Morgunblaðið - 29.05.2001, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 29.05.2001, Blaðsíða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. ALLIR smábátar á Ísafirðivoru í höfn á laugardag,þegar fundur um at-vinnumál á Vestfjörðum hófst í íþróttahúsinu á Torfnesi á Ísafirði. Mikill straumur af fólki var til bæjarins um morguninn og kom fólk víða að, bæði frá Strandasýslu og Barðastrandarsýslum. Boðað var til fundarins í kjölfar þess að Alþingi frestaði ekki gildistöku laga um kvótasetningu smábáta á ýsu, ufsa og steinbít fyrir þinglok. Alþýðu- samband Vestfjarða, bæjarstjórnir, sparisjóðir og smábátasjómenn boð- uðu til fundarins. Í samtali við Morg- unblaðið áður en fundurinn hófst, sagðist Árni M. Mathiesen, sjávar- útvegsráðherra, oftast hafa komið til Ísafjarðar undir skemmtilegri kringumstæðum. Stjórnvöld reyna að finna lausn Í framsögu sinni sagði ráðherra, að það hefði verið vilji stjórnvalda að gera breytingar á lögunum sem taka gildi þann 1. september næstkom- andi, fyrir þann tíma, og vísaði þar til frumvarps sem var tilbúið, þar sem gert var ráð fyrir að aflaheim- ildir í ýsu yrðu auknar um 1800 tonn og í steinbít um 1500 tonn. Frum- varpið var ekki lagt fram, eins og kunnugt er, vegna andstöðu þing- manna, þar á meðal Kristins H. Gunnarssonar, þingflokksformanns Framsóknarflokksins. Árni sagðist harma að þessi mála- miðlunartillaga hafi ekki náð fram að ganga. Hann sagði að stjórnvöld væru ekki hætt að vinna í því að finna lausn á málinu og bað Vestfirð- inga um að sýna sér biðlund. „Við náðum ekki að leysa það á þann hátt sem ég hafði vonast til og við þurfum því að leita annarra leiða til að ná markinu. Ég veit að við höfum ekki mikinn tíma til að sýna ykkur fram á það sem við erum að gera. En ég vil biðja ykkur um að sýna okkur bið- lund, þó það þurfi ekki að vera lengi og sjá hvort við getum ekki komið með lausn sem getur hjálpað okkur í þessum vanda.“ Ráðherra sagði að ríkisstjórnin vildi byggja allt landið. „En það skiptir þjóðina alla í heild sinni mestu máli að sjávarútvegurinn sé öflugur og við verðum að gera það á þann hátt að við drögum ekki úr heildarstyrk sjávarútvegsins, því það er ekki farsælt fyrir hinar dreifðari byggðir að sjávarútvegur sé veikur.“ Árni sagði það hlutverk nefndar sem var skipuð til að endur- skoða lög um stjórn fiskveiða, að skoða fiskveiðistjórnunina bæði í hinu stóra samhengi og í samhengi byggðanna. Nokkuð hefur verið gagnrýnt, m.a. á fundinum á laug- ardag, að lög um kvótasetningu smábáta taki gildi, áður en nefndin hefur lokið stöfum. „Það var ljóst í upphafi þegar lögin voru sett (í janú- ar 1999), að lögin sem taka gildi þann 1. september næstkomandi myndu taka gildi áður en endur- skoðunarnefndinni var ætlað að skila niðurstöðum,“ sagði Árni. Hann sagðist vona að nefndin muni skila af sér sem fyrst og að ríkis- stjórnin muni ekki bíða þangað til með að finna lausn á málinu. Árni sagði að sjávarútvegurinn hafi vissulega mikil áhrif á byggða- þróunina, en að kvótakerfið væri ekki eini orsakavaldurinn í breyttu byggðamynstri í landinu, þótt það skipti þar miklu máli. Færeyska