Morgunblaðið - 29.05.2001, Síða 67
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 2001 67
MORGUNBLAÐINU hefur borist
ályktun frá stjórn félagsins Ísland-
Palestína þar sem hernaði Ísraels í
Palestínu er harðlega mótmælt.
„Nú hafa á sjötta hundrað manns
fallið í árásum Ísraelshers og land-
tökumanna, þar af um 200 börn undir
18 ára aldri og nærri eitt hundrað
stúdentar. Tala særðra og limlestra
nálgast 25.000 og eru 40 af hundraði
þeirra börn. Fjöldi fatlaðra af völdum
þessara árása er kominn upp í 2.300
manns, sem eru nærri jafn margir og
urðu örkumla í fyrri Intifada uppreisn
Palestínumanna árin 1987–1992.
Fjórir palestínskir læknar hafa verið
drepnir. Hernám Ísraela á palest-
ínsku landi og sívaxandi landtaka
þeirra fela í sér margföld brot á al-
þjóðalögum og samþykktum Samein-
uðu þjóðanna.
Samkvæmt Genfar-sáttmálanum
er hernámsveldi ábyrgt fyrir öryggi
íbúanna. Í þessu ljósi eru loftárásir
Ísraelshers og morð dauðasveita
þeirra, sem leita uppi ákveðna ein-
staklinga og taka þá af lífi án dóms og
laga, enn glæpsamlegri enn ella. Hér
er um að ræða ríki sem reynir að
flagga lýðræði en ástundar í þess stað
hryðjuverk fyrir opnum tjöldum.
Félagið bendir á að hernámið er
undirrót átakanna og full ábyrgð hvíl-
ir á Ísraelsstjórn og hernámsliðinu
gagnvart þeim ódæðisverkum sem
unnin eru jafnt af hendi Ísraelshers
og landtökuliðs sem og palestínskra
aðila. Það skal jafnframt áréttað að
þjóð sem býr við hernám hefur sam-
kvæmt stofnsáttmála SÞ ótvíræðan
rétt til að veita andspyrnu og losa sig
undan hernámi.
Félagið Ísland Palestína tekur
undir þær kröfur sem hljóma um
heim allan að Palestínumenn á her-
teknu svæðunum fái alþjóðlega
vernd. Palestínumenn eru herlaus
þjóð, að því leyti svipuð Íslendingum,
og hún á enga möguleika á að verjast
Ísraelsher, einum fullkomnasta og
öflugasta her í heimi.
Félagið minnir á samhljóða ályktun
Alþingis frá 18. maí 1989 þar sem lögð
er áhersla á að viðurkenna sjálfs-
ákvörðunarrétt palestínsku þjóðar-
innar, tilverurétt Ísraelsríkis og rétt
palestínskra flóttamanna að fá að
snúa aftur til fyrri heimkynna sinna í
samræmi við margítrekaðar ályktan-
ir SÞ.
Félagið skorar á íslensk stjórnvöld
að slíta stjórnmálasambandi við Ísra-
el á meðan þetta ríki telur sig hafið yf-
ir alþjóðalög og samþykktir SÞ.“
Fordæma
árásir
Ísraelshers
ÞRJÁR flugvélar lentu á nýjum
flugvelli í Þórsmörk í síðustu viku.
Aðdragandi flugvallargerðarinnar
var áhugi nokkurra einkaflug-
manna með Albert Högnason í
broddi fylkingar. Verkið vann
Hilmar Eysteinsson. Þeir leituðu til
forsvarsmanna Flugmálastjórnar
og fengu góðar undirtektir, en hún
féllst á að leggja fjármagn til verks-
ins.
Með þessu er á ný, eftir nokkurra
ára skeið, kominn nothæfur flug-
völlur í Þórsmörk sem mun nýtast
jafnt einkaflugi sem og til sjúkra-
flugs.
Lentu á
nýjum
flugvelli í
Þórsmörk STÓRA Blackpool danskeppnin hófstföstudaginn 25. maí s.l. Keppnin er
opin alþjóðleg danskeppni sem haldin
er árlega í Blackpool á Englandi. Öll
sterkustu danspör heims taka þátt í
keppninni. Keppnina köllum við
Stóru-Blackpool til aðgreiningar
Yngri-Blackpool sem haldin er um
páskana og er fyrir aldurinn 15 ára og
yngri en í Stóru-Blackpool er keppt
frá 16 ára og upp í atvinnumenn.
Fyrsta keppnin var í flokki nýliða
meðal atvinnumanna, svokölluð Ris-
ing Star-keppni. Fyrir Íslands hönd
kepptu þau Adam Reeve og Karen
Björk Björgvinsdóttir. Keppt var í
suður-amerísku dönsunum fimm.
