Morgunblaðið - 29.05.2001, Síða 35
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 2001 35
HLJÓMSVEITIN Damals und
Heute, eða þá og nú, leikur í kvöld á
tónleikum á Kirkjulistahátíð í Hall-
grímskirkju. Hljómsveitin er um
margt einstök. Verkefnaval hljóm-
sveitarinnar spannar vel þrjár aldir,
en tónlistin er ætíð leikin á hljóð-
færi þess tíma sem hún var samin á;
allt frá hljóðfærum barroktímans til
nútímahljóðfæra. Þetta er alþjóðleg
hljómsveit, og eru hljómsveitarmeð-
limir eru allir framúrskarandi tón-
listarmenn á aldrinum 25–35 ára, og
koma frá Þýskalandi, Austurríki,
Frakklandi, Hollandi, Englandi,
Ítalíu, Kanada, Ástralíu, Argentínu
og Bandaríkjunum. Til að geta kom-
ist í hljómsveitina þarf hver þeirra
að hafa mikla reynslu í leik bæði á
nútímahljóðfæri, sem og hljóðfæri
eldri tíma. Allir félagar hljómsveit-
arinnar hafa leikið með frægum
hljómsveitum á borð við Kammer-
sveit Evrópu, Musica Antiqua í
Köln, Concentus musicus í Vín, og
Ensemble Modern. Tónleikar sveit-
arinnar eru hverju sinni byggðir á
þema, og þegar verkefni hafa verið
valin, er saga hvers tónverks rann-
sökuð í þaula, til að finna bestu út-
gáfu þess, sem hljómsveitin lætur
þá gera hljómsveitarraddir eftir; en
rannsóknirnar eru einnig ætlaðar til
þess að komast að réttri hljóðfæra-
skipan og réttri uppsetningu hljóm-
sveitarinnar, miðað við það sem tón-
skáldið hverju sinni ætlaðist til.
Þetta kann víst einhverjum að þykja
full mikið á sig lagt til að spila mús-
ík, en vinnan er sannarlega þess
virði, því gagnrýnendur hafa verið
ósparir á lofið þegar leikur sveit-
arinnar er annars vegar.
Hljómsveitarstjóri Hljómsveitar-
innar þá og nú, er Bandaríkjamað-
urinn Michael Willens. Sjálfur er
hann félagi í þekktri Bach-sveit Jos-
hua Rifkins. Það er mikið um það í
tónlistarheiminum að hljómsveitir
sérhæfi sig í tónlist einhvers ákveð-
ins tímabils og leiki þá gjarnan á
hljóðfæri þess tíma. Það er hins
vegar sjaldgæft og nánast einstakt
að hljómsveitir víkki þessa hug-
mynd út með þessum hætti og leiki
tónlist þriggja alda með hljóðfærum
hvers tíma fyrir sig. Þetta hlýtur að
vera erfitt og afar krefjandi fyrir
hljómsveitarmeðlimi jafnt sem
hljómsveitarstjórann. Michael Will-
ens vill þó ekki gera mikið úr því.
Þetta er ekki erfitt
„Þetta er ekki erfitt. Flest þetta
tónlistarfólk starfar í Köln og þar
um kring, og þar er fjöldi tónlistar-
manna sem er jafnvígur á gamla
tónlist og nýja.“ Eitt af vandamál-
unum við að blanda saman tónlist
ólíkra tímabila er stilling hljóðfær-
anna, því í tímans rás hefur hljóð-
færastilling verið að hækka, og hið
víðkunna A sem stilling hljóðfæra er
miðuð við, hefur hækkað úr um 430
riðum upp í 440–442 og jafnvel
meira á þessu tímabili, og það er
munur sem eyrað nemur vel. Micha-
el Willens segist leysa þetta vanda-
mál á þann hátt, að láta hljómsveit-
ina æfa aðeins tónlist eins tímabils á
hverri æfingu, og til að reyna ekki
um of á eyru tónleikagesta er byrj-
að á barrokinu fyrir hlé, en 20. aldar
tónlistin leikin eftir hlé.
