Morgunblaðið - 29.05.2001, Blaðsíða 80
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK.
BANDARÍSKA alríkislögreglan, FBI, mun taka
við rannsókn á sprengjuhótuninni sem varð til
þess að Boeing 747-400 júmbó-þotu bandaríska
flugfélagsins United Airlines var lent á Keflavík-
urflugvelli um miðjan dag í gær. Hótunin var rituð
með varalit á spegil á einu af salernum vélarinnar.
Þar kom fram að sprengjan ætti að springa klukk-
an 15:20 að íslenskum staðartíma. Mikill viðbún-
aður var á Keflavíkurflugvelli vegna hótunarinn-
ar. Engar tafir urðu þó á millilandaflugi á
flugvellinum af þessum sökum.
Vélin lenti á Keflavíkurflugvelli kl. 15:00 og tólf
mínútum síðar voru farþegar og áhöfn vélarinnar,
321 maður, farin frá borði. Um klukkustund eftir
að sprengjan átti að springa hófu sprengjuleit-
arsveitir lögreglunnar og Landhelgisgæslunnar
leit. Leitin stóð enn yfir þegar Morgunblaðið fór í
prentun en engin sprengja hafði þá fundist. Vara-
litur, sem talið er víst að hótunin hafi verið rituð
með, fannst hins vegar skammt frá salerninu.
Gistu hér á landi í nótt
Vélin var á leið frá Frankfurt í Þýskalandi til
Chicago í Bandaríkjunum. Í samtölum Morgun-
blaðsins við nokkra af farþegum vélarinnar kom
fram að brottför frá Frankfurt hafði seinkað veru-
lega. Klukkan 14:14 barst Flugmálastjórn í
Reykjavík neyðarkall frá flugstjóra flugvélarinn-
ar. Vélin var stödd um 330 sjómílur suð-suðvestur
af Keflavík. Í fréttatilkynningu frá Flugmála-
stjórn kemur fram að flugstjórinn óskaði fyrst eft-
ir nauðlendingu vegna skemmdarverks um borð.
Um tuttugu mínútum síðar tilkynnti hann að um
sprengjuhótun væri að ræða.
Mikill viðbúnaður var á Keflavíkurflugvelli og
víðar vegna lendingar vélarinnar. Almannavarnir,
lögregla, landhelgisgæsla og sjúkrahús voru sett í
viðbragðsstöðu og björgunarsveitir Landsbjargar
á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu kallaðar
út. Í fréttatilkynningu frá Landsbjörgu kemur
fram að 600 björgunarsveitarmenn fengu boð og
um 70 fóru á vettvang á 25 bílum. Eftir lendingu
var flugvélinni ekki ekið upp að flugstöðinni held-
ur látin standa á flugbrautinni. Þegar farþegar og
áhöfn voru komin frá borði var þeim ekið í flug-
skýli og gerð á þeim vopnaleit áður en þeim var
ekið yfir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Fólkið gisti
í nótt á hótelum í Keflavík og í Reykjavík.
Mikill viðbúnaður vegna sprengjuhótunar í júmbó-þotu United Airlines
Morgunblaðið/RAXSprengjusveitir lögreglu og Landhelgisgæslunnar hófu leit í flugvélinni rúmri klukkustund eftir að hún lenti.
Bandaríska alríkislögregl-
an tekur við rannsókninni
gerir kröfu um að formaður lands-
sambandsins, Guðmundur Gunnars-
son, taki sæti í miðstjórn, en hann
tók ekki þátt í kosningum til mið-
stjórnar á ASÍ-þingi í nóvember sl. í
kjölfar mikils ágreinings. RSÍ sækist
jafnframt eftir varamanni í mið-
stjórn. Samkomulag varð um það á
síðasta ASÍ-þingi, að RSÍ fengi aftur
sæti aðalmanns í miðstjórn þegar
kosið yrði á ársfundinum nú. Skv.
heimildum Morgunblaðsins mun það
koma í hlut eins af sjö fulltrúum
Starfsgreinasambandsins í mið-
stjórninni, að víkja fyrir fulltrúa
RSÍ. Tekist er á um það innan
Starfsgreinasambandsins hvort
fulltrúi af landsbyggðinni eða úr svo-
nefndum Flóabandalagsfélögum á
höfuðborgarsvæðinu verði látinn
víkja sæti fyrir formanni RSÍ og
jafnframt er mikil andstaða við það
innan sambandsins að RSÍ verði lát-
ÁTÖK eru komin upp á ársfundi ASÍ
vegna kosninga sjö aðalmanna og
fjögurra varamanna í miðstjórn, sem
fram fer í dag. Rafiðnaðarsambandið
ið eftir eitt af fjórum sætum vara-
manns. Flóabandalagsfélögin eiga
fjóra aðalmenn í miðstjórn en lands-
byggðarfélögin þrjá.