Alls hófu 247 pör keppnina. Adam og
Karen náðu mjög góðum árangri og
komust í 13 para undan-úrslit. Í fyrra
tóku þau þátt í sömu keppninni og þá
komust þau inn í 24 para úrslit sem
sýnir að þau hafa bætt sig mikið frá
því í fyrra. Sigurvegarar voru Andr-
eas Kainz og Kelly Beesley, frá Eng-
landi.
Einnig var keppt í suður-amerísku
dönsunum í flokki Ungmenna 16-18
ára 26. maí eða á laugardeginum.
Þrjú pör tóku þátt fyrir Íslands hönd.
204 pör hófu keppnina. Ísak Hall-
dórsson og Helga Dögg Helgadóttir,
Hvönn og Hannes Egilsson og Sigrún
Ýr Magnúsdóttir komust inn í 79 para
úrslit. Sigurvegarar voru Evgeni
Smagin og Rachael Heron frá Eng-
landi. Keppt verður í hinum ýmsu
flokkum og greinum næstu daga.
Komust í 13 para
undanúrslit
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Karen Björgvinsdóttir og Adam Reeve.
TRÚNAÐARMENN á Landspítala
–háskólasjúkrahúsi við Hringbraut
hafa sent frá sér ályktun þar sem
skorað er á samninganefnd ríkisins
að ganga til samninga við hjúkr-
unarfræðinga.
„Meginkröfur hjúkrunarfræð-
inga á Landspítala – háskóla-
sjúkrahúsi við Hringbraut eru að
menntun og fagleg ábyrgð þeirra
verði metin til hækkunar grunn-
launa á við það sem gerist meðal
annarra háskólamenntaðra starfs-
manna ríkisins, að við höldum þeim
réttindum sem við höfum þegar
áunnið okkur í samningum síðustu
ára og að hafna því að horft sé á
heildarlaun hjúkrunarfræðinga í
samanburði við aðrar stéttir. Meg-
inþorri hjúkrunarfræðinga vinnur
á þrískiptum vöktum. Vegna skorts
á hjúkrunarfræðingum við störf er
þess krafist af stofnunum að hjúkr-
unarfræðingar vinni óheyrilega yf-
irvinnu án þess að hafa áhuga á
því. Vitað er að óreglulegur vinnu-
tími og mikil yfirvinna rýrir lífs-
gæði og lífslengd. Gera má ráð fyr-
ir að með hækkun grunnlauna
dragi úr skorti í störf hjúkrunar-
fræðinga,“ segir í ályktuninni.
Hjúkrunarfræðingar á deild 12G
Landspítala – háskólasjúkrahúsi
við Hringbraut hafa sent frá sér
ályktun þar sem seinagangi í
samningum við ríkið er mótmælt.
„Við viljum vekja athygli á að
samningar milli Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga og ríkisins hafa
verið lausir í tæpa 7 mánuði. Þessi
töf á samningum hefur þau áhrif að
hjúkrunarfræðingar velja sér ann-
an starfsvettvang en LSH og
margir starfandi hjúkrunarfræð-
ingar leita á önnur mið, s.s. lyfja-
og líftæknifyrirtæki og einkarekin
hjúkrunarheimili,“ segir í ályktun-
inni.
Félagsfundur Norðausturlands-
deildar Félags íslenskra hjúkrun-
arfræðinga hefur einnig sent frá
sér ályktun þar sem skorað er á
fjármálaráðherra að beita sér fyrir
því að samninganefnd ríkisins
gangi nú þegar til samninga við
hjúkrunarfræðinga um megin kröf-
ur þeirra.
Þá hefur Suðurnesjadeild FÍH
sent frá sér ályktun þar sem lýst
er óánægju með seinagang ríkisins
í viðræðunum.
Hjúkrunarfræðingum á sjúkra-
hús- og öldrunarsviðið Heilbrigð-
isstofnunarinnar á Selfossi sendu
einnig frá sér ályktun um sama
efni.
Hjúkrunarfræðingar
mótmæla seinagangi
MÆÐRASTYRKSNEFND
Reykjavíkur gaf nýlega LAUFI
landssamtökum áhugafólks um
flogaveiki kr. 1.000.000 til styrktar
málefnum félagsins. „LAUFI er sér-
lega ljúft, að staðfesta móttöku
þessa styrks og óskar Mæðrastyrks-
nefnd Reykjavíkur, formanni, stjórn
og starfsfólki bjartrar framtíðar,“
segir í fréttatilkynningu.
Veittu peninga-
styrk
Rangt höfundarnafn
Á bíósíðum sunnudagsblaðsins var
dálkurinn Sjónarhorn ranglega eign-
aður Sæbirni Valdimarssyni. Höf-
undur er Arnaldur Indriðason og er
beðist velvirðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
Umsóknir um
fréttamanna-
styrki Norð-
urlandaráðs
NORÐURLANDARÁÐ veitir í ár
nokkra fréttamannastyrki til um-
sóknar fyrir fréttamenn á Norður-
löndunum. Styrkjunum er ætlað að
efla áhuga fréttamanna á norrænni
samvinnu og auka möguleika þeirra á
að skrifa um málefni annarra Norð-
urlanda, s.s. með því að gera þeim
kleift að fjármagna ferðalög tengd
greinaskrifum.
