Morgunblaðið - 29.05.2001, Page 68
DAGBÓK
68 ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Ing-
var Iversen kemur og
fer í dag. Arnarfell og
Atla Mar koma í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Selfoss og Ocean Traw-
ler komu í gær. Selfoss
kom í gær.
Fréttir
Kattholt. Flóamark-
aður í Kattholti, Stang-
arhyl 2, opinn þriðjud.
og fimmtud. frá kl. 14–
17.
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Hamraborg
20a. Fataúthlutun kl.
17–18.
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9–16.30
opin handavinnustofan,
áhersla á bútasaum, kl.
9–12 bókband og öskju-
gerð, kl. 9.30 dans-
kennsla, Sigvaldi, kl.
13–16.30 opin smíða-
stofa, trésmíði/
útskurður, kl. 9 hár- og
fótsnyrtistofur opnar.
Aflagrandi 40. Enska
kl. 10 og kl. 11.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30
böðun, kl. 9–9.45 leik-
fimi, kl. 9–12 tréskurð-
ur, kl. 9–16 handavinna
og fótaaðgerðir, kl. 10
sund, kl. 13–16 leirlist,
kl. 14–15 dans hjá Sig-
valda.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið á
Hlaðhömrum er á
þriðjud. og fimmtud. kl.
13–16.30, spil og föndur.
Leikfimi í íþróttasal á
Hlaðhömrum, þriðjud.
kl. 16. Uppl. hjá Svan-
hildi í s. 586 8014 kl. 13–
16. Tímapöntun í fót-,
hand- og andlitssnyrt-
ingu, hárgreiðslu og
fótanuddi, s. 566 8060
kl. 8–16.
Félagsstarf aldraðra,
Dalbraut 18–20. Kl. 9
hárgreiðsla og böðun,
kl. 10 samverustund, kl.
14 félagsvist.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 10 hársnyrting,
kl. 13 föndur og handa-
vinna. Kl. 14.45 söng-
stund í borðsal með
Jónu Bjarnadóttur.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ, miðvikudagur
30. maí spilað í Holts-
búð kl. 13.30, fimmtu-
dagur 31. maí boccia kl.
10.30 , leikfimi kl. 12.10
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50. Í
dag er pútt á Hrafn-
istuvelli kl. 14–16. Síð-
asti dagur sýningar á
handverki eldri borgara
í Hafnarfirði er í dag kl.
13 til 17, kaffisala. Á
morgun, línudans kl. 11
og píla kl.13.30. Dags-
ferð á Njáluslóðir
fimmtudaginn 7. júní
nk. og þriggja daga ferð
til Hornafjarðar 9. júlí.
Orlofið í Hótel Reyk-
holti Borgarfirði 26.
águst nk. Skráning haf-
in, allar upplýsingar í
Hraunseli sími
555 0142.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin virka daga frá kl.
10–13. Matur í hádeg-
inu. Þriðjudagur: Skák
kl. 13.30. Vorferð í dag.
Hafnarfjörður og Heið-
mörk. Lagt verður af
stað kl. 13 og leið lögð í
Hafnarfjörð og þar lit-
ast um undir leiðsögn
Rúnars Brynjólfssonar.
Síðan er ekið um Heið-
mörkina og staldrað þar
við og Vatnsveita
Reykjavíkur skoðuð. Að
lokum eru kaffiveit-
ingar í boði Orkuveitu
Reykjavíkur. Leiðsögn
Páll Gíslason og Pálína
Jónsdóttir.
Miðvikudagur: Göngu-
Hrólfar fara í létta
göngu frá Ásgarði
Glæsibæ kl. 10. 10.–12.
júní Skaftafellssýslur.
Þriggja daga ferð um
Skaftafellssýslur, kom-
ið að Skógafossi og fl.
fallegum stöðum á Suð-
urlandi. Gist á Hótel
Eddu, Kirkjubæj-
arklaustri. Leiðsögn
Ólöf Þórarinsdóttir.
Dagsferð 13. júní.
Nesjavellir – Grafn-
ingur – Eyrarbakki.
Húsið – Sjóminjasafnið
á Eyrarbakka – skoðað.
Leiðsögn: Tómas Ein-
arsson og Pálína Jóns-
dóttir. Skráning hafin.
19.–22. júní, Trékyll-
isvík, 4 dagar, gist að
Valgeirsstöðum í Norð-
urfirði. Skráning hafin.
Leiðsögn Tómas Ein-
arsson. Silfurlínan opin
á mánudögum og mið-
vikudögum frá kl. 10–
12. Ath. afgreiðslutími
skrifstofu FEB er frá
kl. 10–16. Upplýsingar í
síma 588 2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
opin vinnustofa, tré-
skurður og fleira, kl. 9–
17 hárgreiðsla, kl. 10
leikfimi, kl. 12.45 Bón-
usferð.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, kl. 13 boccia.