Tekist var á um málið á fundi
framkvæmdastjórnar Starfsgreina-
sambandsins í gærkvöldi. Fundur
var einnig haldinn í kjörnefnd árs-
fundarins í gærkvöldi og skv. upplýs-
ingum blaðsins var gert ráð fyrir að
reynt yrði að ná sáttum fram eftir
nóttu. Ef samkomulag næðist ekki,
mætti búast við hörðum átökum við
miðstjórnarkjör í dag.
Óvíst var talið í gærkvöldi hvort
þessi átök hefðu einhver áhrif á kjör
varaforseta ASÍ, sem einnig fer fram
í dag, en að mati heimildarmanna
blaðsins hafa flestir gengið út frá
því, að Halldór Björnsson verði end-
urkjörinn í það embætti.
Fyrsti ársfundur ASÍ haldinn í Reykjavík
Átök blossa upp um
kjör í miðstjórn
Grunnlífeyrir/10–11
TOLLGÆSLAN í New York tók yf-
ir 130 þúsund e-töflur í fórum
tveggja bandarískra kvenna sem
höfðu haft viðkomu á leið sinni frá
Amsterdam á Keflavíkurflugvelli.
Jóhann Benediktsson, sýslumaður á
Keflavíkurflugvelli, segir að efnin
hafi aldrei farið frá borði flugvélar-
innar og málið hafi verið upplýst af
bandarísku tollgæslunni.
Götuvirði skiptir
hundruðum milljóna kr.
Hann segir að götuvirði efnanna
hafi numið nokkur hundruð milljón-
um króna. Þetta átti sér stað í júní í
fyrra og í október sama ár voru gerð-
ar upptækar 30-40 þúsund e-töflur í
Baltimore af þýskum mönnum sem
millilentu hér á landi á leið sinni frá
París. Jóhann segir að hvorki far-
angurinn né smyglararnir hafi kom-
ið inn í landið.
Hann bendir á að með tilkomu
Schengen-samkomulagsins haldi
tollgæslan á Keflavíkurflugvelli uppi
persónueftirliti og ekkert sé því til
fyrirstöðu að embættið geri tilvilj-
anakennda leit í farangri jafnvel þótt
farþegar fari einungis í biðsal flug-
stöðvarinnar. „Við höfum vitað af því
að fíkniefni hafa verið að streyma frá
Evrópu um flugstöðina til Banda-
ríkjanna. Auðvitað reynum við að
sporna gegn því og við viljum að
sjálfsögðu ekki að Keflavíkurflug-
völlur verði ákjósanlegur tengiflug-
völlur fyrir eiturlyfjasala,“ segir Jó-
hann.
130 þús-
und e-töfl-
ur fóru
um Ísland
LÍTIÐ hefur miðað í samningavið-
ræðum Þroskaþjálfafélagsins við
Reykjavíkurborg, launanefnd sveit-
arfélaga og ríkið og stefnir allt í að
boðað verkfall þroskaþjálfa 1. júní
skelli á. Sólveig Steinsson, formaður
Þroskaþjálfafélagsins, segir að mjög
hægt miði í samkomulagsátt. Verk-
fall fjörutíu og fjögurra þroskaþjálfa
hjá Reykjavík hefur nú staðið yfir í
11 daga og verkfall 200 þroskaþjálfa
hjá ríkinu og 45 hjá sveitarfélögum
hefst á föstudag náist ekki samning-
ar fyrir þann tíma. „Það er ekkert í
stöðunni í dag sem segir mér að það
verði eitthvað öðruvísi en það verði
verkfall, því miður,“ segir Sólveig.
Boðað verkfall 1. júní mun hafa
þau áhrif að þroskaþjálfun leggst
mjög víða niður á dagvistunarstofn-
unum, leikskólum, grunnskólum og
sambýlum, auk ýmiss konar þjón-
ustu sem þroskaþjálfar veita, en um
900 þroskaheftir búa á sambýlum
eða stofnunum.
Verkfall þroskaþjálfa
Árangurs-
lausir fund-
ir í deilunni
RÁÐIST var á mann við
Grettisgötu í gærkvöldi og
hann stunginn með hnífi í síð-
una. Maðurinn var fluttur á
slysadeild í sjúkrabíl og að
sögn lögreglu blæddi talsvert
úr honum.
Lögreglan handtók í gær-
kvöldi einn meintra árásar-
manna en talið er að fleiri hafi
átt hlut að máli. Árásin átti
sér stað inni á heimili manns-
ins en fékkst uppgefið hvort
hvort fíkniefni blönduðust í
málið. Lögreglan leitaði í gær-
kvöldi þeirra sem grunur lék á
um að hefðu átt þátt í ódæð-
inu.
Einn hand-
tekinn
eftir hníf-
stungu