Morgunblaðið - 29.05.2001, Síða 46

Morgunblaðið - 29.05.2001, Síða 46
UMRÆÐAN 46 ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ AÐEINS einn nem- andi náði einkunninni 10 á samræmdu prófi í íslensku nú í vor. Hann heitir Höskuldur Pétur Halldórsson og er greinilega kapp- samur enda með ágæt- iseinkunnir í öllum námsgreinum. Fer hann góðum orðum um prófin og kennsluna í Réttarholtsskóla en lætur hann þess kurt- eislega getið að náms- efnið í íslensku hafi verið leiðinlegt og kennaranum þótt það tímaeyðsla. Hvaða ályktanir má af þessu draga? Mér er málið skylt þar sem ég hef verið íslenskukennari um langt árabil og tek starf mitt alvarlega, en að sjálf- sögðu snertir það miklu fleiri en móðurmálskennara og nemendur. Málið er alvarlegt í víðtækum skiln- ingi þess orðs. Fyrir fáum árum ritaði ég grein í Skímu, málgagn móðurmálskenn- ara, undir yfirskriftinni: Að brjóta málið til mergjar í grunnskóla. Þar reyndi ég að færa fyrir því rök að námsefni til samræmdra prófa í ís- lensku væri svo yfirgripsmikið og flókið að stór hluti nemendanna hefði litlar forsendur til að tileinka sér það. Ég tíndi til af handahófi u.þ.b. 30 hugtök sem unglingar í 10. bekk grunnskóla ættu að hafa á hraðbergi til að geta merkt í rétta reiti á einum vordegi í lífi sínu og sýndi jafnframt dæmi um hvernig unglingum er tamt að grípa til ensku í almennum tjáskiptum – jafnvel við íslenskukennarann. Ástæðan væri helst sú að áherslur á samræmdum prófum beindu kennslunni um of inn á fræðilegt svið í stað þess að efla lestur, ritun og hagnýta málnotkun. Nú hef ég fyrir framan mig nýjasta eintakið af samræmdu prófi í íslensku. Þarna blasir við nákvæmlega sama hugtakasúpan og áður og svo virðist jafnvel að fleira „góð- gæti“ hafi verið bætt út í hana, svo sem gervifrumlagi, frum- lagsígildi og nýgerv- ingu. Fyrsta spurning- in í málfræðiþætti prófsins hefst á eftir- farandi málsgrein úr Sálminum um blómið eftir Þórberg: „Steppa lemdi mig á róluvöll og Haukur mígði í mig og skítti í fiðl- una,“ og svo eiga börnin að svara spurningum um hversu margar setningar eru í þessari málsgrein, hvaða föllum forsetningarnar stýra og hvernig beyging sagnorðanna er. Varla telst þetta aðlaðandi inngang- ur að móðurmálsprófi. Höskuldur Pétur gagnrýndi sér- staklega kennslubókina Mályrkju sem lögð er til grundvallar sam- ræmdum prófum. Ekki vantar að bókin sé vönduð og metnaðarfull enda hafa höfundarnir, Höskuldur Þráinsson prófessor og Silja Aðal- steinsdóttir bókmenntafræðingur, getið sér ágætt orð, hvort á sínu sviði. Hins vegar má spyrja hvort viðhorf þeirra til móðurmálsins sé ekki heldur fræðilegt fyrir unglinga á grunnskólastigi sem hafa alist upp við myndbönd og tölvuleiki og sletta ensku í bak og fyrir vegna þess að málið er svo alvarlegt. Í þessari bók er tekin upp sú nýbreytni að kenna börnunum bókmenntasögu, sem hingað til hefur verið í verkahring framhaldsskólans og þá bætast við enn fleiri hugtök svo sem rómantík, þjóðernisrómantík og nýrómantík. Til marks um allar þessar „tíkur“ og aðrar stefnur eru svo teknir textar er höfða afar misjafnlega til unglinga sem hafa það helst að markmiði „að fitta in“ eða vera „streit“ eins og þeir segja. Þegar þetta alvarlega mál bætist við öll hin unglingavandamálin er hætt við að það lendi aftarlega í forgangs- röðinni. Þess vegna skiptir litlu í hvaða reit krossarnir lenda á sam- ræmda prófinu í íslensku. En þegar við framhaldsskólakennarar fitjum upp á bókmenntasögunni næsta ár verður viðkvæðið hjá krökkunum að þetta hafi þeir nú lært áður, eins og alla málfræðina, setningafræðina, hljóðfræðina, bragfræðina og merk- ingafræðina enda þótt þeir fullyrði blákalt að nafnorð séu til í þátíð og sagnir oftast í nefnifalli! Nemandi í 3. bekk Verzlunar- skóla Íslands á sl. vetri komst svo að orði í ritgerð að sér dytti ekki í hug að