fiskveiðistjórn- unarkerfið happadrjúgt Snorri Sturluson, smábátasjó- maður á Suðureyri, sagði kvótakerf- ið hafa farið mjög illa með atvinnu- lífið í fjórðungnum, en að aftur hefði birt til í þorpunum þegar róður smá- báta hófst og að aftur hefði verið næga vinnu að fá. Hann sagði kvóta- kerfið ekki hafa skilað neinum ár- angri þar sem fiskistofnar væru í sögulegu lágmarki og að skuldir sjávarútvegsins hefðu aldrei verið meiri. Hann spurði hvort ekki væri kominn tími til að kasta kvótakerf- inu, sem Íslendingar hafi burðast með í 17 ár og hafi engu skilað, út í hafsauga. Hann lagði til að svipað fiskveiðistjórnunarkerfi og Færey- ingar hafa tekið upp, sóknar- og flotastýringarkerfi, yrði tekið upp hér á landi, þar sem það hafi reynst mjög happadrjúgt. Snorri þakkaði sjávar- útvegsráðherra fyrir komuna á fundinn. Hann sagði hann ekki vera vondan dreng, en að hann hefði vonda ráðgjafa. Hann harmaði að Davíð Oddsson forsætis- ráðherra hefði ekki þegið fundar- boðið og sagði fálæti hans gagnvart vandamálum landsbyggðarinnar ótrúlegt. Snorri gerði einnig síðustu starfs- daga Alþingis að umræðuefni. „Fyr- ir réttri viku virtist þingræðið fótum troðið á Íslandi. Fullyrt var að á Al- þingi væri meirihluti fyrir því, að fresta gildistöku laga um smábáta, en málið fékkst ekki rætt. Fram- komin tillaga tveggja vestfirskra þingmanna var fryst í nefnd, sem er undir forystu tveggja annarra vest- firskra þingmanna. Fimmti þing- maðurinn okkar segir öllum að halda ró sinni, allt muni fara vel, hann viti ýmislegt sem aðrir vita ekki. „Hvað er að gerast?,“ spurði Snorri. Lilja Rafney Magnúsdóttir, vara- formaður Alþýðusambands Vest- fjarða, sagði það auka enn og samdrátt á veiðum og fjórðungnum, að smáb væri kvótasettur áður en endurskoðun á fiskveiðilö lægi fyrir. Smábátaútgerð sne alla Vestfirði Lilja benti á að í kjölf kerfisins hafi fleiri hundr störf sín til sjós og lands o hafi komið í staðinn, þar til kerfið leit dagsins ljós og komið í veg fyrir að by leggðust af. „En stjórnvöl hræra í því kerfi svo að það á brask og vitleysu og nú þar smiðshöggið. Kvótas svo afleiðingarnar verði þ og í stóra kerfinu,“ sagði L ney. Hún sagði smábáta snerta alla undirstöðu þ Vestfjörðum verði mögule aðrar atvinnugreinar og s uppbyggingu. Hún sagði m að verkafólk krefðist þess arendurskoðuninni á lö stjórn fiskveiða verði tek sjávarbyggðanna til stran að flotanum verði skipt upp arflokka eftir stærð og teg veiðarfærum. „Óheft fra versti óvinur okkar og vei verða að vera bundin bygg stórum hluta,“ sagði hún. „ vel að margir valda- og h aðilar vilja sjá allar veiðih ar í höndum örfárra útge tækja og láta sig eng byggðahrun á landsb Leiguliðahlutverkið til sjós hlutskipti sem biði marga í og er það í dag orðin s víða.