Morgunblaðið - 29.05.2001, Qupperneq 62
FRÉTTIR
62 ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
AÐFARANÓTT sunnudags voru
þrír 17 ára piltar handteknir en
þeir höfðu ógnað fólki með hnífi.
Piltarnir veittu mótspyrnu við
handtöku og höfðu í frammi hót-
anir við lögreglumenn og fjöl-
skyldur þeirra. Piltarnir viður-
kenndu að hafa ætlað að ræna
einhvern. Áhöld fundust til fíkni-
efnaneyslu.
Bifreið mældist á 117 km hraða
á Geirsgötu skömmu eftir mið-
nætti á mánudag. Hámarkshraði
þar er 50 km/klst. Ökumaðurinn
sá á eftir ökuskírteini sínu.
Lögreglan handtók 24 ára karl-
mann eftir að hann stakk vakt-
mann á hóteli með sprautunál.
Talið er að maðurinn hafi ætlað að
ræna fjármunum á staðnum.
Hann mundi lítið eftir atburða-
rásinni vegna ástands. Maðurinn
var tvívegis handtekinn í síðustu
viku vegna aðildar að vopnuðum
ránum.
Tvær konur um þrítugt voru
fluttar á lögreglustöð til yfir-
heyrslu aðfaranótt laugardags
eftir að ýmis skilríki og nokkrir
farsímar fundust í fórum þeirra.
Konurnar gátu ekki gefið viðhlít-
andi skýringar á hlutunum.
Tveir voru handteknir vegna
innbrots í húsnæði í Nauthólsvík,
annar 15 ára piltur og hinn 22 ára
karlmaður. Þeir voru þá búnir að
tína til áfengi sem þeir hugðust
hafa með sér á brott. Barnavernd-
aryfirvöldum var gert viðvart þar
sem ekki náðist í foreldra piltsins.
Karlmaður á fimmtugsaldri var
handtekinn á veitingastað í mið-
bænum eftir að ætluð fíkniefni
fundust á honum.
Lögreglu var tilkynnt um fjóra
pilta sem voru að fjarlægja tæki í
miðbænum sem tilheyrðu verk-
tökum sem vinna að framkvæmd-
um þar. Tveir piltanna hlupu á
brott er lögreglan kom en tveir
þeirra veittust að lögreglunni.
Þeir voru handteknir og fluttir á
lögreglustöð.
Lögreglumenn urðu að fá að-
stoð lásasmiðs til að fara inn í
vinnustofu við Álafossveg
skömmu eftir miðnætti á laugar-
dag. Húsráðandi hafði skilið eftir
hljómflutningstæki sín á miklum
styrk þannig að nágrannar gátu
ekki fest svefn.
Vísað úr Paradísardal
Mikill fjöldi ungmenna safnað-
ist saman í Paradísardal ofan við
Rauðavatn á föstudagskvöldið.
Lögreglan ásamt ýmsum öðrum
hafði eftirlit með svæðinu og hellti
niður áfengi þar sem það fannst
og þeim sem ekki höfðu aldur til
dvalar var vísað heim. Þremur
ungmennum var ekið heim til for-
eldra eftir að lögregla hafði af-
skipti af þeim í Elliðaárdalnum.
Fjórar rúður voru brotnar í
skólahúsnæði í Árbænum og einn-
ig voru brotnar rúður í skólahús-
næði í Breiðholti.
Höfð voru afskipti af fertugum
manni sem var að skjóta upp flug-
eldum í Breiðholti. Einungis er
heimilt að skjóta upp flugeldum
með sérstöku leyfi lögreglustjóra
nema um áramót.
Lögreglumenn urðu að hand-
taka 22 ára karlmann í Tryggva-
götu á sunnudagsmorgun fyrir að
hlýða ekki fyrirmælum lögreglu.
Lögreglan var á leið að aðstoða
slasaða konu og var sjúkralið
einnig með í för. Nota varð mace-
úða til yfirbuga manninn og
reyndu þá tveir félagar hans að
frelsa hann úr höndum lögreglu.
