Morgunblaðið - 29.05.2001, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 29.05.2001, Blaðsíða 13
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 2001 13 LAURENCE Stein- grímur Guðni John- son, fyrrverandi kenn- ari og forseti Þjóðræknisfélags Ís- lendinga í Norður- Ameríku, varð bráð- kvaddur á heimili sínu í Selkirk í Manitoba í Kanada 24. maí sl. og fór útför hans fram í gær. Laurence Johnson var fæddur 29. júní 1928 í Hnausa í Mani- toba. Foreldrar hans fæddust líka á Nýja Íslandi, en hann var frá Skagafirði í móðurætt og Seyðisfirði í föðurætt. Hann ólst upp í Riverton til 18 ára aldurs og sinnti síðan ýmsum störf- um þar til hann aflaði sér kennara- menntunar, þegar hann var um fer- tugt. Eftir það starfaði hann sem kennari í Selkirk þar til hann fór á eftirlaun 1993, en hann tók háskóla- próf í uppeldisfræði við Manitobahá- skóla í Winnipeg 1975. Laurence Johnson var alla tíð mjög virkur í félagsstörfum og var m.a. í stjórn bókasafns- ins í Selkirk og í sjúkra- hússtjórn bæjarins. Hann var formaður Þjóðræknisfélags Ís- lendinga í Vesturheimi 1995 til 1998 og stjórn- arformaður Safns ís- lenskrar menningararf- leifðar í Vesturheimi, The New Iceland Her- itage Museum, sem var vígt á Gimli á liðnu ári. Hann var útnefndur Maður ársins í Selkirk 1993 fyrir störf í þágu samfélagsins og fjöl- skylda hans var heiðruð sem Fjöl- skylda ársins í Manitoba á Ári fjöl- skyldunnar 1994. Eftirlifandi kona Laurence John- son er Edith Johnson, fyrrverandi hjúkrunarkona, en þau gengu í hjónaband 26. september 1953. Þau eignuðust þrjú börn og sex barna- börn. Andlát LAURENCE S.G. JOHNSON SÆNSKI hjúkrunarfræðingurinn Ann Margret Petterson hefur dval- ist hérlendis síðustu daga til að kynna reynslu sína af starfi meðal HIV-smitaðra barna. Í samtali við Morgunblaðið segir hún mikilvægt að HIV-smituðum börnum og ung- lingum sé ekki hafnað enda eigi þau að mestu að geta lifað sams konar lífi og hver annar og haft sömu möguleika. Ann Margret Petterson starfaði í áratugi sem hjúkrunarfræðingur og var lengst af hjúkrunarfram- kvæmdastjóri á smitsjúkdóma- deild. Eftir að hún kynntist vanda- málum fólks sem smitað var af HIV-veirunni tók hún að helga því starfskrafta sína. „Fyrstu sjúkling- arnir komu á deildina hjá mér árið 1982 og upp frá því fór ég að sinna þeim sérstaklega og það sem varð kannski helst til þess var hópur sjúklinga sem smitaðist við blóð- gjöf, fullorðið fjölskyldufólk, en í hópnum var líka barn sem hafði far- ið í blóðskipti strax eftir fæðingu,“ sagði Ann Margret og kvaðst hafa hugsað á þeim tíma að þetta hefði allt eins getað komið fyrir sig, börn sín eða aðra sem stæðu henni nærri og því hefði hún lagt á þessa braut. Upp úr þessu var stofnað stuðn- ingsfélag fyrir þessa sjúklinga og upp úr miðjum níunda áratugnum fór að bera á vanda vegna fjöl- skyldna með HIV-smituð börn. „Ég varð þess strax áskynja að vandi þessara barna var mikill, þau fengu ekki inni á dagheimilum þar sem sveitarfélögin vildu að þau yrðu vistuð á einkaheimilum þar sem ekki væru önnur börn. Þannig voru þau skilin frá öðrum börn- um og ég andmælti þessu og sagði ekkert barn geta þroskast ef það gæti ekki leikið sér eðlilega við önnur börn.“ Um 50 HIV-smituð börn í Svíþjóð Á þessum tíma voru börnin 12 en nú eru þau um 50 í dag, það elsta 16 ára, og kvaðst Ann Margret hafa fylgt þeim mörgum allt frá því þau voru í móðurkviði. Fyrir nokkrum árum hætti hún síðan starfi sínu á deildinni, sagði þar sífellda kröfu um sparnað og fækkun starfs- manna, starfsfólkið kefðist hærri launa. „Mér fannst ég komin í klemmu og vildi komast út úr þessu umhverfi og gera eitthvað sem heillaði mig meira og fór að starfa að verkefni í Stokkhólmi í sam- vinnu við Rauða krossinn sem kall- að var Örkin hans Nóa,“ sagði hún, en það er heimili fyrir HIV-smit- aða. Hún hafði áður komið af stað barnaheimili fyrir HIV-smituð börn í samvinnu við kristi- lega hreyfingu í Stokkhólmi og hefur staðið fyrir dvöl þess- ara barna í sumarbúð- um og stofnað stuðn- ingshópa. Barnaheimilið starfaði allt til ársins 1996 en þá var ákveðið að HIV-smituð börn gætu dvalist á venju- legum barnaheimil- um. „Þá var farið af stað með fræðsluher- ferð, starfsfólk leik- skóla frætt um HIV- smit, það væri ekki hættulegt enda varla nokkurt ann- að smit rannsakað eins mikið og HIV. Við vitum að smitið berst ekki auðveldlega, það þarf ákveðnar kringumstæður til þess en allt sem er nýtt og óþekkt og það sem hefur með kynlíf að gera er mönnum erf- itt. En ég tel að með þessu starfi höfum við byggt upp þekkingu og unnið á fordómum og hræðslu.