Morgunblaðið - 29.05.2001, Qupperneq 69
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 2001 69
DAGBÓK
Ertu
meðvitaður
um gæði
Sjáðu merkið
Úrvalið er hjá okkur
www.oo.is
Challenger
0-18 kg.
Verð kr.
10,960.
! "# $
%& ' BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
BRIDSFÉLAG Fjarða-
byggðar (Reyðarfjarðar,
Eskifjarðar og Neskaupstað-
ar) lauk vetrarvertíð sinni
með hefðbundnu minningar-
móti um Sölva Sigurðsson.
Keppt er um veglegan bikar,
sem Aðalsteinn Jónsson gaf
á sínum tíma til minningar
um þennan fyrrverandi
spilafélaga sinn. Mótið er 16
para barómetertvímenning-
ur, 45 spil, sem öll eru af-
greidd í einni lotu. Kristján
Kristjánsson og Jóhann Þor-
steinsson urðu hlutskarpast-
ir í þetta sinn og liður í sigri
þeirra var fallegur toppur
sem þeir fengu gegn Aðal-
steini og Gísla Stefánssyni.
Kristján og Jóhann voru með
þessi spil í NS:
Norður
♠ K543
♥ Á94
♦ D3
♣ Á752
Suður
♠ ÁD92
♥ K6
♦ Á
♣ KG8643
Vestur Norður Austur Suður
Gísli Jóhann Aðalst. Kristján
– – – 1 lauf
1 tígull 2 lauf 2 tíglar 2 spaðar
3 tíglar 4 spaðar Pass 4 grönd
Pass 5 lauf Pass 7 grönd
Pass Pass Pass
Kerfið er á eðlilegum nót-
um og hækkun Jóhanns í tvö
lauf er krafa, þrátt fyrir inn-
ákomu vesturs. Sú ákvörðun
hans að styðja laufið strax
frekar en melda einn spaða
hafði afgerandi áhrif á fram-
vinduna. Kristján sýndi
spaðann og þegar hann fékk
hann rækilega studdan
spurði Kristján um lykilspil
með fjórum gröndum. Svarið
á fimm laufum sýndi þrjú
lykilspil – ásana í hjarta og
laufi, og spaðakóng. Þar eð
Kristján vissi af laufstuðn-
ingi (minnst ásnum fjórða)
hafði hann engar áhyggjur af
laufdrottningu og sá fyrir sér
þrettán slagi í eðlilegri legu:
Fjóra á spaða, sex á lauf og
þrjá til hliðar á rauðu litina.
Spaðinn féll 3–2 og laufið var
2–1, svo allt gekk upp og
uppskeran var hreinn topp-
ur.Þetta virkar einfalt – og
er það kannski eftir að Jó-
hann segir tvö lauf – en ef
norður byrjar á því að svara
á spaða verður mun þyngra
að komast í alslemmu, hvað
þá sjö grönd.
LJÓÐABROT
YNGISMEY
Ég stend fyrir spegli og strýk mitt hár,
sem stormurin lék um í fjórtán ár.
Ó, yrði hver dropi, hvert daggartár,
að djásnum og óskasteinum.
Það er eitthvað, sem hefur að mér sótt,
líkt og ilmur frá skógargreinum.
Ég vakti í nótt – ég veit það er ljótt
og vil ekki segja það neinum.
Ég veit ekki, hver þessi aðsókn er.
Það er eitthvað, sem logar í brjósti mér,
eitthvað, sem kemur, eitthvað, sem fer,
eitthvað, sem hlær og grætur.
Það fer út í yzta fingurgóm.
Það fer inn í hjartarætur.
Og döggvuð ljóma mín draumablóm
í dýrð hinnar hljóðu nætur.
- - -
Davíð Stefánsson
STAÐAN kom upp á minn-
ingarmóti Capablanca sem
lauk fyrir skömmu í Havana
á Kúbu. Walter Arenciba
(2543), fyrrverandi heims-
meistari unglinga, hafði
hvítt gegn þýska stórmeist-
aranum, Thomasi Luther
(2568). 17.Bxb7!