„Styrkur er veittur í hverju Norð-
urlandanna og er fjárhæðin 90.000
danskar krónur fyrir Ísland í ár.
Styrkurinn er veittur einum eða fleiri
fréttamönnum dagblaðs, tímarits, út-
varps eða sjónvarps. Sjálfstætt starf-
andi fréttamönnum er einnig heimilt
að sækja um styrkinn. Við styrkveit-
inguna er tekið tillit til þess hvort um-
sækjandi hafi sannanlega áhuga á
norrænni samvinnu og Norðurlönd-
um og er styrkjum úthlutað á grund-
velli umsókna. Styrkþegum er ekki
heimilt að sækja um styrk næstu þrjú
árin. Umsækjandi skal í verkefnislýs-
ingu tilgreina til hvers og hvernig
hann hyggst nota styrkinn. Einnig
skal gerð grein fyrir útgáfuformi og
ferðaáætlun. Styrkinn ber að nota
innan árs. Umsóknarfrestur er til 30.
maí nk. Umsækjendum verður til-
kynnt skriflega um styrkveitinguna
fyrir júnílok. Öllum umsóknum verð-
ur svarað.
Styrkþega ber að senda Norður-
landaráði stutta skýrslu um notkun
styrksins og það efni sem unnið hefur
verið. Sú skýrsla skal vera í greina-
formi og fer hún í gagnabanka nor-
ræna tímaritsins „Politik i Norden“
sem gefið er út af Norðurlandaráði og
norrænu ráðherranefndinni og áskil-
ur blaðið sér rétt til birtingar grein-
arinnar.
Umsóknareyðublöð fást hjá Ís-
landsdeild Norðurlandaráðs, Austur-
stræti 14, 5. hæð, netfang stigur@alt-
hingi.is“ segir í fréttatilkynningu.
SKÓGRÆKT ríkisins og Garðyrkju-
skóli ríkisins standa fyrir námskeiði á
Egilsstöðum sem nefnist; „Að lesa í
skóginn og tálga í tré“ helgina 8.-10.
júní. Námskeiðið verður haldið í Mið-
húsum og stendur frá kl. 17:00 til
20:00 á föstudag, 10:00 til 17:00 álaug-
ardag og frá kl. 10:00 til 15:00 á
sunnudag. Leiðbeinendur verða Guð-
mundur Magnússon, smíðakennari á
Flúðum og Ólafur Oddsson, starfs-
maður Skógræktarinnar. Unnið verð-
ur með ferskan við beint úr skógi,
kenndar gamlar handverksaðferðir
þar sem exi og hnífar eru notaðir, les-
ið í eiginleika viðarins og fjölbreytt
notagildi, geymslu og þurrkun. Á
námskeiðinu verða einnig kynntar
gamlar aðferðir við húsgagnasmíði,
krókstafagerð og skeftingu hand-
verkfæra. Skráning fer fram á skrif-
stofu Garðyrkjuskólans eða í gegnum
netfangið; magnea@reykir.is
Að lesa í skóg-
inn og tálga í tré
á Egilsstöðum
HJÁ Landsvirkjun fóru nýlega
fram útboð á endurnýjun á loft-
ræstingu í Írafoss- og Steingríms-
stöð við Sogið. Við Sogsvirkjanir
hefur farið fram endurnýjun á
mannvirkjum og vélum undanfarið
og eru þessar framkvæmdir komn-
ar vel á veg. Nú var komið að end-
urnýjun á loftræstingu í áðurnefnd-
um stöðvum. Sjö tilboð bárust í
verkið og var lægsta tilboðið að
upphæð 21,7 m.kr. frá ÞH-blikki
ehf., Selfossi, og næstlægsta tilboð-
ið var frá Blikksmiðjunni Auðási hf.
í Kópavogi og var það 22,5 m.kr.
Kostnaðaráætlun ráðgjafa var 23,3
m.kr. svo lægsta tilboð var tæpum
7% lægra en kostnaðaráætlun gerði
ráð fyrir.
Útboð á loft-
ræstingu í Íra-
foss- og Stein-
grímsstöð
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
VINSTRIHREYFINGIN – grænt
framboð í Reykjaneskjördæmi hefur
unnið að því undanfarna mánuði að
stofna félagsdeildir sem víðast í kjör-
dæminu. Eru þær nú þegar teknar til
starfa í Kópavogi, Hafnarfirði, Sel-
tjarnarnesi, Bessastaðahreppi og á
Suðurnesjum. Fimmtudaginn 31. maí
verður svo stofnuð félagsdeild í Mos-
fellsbæ. Nýir félagar og þegar skráðir
eru velkomnir á stofnfundinn sem
verður í Urðarholti 4 og hefst kl. 20.
VG stofna félag
í Mosfellsbæ