“ Lilja sagði að Starfsgr band Íslands hefði sent fyrirspurn til ríkisstjórnari sem krafist var svars um ríkisstjórnin hyggðist br þeim vanda sem við blasi afkomu heilu byggðarlag fjölda fólks. Svar hefur ekk ist og sagði Lilja, að stra grípa til aðgerða ef byggðu ekki að blæða út. Störfum í sjávarútv hefur stórfækka Haukur Már Sigurðarso bæjarstjórnar Vesturbygg að íbúum V hefði fækkað manns frá árin að ætla megi a útsvarstekjur félaganna veg nemi allt að 1,5 milljar Hann benti á að 10.338 ton heimildum í þorski hefðu v frá landshlutanum frá fiskv 1992-93, en að á sama tí veiðiheimildir í þorski auki á yfirstandandi fiskveiðiár borið við árið 1992-93. Ha áætlað verðmæti þeirra v ilda í þorski, sem fluttar he frá fjórðungnum nema um örðum. Haukur Már benti 1996 hafi sjö fiskvinnsluh starfandi á Ísafirði og Hníf höfðu 35 manns eða fleir Samtals hafi 620 manns sta fullu starfi. Á síðasta ári ha móti fyrirtæki af þessari gráðu aðeins verið þrjú o manns hafi verið þar í vin við 620 fyrir fimm árum o eins á Ísafirði og í Hnífsd stöndum við frammi fyrir t Fjölmenni á opnum borgarafu Ríkisstjórnin leitar lausnar í máli smábáta Átta hundruð manns, eða einn af hverjum tíu Vestfirðingum, sóttu fund um atvinnumál í fjórðungnum á laugardag, sem snerist að- allega um viðbrögð við kvótasetningu meðafla smábáta, sem tekur gildi hinn 1. september næstkomandi að óbreyttu. Hörð andstaða kom fram um kvótasetninguna og lýstu Vestfirðingar áhyggjum af framtíðinni. Nína Björk Jónsdóttir sat fundinn. „Baráttu- þrekið látum við aldrei“ OPINBER RANNSÓKN HAGVÖXTUR AÐ STÖÐVAST Í BANDARÍKJUNUM Brezka dagblaðið FinancialTimes birti frétt á forsíðu sl.laugardag þess efnis, að nýj- ar hagtölur í Bandaríkjunum sýndu að hagvöxtur væri nánast að stöðv- ast þar í landi. Endurskoðaðar hag- tölur fyrir fyrstu þrjá mánuði árs- ins sýni, að efnahagslífið vestan hafs sé veikara en áður hafði verið talið. Viðskiptaráðuneyti Banda- ríkjanna hefur birt tölur þess efnis, að hagvöxtur á ársgrundvelli miðað við fyrstu þrjá mánuði ársins nemi nú um 1,3% en ekki 2% eins og talið var í apríl. Í frétt hins virta brezka blaðs segir, að nánast enginn hag- vöxtur hafi verið í Bandaríkjunum frá því í september. Jafnframt kem- ur fram, að fjöldi atvinnulausra hafi ekki verið meiri í tæp þrjú ár og gæti numið 5% af vinnuafli á þessu ári. Það er ekki að ástæðulausu, að Financial Times leggur svo mikla áherzlu á fréttir af þróun efnahags- mála í Bandaríkjunum. Öllum er ljóst að hvort sem er vöxtur eða samdráttur þar í landi hefur gíf- urleg áhrif um allan heim. Ef bandarískt efnahagslíf er á leið nið- ur í öldudal mun efnahagur fleiri þjóða fylgja á eftir. Í forystugrein blaðsins er ekki gengið svo langt að fullyrða, að um alvarlegan samdrátt geti verið að ræða í Bandaríkjunum. Hins vegar er vakin athygli á því, að óvissan um hagvöxt eða ekki hagvöxt þar valdi margvíslegri truflun á fjár- málamörkuðum. Financial Times bendir einnig á, að mjög hafi hægt á hagvexti á evrusvæðinu. Það eigi bæði við um Þýzkaland og Frakkland. Hins veg- ar lýsir blaðið meiri bjartsýni um þróun mála í Bretlandi. Framvinda efnahagsmála í Bandaríkjunum hefur mikil áhrif á þróun mála hér á Íslandi. Kreppan, sem þjóðin gekk í gegnum á Við- reisnarárunum, hófst með verðfalli á íslenzkum sjávarafurðum vestan hafs. Við erum ekki jafnháðir fisk- mörkuðum í Bandaríkjunum og þá. Hins vegar sýnir fengin reynsla, að samdráttur í Bandaríkjunum getur haft umtalsverð áhrif