Morgunblaðið - 23.05.2001, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 23.05.2001, Blaðsíða 19
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2001 19 ✔ Margar stærðir og gerðir ✔ Fáið senda bæklinga ✔ Leitið tilboða Sumarhús frá Norður-Noregi ÞRJÚ helstu útgerðarfyrirtækin í Sandgerði hafa lagt niður starfsemi sína í Sandgerði á síðustu árum og selt kvóta sinn í burtu, hátt í 9.000 þorskígildistonn. Tveir trillusjómenn eru nú stærstu kvótaeigendurnir í plássinu. Bitnar þetta mjög á Sand- gerðishöfn en ríki og bær höfðu fjár- fest í henni fyrir um 800 milljónir kr. á rúmum áratug og gert að einni stærstu fiskihöfn landsins. Reiknað er með að málið verði rætt á bæj- arstjórnarfundi í dag. Samningur um sölu á öllum hluta- bréfum í Jóni Erlingssyni ehf. í Sandgerði til Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, sem greint var frá í fyrradag, er síðasti liður í brott- flutningi kvótans frá Sandgerði. Sú þróun hófst í lok ársins 1996 þegar stærsta útgerðarfélag staðarins, Miðnes hf., sameinaðist Haraldi Böðvarssyni hf. á Akranesi. Þar með færðist allur kvóti Miðness hf., frysti- hús og aðrar eignir á kennitölu HB&Co. Ekki yrði dregið úr rekstri Sandgerðingar höfðu áhyggur af þessu en urðu rólegri þegar kvóti togaranna Ólafs Jónssonar og Sveins Jónssonar var aukinn. „Nýju stjórn- endurnir fullyrtu að ekki yrði dregið úr rekstri hér. Við töldum okkur trú um að verið væri á færa kvóta á skip- in til þess að auka útgerðina,“ segir Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæj- arstjóri í Sandgerði. Fljótlega kom þó að því að útgerð skipanna var færð upp á Akranes og þau að lokum seld. Frystihúsi og annarri starfsemi var hætt í Sandgerði, meðal annars neta- verkstæði, trésmiðju, járnsmiðju og bílaverkstæði. Í staðinn var sett upp tilraunavinnsla á loðnu fyrir Japans- markað en henni var hætt fyrir ári vegna erfiðleika á markaðnum. Fólk- inu var sagt upp og verksmiðjan er á leiðinni til Lettlands. Haraldur Böðvarsson er nú með litla sem enga starfsemi í Sandgerði. Félagið seldi meginhluta húsanna til Nesfisks en ekki er vitað til hvers þau verða notuð. Einstaklingar eign- uðust verkstæðin og eru þau rekin áfram. Til Dalvíkur og Grundarfjarðar Útgerðarfélagið Njörður hf. í Sandgerði seldi Snæfelli hf. á Dalvík loðnuútgerð sína og loðnuverksmiðju í lok árs 1997, meðal annars nótabát- inn Dagfara með kvóta. Snæfell lauk við að byggja upp nýja verksmiðju en seldi síðan alla loðnuútgerð sína og vinnslu til dótturfélags Síldarvinnsl- unnar hf. í Neskaupstað, Barðsness hf. Verksmiðjan er nú rekin af því fyrirtæki en kvótinn er skráður í Neskaupstað. Njörður seldi síðan skipin Heið- rúnu og Þór Pétursson til Guðmund- ar Runólfssonar hf. í Grundarfirði í lok árs 1999, ásamt 1.450 þorskígilda kvóta. Eftir stendur fiskvinnsluhús fyrirtækisins í Sandgerði, lítið notað. Jón Erlingsson ehf. seldi togarann Hauk til Færeyja um áramót og færði kvótann á smábátinn Æskuna sem liggur í Sandgerðishöfn. Félagið seldi nú aðrar eigur sínar til Vinnslu- stöðvarinnar hf. í Vest- mannaeyjum, meðal annars 1.750 þorsk- ígildistonn í kvóta. Þess má einnig geta að Skinney-Þinganes hf. á Höfn í Hornafirði keypti nýlega Fisk- verkunina Arney ehf. í Sandgerði og eignaðist þar með bátana Arney og Skúm og 880 tonna kvóta í þorskígildum reiknað. Útgerðin var skráð í Keflavík en skipin voru gerð út frá Sandgerði. Fjárfest í höfninni „Áhrifin eiga eftir að koma í ljós,“ segir Sigurður Valur bæjarstjóri. Enn hefur ekki komið til atvinnuleys- is í Sandgerði vegna brottflutnings kvótans. Sigurður Valur segir að verkafólk úr Garði og Reykjanesbæ hafi unnið við fiskvinnslu í Sandgerði. Því hafi fækkað mjög. Þá hafi verið mikil þensla á svæðinu, meðal annars vegna uppbyggingar í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli