Morgunblaðið - 23.05.2001, Side 6

Morgunblaðið - 23.05.2001, Side 6
FRÉTTIR 6 MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ NÝTT sendiráð Íslands í Kanada var opnað við formlega athöfn í gær af þeim Halldóri Ásgrímssyni utanrík- isráðherra og John Manley, utanrík- isráðherra Kanada. Manley sagði við athöfnina að Ís- land og Kanada hefðu verið einu lönd- in í Norðurheimsskautsráðinu sem ekki höfðu opnað sendiráð hvort hjá öðru og taldi að með þessari opnun hefði verið stigið mikilvægt skref. Halldór Ásgrímsson sagði að þetta væri góður dagur fyrir Íslendinga því við hefðum átt samskipti við Kanada um langt skeið. „Ef litið er til þess hversu margt fólk af íslenskum uppruna býr hér, hvernig samskipti okkar hafa styrkst á undanförnum árum, og ég tala nú ekki um það að það voru Íslendingar sem uppgötvuðu siglingaleiðina til Kanada, þá má segja að það hafi verið löngu tímabært að opna íslenskt sendiráð hér,“ sagði Halldór. Sendiherra Íslands í Kanada er Hjálmar W. Hannesson, sem hefur eiginkonu sína, Önnu Birgis, sér við hlið, en auk þeirra starfa þar Helga Bertelsen sendiráðsfulltrúi ásamt rit- ara og bílstjóra. Sendiráðið er um 180 fermetrar að flatarmáli og er vel staðsett í miðborg Ottawa, skammt frá þinghúsinu og öldungadeildarþinginu. Ísland er 121. landið sem opnar sendiráð í Kanada en þetta er átjánda sendiráð Íslands. „Þetta er sögulegur dagur og gam- an að sjá hversu margir vinir Íslands komu hingað til þess að fagna með okkur í dag, og sumir langt að komn- ir,“ sagði Hjálmar W. Hannesson sendiherra við Morgunblaðið. Þetta er annað sendiráðið sem Hjálmar opnar en 1995 opnaði hann sendiráð Íslands í Kína. „Að þessu sinni höfðum við tvær vikur til þess að vinna þann undirbún- ing sem við unnum á sex mánuðum í Kína, en þetta virðist allt saman hafa gengið upp,“ sagði Hjálmar, „við eig- um þennan mikla fjársjóð sem eru Vestur-Íslendingar og við verðum að leggja áherslu á að ná til unga fólks- ins hér.“ Kanada mun opna sendiráð á Ís- landi síðar á þessu ári en Lloyd Ax- worthy, fyrrverandi utanríkisráð- herra Kanada, tilkynnti um þá ákvörðun á Íslendingadeginum í Gimli í ágúst á síðasta ári. Sú ákvörð- un kom mörgum á óvart því fyrri ráð- herrar höfðu lýst því yfir að Ísland væri neðarlega á lista yfir væntanleg sendiráð. „Þegar forsætisráðherra okkar, Jean Chretien, tók ákvörðun um að opna sendiráð á Íslandi byggðist sú ákvörðun á því að við höfðum áttað okkur á því hversu mikilvægt samb- and landanna er á fjölmörgum svið- um,“ sagði John Manley og bætti við að við værum nágrannar og ættum sameiginlegra hagsmuna að gæta þegar kæmi að Atlantshafinu og Norðurheimskautinu, sem og á sviði varnar- og öryggismála. Heimsókn í kanadíska þingið Fyrr um daginn heimsóttu Halldór Ásgrímsson og eignkona hans, Sigur- jóna Sigurðardóttir, kanadíska þingið í boði Janis Johnson, öldungadeildar- þingmanns sem er af íslenskum ætt- um. Síðan átti Halldór einkafund með John Manley þar sem þeir ræddu um NATO og samstarf á sviði öryggis- og varnarmála, og þar á meðal eldflauga- áætlun Bandaríkjamanna. „Við ræddum einnig um viðskipta- samning Kanada og EFTA-ríkjanna og vorum sammála um að það ætti að ljúka honum sem fyrst. Viðræðurnar hafa strandað á styrkjum til skipa- smíða en mér sýnist að það sé að finn- ast lausn á því,“ sagði Halldór. Annað mál sem bar á góma var loft- ferðasamningur Íslands og Kanada, en Flugleiðir hafa nú fengið heimild til þess að fljúga til Kanada fimm sinnum í viku og Hans Indriðason, stöðvarstjóri Flugleiða í Halifax, seg- ir að fyrirtækið stefni að því að fjölga flugferðum þangað í mars á næsta ári. Janis Johnson öldungadeildarþing- maður