Morgunblaðið - 08.05.2001, Side 70
ÞEGAR flestir eru búnir að afskrifa
hasarmyndahetjuna Steven Seagal,
gerast undur og stórmerki. Hinn fjall-
myndarlegi, taglprúði B-myndamað-
ur lætur allt slíkt hjal sem vind um
eyru þjóta og heldur ótrauður áfram
eftir slæm áföll. Gamla bardagahetj-
an hreinlega neitar að játa sig sigr-
aðan og á dögunum kom hann nýjustu
mynd sinni, Exit Wounds, á toppinn í
Bandaríkjunum. Hún er að hefja
göngu sína hérlendis svo hver getur
dæmt fyrir sig um afraksturinn.
Það er ekki heiglum hent að rísa
upp aftur úr duftinu í Hollywood, því
er ekki annað hægt en að taka ofan
fyrir slagsmálahundinum, það býr
aðsjáanlega meira í honum en augað
skynjar. Fer ekki á milli mála að
vöðvafjallið, sem farið er að mýkjast í
útliti sökum aukakílóanna, á hauka í
horni í kvikmyndaborginni. Öðruvísi
gerast ekki ævintýri á borð við end-
urkomu Seagals – nema í bíómynd-
um, auðvitað.
Seagal er ósvikinn meistari í jap-
önskum sjálfsvarnaríþróttum og hef-
ur jafnan verið að grufla í marklítilli
ádeilu á spillingu mannshugarins og
umhverfisvernd, meðfram barsmíð-
unum í myndum sínum. Seagal er
fæddur í Lansing í Michigan-fylki,
fyrir hálfri öld. Móðir hans er meina-
tæknir en faðirinn stærðfræðikenn-
ari. Fjölskyldan flutti til Kaliforníu
þegar litli Seagal var 7 ára gamall,
þar sem hann komst ungur í kynni við
austurlenskar bardagaíþróttir. 17 ára
hélt hann síðan til Japans, til fram-
haldsnáms í sparkmenntinni.
Í Austurlöndum dvaldist Seagal í
15, viðburðarík ár. Fyrsta kona hans,
Miyako Fujitani, var dóttir lærimeist-
ara hans, sem skírði Bandaríkja-
manninn Shigemichi Take, sam-
kvæmt japönskum hefðum.
Seagal/Take, nam Aikiado, Zen,
kendo, karate og judo en kenndi jap-
önskum ensku. Að því loknu var hann
fyrsti Vesturlandabúinn til að opna
skóla í austrænum bardagalistum í
Japan.
Mörgum sögum fer af veru Seagals
í Austurlöndum fjær, flestar sveipað-
ar nokkrum ævintýraljóma, vægast
sagt. Einhverjar frá honum sjálfum
komnar, hvað sem öðru líður, hafa
þær ekki verið hraktar. Á þessu tíma-
bili sviðsetti hann ófáar bardagasenur
í kvikmyndum stjarna á borð við Sean
Connery og Toshiro Mifune. Jafn-
aframt jókst áhugi hans á austur-
lenskum trúarbrögðuum, einkum
búddadómi. Í tengslum við hann,
lærði Seagal nálarstunguaðferðir og
segist hafa læknað margt stórmennið.
Þ.á m. háttsetta lamapresta, tíbetska,
illa á sig komna eftir pyntingar kín-
verska setuliðsins, hungur, þreytu og
aðra óáran. Lækningarnar, segir
Seagal að hafi fært sér sambönd inn í
innsta hring. Hann hafi verið gerður
að stjórnanda leynilegra aðgerða og
kemur upp leynilegum afdrepum fyr-
ir persónur sem urðu að fara huldu
höfði. Seagal hefur verið frekar fá-
máll um þennan leyndardómsfulla
kafla ævi sinnnar en látið í það skína
að hann hafi fengist nokkuð við
mannaveiðar og sver ekki af sér sam-
bönd við bandarísku leyniþjónustuna,
CIA. Aðrar heimildir greina frá sam-
vinnu hans við Tíbetsku friðarhreyf-
inguna og árið 1997 greindi Seagal frá
því að hann hefði í gegnum tíðina gef-
ið fjárfúlgur til ýmissa trúarsamtaka.
Eftir heimkomuna opnaði hinn 32ja
ára barsmíðameistari og heittrúar-
maður, skóla þar sem kenndar voru
austurlenskar varnaríþróttir og gerð-
ist lífvörður stórstjarnanna. Við-
skiptavinir hans töldu m.a. leikkon-
una (og á tímabili eiginkonu hans),
Kelly Le Brock og Michael Ovitz, um-
boðsmanninn kunna, fyrrum einn
æðsta mann Disney-veldisins og einn
valdamesta mann Hollywood um ára-
bil. Með „smáhjálp frá Ovitz, opnuð-
ust dyrnar hjá Warner-bræðrum og
innan skamms var tilbúin Above the
Law (’88), fyrsta slagsmálamynd
kappans. Seagal er einnig skrifaður
fyrir handritinu en hér kom í ljós sá
hæfileiki Seagals að velja rétta hjálp-
armenn. Til að leikstýra byrjenda-
verkinu fékk hann Andrew Davis,
kunnan töku- og auglýsingagerðar-
STEVEN SEAGAL
Seagal
lætur
aldrei
deigan
síga.
