Morgunblaðið - 29.05.2001, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 29.05.2001, Blaðsíða 31
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 2001 31 RÁÐSTEFNA 190 ríkja um spillingu hófst í Haag í Hollandi í gær. Síðar er stefnt að því að undirritaður verði alþjóðlegur sáttmáli á vegum Sameinuðu þjóðanna um baráttu gegn mút- um, opinberum fjárdrætti og öðru misferli í stjórnkerfinu. Benk Korthals, dóms- málaráðherra Hollands, sagði er hann setti ráðstefnuna að spillingin virti engin landamæri og því yrðu öll ríki að taka hönd- um saman í baráttunni gegn henni. Þótt ástandið í þessum málum sé betra á Vesturlöndum en víðast hvar annars staðar var það samt viðtekin venja þar til skamms tíma, jafnt hjá opinber- um sem einkafyrirtækjum, að nota mútur til að greiða fyrir viðskiptum erlendis. Ráðstefn- una sitja m.a. fulltrúar Indón- esíu, Úganda, Indlands og Pak- istans en þessi ríki eru á alþjóðlegum lista talin með þeim spilltustu. Ekki gin- og klaufaveiki ÓTTI við að gin- og klaufaveikin væri komin upp í Noregi reynd- ist ekki á rökum reistur. Ekki er þó enn alveg ljóst hvaða sjúk- dómur hrjáir tvær kýr á Finnøy og því verður bærinn í sóttkví enn um sinn eða þar til það ligg- ur fyrir. Er búist við niðurstöð- um um það fyrir vikulok. Sendimenn í verkfalli GRÍSKA utanríkisþjónustan var meira eða minna lömuð í gær en þá lögðu sjö af hverjum tíu sendimönnum, sem starfa innan Grikklands, niður vinnu og eitthvað var um að grískir sendimenn erlendis gerðu það einnig. Boðuðu þeir til sólar- hringsverkfalls til að krefjast hærri launa en að þeirra sögn hafa þau lítið hækkað í 10 ár. Þótt þeir hafi háskólapróf séu byrjunarlaun þeirra ekki nema rétt rúmlega 50.000 ísl. kr. Valdaráni afstýrt HERINN í Mið-Afríkulýðveld- inu virðist hafa komið í veg fyrir valdarán í landinu og hrundið árásum uppreisnarmanna í hernum á aðsetur forsetans, Ange-Felix Patasse, og á aðrar byggingar í höfuðborg landsins, Bangui. Haft er eftir frönskum sendimanni að allt að 100 upp- reisnarmenn hafi verið í flokkn- um, sem réðst á forsetabústað- inn, og margir hafi fallið í átökunum. Sagt er að uppreisn- armennirnir séu úr hersveitum sem reyndu að ræna völdunum 1996 og 1997. Eldur í jarð- göngum ELDUR kom í gær upp í flutn- ingabíl í jarðgöngum milli Bardonecchia og Torínó á Ítal- íu. Voru átta slökkviliðsbílar kallaðir á vettvang og tókst að slökkva eldinn í bílnum á skömmum tíma. Voru 14 manns fluttir á sjúkrahús af ótta við að þeir hefðu orðið fyrir reykeitr- un. STUTT Sáttmáli gegn spillingu ABDURRAHMAN Wahid, forseti Indónesíu, fyrirskipaði í gær örygg- ismálaráðherra sínum að tryggja að hægt yrði að halda uppi lögum og reglu í land- inu. Forsetinn gekk þó ekki svo langt að lýsa yfir neyðarástandi, eins og búist hafði verið við, til að geta leyst upp þingið og komið í veg fyrir að það höfðaði mál á hendur honum til embættismissis. Neðri deild þingsins kemur saman á morgun til að ræða hvort höfða eigi mál á hendur forsetanum sem hefur verið sakaður um aðild að tveimur spillingarmálum og vera óhæfur til að gegna embættinu. Talsmaður for- setans sagði á sunnudag að hann myndi lýsa yfir neyðarástandi ef neðri deildin ákvæði að hefja máls- höfðunina sem hann segir geta orðið til þess að landið leysist upp. Her Indónesíu hefur lýst því yfir að hann myndi ekki styðja slíkar ráðstafanir af hálfu forsetans. Ríkissaksóknari Indónesíu sagði í gær að Wahid væri ekki viðriðinn spillingarmálin en líklegt þykir að andstæðingar forsetans reyni samt að svipta hann embættinu. Óeirðir á Austur-Jövu Þúsundir stuðningsmanna forset- ans gengu berserksgang í gær í að minnsta kosti fimm bæjum á Austur- Jövu, höfuðvígi stærstu samtaka múslíma í landinu, Nahdlatul Ulama, sem Wahid fór fyrir þar til hann tók við forsetaembættinu fyrir 19 mán- uðum. Ráðist var á byggingar sem tengjast andstæðingum forsetans. Stuðningsmenn og andstæðingar forsetans hafa hótað óeirðum á göt- um höfuðborgarinnar þegar neðri deild þingsins kemur saman á morg- un. Lögregluyfirvöld hafa varað við því að skotið verði á þá sem reyni að ráðast inn í þinghúsið. Andstæðingar Wahids sögðu að fyrirmæli hans í gær væru óþörf því það væri þegar í verkahring öryggis- málaráðherrans að tryggja að haldið yrði uppi lögum og reglu í landinu. Þingið í Indónesíu íhugar að höfða mál á hendur forseta landsins Wahid sviptur embættinu? Jakarta. AFP. Abdurrahman Wahid AP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.