dusta rykið af grunnskóla- málfræðinni sem hefði eyðilagt fyrir sér íslenskutímana árum saman. Þessi sami nemandi skrifar villu- lausa stafsetningu og sýnir listræn tilþrif í meðferð íslensks máls. Hann hefur nefnilega lesið mikið af bókum. Ungur vísindamaður, sem bað mig að lesa yfir ritgerð, kann- aðist lítið við grundvallarhugtök málfræðinnar, svo sem þolmynd og aukasetningar. Ritgerðin hans sannaði hins vegar fyrir mér helsta aðal íslenskrar tungu – gegnsæi, skýrleika og aðlögunarhæfni. Hún fjallaði um vísindasvið sem ég hafði enga innsýn í en hvert orð var skilj- anlegt þannig að efnið lá ljóst fyrir. Það er kjarni málsins. Í stað þess að brjóta það til mergjar í grunnskóla er hyggilegra að koma nemendum á bragðið með áhugaverðu námsefni og kennsluháttum. Nóg kjöt er á beinunum og málið þarf ekki að vera svona alvarlegt. Þarf málið að vera svona alvarlegt? Guðrún Egilson Höfundur er framhalds- skólakennari. Íslenzka Hyggilegra er að koma nemendum á bragðið, segir Guðrún Egilson, með áhugaverðu náms- efni og kennsluháttum. ÍBÚAR í Háaleitishverfi hafa vak- ið athygli á þeirri hættu sem steðjar að gangandi vegfarendum, er leið eiga yfir Miklubraut til móts við Framheimilið (félagsmiðstöðina Tónabæ). Í kjölfar alvarlegs slyss á þessum stað fyrir tveimur og hálfu ári var gengist fyrir undirskriftasöfn- un í hverfinu þar sem þess var farið á leit að öryggi gangandi vegfarenda á þessum slóðum yrði tryggt sem fyrst. Á skömmum tíma söfnuðust um tvö þúsund undirskriftir og voru þær af- hentar borgarstjóra. Rétt er að hafa í huga að Miklu- braut klýfur Háaleitisbraut í tvennt en fjölmargir íbúar, ekki síst börn, unglingar og eldri borgarar, fara yfir brautina til að sækja ýmsa hverfi- stengda þjónustu hinum megin, t.d. íþróttaæfingar, kappleiki, kirkju- starf, bókasafn, félagsmiðstöð o.s.frv. Ólafur F. Magnússon, borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, tók mál- ið upp á borgarstjórnarfundi 4. mars 1999 og lagði fram tillögu um að ör- yggi gangandi vegfarenda á um- ræddu svæði yrði tryggt eins fljótt og kostur væri. Að tillögu R-listans var málinu vísað til meðferðar hjá skipu- lags- og umferðarnefnd. Það verður að segjast eins og er, að á þeim rúmum tveimur árum, sem liðin eru frá því tillögunni var vísað til nefndarinnar, hefur ekkert áþreifan- legt gerst í málinu. Sl. sumar var síð- an lokið við breikkun Miklubrautar í sex akreinar og varð hún þá enn hættulegri en áður fyrir gangandi vegfarendur. Áhugaleysi R-listans Samkvæmt reglum um kostnaðar- skiptingu ríkis og sveitarfélaga myndi Vegagerð ríkisins bera meg- inhluta kostnaðar vegna slíkrar brú- arsmíði þar sem Miklabrautin er skil- greind sem þjóðvegur í þéttbýli. Til þess að fjárveiting fáist þarf fram- kvæmdin hins vegar að vera komin á aðalskipulag sveitarfélagsins, þ.e. Reykjavíkurborgar, en því er ekki að heilsa enn sem komið er. Breyting á aðalskipulagi er þannig alger for- senda þess að fjármagn fáist til verksins og í það verði ráðist. Á með- an borgaryfirvöld inna ekki sína heimavinnu af hendi í málinu er ekki hægt að ætlast til þess að fjármagn fáist frá Vegagerðinni. Á þeim tveimur ár- um sem liðin eru frá því tillagan var samþykkt hafa sjálfstæðismenn minnt reglulega á hana og gagnrýnt áhugaleysi borgarfulltrúa R- listans í þessu máli. Viðbrögðin við þess- ari gagnrýni hafa verið lítil, og þó: Þegar við sjálfstæðismenn gagn- rýndum borgarfulltrúa R-listans fyrir seina- gang í málinu á borg- arstjórnarfundi í sept- ember sl. sakaði formaður skipulagsnefndar málshefjanda, Ólaf F. Magnússon, um þráhyggju! Tillaga sjálfstæðismanna felld Eftir að hafa ítrekað spurst fyrir um framgang málsins lögðum við sjálfstæðismenn fram eftirfarandi til- lögu í samgöngunefnd Reykjavíkur í mars sl.: „Samgöngunefnd Reykjavíkur beinir því til skipulags- og bygging- arnefndar að göngubrú yfir Miklu- braut til móts við Framheimilið (Félagsmiðstöðina Tónabæ) verði sett inn á aðalskipulag og vinnu við hönnun og annan undirbúning brúar- smíðinnar verði hraðað eins og kostur er.