Sumardagskráin kom-
in.
Veitingar í kaffihúsi
Gerðubergs. Allar upp-
lýsingar um starfsem-
ina á staðnum og í s.
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Leikfimi kl. 9.05, kl.
9.50 og kl. 10.45, kl. 9.30
glerlist, handa-
vinnustofa opin, leið-
beinandi á staðnum frá
kl. 10–17, kl. 14 boccia,
þriðjudagsganga fer frá
Gjábakka kl. 14. Sund-
hópurinn ásamt Gjá-
bakka og Gullsmára
stefna á ferð um Vest-
firði 16. til 19. júlí.
Ferðaáætlun er að fá í
afgreiðslu félagsheim-
ilanna. Skráning fyrir
15. júní.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulíns-
málun, kl. 13–16 handa-
vinnustofan opin, leið-
beinandi á staðnum.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun, fótaaðgerðir og
leikfimi, kl. 9.45 banka-
þjónusta, kl. 13 handa-
vinna og hárgreiðsla.
Hraunbær 105. Kl. 9–
16.30 postulínsmálun,
kl. 9–17 fótaaðgerðir, kl.
9–12 glerskurður, kl.
9.45 boccia, kl. 11 leik-
fimi, kl. 12.15 versl-
unarferð í Bónus, kl. 13–
16.30 myndlist, kl. 13–17
hárgreiðsla.
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi,
halda sinn mánaðarlega
fund í Miðgarði á morg-
un, miðvikudag, kl. 10.
Nánari uplýsingar veitir
Þráinn Hafsteinsson s.
545 4500.
Norðurbrún 1. Kl. 9–17
hárgreiðsla, kl. 10–11
boccia, kl. 9–16.45 opin
handavinnustofan, tré-
skurður.
Vesturgata 7. Kl. 9 fóta-
aðgerðir og hárgreiðsla,
kl. 9.15–12 bútasaumur,
kl. 9.15–15.30 handa-
vinna, kl. 11 leikfimi, kl.
13 bútasaumur, tréút-
skurður og frjáls spila-
mennska.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan
og hárgreiðsla, kl. 9.30
glerskurður, myndlist
og morgunstund, kl. 10
leikfimi og fótaaðgerðir,
kl. 11 boccia, kl. 13
handmennt og keramik,
kl. 14 félagsvist.
Gullsmári og Gjábakki.
Kynning á fyrirhugaðri
sumarstarfsemi á veg-
um félagsheimilanna og
félags eldri borgara í
Kópavogi verður mið-
vikudaginn 30. maí í
Gullsmára og fimmtu-
daginn 31. maí í Gjá-
bakka. Kynningin hefst
kl. 14.30.
Bridsdeild FEBK, Gjá-
bakka. Spilað í kvöld kl.
19. Allir eldri borgarar
velkomnir.
Félag ábyrgra feðra
heldur fund í Shell-
húsinu, Skerjafirði, á
miðvikudögum kl. 20,
svarað í síma 552 6644 á
fundartíma.
Eineltissamtökin halda
fundi á Túngötu 7 á
þriðjudögum kl. 20.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Nánari
uppl. á skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Rangæingafélagið í
Reykjavík. Gróðursetn-
ingarferð í Heiðmörk
miðvikudaginn 30. maí.
Hittumst við reit félags-
ins. Landnemaslóð, kl.
20. Uppl. í síma.
847 2548.
Hana-nú Kópavogi
Brottför í ferðina á
söguslóðir Njálu er í
dag, þriðjudag, 29. maí
kl.12 frá Gullsmára og
kl. 12.10 frá Gjábakka.
Minningarkort
Líknarsjóður Dóm-
kirkjunnar, minn-
ingaspjöld seld hjá
kirkjuverði.
Í dag er þriðjudagur 29. maí, 149.
dagur ársins 2001. Orð dagsins:
Bróðurkærleikurinn haldist. Gleym-
ið ekki gestrisninni, því að vegna
hennar hafa sumir hýst engla án
þess að vita.
(Hebr. 13, 1.–3.)
KOMIÐ þið sælir, allir
góðir landsmenn. Nema
sumir sem gera sér að fé-
þúfu að pretta og svíkja
landsmenn og skal ég nú
greina frá viðskiptum við
fyrirtæki sem pretta og
lofa sparnaði og aðhalds-
semi í formi punktasöfn-
unar. En þegar á að nota
punktana kemur maður
að lokuðum dyrum, nema
þar sem maður hefur
engin not. Sumir fara
ekki í leikhús, bíó eða út
að borða! Sumir fara utan
án þess að fara í afmark-
aðar ferðir til sólarlanda.
