Morgunblaðið - 11.05.2001, Síða 1
105. TBL. 89. ÁRG. FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 11. MAÍ 2001
FYRSTA hjónavígslan í Auga
Lundúna, stærsta parísarhjóli
heims, fór fram í gær.
Hjónin Simon Stapleton og
Dawn Bottomley kyssast hér
eftir að hafa verið gefin sam-
an í einum af belgjum hjólsins
sem var reist í tilefni af árþús-
undamótunum og trónir tign-
arlega á suðurbakka Thames.
Hjónavígsla
í Auga
Lundúna
AP
Tuttugu Palestínumenn særðust
í flugskeytaárásunum, flestir
þeirra lítilsháttar, að sögn palest-
ínskra lækna. Palestínumenn for-
dæmdu árásirnar og Nabil Shaath,
skipulagsmálaráðherra palestínsku
heimastjórnarinnar, sagði þær
jafngilda stríðsyfirlýsingu. Ariel
Sharon, forsætisráðherra Ísraels,
sagði árásirnar lið í aðgerðum sem
yrði ekki hætt fyrr en Palestínu-
menn létu af hermdarverkum sín-
um.
Skotið á skrifstofur Fatah
Þremur flugskeytum var skotið
á lögreglustöð og skrifstofur al-
mannavarna og leyniþjónustu Pal-
estínumanna. Skrifstofur Fatah,
hreyfingar Yassers Arafats, leið-
toga Palestínumanna, urðu fyrir
tveimur flugskeytum.
Harðir bardagar geisuðu einnig
milli ísraelskra hermanna og pal-
estínskra byssumanna við landa-
mæri Gaza-svæðisins og Egypta-
lands þar sem Ísraelsher eyðilagði
nokkrar byggingar í fyrrinótt.
Ísraelar hefna drápa á rúmenskum verkamönnum
Árás á byggingu
öryggisyfirvalda
Gazaborg. Reuters, AP.
Reuters
Palestínskir lögreglumenn hlaupa í skjól eftir að flugskeyti lenti á höf-
uðstöðvum lögreglunnar og öryggisyfirvalda í Gaza-borg í gær.
HER Ísraels skaut í gær flugskeytum á palestínsk skotmörk í Gaza-borg,
meðal annars skrifstofur öryggisyfirvalda, til að hefna sprengjuárásar sem
varð tveimur rúmenskum farandverkamönnum að bana þegar þeir voru að
styrkja girðingu við landamæri Ísraels og Gaza-svæðisins.
GEORGE W. Bush Bandaríkjafor-
seti vann mikilvægan sigur á þinginu
í Washington í gær þegar öldunga-
deildin samþykkti fjárlagaáætlun
sem leggur grunninn að mestu
skattalækkun í landinu í 20 ár.
Öldungadeildin samþykkti fjár-
lagaáætlun fyrir næsta ár með 53 at-
kvæðum gegn 47. Atkvæðin féllu að
mestu eftir flokkslínum, en fimm
demókratar greiddu atkvæði með
áætluninni og tveir repúblikanar á
móti. Áður hafði fulltrúadeildin sam-
þykkt hana.
Í áætluninni er gert ráð fyrir því
að skattar lækki um 1,35 billjónir
dala á ellefu árum, en Bush hafði
beitt sér fyrir því að þeir yrðu lækk-
aðir um 1,6 billjónir dala á tíu árum.
Þá er gert ráð fyrir því að útgjöld til
flestra málaflokka aukist ekki meira
en um 4%.
Greiðslum skulda við
SÞ frestað
Fjárlagaáætlunin er ekki bindandi
og þingið þarf að samþykkja sérstök
skattalög til að áform forsetans nái
fram að ganga. Samþykkt öldunga-
deildarinnar í gær styrkir hins vegar
stöðu forsetans mjög í baráttu hans
fyrir skattalækkuninni því nú þarf
hún aðeins að fá atkvæði 50 öldunga-
deildarþingmanna auk oddaatkvæð-
is Dicks Cheneys varaforseta.