Einleikari á orgel á tónleikunum
er James David Christie. Hann var
fyrsti Bandaríkjamaðurinn til að
vinna fyrstu verðlaun í alþjóðaorgel-
keppninni í Brügge í Belgíu og hef-
ur eftir það haft ærinn starfa við
orgelleik um allan heim. Hann er nú
fastráðinn organisti Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar í Boston. James David
Christie hefur gefið sig að gömlum
hljóðfærum jafnt sem nýjum, og
hefur komið fram með ótal hljóm-
sveitum sem leika á barrokkhljóð-
færi, og hefur þá leikið á barrokor-
gel. Á tónleikunum í kvöld leikur
hann tvo orgelkonserta, Orgelkons-
ert ópus 4 númer 4 eftir Händel og
Konsert í g-moll fyrir orgel
strengjasveit og pákur eftir Pou-
lenc. James David Christie segir
uppruna orgelkonserts Händels
nokkuð sérstakan. „Händel samdi
konsertinn upphaflega sem
skemmtiatriði sem leika átti í hléi á
einni af óperum hans! Þetta var
hugsað sem skemmtimúsík meðan
óperugestir sýndu sig og sáu aðra.
En í raun er þetta einn af albestu
konsertum Händels; hann er vel
upp byggður, og mjög heilsteyptur.
Mér þykir líka vænt um þetta verk,
því þetta var fyrsta verkið sem ég
lék opinberlega, ellefu ára gamall.“
Poulenc og saumavéla-
prinsessan
James David Christie leikur
konsertinn á pósitív orgel eins og
leikið var á sínum tíma. Í konsert
Poulencs leikur hann hins vegar á
stóra Klais orgelið. Hann segir
þetta verk frægasta orgelkonsert
heims og að orgel Hallgrímskirkju
sé sérlega vel fallið til að leika á það
franska orgelmúsík. „Ég get bara
ekki leyft mér að nota alla mögu-
leika hljóðfærisins, vegna þess að
hljómsveitin er fremur lítil; – reynd-
ar þó jafn stór og hljómsveitin sem
frumflutti verkið. Það var í stofunni
hjá Frú Singer prinsessu, en orgelið
hennar var ekki svona stórt,“ segir
Christie, og bætir því við til skýr-
ingar að að Frú Singer hafi verið
dóttir saumavélaframleiðandans, og
hafi verið mikill listunnandi og vel-
gjörðarmaður listamanna. Hún gift-
ist prinsi sem einnig var í góðum
efnum og naut þess að eyða pen-
ingum í það sem hún taldi mikil-
vægt í lífinu. orchestra seemed a
natural one. James David Christie
hefur leikið konsert Poulencs meir
en hundrað sinnum á tónleikum.
„Ég hef leikið þetta verk við ólík-
ustu kringumstæður og á alls konar
hljóðfæri; allt frá tvöfaldri stærð
Klais orgelsins til hljóðfæra sem eru
ekki nema um þriðjungur þess að
stærð. Þetta er eitt af því ánægju-
legasta við að vera organisti á 21.
öldinni. Við eigum kost á að leika á
alls konar hljóðfæri, ný og nýleg, en
líka þau gömlu, sem hafa í æ ríkari
mæli verið tekin í sátt.“
Önnur verk á tónleikum hljóm-
sveitarinnar Damals und Heute eru
Sinfonia da Chiesa eftir Giovanni
Bononcini, Konsert í F-dúr fyrir há-
tíð heilags Lárentíusar, eftir Vi-
valdi; Bæn heilags Gregors fyrir
trompet og hljómsveit eftir Alan
Hovhanness og Silhouans Song eftir
Arvo Pärt. Einleikari í konsert Viv-
aldis er Ilia Korol, konsertmeistari
hljómsveitarinnar, en einleikari í
verki Hovhanness er Patrick Hen-
richs.
Tónleikar Hljómsveitarinnar Damals und Heute á Kirkjulistahátíð í kvöld
Hlémúsík varð
að orgelkonserti
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Hljómsveitin Damals und Heute á æfingu í Hallgrímskirkju.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
James David Christie organisti.