Ef þú ferð á Select, sem
er sjoppa sem selur alls
konar vörur og veitingar,
standa þér til boða tilboð
dagsins sem er að venju
pylsa og Coke. Ef þú ferð
á veitingastað, pantar fín-
an mat og drekkur vín
með þá verður þú að
borga það (vínið) á annan
hátt. Er ekki vín bara
veitingar? Af hverju þess-
ar takmarkanir? Af
hverju er hvergi hægt að
kaupa bensín? Þú getur
þó aflað þeirra (punkt-
anna) með bensínkaup-
um. Hvað með þessar
verslanir sem taka þátt í
þessu, því una þær því að
ekki megi eyða þessum
punktum hjá þeim? Þegar
þessi punktasöfnun byrj-
aði leiddi ég hugann ekki
neitt sérlega að því
hvernig eða hvar ég gæti
nýtt mér þessa eign, en
nú kemst ég að því að
þetta er alls ekki eign
heldur fyrnist þetta ef ég
nota þá ekki innan 4 ára.
Jæja, ég veit ekki af
hverju ég er að kvarta
þar sem ég fæ örugglega
ekkert út úr því. Eftir
stendur að ég hef á mín-
um snærum 30.000
punkta sem ég var narr-
aður til afla mér með því
að fara úr leið og beina
mínum viskiptum til fyr-
irtækja sem veita þessa
dýrmætu punkta, sem
eru svo ekkert nema leið-
indin þegar upp er staðið.
Að minnsta kosti fyrir
mig og örugglega fleiri
sem nenna ekki að tjá sig
um þetta, segja bara já og
amen og kyngja því.
Pétur H. Skaptason,
kt. 210145-7619.
Hvar er
konan?
HANDVERKSHÚSIÐ í
Mosfellsbæ langar að
komast í samband við
konuna sem kom til
þeirra og sagði þeim frá
handverkshúsi á Jótlandi
í Danmörku. Þetta hús er
rekið með sama sniði og
handverkshúsið í Mos-
fellsbæ. Þær langar að
komast í samband við
hana. Ef einhver getur
gefið þeim upplýsingar
um þessa konu, vinsam-
legast hafið samband við
Huldu í síma 898-5980 eða
Ásu í síma 861-7763.
Tapað/fundið
Silfurarmband
tapaðist
ÞYKKT silfurarmband
týndist í miðbæ Reykja-
víkur eða í leið 3 fyrir
nokkrum mánuðum.
Armbandið hefur mikið
tilfinningalegt gildi fyrir
eigandann og eru þess
vegna góð peningafund-
arlaun í boði. Hafir þú
fundið armbandið ertu
vinsamlegast beðinn um
að hringja í síma: 698-
9465. Birkir.
Hálsmen tapaðist
HÁLSMEN með bláum
steini tapaðist föstudag-
inn 25. maí sl. í Árbæjar-
hverfi. Skilvís finnandi er
vinsamlegast beðinn að
hafa samband í síma 552-
4370.
Dýrahald
Hundur í óskilum
SVARTUR, hvítur og
brúnn hundur er í óskil-
um á Hundahótelinu á
Leirum. Hann er með
grænt band um hálsinn.
Upplýsingar í síma 566-
8366 eða 698-4967.
Dimmalimm er týnd
Dimma-
limm er
kolsvört
læða
með
rauða
ól. Hún
stökk út
úr bíl í Mjódd fimmtudag-
inn 17. maí sl. Ef einhver
hefur orðið hennar var
eða veit hvar hún er nið-
urkomin, vinsamlegast
hafið samband í síma 557-
2405, 897-9225 eða 691-
4332.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Punktasöfnun
landsmanna
Víkverji skrifar...
Á DÖGUNUM var sagt frá því ífréttum að ellefu nemendur í
10. bekk Brekkuskóla á Akureyri
voru sendir heim úr skólaferðalagi
til Danmerkur eftir að þeir höfðu
orðið uppvísir að áfengisneyslu í
ferðinni. Haft var eftir skólastjóra
Brekkuskóla að þessi uppákoma
væri mikil vonbrigði en nemend-
urnir hefðu verið með þessa ferð í
undirbúningi síðastliðin þrjú ár.