Úr dagbók lögreglu
17 ára piltar ógnuðu
fólki með hnífi
25.–28. maí
SJÓVÁ-ALMENNAR og Bindind-
isfélag ökumanna stóðu fyrir Öku-
leikni fyrir leigubílstjóra í sam-
starfi við Hreyfil og Bæjarleiðir í
maímánuði.
„Mikið hefur verið rætt um ör-
yggismál hjá leigubílstjórum og
mikill áhugi á að auka það enn
frekar og var ökuleiknin liður í því
að vekja menn til umhusunar um þá
ábyrgð sem fylgir því að stunda
leiguakstur, bæði með þekkingu á
lögum og reglum og með öruggum
akstri,“ segir í fréttatilkynningu.
Keppnin var fjölbreytt og voru
þrautirnar í takt við starf bílstjór-
ans. Ein þeirra var að koma 10
töskum fyrir í farangursrými á VW
Passat skutbíl. Þremur bílstjórum
tókst hið næstum ógerlega að koma
þeim öllum fyrir.
Þær þrautir sem mest reyndu á
bílstjórana var að aka í gegnum
þröngt hlið og bakka síðan bílnum í
þröngt stæði með aðra höndina
óvirka. Þeir héldu á spaða með
vatnsglasi á og máttu ekki hella
niður. Þessi þraut var notuð sem
dæmi um mikilvægi þess að hafa
báðar hendur á stýri og vildu bíl-
stjórarnir sérstaklega benda á far-
símanotkun í því sambandi og um
leið að minna á að ný lög hafa verið
sett um skyldunotkun á hand-
frjálsum búnaði við akstur. Sig-
urvegarinn varð Gunnar Ang-
antýsson og ók hann af miklu
öryggi alla brautina auk þess sem
hann var með allar umferðarspurn-
ingar réttar.
Ökuleiknikeppni leigubílstjóra
Handfrjáls farsíma-
búnaður fari í alla bíla
FJÖLSKYLDUÞJÓNUSTA kirkj-
unnar og Reykjavíkurprófastsdæm-
in efna til námskeiðs, sem einkum
er ætlað verðandi brúðhjónum.
Ætlunin er að vera nokkuð á léttum
nótum á faglegum grunni. Nám-
skeiðið er bæði hugsað sem und-
irbúningur fyrir hjónavígslu í
kirkju og fyrir hjónabandið sjálft. Á
námskeiðinu fjalla fjölskyldufræð-
ingarnir Elísabet Berta Bjarnadótt-
ir félagsráðgjafi um hjónabands-
samninginn og Benedikt
Jóhannsson sálfræðingur um góðar
samræður, sr. Sigurður Arnarson
ræðir um hjónavígsluna og þýðingu
hennar, Jón Stefánsson organisti
kynnir brúðkaupstónlist og Gunnar
Hanssson leikari spinnur svolítið
um efni námskeiðsins. Námskeiðs-
gjald er 1000 kr. á hjónaefni. Nám-
skeiðið fer fram í Grafarvogskirkju
þriðjudaginn 29. maí kl 19:30–22:30.
Væntanleg brúðhjón geta skráð sig
í kirkjunni í síma 587-9070, eða
bara mætt.
Safnaðarstarf
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurs-
hópa í neðri safnaðarsal kl. 10–14.
Bæna- og fyrirbænastund í kirkj-
unni kl. 12 í umsjá Guðrúnar K.
Þórsdóttur djákna. Léttur hádeg-
isverður á vægu verði eftir stund-
ina. Samvera foreldra ungra barna
kl. 14–16 í neðri safnaðarsal.
Hallgrímskirkja. Kl. 6.45–7.05
Morgunbænir. Fyrirbænaguðsþjón-
usta kl. 10:30. Beðið fyrir sjúkum.
Tónlistarandakt kl. 12:00. Arna
Kristín Einarsdóttir leikur einleik á
flautu. Tónleikar kl. 20:00. Das
Orchester Damals und Heute frá
Köln. Stjórnandi Michael Willens.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl.
6:45–7:05. Þriðjudagur með Þor-
valdi kl. 21:00. Lofgjörðarstund þar
sem Þorvaldur Halldórsson leiðir
söng við undirleik Gunnars Gunn-
arssonar. Sr. Bjarni Karlsson flytur
Guðs orð og bæn. Fyrirbænaþjón-
usta kl. 21:30 í umsjá Bænahóps
kirkjunnar.