Seagal og Sharon Stone í „Above the Law“.
„Under Siege“ þykir ein skásta mynd Seagals.
Stjörnurkvikmyndanna
eftir Sæbjörn Valdimarsson
rastafani frá Jamaíku og beinbrýtur
þá jafnan með háværum THX/Dolby-
hljóðbrellum.
Marked for Death reyndist svo
firnavond að Warner gaf nýja slags-
málahundinum sínum reisupassanna.
Hinn baráttuglaði Seagal flutti sig
ósköp einfaldlega yfir til 20th Cent-
ury Fox, þar sem hann gerði Out for
Justice (’91), yfirgengilega subbulega
slagsmálamynd um löggur í Brook-
lyn. Ofbeldið höfðaði til milljónanna á
nýjan leik og aftur opnaði Warner úti-
dyrnar. Náði í hans gamla samstarfs-
mann, Andrew Davis, stjörnuna
Tommy Lee Jones, og úr varð kassa-
stykkið Under Siege (’92) – vinsæl-
asta mynd garpsins á ferlinum.
Sigrinum fylgdi Seagal eftir með
umhverfishasarnum On Deadly
Ground (’94). Tröllið leikur, leikstýrir
og framleiðir. Nú er óvinurinn auðugir
mengunarvaldar sem kæra sig koll-
ótta þótt þeir spilla umhverfinu í von
um skjóttekinn gróða. Seagal gerir sér
lítið fyrir og bjargar öllu Alaskafylki
og hnípinni eskimóaþjóðinni frá olíu-
mengun og allsherjareyðileggingu af
völdum eins slíks illmennis (sem
Michael Caine ofleikur hroðalega enda
á sínum versta kafla í leiklistarlegum
skilningi). Voðalega vond mynd, sama
gildir um Under Siege 2: Dark Terri-
tory (’95), þar sem Seagal lendir í úti-
stöðum við hryðjuverkamann í ægi-
fegurð Klettafjallanna. Sýnu verst er
þó The Glimmer Man (’96), okkar
maður á austurlenskum skartklæðum,
vopnaður helgisetningum, talnabönd-
um, hnúum og hnefum, í fávíslegri
baráttu við allt og ekki neitt. Jafn-
framt fór hetjan með smáhlutverki í
Executive Decicion (’96), hasarmynd
með Kurt Russell. Má Seagal þakka
fyrir að eiga stutt stopp í þeirri hörm-
ung en hann er sprengdur í tætlur á
upphafsmínútunum.
Óvenjuleg endalok fyrir Seagals-
ímyndina sem, bætt er upp í Fire
Down Below (’97), umhverfistrylli,
þar sem hann á í útistöðum við iðnjöf-
ur (Kris Kristofferson), sem hyggst
nota Appalachian-fjöllin sem rusla-
haug undir baneitruð úrgangsefni.
Ein versta myndin á ferlinum og allir
langþreyttir á aulalega framsettum
umhverfisverndunarboðskapnum.
Kapalfyrirtækið HBO sá um dreif-
ingu á dellu um fyrrverandi málaliða
CIA sem á í höggi við enn eitt um-
hverfisslysið í The Patriot (’98). Nú er
það djöflaveira sem ógnar öllu mann-
kyni, takk fyrir.
Enn var Seagal á byrjunarreit,
kominn í kapalsjónarpið (The Patriot
var aðeins dreift til kvikmyndahúsa
utan Bandaríkjanna). Þá rís karl upp
úr öskustónni, klippir taglið og kemst
á toppinn, sem fyrr greinir. Í Exit
Wounds fær Seagal enn og aftur
kunnan tökumann til að stjórna átök-
unum við spilltu löggurnar; að þessu
sinni sjálfan Andrzej Bartkowiak.
Ticker, næsta mynd Seagals, verður
hins vegar undir handleiðslu Alberts
Pyun, B-myndamanns, frægum að
endemum. Félagsskapurinn dálítið
þreytulegur: Tom Sizemore, Dennis
Hopper og Joe Spano. Vel má það
reynast.
mann, sem hafði reyndar gert tvær B-
myndir með Chuck Norris. Myndinni
var vel tekið og Seagal var skyndilega
orðinn vinsæll meðal hinna ófáu
slagsmálamyndaunnenda. Hard to
Kill (’89), fylgdi í kjölfarið, af sama
sauðahúsi, og tók inn vænar fúlgur.