Vinkona Víkverja sem kennir í
grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu
sagði Víkverja að vissulega hefði
þessi frétt valdið hneykslan en það
væru hins vegar ekki unglingarnir
sem hneyksluðu hana heldur for-
eldrarnir. Auðvitað reyndu krakkar
á þessum aldri eins og þau gætu að
gera það sem þau vilja og ef þau
vissu að þau kæmust upp með hvað
sem er af því að foreldrar eða
kennarar standa ekki við hótanir
eða loforð þá væri ekki á góðu von.
x x x
SÚ SAMA vinkona Víkverja ernýkomin úr Þórsmörk með 10.
bekkinn sinn og alls voru 66 krakk-
ar í ferðinni. Vímuefni af öllu tagi
voru að sjálfsögðu bönnuð. Alla
ferðina voru krakkarnir til slíks
sóma að kennararnir voru að
springa úr monti yfir því uppeldi
sem krakkarnir höfðu fengið innan
veggja skólans. Hafi tóbak verið
með í för sýndu krakkarnir þá til-
litssemi að kennarar sáu enga
þeirra reykjandi og rútubílstjórinn
sem ók hópnum spurði hvort það
reykti virkilega enginn í svona
stórum hópi. Fyrir um það bil 10
árum gerðist það síðast að nem-
endur voru sendir heim samdægurs
úr svona ferð á vegum skólans en
þá fundust tvær bjórdósir í fórum
þeirra. Foreldrar bjóreigendanna
voru beðnir að sækja þá að Mark-
arfljótsbrú og urðu að sjálfsögðu
við því ljúfmannlega. Minningin um
þetta lifir innan skólans og krakk-
arnir þekkja söguna. Þau skemmtu
sér konunglega. Gengu þeir svo vel
um svæðið í Þórsmörk að skála-
vörðurinn klappaði þeim lof í lófa
þegar þau renndu úr hlaði eftir tvo
líflega sólarhringa í Húsadal.
Vinkona Víkverja sagði að þeir
kennarar sem með hópnum voru
væru enn og aftur til í að fara með
krakka í tvær nærri svefnlausar
nætur að ári liðnu, einfaldlega
vegna þess hve skemmtilegt hefði
verið að eyða þessum dögum með
krökkunum. Óneitanlega væri mikil
ábyrgð lögð á herðar kennara að
fara í slíkar ferðir með fjörmikla
unglinga, en ríki gagnkvæmt traust
þurfi fáar reglur og það yrði pott-
þétt gaman í ferðinni.
HERDÍS Storgaard, sú góðagæslukona smábarna, birtist
á skjá landsmanna í síðustu viku
með þau válegu tíðindi að á degi
hverjum missi eitt barn framan af
fingri. Það munu vera 360 litlir
fingur sem hljóta varanlegan skaða
á ári hverju. Víkverja var í þessu
sambandi bent á að samkvæmt
Evrópustaðli skuli í öllum skólum
vera níðþungar og loftþéttar
eldvarnarhurðir og þær ættu vafa-
laust sinn þátt í að valda umrædd-
um fingraskaða barnanna. Á meg-
inlandi Evrópu væri hins vegar
kynnt með öðrum og eldfimari hita-
gjöfum en hér tíðkast, auk þess
sem skólabyggingar erlendis væru
í flestum tilfellum mun eldri en hér
á landi. Lítil börn væru svo að
spóla utan á þessum þungu og
þéttu eldvarnarhurðum, auk þess
sem þau væru að öllu jöfnu á
sokkaleistum og þar af leiðandi
með minni spyrnu. Því væri ekki á
góðu von og slysum boðið heim á
annarlegum varnarforsendum. Þá
fylgdi þessum hurðum mikill kostn-
aður fyrir sveitarfélögin því ein
svona hurð kostaði um 200 þúsund
krónur. Það væri því um umtals-
verðar fjárhæðir að ræða þegar bú-
ið væri að setja slíkar hurðir á allar
skólastofur og jafnvel ræstingar-
kompur í hverjum skóla.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
LÁRÉTT:
1 á, 4 yrkir, 7 setur, 8
guð, 9 megna, 11 siga, 13
seðill, 14 hugleysingi,
15 flöskuháls, 17 klæð-
leysi, 20 ýlfur, 22 flötinn,
23 hvetja, 24 landræma,
25 ilmefni.
LÓÐRÉTT:
1 leggja að velli, 2 Danir,
3 óbyggt svæði í bæ, 4
stúlka, 5 særi, 6 trjágróð-
ur, 10 spottar, 12 rödd, 13
ambátt, 15 kvenvargur,
16 óhreinki, 18 krapa-
svað, 19 bik, 20 elski, 21
þvengur.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 fátækling, 8 Óðinn, 9 tógið, 10 afl, 11 tosar, 13
arður, 15 hafts, 18 skrök, 21 tak, 22 skíma, 23 ástin, 24
skepnunni.
Lóðrétt: 2 álits, 3 ærnar, 4 litla, 5 nagað, 6 sótt, 7 æðar,
12 alt, 14 rok, 15 hest, 16 frísk, 17 stapp, 18 skáru, 19
rótin, 20 kunn.
K r o s s g á t a