O-O Ófært var að
þiggja biskups-
fórnina þar sem
eftir 17...Hxb7
18.Hc8 Ke7
19.Hxh8 verður
svartur skipta-
mun undir. Í
framhaldinu fær
svartur ekki næg-
ar bætur fyrir
peðið en reyndi þó
að berjast til síð-
asta blóðdropa:
18.Bg2 Hfc8
19.Hxc8 Hxc8
20.Bc3 Bg6
21.Kd2 e5 22.Hf1
SKÁK
Umsjón Helgi
Áss Grétarsson
Hvítur á leik.
exf4 23.gxf4 Kf8 24.Rd4
Rc5 25.f5 Bh5 26.h3 Be7
27.Bf3 Bxf3 28.Rxf3 Ra4
29.Re5 f6 30.Rc4 Hd8
31.Hf4 Hd5 32.Re3 Rxc3
33.bxc3 Ha5 34.a4 g5
35.Hc4 Bd6 36.Hc6 Bf4
37.Hxf6 Kg7 38.He6 Hxa4
39.Ke2 Ha2 40.Kf3 Hh2
41.Ke4 Hxh3 42.Rd5 Bb8
43.f6 Kf8 44.He7 g4 45.Hb7
Bh2 46.Hg7 a5 47.Rb6 Bd6
48.Rd7 og svartur gafst upp.
Hlutavelta
Sumarbrids 2001
Þriðjudaginn 22. maí var spilaður
Mitchell-tvímenningur með þátttöku
27 para. Spilaðar voru 13 umferðir
með 2 spilum á milli para. Meðalskor
var 312 og efstu pör í hvora átt voru:
NS
Gísli Steingr.s. – Sigurður Steingrímss. 371
Björn Friðrikss. – Unnar A. Guðm.s. 355
Ísak Örn Sigurðss. – Ómar Olgeirss. 336
Hrólfur Hjaltas. – Þórir Sigursteinss. 333
AV
Hermann Friðr.s. – Hlynur Angantýss. 343
Loftur Péturss. – Jón Steinar Ingólfss. 339
Þórður Sigfúss. – Eggert Bergss. 336
Gunnl. Karlss. – Ásmundur Örnólfss. 334
15 pör tóku þátt í Verðlaunapott-
inum og voru veitt tvenn verðlaun úr
honum, 6.000 kr. fyrir efsta sætið og
3.000 kr. fyrir annað sætið. Gísli og
Sigurður tóku fyrsta sætið auk þess
að fá frímiða í Sumarbrids og rauð-
vín. Björn og Unnar náðu öðru sæt-
inu og loks fengu Hermann og Hlyn-
ur frímiða í Sumarbrids fyrir að ná
hæsta skori í AV.
Fimmtudaginn 24. maí var spilað-
ur Monrad-barómeter með þátttöku
18 para. Efstu pör voru:
Gísli Steingr.s. – Sveinn R. Þorvaldss. +55
Hlynur Angantýss. – Hermann Friðr.s. +33
Björn Friðrikss. – Leifur Aðalsteinss. +19
Eggert Bergss. – Þórður Sigfúss. +19
Eiður Júlíuss. – Júlíus Snorras.+15
Ísak Örn Sigurðsson – Gylfi Baldursson+10
Gísli og Sveinn unnu sér inn hvor
sinn frímiðann í sumarbrids auk
þess að fá rauðvín.
Sumarbrids er spilað fjögur kvöld
í viku. Á mánudögum, þriðjudögum
og föstudögum er spilaður Mitchell-
tvímenningur. Á fimmtudögum er
spilaður Monrad-barómeter. Spilur-
um er boðið að taka þátt í verðlauna-
potti á þriðjudögum sem rennur til
efstu para sem taka þátt í honum og
á föstudögum er spiluð miðnætur-
sveitakeppni að tvímenningnum
loknum.