á okkar litla hagkerfi, sem þolir ekki miklar sveiflur utan frá. Undirstöður íslenzks atvinnulífs eru sterkar, þótt nýjar fréttir af niðurstöðum rannsókna Hafrann- sóknastofnunar á þorskstofninum valdi áhyggjum. Það eru engir al- varlegir brestir í grundvallarþátt- um atvinnulífsins. Hins vegar er ljóst, að ýmsir þættir í efnahagslífi okkar eru neikvæðir. Menn hafa deilt um það hversu miklar áhyggj- ur eigi að hafa af viðskiptahallan- um, þótt allir séu sammála um að hann hafi verið of mikill. Gengis- lækkunin fyrir nokkrum vikum veldur mörgum í atvinnulífinu mikl- um búsifjum. Það hefur áhrif víða. Verðhækkanir í kjölfar gengis- breytinga koma við almenning eins og eðlilegt er. Það athyglisverða sjónarmið kemur fram í forystugrein Financ- ial Times sl. laugardag, að neyt- endur séu ekki enn farnir að finna fyrir samdrættinum í eigin kjörum og afkomu. Það er ekki ósennilegt að það sama eigi við hér. Forsvars- menn flestra fyrirtækja gerðu sér grein fyrir því seint á sl. ári að hið mikla góðærisskeið væri að baki og hafa síðan verið að undirbúa og framkvæma aðgerðir til þess að draga úr kostnaði. En það er ekki þar með sagt, að almenningur hafi komizt að sömu niðurstöðu enn sem komið er. Miðað við þær fréttir, sem berast frá Bandaríkjunum og Evrópu, er skynsamlegt að gera ráð fyrir að töluvert hægi á í efnahagsmálum í okkar heimshluta og þar með í helztu viðskiptalöndum okkar. Eðli- leg viðbrögð við þeim tíðindum eru að draga saman seglin og draga úr útgjöldum þjóðarbúsins, fyrirtækja og heimila svo sem kostur er. Sólveig Pétursdóttir, dómsmála-ráðherra, hefur sett sérstakan saksóknara til þess að rannsaka op- inberlega tildrög þess að Magnús Leópoldsson var á sínum tíma grun- aður um aðild að hvarfi Geirfinns Einarssonar í svonefndu Geirfinns- máli, sem olli miklu uppnámi í þjóð- félaginu á sínum tíma. Breytingar, sem Alþingi gerði á lögum, gerðu dómsmálaráðherra kleift að taka þessa ákvörðun. Magnús Leópolds- son sat í gæzluvarðhaldi í 105 daga. Það er ástæða til að fagna því, að þetta skref hefur verið stigið. Stað- reyndin er sú að öll málsmeðferð á tíma Geirfinnsmálsins hefur legið undir þungri gagnrýni og óumdeilt að saklaust fólk sat í gæzluvarðhaldi í langan tíma. Hvernig það gat gerzt er spurning, sem aldrei hefur fengizt svar við. Raunar má gagnrýna með- ferð fleiri slíkra mála frá liðnum tíma. Þegar saklaust fólk er svipt frelsi sínu setur það mark á líf þess, það sem eftir er. Þetta fólk á kröfu á, að allar upplýsingar liggi fyrir um hvers vegna þau alvarlegu mistök voru gerð, sem leiddu til frelsissviptingar að ósekju. Vonandi hefur íslenzka réttarkerf- ið þróast á þann veg, að það hafi getu til að leiða hið sanna í ljós. Það mundi létta ákveðnu fargi af öllum þeim sem við sögu komu og hreinsa andrúms- loftið. Magnús Leópoldsson og þeir, sem unnið hafa með honum að framgangi þessa máls hafa sýnt mikla þraut- seigju og úthald í baráttu sinni fyrir þessari rannsókn. Líklegt má telja, að rannsókn þessi eigi eftir að styrkja réttarkerfi þjóðarinnar þegar til framtíðar er litið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.