DJASSDAGAR í Garðabæ hófust í
gær og munu standa í þrjá daga. Á
hverjum degi verða haldnir eft-
irmiðdagstónleikar á Garðatorgi,
en einnig verða haldnir tvennir
stærri tónleikar í Kirkjuhvoli. Þeir
fyrri eru haldnir í kvöld kl. 20.30 og
koma þar fram tríóið Guitar Isl-
ancio ásamt Sigrúnu Eðvaldsdóttur
fiðluleikara. Þeir síðari eru haldnir
annað kvöld kl. 20. 30 og eru þeir
tileinkaðir djasstónlistarmönnum
sem búa eða hafa búið í Garðabæ.
Björn Thoroddsen er einn af
þeim listamönnum sem koma fram
á báðum tónleikum, en hann er ann-
ar af tveimur gítarleikurum Guitar
Islancio og kemur einnig fram sem
Garðbæingur á seinni tónleikunum.
Morgunblaðið náði tali af Birni þar
sem hann stóð í undirbúningi
djasshátíðarinnar. „Menningar-
málanefnd Garðabæjar, undir
stjórn Lilju Hallgrímsdóttur, setti
þessa hátíð í gang og hefur staðið
fyrir henni undanfarin ár,“ segir
Björn. „Það verða minni eftirmið-
dagstónleikar á Garðatorgi sem
eru fyrir gesti og gangandi, og svo
tvennir stærri tónleikar í Kirkju-
hvoli.“ Á tónleikum Guitar Islancio,
sem haldnir eru í kvöld, mun Sig-
rún Eðvaldsdóttir fiðluleikari koma
fram með tríóinu. „Þar er djassinn
að hitta klassíkina,“ segir Björn.
„Það verður spennandi að sjá
hvernig það verður. Hingað til lofar
þetta mjög góðu og hljómar vel
saman. Það hefur verið gaman að
vinna með Sigrúnu og ég held að
þetta verði skemmtilegt, þó að ég
segi sjálfur frá.“ Meginviðfangsefni
Guitar Islancio hefur hingað til
flutningur íslenskra þjóðlaga í létt-
ari búningi og verða þau einnig á
efnisskrá tónleikanna í kvöld. „Við
höfum farið mjög víða í efn-
issöfnun, flytjum allt frá mjög
gömlum lögum sem enginn hefur
heyrt áður til nýlegri laga,“ segir
Björn og bætir við að þeir haldi sín-
um stíl þó að klassískur fiðluleikari
hafi bæst í hópinn. „Í raun inn-
siglum við bara stílinn betur. Sig-
rún smellvirkar í þetta.“ Þetta er í
fyrsta skipti sem einleikari kemur
fram með tríóinu. Aðspurður af
hverju Sigrún hafi orðið fyrir val-
inu segir Björn að ein af ástæð-
unum sé að hún tengist Garðabæ,
en flestir þeir sem koma fram á há-
tíðinni tengjast Garðabæ á ein-
hvern hátt. „Á seinni stóru tónleik-
unum koma fram flestir af þeim
djasstónlistarmönnum landsins sem
búa eða hafa búið í Garðabæ,“ segir
Björn. „Þetta eru níu tónlistarmenn
sem spila á ýmis hljóðfæri og munu
koma fram í minni hópum, þar sem
menn koma fram sem einleikarar.“
Á hátíðinni koma fram margir af
helstu djasslistamönnum Íslands og
sú hugmynd vaknar hvort Garða-
bær hafi alið af sér sérstaklega
marga djasslistamenn. „Garðabær
gæti farið að gera út á sig sem
djassbæ, rétt eins og Keflavík gerir
sem bítlabær,“ segir Björn og hlær
við. „Það er alveg rétt að margir af
þessum mönnum eru í fremstu víg-
línu hvað varðar djass á Íslandi.