Skattalækkunin hefði þurft að fá 60
atkvæði ef þingið hefði ekki sam-
þykkt áætlunina og demókratar
hefðu líklega getað hindrað hana
með málþófi.
Fulltrúadeildin samþykkti í gær-
kvöldi tillögu um að fresta greiðslu
skulda Bandaríkjanna við Samein-
uðu þjóðirnar þar til landið fengi aft-
ur sætið sem það missti í Mannrétt-
indanefnd SÞ nýlega. Tillagan var
samþykkt með 252 atkvæðum gegn
165 þótt stjórn Bush hefði lagst gegn
henni.
Fjárlaga-
áætlun
Bush
samþykkt
Washington. Reuters, AFP.
OF mikið kynlíf í auglýsingum,
fjölmiðlum og á Netinu er að
ganga af erótískum bókmennt-
um Frakka dauðum, að sögn
Jeans-Jacques Pauverts, eins af
helstu sérfræðingum Frakk-
lands í þessari bókmenntagrein.
Pauvert kemst að þessari nið-
urstöðu í nýju riti sínu, sýnisbók
erótískra bókmennta frá 1985 til
2000. Hann segir í viðtali við
dagblaðið Libération að þrátt
fyrir alla kynlífsumfjöllunina nú
á tímum sé „mjög lítið af erótík,
jafnvel alls ekkert“.
Pauvert spáir því að nánast
allar sögurnar sem hann valdi í
bókina falli í gleymsku og hann
hafnar mörgum þeirra með
stuttum umsögnum eins og
„þegar gleymd“.
Kynlífið
að kæfa
erótískar
bókmenntir
París. Reuters.
Hague vonast til þess að stefnu-
skráin geri íhaldsmönnum kleift að
saxa á mikið forskot Verkamanna-
flokksins í skoðanakönnunum.
Óánægja almennings með hátt
bensínverð var eitt af erfiðustu úr-
lausnarefnum Tonys Blairs forsætis-
ráðherra á kjörtímabilinu sem er að
ljúka. Þegar mótmæli bílstjóra og
bænda gegn háu eldsneytisverði
stóðu sem hæst á síðasta ári nutu
íhaldsmenn um hríð meira fylgis en
Verkamannaflokkurinn í fyrsta sinn
frá því að hann komst til valda.
Blair gagnrýndi loforð Hagues og
sagði að eina leiðin til að efna það væri
að draga verulega úr opinberri þjón-
ustu. „Valið stendur á milli metfjár-
festinga í skólum og sjúkrahúsum eða
sparnaðar í opinberri þjónustu, hæfi-
legra skattalækkana okkar eða
óábyrgra skattalækkana,“ sagði Blair.
Heath segir Hague
„aðhlátursefni“
Hague hét því einnig að Bretar
myndu halda pundinu og hafna evr-
unni á næsta kjörtímabili kæmust
íhaldsmenn til valda. Skoðanakann-
anir benda til þess að 70% Breta vilji
halda pundinu og Hague hyggst
leggja kapp á að tryggja Íhalds-
flokknum atkvæði sem flestra í þess-
um hópi í kosningunum.
Breskir íhaldsmenn eru hins vegar
klofnir í málinu og Hague komst strax
í vanda í gær vegna ummæla eins af
hörðustu stuðningsmönnum evrunn-
ar í flokknum, Edwards Heaths, fyrr-
verandi forsætisráðherra. Heath lét
þau orð falla að Hague væri orðinn að
„aðhlátursefni“ og spáði honum ósigri
í kosningunum.
Breski Íhaldsflokkurinn kynnir stefnuskrá sína
London. Reuters, AP.
WILLIAM Hague, leiðtogi breska Íhaldsflokksins, kynnti í gær stefnuskrá
flokksins fyrir þingkosningarnar 7. júní og lofaði m.a. stórfelldri skattalækk-
un. Hann kvaðst ætla að lækka skatta um alls átta milljarða punda, andvirði
1.100 milljarða króna, á fyrstu tveimur árum næsta kjörtímabils og sagði að
skattur á bensín yrði lækkaður um sex pens (8,40 krónur) á lítrann.
Lofar stórfelldri
skattalækkun