Sumarbridge er flutt í nýtt hús-
næði í Skeifunni 11, efstu hæð, fyrir
ofan þvottahúsið Fönn, í sal Hún-
vetningafélagsins. Spilamennska
byrjar kl. 19:00 og eru allir spilarar
velkomnir í sumarskapi. Umsjónar-
maður er Sveinn R. Eiríksson í um-
boði BSÍ.
Heimasíða sumarbrids er
www.islandia.is/svenni
Frá keppni í sumarbrids. Unnur Sveinsdóttir og Inga Lára Guðmunds-
dóttir spila gegn Arngunni Jónsdóttur og Hrafnhildi Skúladóttur.
BRIDS
U m s j ó n A r n ó r G .
R a g n a r s s o n
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert uppátektarsamur og
úrræðagóður en helst til
fljóthuga og þarft að hafa
betri stjórn á því.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þótt þér lítist ekkert á að fá
aðstoð við ákveðið verkefni
skaltu hugsa málið. Margar
hendur vinna létt verk og það
er þér í hag að klára strax.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Skjöplast þótt skýr sé. Þú ætt-
ir að bera ráðagerð þína í fjár-
málum undir fagmenn og vera
sérstaklega á varðbergi gagn-
vart smáa letrinu.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Nú verður þú að taka til hend-
inni heima fyrir. Það er rangt
að láta verkin þar lenda á öðr-
um; þú hefur líka þínum skyld-
um að gegna. Núna strax!
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Leiddu hjá þér allt slúður á
vinnustað þínum. Það er
mannskemmandi að taka þátt
í slíku og þú skalt heldur halda
þig við þitt verk og ljúka því.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú myndir græða mikið á því
að gefa þér tíma til þess að
fara í gegnum eigin mál og
lesa stöðuna. Vertu hreinskil-
inn við sjálfan þig.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Vertu heiðarlegur í svörum
við aðra og hugleiddu gaum-
gæfilega hvort þú eigir að
gera aðra að trúnaðarvinum
þínum. Slíkir eru vandfundnir.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Láttu ekki óánægju með eigið
útlit skemma allt fyrir þér. Þú
getur ýmislegt gert ef þér
finnst ástæða til án þess að
kosta miklu til.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Leggðu þig allan fram á loka-
sprettinum og þegar þú hefur
komið verkefninu í höfn
muntu uppskera laun erfiðis
þíns eins og eðlilegt og sann-
gjarnt má teljast.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú þarft að grípa til hug-
kvæmninnar til þess að leysa
aðsteðjandi vanda án þess að
kosta einhverju til. Í stöðunni
er heilinn þér dýrmætari en
veskið.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þótt aðrir reyni að hafa stjórn
á því hvað þér finnist um til-
tekna hluti skaltu leiða þá af-
skiptasemi hjá þér í rólegheit-
unum. Þú ert maður fyrir þinn
hatt.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Galdurinn er að finna réttu
blönduna af skynsemi og
ímyndunarafli sem mun leiða
af sér gott verk. Þeir eru
margir sem munu vilja deila
sviðsljósinu með þér.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú verður að láta þér lynda
það að allir eigi sér leyndar-
mál sem þeir kjósa að deila
ekki með neinum. Reyndu
ekki að brjótast inn í þær lend-
ur hugans.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Þú deyrð úr hlátri. Ég var alltaf með
lyklana í veskinu.
Þessar ungu stúlkur söfnuðu dósum og flöskum á Akureyri
og fengu þannig 2.400 krónur sem þær afhentu Rauða
krossi Íslands. Þær heita Lena Rut Ingvarsdóttir og Hildur
Ríkarðsdóttir. Alma Rún, litla systir Lenu Rutar, tók einnig
þátt í verkefninu en hún treysti sér hins vegar ekki til að
vera með á myndinni.
Morgunblaðið/Kristján
COSPER