Neskirkja. Tíðasöngur kl. 12:00.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón-
usta með altarisgöngu kl.18.30.
Bænaefnum má koma til sóknar-
prests í viðtalstímum hans.
Fella- og Hólakirkja. Göngustund.
Á þriðjudögum kl. 10:30 er lagt af
stað frá Fella- og Hólakirkju í
göngu í umsjón Lilju G. Hallgríms-
dóttur djákna. Gangan er ætluð
fólki á öllum aldri. Á eftir er boðið
upp á djús eða kaffi í safnaðarheim-
ilinu.
Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðar-
stund kl. 18.
Kópavogskirkja. Foreldramorgunn
í dag kl. 10:00–12:00 í safnaðar-
heimilinu Borgum.
Seljakirkja. Foreldramorgnar. Op-
ið hús milli kl. 10 og 12. Kaffi og
spjall.
Víðistaðakirkja. Aftansöngur og
fyrirbænir kl. 18.30.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyr-
ir 10–12 ára börn í Vonarhöfn,
Strandbergi, kl. 17–18.30.
Vídalínskirkja. Opið hús fyrir eldri
borgara kl. 13–16 í safnaðarheimili
Vídalínskirkju. Kaffi á könnunni.
Hægt að grípa í spil, rabba saman
og yfirleitt að hitta mann og annan í
góðu tómi.
Lágafellskirkja. Fjölskyldumorg-
unn í safnaðarheimili Þverholti 3, 3.
hæð frá kl. 10–12.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorg-
unn kl. 10–12.
Borgarneskirkja. TTT tíu – tólf ára
starf alla þriðjudaga kl. 17– 18.
Helgistund í kirkjunni sömu daga
kl. 18.15– 19.
Þorlákskirkja. Mömmumorgnar
þriðjudaga kl. 10–12.
Landakirkja í Vestmannaeyjum.
Kl. 16.30 KKK Kirkjuprakkarar
7–9 ára eiga góða stund með Sig-
urlínu og hressum leiðtogum sem
ætla að athuga hvað hægt er að
finna út úr ruslinu á Eyjunni.
Hvammstangakirkja. Æskulýðs-
fundur í kvöld kl. 20 í Hrakhólum.
Krossinn. Almenn samkoma kl.
20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomn-
ir.
Frelsið, kristileg miðstöð. Biblíu-
skóli í kvöld kl. 20.
Kaþólska kirkjan
Reykjavík – Dómkirkja Krists
Konungs: Föstudaginn 1. júní – til-
beiðslustund að kvöldmessu lokinni
(til kl. 19.15). 3. júní: Hvítasunnu-
dagur: Biskupsmessa kl. 10.30,
söfnun fyrir landið
helga. Messa kl. 18.00 á ensku.
Reykjavík – Maríukirkja við Rauf-
arsel: Sunnudaga: Messa kl. 11.00.
Virka daga: Messa kl. 18.30.
Riftún: Sunnudagar: Messa kl.
17.00.
Hafnarfjörður – Jósefskirkja:
Miðvikudagur: Messa kl. 18.30. 1.
júní: Tilbeiðslustund kl. 17.30,
messa
kl. 18.30. 3. júní: Hvítasunnudagur:
Bænastund kl. 10.00 til heiðurs heil-
ögu hjarta Jesú. Messa kl. 10.30.
Karmelklaustur: Sunnudaga :
Messa kl. 8.30. Alla virka daga:
Messa kl. 8.00.
Keflavík – Barbörukapella: Skóla-
vegi 38: Sunnudaga: Messa kl.
14.00.
Stykkishólmur, Austurgötu 7:
Sunnudaga: Messa kl. 10.00.
Flateyri Laugardaga: Messa kl.
18.00.
Bolungarvík: Sunnudaga: Messa kl.
16.00.
Suðureyri: Sunnudaga: Messa kl.
19.00.
Akureyri, Péturskirkja, Eyrar-
landsvegi 26: Laugardaga: messa
kl. 18.00.
Námskeið
ætlað verðandi
brúðhjónum
Fella- og Hólakirkja.