sagðist hlakka til að eiga sam- starf við Hjálmar W. Hannesson sendiherra, og að opnun sendiráðs hér hefði verið löngu tímabær. John Manley utanríkisráðherra Kanada sagði að lokum að hann hlakkaði til þess að heimsækja Ísland í haust þegar Kanada opnar sendiráð sitt þar. „Heitasta flík sem ég á er íslensk lopapeysa sem ég keypti í fríhöfninni í Keflavík í einni af mörgum millilend- ingum þar, en ég hef aldrei komið út fyrir flugvallarsvæðið en þar verður fljótlega bragarbót á,“ sagði Manley ennfremur. Nýtt sendiráð Íslands var opnað við hátíðlega athöfn í Ottawa í Kanada í gær „Góður dag- ur fyrir Íslendinga“ Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra sagði í Ottawa í gær að það hefði verið löngu tímabært að Ísland opnaði sendiráð í Kan- ada. Jón E. Gústafsson var viðstaddur opn- unina og komst m.a. að því að Ísland er 121. landið sem opnar sendiráð í Kanada en þetta er 18. sendiráðið sem opnað er á veg- um íslensku utanríkisþjónustunnar. Morgunblaðið/Jón E.Gústafsson John Manley, utanríkisráðherra Kanada, flutti ávarp við opnun sendiráðsins í Ottawa og eins og sjá má á svip- brigðum Sverris Hauks Gunnlaugssonar, ráðuneytisstjóra í utanríkisráðuneytinu, Hjálmars W. Hannessonar, sendiherra í nýja sendiráðinu, og Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra féllu orð hans í góðan jarðveg. Áður en sendiráðið var opnað fóru Halldór Ásgrímsson og Hjálmar W. Hannesson í heimsókn í kanadíska þinghúsið og þar tók Janis Johnson öldungadeildarþingmaður á móti þeim, en hún er af íslenskum ættum. FRÁ áramótum hafa verið afgreidd- ar 116 umsóknir um atvinnuleyfi fyrir erlenda nektardansara og 35 leyfi hafa verið framlengd. Um það bil 110 umsóknir bíða nú afgreiðslu. Þessar upplýsingar koma fram í svari félags- málaráðherra á Alþingi við fyrir- spurn frá Guðrúnu Ögmundsdóttur alþingismanni. Í lok mars tilkynnti Alþýðusam- band Íslands til félagsmálaráðuneyt- isins að það myndi ekki lengur veita umsagnir um atvinnuleyfi dansara á nektarstöðum. Fram kemur í svari félagsmálaráðherra að Vinnumála- stofnun muni taka að sér það hlut- verk að gefa umsóknir um atvinnu- leyfin þannig að ákvæði laga um atvinnuréttindi útlendinga frá árinu 1994 séu virt. Í svarinu segir að Vinnumálastofnun muni gera strang- ari kröfu til þeirra skjala sem leggja þarf fram vegna útgáfu tímabund- inna atvinnuleyfa til handa dönsurum í næturklúbbum, til að mynda varð- andi kaup á sjúkra- og slysatrygg- ingu, greiðslu lífeyrisiðgjalda og stað- greiðslu skatta. Þá mun stofnunin ganga eftir að afritum af launaseðlum verði skilað og sýnt verði fram á með fullnægjandi hætti að laun hafi verið greidd. Lögreglan fór 67 eftirlitsferðir á nektarstaðina Á fyrstu fjórum mánuðum ársins fór lögreglan í 67 eftirlitsferðir á nektarstaði í Reykjavík, en sjö slíkir staðir eru starfandi í borginni. Þetta kemur fram í svari dómsmálaráð- herra við fyrirspurn frá Guðrúnu Ög- mundsdóttur um eftirlit með nektar- stöðum. Fram kemur í svarinu að auk hefð- bundins eftirlits á skemmtistöðunum fylgist lögreglan sérstaklega með at- vinnuleyfum erlendra starfsstúlkna. Gerðar voru tvær athugasemdir við stúlkur sem hér hafa starfað og koma frá löndum utan ESB. Önnur stúlkan var með útrunnið atvinnuleyfi en hin hafði ekki aflað sér slíks leyfis. Auk þess áminnti lögreglan einn nektar- stað vegna brota á áfengislöggjöfinni og nokkur önnur mál eru til meðferð- ar vegna reksturs þeirra. Fram kemur í svarinu að eftirlit á nektarstöðunum hafi ekki verið aukið í kjölfar skýrslu dómsmálaráðherra um vændi á Íslandi. 116 umsóknir frá nektar- dönsurum afgreiddar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.