Hins vegar eru líka margir af okk-
ar færustu mönnum sem ekkert
hafa komið nálægt Garðabæ, svo
það er erfitt að slá sig til riddara
með því.“
Djassað í
Garðabæ
Morgunblaðið/Golli
Guitar Islancio ásamt Sigrúnu Eðvaldsdóttur fiðluleikara.
BERGLJÓT Jónsdóttir, stjórnandi
listahátíðarinnar í Bergen í Noregi,
vakti athygli norskra fjölmiðla á dög-
unum er hún var orðin þreytt á áhorf-
endum sem halda sína eigin hóstatón-
leika á viðburðum listahátíðar.
Frá þessu var greint á netsíðu
TV2-sjónvarpsstöðvarinnar og er þar
sagt að hósti, ræskingar og hnerri,
hafi orðið Bergljótu tilefni til að ávíta
áhorfendur. Haldið munni og nefi lok-
uðum, eða haldið ykkur heima. Þeir
sem eru kvefaðir, eða þjást af frjóof-
næmi eiga að vita betur en að mæta á
tónleika, er haft eftir Bergljótu í dag-
blaðinu Bergens Tidende.
Að sögn TV2 voru það tónleikar
með Randi Stene og norsku strengja-
sveitinni sem fylltu mælin hjá Berg-
ljótu, sem eftir það vakti athygli á að
upptökur norska ríkisútvarpsins og
listahátíðar væru ónothæfar vegna
hóstahljóða og ræskinga. Að mati
Bergljótar má hins vegar halda aftur
af slíkum búkhljóðum með smásjálf-
stjórn.
„Til þess að stöðva hnerra þrýsti ég
fingrunum að vissum punktum á nef-
inu, það hjálpar venjulega. Hóstanum
verður maður að halda í sér þar til
tárin streyma. Ég hef oftar en einu
sinni látið tárin streyma á tónleikum,
þetta snýst allt um sjálfstjórn,“ hafði
TV2 eftir Bergljótu.
Hóstaköst-
in eyði-
leggja
tónleikana
HUGLEIKUR Dagsson, Lóa
Hjálmtýsdóttir og Sólveig Einars-
dóttir, nemar í Listaháskóla Íslands,
hafa unnið að listsköpun í Skaftfelli,
menningarmiðstöð á Seyðisfirði, sl.
tvær vikur. Þau sýna afraksturinn
um þessar mundir í Norðurgötu 2 og
nefnist sýningin Framtíðin. Þar gef-
ur að líta verk unnin með blandaðri
tækni.
Sýningin stendur til 21. júlí og
verður hægt að skoða hana eftir
samkomulagi eða á afgreiðslutíma
Kaffi Láru sem er í Norðurgötu 3.
Sýningin er hluti af verkefninu
,,Hringferð 2001“ sem 2. árs nemar í
LHÍ skipulögðu.
Listsköpun
í Skaftfelli
Gerðuberg
Ljósmyndasýning grunnskóla-
nema, Smelltu af, sem stendur yfir í
Gerðubergi hefur verið framlengd til
föstudagsins 17. ágúst.
Gerðuberg er opið frá kl. 12–17
virka daga en lokað er um helgar í
sumar.
Sýning
framlengd
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
LÁNASJÓÐUR íslenskra náms-
manna. Námslán og námsstyrkir á
20. öld er eftir Friðrik G. Olgeirs-
son sagnfræðing.
Bókin er samin
og gefin út í til-
efni 40 ára af-
mælis LÍN nú í
maí en lög um
sjóðinn voru sam-
þykkt á Alþingi
20. mars 1961 og
fyrsti stjórn-
arfundur var
haldinn 26. maí.
Bókin skiptist í níu kafla og hver
þeirra í marga undirkafla.
Friðrik G. Olgeirsson er sjálfstætt
starfandi sagnfræðingur og hefur
áður sent frá sér sjö bækur og ritað
fjölda ritgerða og greina í blöð og
tímarit.
Útgefandi er LÍN. Bókin er 253
blaðsíður, prýdd um 150 ljós-
myndum og 12 myndritum. Ritið var
unnið hjá Odda.
Nýjar bækur
Friðrik G.
Olgeirsson