Þriðja slagsmálaóperan heitir Mark-
ed For Death (’90), hér fæst garpur-
inn við ein ófrýnilegustu afstyrmi
kvikmyndasögunnar, hárfléttuprúða
FÓLK Í FRÉTTUM
70 ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÚ hefur fyrsta útskriftaverkefni
leiklistarnema í Listaháskóla Ís-
lands verið frumsýnt. Fyrir valinu
varð verkið Platanof eftir Anton
Tsékof í leikgerð Péturs Ein-
arssonar. Upphaflega verkið, sem
Tsékof reyndar kláraði aldrei, er
sex tímar að lengd, en það er aldr-
ei flutt í heildina.
Hér segir frá yfirstéttar Rússum
sem hittast á óðalssetri einu til að
skemmta sér og öðrum. Þetta fág-
aða fólk sleppir þó fram af sér
beislinu þegar líða tekur á nóttina,
og tekur tilfinninga- og ástarlíf
þeirra allra óvænta stefnu.
Uppsetningin er samstarfsverk-
efni Listaháskóla Íslands og Hafn-
arfjarðarleikhússins þar sem verk-
ið er sýnt. Hilmar Jónsson
leikstjóri þykir hafa náð fram
góðri túlkun hjá þessu unga og
hæfileikaríka fólki, en útskrift-
arnemarnir í ár eru Elma Lísa
Gunnarsdóttir, Gísli Örn Garð-
arsson, Nína Dögg Flippusdóttir,
Víkingur Kristjánsson, Kristjana
Skúladóttir, Björgvin Franz Gísla-
son og Lára Sveinsdóttir en einnig
kemur Erlingur Jóhannesson fram
í sýningunni.
Rússnesk klassík í Hafnarfjarðarleikhúsinu
Ástir á
óðalssetri
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Platanof og Sasha, eða bara Gísli
Örn og Nína Dögg, sem voru ánægð
að frumsýningu lokinni.
Nýbakaða leikkonan Lára Sveinsdóttir og leikarinn
Gunnar Helgason stinga saman nefjum.
Nína Björk Gunnarsdóttir óskar systur sinni, Elmu
Lísu, til hamingju með frammistöðuna í Platanof.
Leik- og listakonurnar María Ellingsen, Halldóra Geirharðsdóttir,
Margrét Örnólfsdóttir og Sóley Elíasdóttir kynntu Steineyju Skúla-
dóttur og Gígju Hilmarsdóttur fyrir klassíska verkinu Platanof.
Under siege (1992)
Verður seint talin til meistaraverka, frekar en
stjarna hennar til stórleikara. Engu að síður eldhress
spennu- og átakamynd og tvímælalaust langbesta
mynd buffsins á löngum og heldur lágreistum ferli
þessa taglprúða sparktrölls. Hér hefur hann sér til
fulltingis toppleikarann Tommy Lee Jones í hlutverki
andstæðingsins. Seagal leikur fyrrum ofurhetju sem
sestur er í helgan stein sem eiturbrasari um borð í
herflutningaskipi og lætur lítið fara fyrir sér. Þá
kemur óaldaflokkur til skjalanna sem hyggst hertaka
dallinn og kjarnorkuvopnin um borð. Þá skellir soð-
greifinn lokum á koppa sína og kirnur og fer mikinn.
Above the law (1988)
½ Fyrsta mynd bardagamannsins, gerð af nokk-
urri einlægni og Seagal leggur auðsýnilega allt undir,
vilji manns sem vill verða kvikmyndastjarna, skín úr
hverri armsveiflu og knésparki. Efnið er óttaleg
della, að hætti hússins; Seagal leikur löggumann sem
hyggst koma upp um stórtæka eiturlyfjasmyglara,
FBI, frekar en CIA, vill stela af honum glæpnum.
Undarlega samansettur aukaleikarahópur telur
stórleikara á borð við Henry Silva, Sharon Stone,
Thalmus Rasulala og Michael Rooker. Mjög heila-
skemmd en furðu brött afþreying.
Hard to kill (1989)
½ Enn vottar fyrir barnslegri einlægninni og
þeirri gagnrýnislausu sjálfumgleði sem gefur
Seagal-persónunni talsverðan slagkraft og fyll-
ingu á tjaldinu. Höfum einnig hugfast að við för-
um ekki á slíkar myndir til að dást að snjöllum
tilsvörum, vel skrifuðu handriti eða afburðaleik –
heldur afþreyingargildi einu saman. Það mælist
meira en í mörgum öðrum myndum sem taka sig
mun hátíðlegar. Dusilmenni hálfdrepa hetjuna
(sem nú er lögga), hún liggur fyrir bragðið árum
saman í dái. Vari sig svo allir hans andskotar því
stund hefndarinnar rennur upp eftir langvarandi
endurhæfingu. Sem fyrr, góð átakaatriði og
hnýsilegur leikhópur, með Kelly Le Brock, Will-
iam Sandler, Zachary Rosenkrantz o.fl., góðum
jaðarkörlum. Titill myndarinnar segir allt sem
segja þarf um leikarann.