Morgunblaðið - 29.05.2001, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 29.05.2001, Blaðsíða 15
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 2001 15 FJÖLMENNI var á hverfishátíð Vesturbæjar sem haldin var á KR- vellinum á laugardag. Meðal þess sem boðið var upp á voru dans- atriði og fjöldasöngur nemenda úr Vesturbæjarskóla við harm- onikkuundirspil. Leiktækjum hafði verið komið fyrir á bílastæðinu fyrir framan KR heimið og nýttu fjölmörg börn tækifærið og prófuðu stultur og uppblásna hoppkastala. Herra Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri fluttu ávörp í tilefni dagsins. Þá var efnt var til knatt- spyrnuveislu og keppti lið presta, Prestley United, við lið alþingismanna. Lið presta fór með sigur af hólmi í stuttum en fjör- ugum leik. Fjör á hverfis- hátíð Vesturbær Morgunblaðið/Halldór Kolbeins TIL stendur að gera breytingar á deiliskipulagi Grjótaþorps og mun borgarráð að öllum líkindum fjalla um málið í dag. Í framhaldi af því verður deiliskipulagið sett í for- kynningu en íbúum og hagsmuna- aðilum á svæðinu hafa þegar verið kynntar tillögurnar. Að sögn Jóhannesar Kjarval, hverfisstjóra hjá Borgarskipulagi, er verið að taka saman ýmsar breyt- ingar sem hafa legið í loftinu eða verið gerðar undanfarinn áratug. Sérstaklega sé verið að framfylgja ákvæði í skipulagslögum er varða hverfisvernd og er það í fyrsta skipti sem slíkt er gert. Að sögn Jóhannesar nær deili- skipulagið meðal annars til hornsins á Túngötu og Aðalstræti og húsa nr. 12, 14 og 16 við Aðalstræti auk lóða við Túngötu sem hafa verið notaðar undir bílastæði um árabil. „Það var áformað að byggja þarna verslana- og skifstofuhúsnæði en nú er áformað að byggja þarna hótel með bílastæðum neðanjarðar,“ segir Jóhannes um fyrirhugaðar breytingar á fyrra deiliskipulagi á þessu svæði. Ný frambygging við Morgunblaðshöllina Hann segir jafnvel standa til að gera fornminjarnar sem komið hafa í ljós við uppgröft í Aðalstræti að- gengilegar og segist vona að það mál skýrist á næstu vikum. Þær hugmyndir eru þó ekki í beinum tengslum við deiliskipulagið. Að sögn Jóhannesar eru aðrar breytingar minniháttar. „Það er gert ráð fyrir að aftasti hluti Aðalstrætis 4 sem nær aftur að húsi Sögufélagsins og endar í einnar hæðar skúrbyggingu, verði rifinn. Þá er lagt til í deiliskipulaginu að heimiluð verði ný frambygging við hliðina á Morgunblaðshöllinni,“ seg- ir Jóhannes en svæðið frá Aðal- stræti að Sögufélagshúsinu er ein samhangandi lóð. Að sögn Jóhannesar er einnig gert ráð fyrir lóðabreytingum á svæðinu bak við húsið sem nú hýsir skemmtistaðinn Clinton. Meðal ann- ars er fyrirhugað að leggja þar bíla- stæði. Breytingar á skipulagi Grjótaþorps Hótel og bílastæði neðanjarðar Miðborg HELGI ÞÓR Helgason hefur verið ráðinn skólastjóri Öldu- túnsskóla í Hafnarfirði en bæj- arstjórn samþykkti ráðningu hans á síðasta fundi sínum. Helgi hefur verið settur skólastjóri í skólanum frá síð- ustu áramótum en fyrir þann tíma gegndi hann stöðu að- stoðarskólastjóra. Forveri hans í starfi, Viktor A. Guð- laugsson, flutti sig um set um áramót og er nú skólastjóri í Mosfellsbæ. Tveir umsækjendur voru um stöðuna. Ráðinn skóla- stjóri Öldu- túnsskóla Hafnarfjörður ÞEIR sem hafa átt leið um Bakka- tjörn hafa eflaust tekið eftir tveimur skiltum sem nýlega var komið fyrir þar í grennd en skiltin hafa að geyma upplýsingar um fuglalíf og annan fróðleik. Að sögn Jens Péturs Hjaltested, formanns umhverfis- nefndar, er þetta til komið vegna þess að Bakkatjörn og nánasta um- hverfi hennar var friðlýst í vetur. Hönnun skiltanna var í höndum Jóns Baldurs Hlíðberg myndlistar- manns og Jóhanns Ísberg. Þriðja skiltið er í vinnslu og er ráð- gert að setja það niður við Gróttu. Það verður í svipuðum dúr og hin tvö, nema að fjörunni og lífinu þar verða gerð betri skil. „Þetta er í og með sett upp til að kynna fyrir veg- farendum að það eru ákveðnar regl- ur sem gilda um umferð þarna, og síðan er sagt frá umhverfinu og reynt að tengja þetta saman, þannig að segja má að um sé að ræða upp- lýsingaskilti og fræðslu í bland,“ seg- ir Jens. Hann segir að á skiltinu sem fara á í Gróttu verði upplýsingar um þær reglur sem þar gilda. „Eins verður þar aðvörun til fólks um að það passi upp á sjávarföllin, til að það verði ekki innlyksa þar úti, og því jafn- framt bent á, að lífríkið í eynni er við- kvæmt, svo að eitthvað sé nefnt.“ Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Þannig líta skiltin við Bakkatjörn út. Gróttuviti í baksýn. Skilti með fróðleik um umhverfið Seltjarnarnes EFLAUST hefur það ekki farið fram hjá neinum sem átt hefur leið vestur í bæ undanfarið, að verið er að snurfusa Eiðisgrand- ann sjávarmegin. Þegar blaðamaður var á ferð í vesturbænum á uppstigningardag vakti það athygli hans að tveir menn voru þar að störfum í all- stóru morldarflagi. Í ljós kom að þetta voru feðgarnir Jón Andrés Jónsson og Kristján Jónsson og voru þeir spurðir að því, hvers vegna þeir væru að störfum á þessum hátíðisdegi kirkjunnar og hvað þeir nákvæmlega væru að gera. „Jú, við erum að vinna fyrir gatnadeild Reykjavíkurborgar og erum þessa stundina að leggja þökur hér meðfram Eiðisgrand- anum,“ sagði Jón. „Það liggur á að klára þetta. Það var byrjað á þessu verki í fyrravor og því á að vera lokið fyrir 15. júní, til að gleðja augu fólks á þjóðhátíð- ardegi Íslendinga.“ Að sögn Jóns verður einungis þökulagt meðfram kantinum, en sáð grasfræjum í flagið. „Það verður gert á næstu dögum,“ sagði hann og bjó sig svo undir að taka á móti nýjum upprúlluðum þökum frá syni sínum, sem kom færandi hendi á einni mikilli vél- skóflu. Eiðis- grandi snurfus- aður Vesturbær
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.