“ Borgarfulltrúar R- listans felldu tillöguna í samgöngunefnd og sambærilega tillögu í borgarráði. Þegar mál- ið var rætt í borgar- stjórn gáfu þeir óljós svör um að engin ástæða væri til að flýta skipulagsvinnu vegna málsins heldur yrði það skoðað við almenna endurskoðun aðal- skipulags. Afstaða R-listans í málinu gerir það að verkum að brúarsmíðin tefst um ófyrirsjáanlegan tíma. A.m.k. er ljóst að framkvæmdir vegna hennar hefjast ekki á þessu ári eins og möguleiki hefði vissulega ver- ið á. Það er slæmt að seinagangur R- listans í skipulagsmálum tefji þessa mikilvægu framkvæmd. Mörg dæmi eru hins vegar um önnur mál sem nú- verandi borgarstjórnarmeirihluti setur í forgang, t.d. þegar útvega þarf góðar lóðir fyrir vildarvini borg- arstjóra og þá sem fjármagna kosn- ingabaráttu R-listans. Kjartan Magnússon Umferðaröryggi Það er slæmt, segir Kjartan Magnússon, að seinagangur R-listans í skipulagsmálum tefji þessa mikilvægu framkvæmd. Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. R-listinn fellir tillögu um göngubrú yfir Miklubraut NÚ þegar verkfall þroskaþjálfa stendur yfir þá langar mig að- eins að koma inn á hver mánaðarlaun þroskaþjálfa eru í raun og veru, hver er framtíð stéttarinnar að öllu óbreyttu? Mér leikur einnig mikil forvitni á að vita hver eru markmið stjórn- valda í þessum geira? Ef stjórnvöld hafa einhver metnaðarfull markmið og eða til- gang með að halda úti þessarri þjónustu þá ætti öllum að vera það ljóst að það að greiða „lág- markslaun“ er ekki drifkrafturinn að settu markmiði. Mín tilfinning er sú að stjórnvöld haldi aftur af sér, vegna þess að þessi störf skila ekki beinum tekjum í ríkiskass- ann, heldur liggja þarna óbeinar tekjur, sem hafa að geyma marg- földunaráhrif út í þjóðfélagið sem ekki má gleyma. Hver eru mánaðarlaun þroskaþjálfa? Ég undirrituð er ekki mennt- aður þroskaþjálfi, en það hefur oft hvarflað að mér að mennta mig í þeirri grein, áhuginn er fyrir hendi en það er hins vegar ekki nóg. Sjálf hef ég unnið meira og minna síðastliðin átta ár á dagvist- un fyrir mikið fötluð börn, sótt mörg góð námskeið í sambandi við fötlun ofl. Þessi námskeið hafa að- eins hækkað mín lágu laun. Mán- aðarlaun mín eru 124.111. kr á mánuði á meðan háskólamenntað- ur þroskaþjálfi með námslán í far- teskinu, níu ára starfsmenntun hefur 104.714. kr á mánuði. Yf- irlýst markmið stjórnvalda er aðauka menntunarstig þjóðarinn- ar, menntun skilar meiri gæðum, auknum arði í þjóð- arbúið o.s.frv. Hvern- ig í veröldinni geta þeir þá stillt dæminu upp eins líst er hér að ofan? „JÁ“ það hefur hvarflað að mér að fara í þroskaþjálf- anám, en bara einung- is hvarflað. Þetta er ekki hvatning. Ef heldur fram sem horf- ir þá fækkar faglærðu starfsfólki, gæðin minnka, meiri kostn- aður fyrir ríkið í formi óbeinna gjalda, öll há- leitu markmiðin falla um sjálf sig. Það er nú oft þannig að auðveld- ara er að stilla upp fögrum hlutum á prenti en að framkvæma þá- .Þessi stétt þarfnast samkeppnis- hæfra launa, að öðrum kosti eins og fyrr segir næst ekki árangur, sem kemur niður þjóðfélaginu í heild sinni og ekki síst þeim sem mest þarfnast þess, fötluðu ein- staklingunum. Að lokum vil ég enda á upphafs- orðum þessa pistils; Hver hefur efni á því að vera þroskaþjálfi að öllu óbreyttu? Ekki ég. Rakel H. Ágústsdóttir Höfundur er stuðningsfulltrúi. Umönnun Þessi stétt, segir Rakel H. Ágústsdóttir, þarfnast samkeppn- ishæfra launa. Hver hefur efni á því að vera þroskaþjálfi? Mörkinni 3, sími 588 0640 G læ si le g hú sg ög n Sérpantanir Opið mán.-fös. frá kl. 12-18. Lau. frá kl. 11-14.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.