til að byrja
með ná yfir allt svæðið sunnan
Straums, sem við kjördæmabreyt-
inguna verður hluti af Suðurkjör-
dæmi. Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður VG, ræðir um flokksstarfið og
stjórnmál dagsins. Þorsteinn Ólafs-
son, formaður kjördæmisfélags VG á
Suðurlandi, mætir. Nýir félagar auk
þegar skráðra eru velkomnir á fund-
inn, sem verður á Hótel Keflavík,
segir í fréttatilkynningu.
Stofnfundur
VG á Suður-
nesjum
TÓNLEIKUM bandaríska tríósins
Blonde Redhead, sem vera áttu á
dagskrá Upprisuhátíðar Hljóma-
lindar dagana 9. og 10. maí, hefur
verið frestað fram í júní eða júlí.
Ástæða þessa eru veikindi Kazu
Makino, söngvara og gítarleikara.
Tónleikum
frestað
FLÖTUR, samtök stærðfræðikenn-
ara, stendur fyrir fræðslu- og um-
ræðufundi um stærðfræði og sér-
kennslu miðvikudaginn 9. maí nk.
Fyrirlesari og stjórnandi umræðna
verður Hafdís Guðjónsdóttir, lektor í
sérkennslu við KHÍ.
Í erindi sínu mun Hafdís einkum
beina sjónum að því hvernig algeng
einkenni á námsörðugleikum í
stærðfræði birtast hinum almenna
stærðfræðikennara. Reynt verður að
tilgreina þau, ræða hugsanlegar or-
sakir þeirra og möguleg viðbrögð
kennarans. Grunnskólakennarar
munu segja stuttar reynslusögur úr
eigin kennslu. Í kjölfar erindis síns
mun Hafdís stjórna umræðum fund-
argesta um þetta málefni.
Fundurinn fer fram miðvikudag-
inn 9. maí kl. 20 í stofu M-201 í KHÍ
og með myndfundabúnaði í Grunn-
skóla Ísafjarðar, Dalvíkurskóla,
Fellaskóla í Fellahreppi, Grunnskóla
Siglufjarðar, Grunnskólanum á
Hólmavík og jafnvel á fleiri stöðum.
Fræðslufund-
ur um stærð-
fræði
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
SVEN Þ. Sigurðsson prófessor mun
flytja erindi, sem nefnist: Reiknað í
sjóinn fimmtudaginn 10. maí kl.
16:15.
Fjallað verður um ýmis reikni-
fræðileg úrlausnarefni við hönnun á
reiknilíkani fyrir grunnsjávar-
strauma. Lýst verður, hvernig slíkt
líkan tengist reiknilíkönum af göng-
um fiska, sem verið er að þróa á
reiknifræðistofu Raunvísindastofn-
unar.
Fyrirlesturinn er á vegum Ís-
lenzka stærðfræðafélagsins og verð-
ur fluttur í stofu 157 í húsi verk-
fræði- og raunvísindadeilda Há-
skólans á Hjarðarhaga 6.
Fyrirlestur um
reiknilíkan
FRÉTTIR
mbl.is