og fjölgunar starfa við þjónustu þar. Þenslan taki hins vegar enda og segist bæjarstjór- inn óttast að fiskverkafólk í Sand- gerði verði áþreifanlega vart við sam- dráttinn næsta vetur. Sandgerðisbær og ríkið hafa lagt í mikinn kostnað við uppbyggingu Sandgerðishafnar. Segir bæjarstjór- inn að um 800 milljónum kr. hafi ver- ið varið í þetta verkefni á síðustu þrettán árum. „Við höfum verið að þessu til að þjóna útgerðunum sem best. Það er hrikalegt að sjá á eftir tekjunum sem áttu að standa undir þessum framkvæmdum,“ segir hann. Reynir Sveinsson, sem á sæti í bæjarstjórn og hafnarstjórn, segir það svekkjandi fyrir bæjarstjórnar- menn sem hafi í áratugi verið að berj- ast fyrir uppbyggingu hafnarinnar og lagt alla peninga bæjarins í hana, að sjá útgerðirnar fara með allan kvótann í burtu, og það án þess að þakka fyrir sig. Í stað stóru útgerðanna hafa kom- ið smábátar. Þar er til dæmis gerður út fjöldi aðkomubáta. Þá gerir Nes- fiskur í Garði út frá staðnum en það fyrirtæki er með öfluga bátaútgerð. Sigurður Valur segir að hafnaryfir- völd hafi reynt að standa vel við bakið á smábátunum, meðal annars með því að koma upp mörgum löndunar- krönun. Hins vegar séu miklar blikur á lofti vegna yfirvofandi kvótasetn- ingar á aukategundir hjá þeim í haust. Þá hafa risið upp önnur fisk- vinnslufyrirtæki, Skinnfiskur, sem framleiðir loðdýrafóður til útflutn- ings, og Nýfiskur en þau eru kvóta- laus. Þá er mikill rekstur hjá Trosi ehf. Bæjarstjórinn lýsir þeirri per- sónulegu skoðun sinni að ekki eigi að vera heimilt að selja kvóta milli byggðarlaga. Gera ætti mönnum að skila kvótanum þegar þeir vildu hætta, til þess að hægt væri að út- hluta honum aftur. Reynir Sveinsson bætir við þeirri skýringu að Sand- gerðingar hafi búið við það að margir stórútgerðarmennirnir hafi verið bú- settir annars staðar, og hafi greini- lega ekki haft nægilegan metnað fyr- ir hönd staðarins. Meginhluti kvóta Sandgerðinga hefur verið seldur í burtu á rúmum fjórum árum Tveir trillukarlar orðnir kvótakóngar Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Smábátarnir hafa tekið við af togurum og stórum bátum í Sandgerði. Sandgerði Reynir Sveinsson Sigurður Valur Ásbjarnarson STARFSMENN Reykjanesum- dæmis Vegagerðarinnar voru í gær í vorhreingerningum á Reykjanes- brautinni. Þeir þvoðu hringtorgið við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Sprautuðu vel á steinana sem raðað er á umferðareyjuna. Þeir sögðu að götusóparinn kæmi í kjölfarið. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Hreingern- ing á vegum AÐEINS eitt tilboð barst í stækkun grunnskóla Sandgerðis er tilboð voru opnuð í gær. Sandgerðisbær bauð út fram- kvæmdir við stækkun grunnskólans. Byggð verður álma með fjórum kennslustofum auk tengibyggingar, þá á að stækka anddyri skólans og anddyri íþróttamiðstöðvarinnar og reisa þar varðturn. Keflavíkurverktakar hf. buðu ein- ir í verkið, tæplega 70,2 milljónir kr. Er það rétt undir kostnaðaráætlun sem hljóðaði upp á tæpar 70,8 millj- ónir kr. Málið verður lagt fyrir bæj- arstjórn Sandgerðis í dag. Verkinu á að vera lokið 1. maí á næsta ári. Eitt tilboð í skólann Sandgerði TUTTUGU og sjö eldri borgarar í Gerðahreppi hafa áhuga á að leigja íbúðir, verði þær byggðar. Kom þetta fram á fundi hreppsnefndar í fyrrakvöld. Gerð var könnun meðal sjötíu eldri borgara í sveitarfélaginu. Niðurstaðan varð sú að 27 sögðust hafa áhuga á að leiga íbúð en 20 ekki. Í framhaldi af niðurstöðu könn- unarinnar samþykkti hreppsnefnd- in að halda áfram undirbúningi. Óskað verður eftir viðræðum við Dvalarheimili aldraðra á Suður- nesjum um hugsanlega byggingu íbúða aldraðra í nágrenni Garð- vangs og þjónustu frá stofnuninni. Aldraðir vilja leigja Garður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.