“ Ann Margret Petterson segir sum barnanna í lyfjameðferð, hún hefjist stundum strax eftir fæðingu en stundum síðar og haldi meðferð oft áfram fram eftir aldri en miklar framfarir hafi orðið á þessu sviði undanfarin ár. Hún segir lífið stundum erfitt fyrir HIV-smitaða unglinga þegar þeir eru að halda út í lífið, þeir verði fyrir því að vera hafnað þegar fréttist um smit þeirra. Þessir smituðu unglingar geti átt félaga og vini í skólanum sem ekkert viti um smitið en þegar kynnin gerist nánari geti erfiðleik- ar komið upp. „Við getum ímyndað okkur stúlku sem kynnist pilti og þau vilja stunda kynlíf eins og ung- lingar gera gjarnan. Um leið og pilturinn fréttir um smit stúlkunn- ar og að hann verði að nota smokk er hann horfinn. En við getum líka ímyndað okkur að ást og umhyggja verði ofan á og ungt fólk geti tekið á málunum af skynsemi og þannig gæti HIV-smitaður unglingur átt sitt fasta samband eins og hver annar venjulegur unglingur.“ Í dag kl. 15–17 heimsækirAnn Margret Petterson Alnæmissam- tökin og svarar þar fyrirspurnum og í kvöld kl. 20:15 flytur hún fyr- irlestur fyrir starfsfólk leikskóla og grunnskóla í húsi BSRB við Grett- isgötu í Reykjavík. Ann Margret Petterson starfar meðal HIV-smitaðra barna og fullorðinna HIV-smituð börn fái sömu möguleika og önnur Ann Margret Petterson PÓSTNÚMER aftan við götuheiti og mikil fjölgun netfanga eru með- al nýjunga í símaskrá Símans fyrir árið 2001 sem nú er komin út. Síma- skráin er tvískipt í ár eins og í fyrra, annars vegar skrá fyrir höf- uðborgarsvæðið og hins vegar landsbyggðina. Gullfjöll heitir myndin sem prýðir forsíðu höf- uðborgarskrárinnar og Íslandslag myndin á landsbyggðarskránni og eru báðar eftir Svavar Guðnason, að því er fram kom á blaðamanna- fundi Símans í gær. Skráin kemur út í 230.000 eintökum og er um- fangsmesta prentverk sem unnið er árlega á landinu. Úr símaskránni síðan í fyrra voru unnin 200–250 tonn af moltu, sem nýtist sem áburður, en árlega eru gamlar símaskrár sem við- skiptavinir skila settar í jarðgerð og gerð úr henni molta sem nýtist til uppgræðslu og hvers kyns rækt- unar. Unnið hefur verið að þróun aðferða við jarðgerð skrárinnar undanfarin tvö ár undir merkjum verkefnisins Skil 21 og er Síminn eitt 16 fyrirtækja sem taka þátt í verkefninu, sem miðar að því að draga úr mengun og bæta endur- vinnslu með lífrænumúrgangi. Símaskránni verður dreift í sam- vinnu við Flytjanda, Esso og Olís um allt land en einnig liggur hún frammi í öllum verslunum. Símaskrá fyrir árið 2001 komin út 250 tonn af moltu unnin úr gömlu skránni Morgunblaðið/Sigurður Jökull Heiðrún Jónsdóttir, Þórarinn V. Þórarinsson og Anton Örn Kærnested kynna nýju símaskrána. SVIFDREKAFLUGMAÐUR slas- aðist á baki þegar hann rakst utan í hlíð Stóra-Reykjafells og brotlenti vestarlega á Hellisheiði á sunnu- dagskvöld. Lögregla og sjúkraflutn- ingamenn frá Selfossi fóru á staðinn og þurftu að bera manninn á sjúkra- börum 300 metra leið frá fjallshlíð- inni og niður að sjúkrabíl, sem ók honum á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. Maðurinn var ásamt öðrum að stunda svifdrekaflug ofan af Skarðs- mýrarfjalli og skiptust þeir á að svífa niður vængjum þöndum. Orsakir óhappsins liggja ekki fyrir, að sögn lögreglunnar á Selfossi. Tilkynning um óhappið barst lög- reglunni um kvöldmatarleytið á sunnudag og var maðurinn kominn undir læknishendur í Reykjavík tæpum þremur tímum síðar. Af slysadeild lagðist maðurinn inn á bæklunardeild Landspítalans í Foss- vogi en þar gat enginn gefið upplýs- ingar um líðan hans þegar eftir því var leitað í gær. Svifdreki brotlenti á Hellisheiði SVÖRTU svanirnir tveir, sem héldu til á Reyðarfirði fyrir skömmu, sáust um helgina í Lóni rétt sunnan við Hvalnes í Austur-Skaftafellssýslu. Björn G. Arnarson, fuglaáhugamaður á Höfn, fékk ábendingu um að sést hefði til svörtu svananna á sunnudag og kom hann auga á þá í álftahópi við Vík í Lóni á sunnudagskvöld. Þegar þeirra var vitjað í gær sáust þeir hvergi, en Björn segir ekki útilokað að þeir séu ennþá í Lóninu enda er þar mikið flæmi og þangað sækir alla- jafna mikið af álftum. Svörtu svanirnir sáust í Lóni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.